Lesbók Morgunblaðsins - 14.02.1987, Side 13
Qierdkee
Amerískt fagtímarit segja Cherokee
vera einn besta torfærubíl í sínum flokki.
Það er nokkuð til í því; hvað aksturseig-
inleika og þægindi varðar, þarf hann
ekki að óttast samkeppni, a.m.k. ekki
frá hinum amerísku stallbræðrum sínum.
En verið gæti að hlutfallslega hátt verð
þessa bíls geri honum erfitt fyrir með
að ná fótfestu á evrópska markaðnum.
Lada
Nlva
Mikil eftirspum var eftir Lada Niva
þegar þessi velheppnaði bíll kom fyrst á
markað. í dag hafa þó japanskir sam-
keppnisaðilar stolið senunni frá honum.
Hvað útlit snertir skilur bíllinn ekki sér-
lega mikið eftir sig en engu að síður
hefur hann reynst góður til síns brúks.
Lancia
Priaaiia4WD
Að einu leyti er þessi sídrifna aldrifs-
gerð af Lancia óvenjuleg. Snúningsvægi
tveggja lítra 115 hestafla mótorsins er
skipt þannig að meirihluti aflsins, eða
56%, lenda á framhjólum en 44% á aftur-
hjólum. Þar að auki er möguleiki á
driflæsingu milli fram- og afturáss.
Ddte HF4WI)
Lancia skartar sínu besta í þessari
gerð. Mótorinn er 2 lítra með túrbínu
og millikælingu og hefur einnig tvo titr-
ingsdeyfandi hjámiðjuása til þess að
mýkja ganga vélarinnar. Drifútfærslan
er sú sama og í Prisma 4WD en að auki
er læsanlegt Torsen mismunadrif í aftur-
ás. Með þessum sportbíl, sem í venjulegri
útgáfu afkastar 165 hestöflum, hefur
Lancia komið sér upp bíl sem er líklegur
til að gera usla meðal rallbíla í heims-
meistarakeppninni. Þeir hjá Lancia
vonast líka til þess að Delta HF 4WD
færi þeim heimsmeistaratitilinn 1987 til
Torino.
Y104WD
í samræmi við nýjustu stefnu Lancia,
að í hvetjum flokki skuli fyrirfínnast
bíll með aldrifi á lá Audi, má nú líka fá
þennan gæðasmábíl með aldrifi. Reyndar
er hér aðeins um ódýrari lausnina að
ræða, þ.e. tengjanlegt afturdrif. Ókost
þessarar 44 hestafla útfærslu er helst
að fínna í háu verði hennar.
Mazda
323 luriK) 4WD 16V
Með þessum bíl hefur Mazda tekist
að verða fyrstum bílaframleiðenda til að
framleiða aldrifsbíl með sídrifi í þessum
stærðarflokki. 16 ventla túrbínumótor
sér um að koma bílnum áfram.
Mercedes
260/300 4matic
Þegar Daimler-Benz tekur sig til og
hannar aldrifínn fólksbíl má búast við
tvennu: Annars vegar mikilli fullkomnun
í drifbúnaði, hins vegar háu verði. Báðar
þessar væntingar voru uppfylltar með
tilkomu 4matic. Um er að ræða nokkurs
konar sídrifinn búnað sem tengir fram-
drif við afturdrif á sjálfvirkan hátt þegar
þörf er á. Þegar aldrifið er tengt, samein-
ar Benzinn alla kosti aldrifínna fólksbíla
með sídrifi.
G-ModeU
Benz-jeppann er hægt að fá í fjölmörg-
um útgáfum, styttri eða lengri gerð, með
húsi eða blæju og með mótorum allt frá
fjögurra strokka dísel upp í 2,8 lítra
bensín. Hvað aksturseiginleika varðar,
þá komast fáir jeppar með tærnar þar
sem hann hefur hælana. Aðeins Range
Roverinn hefur e.t.v. upp á mýkri fjöðrun
að bjóða. Að fara að hæla torfærueigin-
leikum Benz-jeppans væri sama og að
bera í bakkafullan lækinn. Á næsta ári
eru nokkrar breytingar fyrirhugaðar á
G-módelinu, m.a. verða Daimler-Benz
mótorar af nýju kynslóðinni teknir í
gagnið.
