Lesbók Morgunblaðsins - 10.10.1987, Blaðsíða 9
JAGUAR XJ12
SOVEREIGN
er í þriðja sæti með 6 stig. Á
myadinni er hann kominn með
kantaðar framlugtir, sem mörgum
þykir til lýta, en Sovereign fæst
þó áfram með þeim kringlóttu og
eru þau stig, sem Jaguar fær hér
miðuð við þá útfærslu. Að öðru
leyti hefur þessi gerð verið
framleidd óbreytt síðan 1967.
Jaguarinn er sígild viðmiðun,
orðinn einskonar klassík og jafn
fallegur nú og fyrir 20 árum.
BMW
730-750.
er í öðru sæti með samtals
9 stig. Nýja sjöan hefur
vakið mikla athygli og
þykirjafnvel ný viðmiðun
i lúxusfíokki. Frábær
hönnun að innan sem utan
einkennir hann. Þótthann
sé nokkuð stór, 4,91m á
lengd, leynirhann
stœrðinni, því hlutföllin í
honum eru svo góð.
kominn tími á sjöuna og sá nýi hefur tekizt
frábærlega. Línur hafa fengið aukna mýkt
og þokka, en BMW-karaktemum haldið til
fulls. í sumar kom svo 12 strokka útgáfan,
auðkennd með 750 og vegna þess að hann
er ögn lengri, er hann ennþá glæsilegri.
;
Það verður að segja Þjóðveijum til hróss,
að þeir halda í ákveðinn svip, sem er þeirra
eigin og einnig reynir hver framleiðandi þar
að halda andlitinu. Þannig verður Benz allt-
af Benz, þótt breytingar eigi sér stað og
það sannast á Benz 300 CE, sem kom á
markað á þessu ári. Þessi gerð vakti t.d.
feykilega athygli á bílasýningunni í Frank-
furt og hann varð stigahæstur hjá þeim
átta, sem Lesbókin spurði um bezta útlitið
í tilefni þessarar umfjöllunar. Af niðurstöð-
unum virðist einnig mega ráða, að_ þýzki
skólinn í bflhönnun höfði verulega til íslend-
inga. Með smávegis endurbótum á 230-300
línunni, svo sem auknu kílformi, hefur
Mercedes-Benz tekizt að hanna framúrskar-
andi bíl, sem verkar mjög traustvekjandi,
en það er merkilegt að í bflaiðnaðinum hafa
Benz og BMW aldrei verið stældir alvar-
lega; ekki einu sinni í Japan. Þjóðveijar
framleiða raunar fleiri mjög vel teiknaða
fólksbfla, Opel Omega til dæmis, og Scorpio
frá Ford.
Ný gerð af Evrópubfl, sem fetar hinn
gullna meðalveg millistærðarinnar, er sam-
vinnuverkefnið Saab 9000 - Fiat Croma -
Lancia Thema- Alfa 164. Þetta eru bflar í
svipuðum verðflokki og BMW 520 og Volvo
740, en allir með ffamdrifi og gefa kost á
afimiklum vélum. Að flestu leyti eru þessir
bflar mjög nútímaleg lausn á vel búnum
bfl. Alfa 164 kom á markað fyrst á þessu ári
í glæsilegum búningi frá Pininfarina. Mjög
nærri þessum bflum í útliti og einnig prýði-
lega teiknaður er Renault 25, flaggskipið á
þeim bæ. Volvo 740-760 er að ýmsu leyti
góður frá hönnunarsjónarmiði; traustvekj-
andi, rúmgóður með vel formuðum sætum.
Línumar eru í heild nokkuð hvassar og
kannski vantar aðeins herzlumun til þess
að gera hann virkilega fallegan. Það hefur
verið reynt með ögn mýkri framenda á
760-gerðinni, en skrefið er of smátt til að
skipta sköpum. Það verður þó að segja
Volvo til hróss, að hann heldur alltaf sínum
svipeinkennum.
HlNIR ANDLITSLAUSU
Það leiðinlegasta við þróun blflsins uppá
síðkastið, er að séreinkennin hverfa og fleiri
og fleiri tegundir verða svo líkar, að þær
þekkjast ekki í sundur; það er engu líkara
en allt sé staðlað. í þessu efni eru Japanir
verstir. Þegar litið er á straum japanskra
bfla í umferðinni kemur berlega í ljós, hvað
þeir era hver öðram líkir. Evrópubflamir
halda nokkuð fast í sérstakt svipmót; þó
er ekki mikið eftir af því í milligerðunum
hjá Peugeot,309 og 305 t.d., og ekki heldur
í Fiat Duna, Ford Orion, Opel Corsa, Re-
nault 9 og 11, Vauxhall Nova og Volks-
wagen Polo. Austantjaldsframleiðslan er svo
aftarlega á merinni, að varla er hægt að
taka hana með í reikninginn; sá nýi Lada
BMW 635
hlaut 2 stig. Þetta er sportútfærsla, sem komin er nokkuð til ára sinna, en
teikningin hefurstaðizt vel tímans tönn.
