Lesbók Morgunblaðsins - 10.10.1987, Page 13
Fílahjörð Ieitar sér að náttstað í Ambroseli.
Ung fílakýr ásamt afkvæmi sínu í hlíðum Mount Kenya.
landsvæðum, en ekki beit hún á fílana frem-
ur en nautgripapestin og gátu þeir því lifað
á þessum svæðum óáreittir um langt skeið
og byggt upp stofn sinn.
Ekki eru til nákvæmar tölur yfír fjölda
afrískra fíla, en árið 1986 var giskað á að
heildarfjöldinn væri 700.000—1.000.000.
Kann mörgum að fínnast það mikill fjöldi,
en það horfír öðru vísi við, sé þess minnst
að árið 1985 er talið að amk. 60 þúsund
fílar hafí verið drepnir, en viðkoma hjá fílum
er ekki mikil.
Er nokkuð stórkostlegra en að fara á
fætur fyrir birtingu í Amboseli, einum af
þjóðgörðum Kenya og fylgjast með er dýrin
vakna til nýs dags? Auk fjölmargra dýrateg-
unda svo sem ljóna, blettatígra, buffalóa
og antilópa lifa þar fjölmargar hjarðir fíla.
í Amboseli er talið að séu um 600 fílar, sem
þó fer ört fækkandi, eins og annars staðar.
Yfirleitt lifa fílar í misstórum hjörðum og
eru um 15—25 fílar í hverri hjörð. Hjörð-
inni er stjómað af ættmóður, sem hefur
með sér eina eða tvær systur sínar, dætur
þeirra og svo bamaböm á ýmsum aldri.
Má sjá svo til alla aldursflokka kvenffla í
hverri hjörð, en karlfíla aðeins upp að kyn-
þroskaaldri, t em hefst um 20—25 ára aldur.
Þá er karlfílunum komið út úr hópnum og
eftir það verða þeir að láta sér lynda að
lifa einir sér, en þó oftast í nálægð hjarðar-
innar. Viðkoma hjá fílum er ekki mikil, því
þeir verða seint kynþroska, meðgöngutíminn
er 22 mánuðir og 3—4 ár líða áður en getn-
aður getur átt sér stað á ný. Þannig er
ólíklegt að fílakýr geti af sér fleiri en 10—12
kálfa um ævina. Kálfamir fæðast án skögul-
tanna, en þær birtast á öðru ári, og stækka
alla ævi fílsins. Nú á dögum er sjaldgæft
að sjá fíla með stórar skögultennur, því
þeir eru eftirsóknarverðari í augum veiði-
manna og veiðiþjófa. Stærstu skögultennur
sem vitað er um era af svonefndum Kili-
manjaro-fíl og vógu tennumar samtals
462,5 pund, eða sú þyngri 237,5 og hin 225
pund. Talið er að Kilimanjaro-fíllinn hafí
dáið árið 1898 og verið um það bil 62 ára
gamall. Tennur hans era geymdar í breska
náttúragripasafninu í London. Annar fíll,
sem nefndur var Ahmed, lifði í Marsabit í
Kenya og var einnig með gífurlega stórar
tennur, þótt þær vegi aðeins hálft á við
tennur Kilimanjaro-fílsins, eða 148 pund (67
kg) hvor. Ahmed var svo eftirsóttur af veiði-
þjófum, að forseti Kenya gaf út sérstaka
tilskipan þess efnis, að Ahmed skyldi hafa
sérstakan lífvörð síðustu æviárin. Ahmed
dó 1974 úr elli, um það bil 60 ára að aldri.
Bein hans era nú varðveitt í þjóðminjasafn-
inu í Nairobi.
Fækkun fíla er orðin mörgum náttúra-
vemdarsamtökum áhyggjuefni. Jafnvel þótt
tölur frá hinum ýmsu löndum séu ekki ná-
kvæmar, þá virðist allt stefna í sömu átt,
þ.e.a.s. mikla og hraða fækkun fíla, eins
og raunar allra villtra dýra.
Fflum hefur t.d. fækkað á síðastliðnum
áratugum, svo sem hér segir: Zaire 60%
fækkun, Kenya 80% fækkun, Súdan 90%
fækkun, Sómalía nálægt 100% fækkun,
Uganda 85—90% fækkun.