Mitsubishi
Pajeroinn er einn vinsælasti japanski
jeppinn. Sennilega er það í og með vegna
góðs árangurs í Paris-Dakar-rallinu. Frá
síðasta hausti hefur verið hægt að fá
bílinn með nýrri gerð 2,5 1 díselvélar
með túrbínu, auk mismunandi lengda
og yfírbygginga.
Allt að 7 manns komast fyrir í þessum
japanska geimvagni. Útfærsla aldrifsins
er að vísu einföld en virkar vel. Tveggja
P§||§§|
lítra 102 hestafla bensínmótorinn mætti
hafa meiri seiglu, en nú er hins vegar
kominn á markað 1,8 lítra, 75 ha
túrbódíselmótor sem bætir úr þessu at-
riði.
L300 4WÐ
Þetta er lausnin á sendiferðabíl fyrir
erfíðar aðstæður. Yfirbyggingin kemur
frá L 300 bílnum en undirvagninn er
fenginn frá Pajero-jeppanum. Þetta er
sterkur sendibíll sem kemst líka vand-
ræðalaust hratt yfir þegar með þarf.
Nissan
Patrol
Nissan Patrol er rúmgóður jeppi, fæst
sem styttri eða lengri gerð og með þrem-
ur gerðum mótora, bensín, dísel og
túrbódísel.
Porsche
959
Engin útfærsla á aldrifi er jafn full-
komin og í Porsche 959. Notast er við
fullkomnustu rafeindatæki til þess að
deila aflinu á fram- eða afturás eftir því
hvar þess er þörf.Ákveðið hefur verið
að framleiða heldur fleiri eintök af 959
gerðinni en þessi 200 sem áætlað var
að framleiða í upphafi. Fyrirhugað er
að setja þennan búnað seinna í 911
Turbo gerðina.
PALMI EYJÓLFSSON
Við Markarfljót
A milli Hlíðar og Merkurnes
margoft á þorra hart hann blés
og þyrlaði upp þurrum sandi.
Jökulgrátt Fljótið fellur hér
fegurð straumvatnsins enginn sér
þar sem það liðast með landi.
Um blámalaraura það byltir sér
af bökkum sínum það sneiðir sker
og flæðir um iðgræn engi.
Þótt stundum renni þaðhægt oghljótt
í ham fer það líka og verður Ijótt
og myndar þá mórauða strengi.
Hér völdu sér leiðir vatnamenn
með víkingseðli, en gætni í senn
á fríðum, fjörmiklum klárum.
Hjá ófærum skyldi ætíð sneitt
með aðgát var hesti í straumi beitt
í ferðum áður á árum.
Þó að það reyndi á þrek og kjark
menn þráðu ogglöddust við vatnaslark,
gleymdist þá stund og staður.
Sá sem um hættur af farsæld fór,
í fólksins augum varð maður stór.
Hjörtun vann hestamaður.
Höfundurinn býr á Hvolsvelli
JON STEFÁNSSON
Beðið eftir
Graal
sem
vængjað Ijóshaf
í heilögu stríði
gegn myrkrí
veifandi
logandi sverði áj
fiðruðu baki mót
framúrveltandi ófreskjum
hugans
ég færi þér orðin
já
og ég ferðast með nóttinni
vopnaður fiðrildaháf
til að fanga tunglið
Höfundur er bókmenntafræðinemi í Háskóla
islands
HELGA
JÓHANNSDÓTTIR
Blekking
I skini logans
sá ég mynd
þína
flökta um vegginn
breiða úr sér
stækka
útréttar hendur
fálmuðu
eftir holdi
þínu
grípu í tómt
hendur
á valdi blekkinga
tómið óendanlega
færði mér myrkrið
að huggun
Barn
Sólin skín
á lítið barn að leik
í hvítum sandi
Sakleysi heimsins
sól lífs míns
tvær mjúkar barnshendur
fullar af heitri sól
Höfundurinn er sjúkraliöi í Reykjavík
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 14. FEBRÚAR 1987 13