CADILLAC ALLANTE
Hlaut 2 stig. Þessi viðhafnarbíll frá General Motors er að margra dómi bezt
teiknaður allra amerískra bíla núna ogfegursti Cadillacfrá upphafí, enda
er höfundurinn Pininfarina, sem þykireinn snjallasti bílateiknari samtímans.
LANCIA Y10
fékk tvö stig. Þessi ítalski smábíll hefur alveg eigið svipmót og er ótrúlega
rúmgóður að innan miðað við smæð hans að utan.
Samara er þó það langbezta, sem sést hefur
úr þeirri áttinni. Samt verður að segja það
austantjaldsbílum til hróss, að þeir hafa
ekki týnt séreinkennum sínum og eru að
því leyti hátíð hjá mörgum þeim japönsku,
sem keppast um meðalmennskuna og hafa
alveg týnt andlitinu, ef þeir hafa þá ein-
hvemtíma haft það. Verst er ástandið hjá
Nissan með næstum óþekkjanlega bfla eins
og Sunny, Bluebird, Stanza, Maxima og
Skyline. Litlu betri er Toyota, sem teflir
fram Tercel, Carina, Camry og Cressida.
Aðeins innvígðir geta þekkt þá og greint
frá Nissan-framleiðslunni. Sama má segja
um Isusu Aska, Mazda 323 og Suzuki
Swift. Samt era þetta ágætir og vandaðir
bflar fyrir sitt verð og með þessu er alls
ekki verið að gefa þeim þá einkunn, að
þeir séu illa teiknaðir eða ljótir. Þvert á
móti era þeir allir snotrir, sumir sætir, jafn-
vel dísætir. En umfram allt: AUir eins.
Amerískir bflar halda oftast sinum sérein-
kennum, en eru sjaldnast jafn vel teiknaðir
og beztu Evrópubflamir. Framfarimar þar
eru samt ótvíræðar og lítið um karakter-
lausa bfla; Oldsmobile Firenza, Pontiac
1000, Plymouth Gran Fury og Chevrolet
Spectrum hafa þó af litlu að státa.
Bflateiknarar í Detroit, sem nú þykir
nauðsynlegt að séu af ítölsku bergi botnir,
geta þó unað glaðir við bfla eins og Chrysl-
er LeBaron Coupé, Buick Electra Park
Avenue, Buick Skylark og Oldsmobile Tor-
onado, sem er virkilega vel teiknaður bfll.
Ford hefur stigið risaskref áfram hvað hönn-
1 un áhrærir og nægir að nefna Thunderbird,
sem er uppá sitt bezta núna; einnig Ford
Taurax LX, sem heitir Scorpio í Evrópu og
er glæsilega teiknaður en ekki að sama
skapi frumlegur, því formúlan er frá Audi
100. Það er dálítið fyndið, en um leið dæmi-
gert, að nú er Audi með 12 strokka glæsi-
vagn á leiðinni; bfl sem á að keppa við nýju
12 strokka sjöuna frá BMW - en virðast
eftir teikningum að dæma vera stæling á
Ford Scorpio.
Fleiri allvel teiknaða ameríska bfla mætti
nefna, en ver gengur með þær gerðir sem
minni eru og ódýrari. Með því bezta sem
áunnizt hefur í bandarískum bflaiðnaði era
framfarir í jeppunum. Bæði Bronco frá Ford
og Cherokee og Wagoneer frá AMC hafa
tekið mið af þeim japönsku; era nú minni
og miklu fágaðri en áður, en halda samt
sínum karakter.
JAPAN: HONDA í SÉRFLOKKI
Um meiripart japanskra bfla má með
góðri samvisku segja, að þeir era afskaplega
óaðfinnanlegir. En Japönum er margt betur
gefíð en framleg hugsun og það er afar
sjaldgæft að ný hönnun eigi upptök sín
austur þar. Nokkra japanska bfla má þó
nefna, sem geta talizt virkilega vel teiknaðir.
Af einstökum framleiðendum í Japan er
Honda í sérflokki hvað útlit snertir. Flestar
gerðir af Honda hafa haft sérs-
takt og auðþekkjanlegt útlit og sama má
segja um Subaru. Framanaf hafði hann
mjög sérstæðan karaktér, en jafnframt því
sem hann hefur stækkað og fullkomnast,
hefur útlitið færst nær meginstraumnum
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 10. OKTOBER 1987 9