í Uganda fækkaði fílum úr 20 þúsund í
3 þúsund (85%) undir stjóm Idis Amin og
víst er að ekki hefur þeim fjölgað í átökum
undanfarinna ára, því fréttir þaðan herma
að nánast öllum villtum dýram hafí verið
útrýmt. Svo virðist sem hermenn hinna
stríðandi afla hafí hreinlega slátrað þeim
dýram sem urðu á vegi þeirra, og t.d. hafí
heilu herdeildimar lifað á villibráð í Murchi-
son Falls-þjóðgarðinum í Uganda, er þær
vora í þjálfun fyrir síðustu byltingu. Þessi
þjóðgarður var eitt helsta griðland ffla í
byijun aldarinnar. Jafnvel Fflabeinsströndin
getur ekki lengur borið nafn sitt með rentu,
því þar era fflar nánast útdauðir, og aðeins
fáeinar hjarðir reika þar um á afskekktum
stöðum.
í Tanzaníu hefur fílum fækkað gífurlega
sem annars staðar. Sem dæmi má nefna,
að fyrir fáeinum áram var vitað um a.m.k.
100 þúsund fíla í Selous-griðlandinu, sem
var talinn mesti fyöldi fíla á einum stað í
Afríku. Á þessum fáeinu áram hefur þeim
verið fækkað um tugi þúsunda. Þar hafa
verið að verki sportveiðimenn og veiðiþjóf-
ar. Það var ekki fyrr en í desember 1986
að Tanzaníustjóm setti lög sem banna sölu
á fílabeini á fíjálsum markaði og nú hefur
Tanzaníustjóm einkaleyfí á sölu á fílabeini.
Þess má geta að í Kenya vora nýlega gerð-
ar upptækar rúmlega 200 fílatennur sem
verið var að smygla út úr Tanzaníu.
Fflabein virðist vera eftirsótt vara um
allan heim eftir verðinu að dæma. Verðið á
óunnu fflabeini á heimsmarkaði er allt að
120 Bandaríkjadalir kflóið (tæplega 5 þús-
und íslenskar krónur). Hver tönn getur vegið
frá fáeinum kflóum og upp í 15—20 kg.
Þótt stærri tönnum fækki sífellt, er það ljóst
að góður hagnaður er af fflabeinsviðskipt-
um, ekki síst fyrir veiðiþjófa, þótt þeir fái
sennilega minnst í sinn hlut.
í Kenya er bannað að selja fílabein og
hluti sem gerðir era úr fflabeini eða húð
villtra dýra. Oft má heyra ferðamenn falast
eftir þessum hlutum í verslunum og á götu-
mörkuðum, og oft má sjá götusala draga
laumulega upp úr vasa sínum smáhluti,
margvafða inn í óhreint bréf, og bjóða kúnn-
anum þessa forláta muni á „alveg sérstak-
lega“ góðu verði. Ósjaldan era þessir gripir
gerðir úr úlfaldabeini eða kúabeini og ef
sölumanninum tekst vel upp hefur hann góð
mánaðarlaun, ef ekki meira, upp úr krafs-
inu. Ólöglegur markaður fínnst sjálfsagt í
Kenya eins og annars staðar og era ferða-
menn oft naskir á að fínna hann. Því miður
era upplýsingar til ferðamanna um þessi
mál af skomum skammti, og fæstir gera
sér grein fyrir hvílíkar hörmungar mörg
dýrin hafa mátt þola til að verða að þessum
fánýta skrautvamingi. Það era ekki einung-
is efnishyggjumenn, veiðimenn, veiðiþjófar
og hermenn sem ógna lífí fflsins, heldur
einnig bændur og ferðamenn. Það þrengir
sífellt að fílunum og öðram dýram, því stöð-
ugt er þörf fyrir aukið ræktunarland til að
geta mætt fæðuþörf þessara vanþróuðu
þjóða Afríku með sína gífurlegu fólksfjölg-
un. Því meira land sem er tekið til ræktunar
þeim mun minna svæði er fyrir hin villtu dýr.
Fflar eru svæðisbundnir, þ.e. halda sér á
ákveðnum svæðum, eins og mörg önnur
dýr. Fílahjarðir eiga því til að sækja reglu-
lega inn á nýræktir, traðka allt niður og
éta stóran hluta uppskerannar, hafí það
svæði áður verið hluti af „konungsdæmi"
viðkomandi hjarðar. Því miður verður þetta
oft til þess að gripið er til byssunnar, því
ekki sættir bóndinn sig við að horfa á eftir
hverri uppskeranni á fætur annarri ofan í
maga fflanna.
Hættan af ferðamönnum stafar ekki ein-
göngu af græðgi þeirra í skrautmuni úr
fflabeini, heldur einnig af átroðningi þeirra
í þjóðgörðunum. Sífellt fleiri hótel era byggð
í og við þjóðgarðana og bflaumferð eykst
stöðugt. Álgengt er að ferðamenn sem eiga
skamma viðdvöl fljúgi til þjóðgarðanna,
staldri við í stundarkom og brani þá um
garðana í smárútum. Þetta er mörgum
áhugamönnum um vemdun villtra dýra
áhyggjuefni. Til dæmis á blettatígurinn
(cheetah) oft í erfiðleikum með að veiða sér
til matar vegna umferðar. Það er að sjálf-
sögðu spennandi og eftirsóknarvert að sjá
kattardýr veiða, og ef eitthvert dýr er í
veiðihug má oft sjá fjölda bfla (oft allt að
15—20) aka í humátt á eftir því og eyði-
leggja þannig tilraunir dýrsins til að veiða
ofan í sig.
Aðferðir veiðiþjófa era misjafnar eftir
löndum, en þó era skotvopn algengustu
veiðitækin. Sums staðar era veiðiþjófar mjög
vel búnir vopnum og hafa til umráða mun
kraftmeiri byssur en þjóðgarðsverðimir, sem
mega sín því lítils þótt þeir standi veiðiþjófa
að verki. Annars staðar era notaðar eitur-
örvar til að drepa fflana og fer það eftir
hversu ferskt eitrið er, hvenær fíllinn deyr,
en dauðastríðið getur tekið margar vikur,
sé eitrið orðið gamalt. Einnig era notaðar
ýmsar gerðir af gildram, t.d. er ein gerðin
þannig að vírlykkja festist um fót fflsins en
við vírinn er festur stór trjádrambur. Því
meir sem fíllinn berst um þeim mun meira
herðist á vimum, sem skerst inn í hold fflsins
og veldur slæmum sáram. Lirfur og flugur
sækja í þau og valda sýkingu og kvalir
dýrsins verða miklar, en að lokum valda
sárin dauða fflsins. Þegar ffllinn deyr losnar
um skögultennumar innan stundar og þarf
lítið átak til að ná þeim.
Áður fyrr var fílshræið nýtt til hins ýtr-
asta, kjötið þótti herramannsmatur, skinnið
sútað og notað í töskur o.fl., úr skögultönn-
unum vora unnir ýmsir skrautmunir. Jafnvel
fílsfætumir vora stoppaðir upp og búnir til
úr þeim borðfætur, lampastandar, regnhlífa-
standar eða önnur viðlíka ósmekkleg
húsgögn. Nú til dags era fflshræin ekkert
nýtt, heldur skilin eftir handa hræætunum
til að gæða sér á.
Þegar fflar fínna látinn félaga verða þeir
mjög órólegir, safnast kringum hann, og
þukla hann með rönum sínum eins og þeir
séu að stijúka honum. Ef hann er nýlátinn
reyna þeir að reisa hann við, en ef það tekst
ekki taka þeir til við að dysja félaga sinn.
Sækja þeir greinar, sprek og gras og reyna
að hylja hann. Ef beinagrindin ein er eftir
bera þeir stundum beinin burt. Þessir greftr-
unarsiðir fílanna era mjög merkilegir og
hafa verið mikið rannsakaðir af dýrafræð-
ingum í þjóðgörðum Tanzaníu og Kenya.
Ýmsar tylliástæður hafa verið notaðar til
þess að geta drepið fíla. Menn hafa talað
um nauðsyn þess að „grisja“ stofninn, einn-
ig hafa veiðar í „vísindaskyni" verið stund-
aðar. Mönnum hefur jafnvel þótt
skynsamlegast að eyða heilu hjörðunum í
„vísindaskyni", því þá er enginn eftirlifandi
fíll „til að kjafta frá“, en fflar hafa gott
minni og geta miðlað ungum sínum og félög-
um af reynslu sinni. Þær hjarðir sem hafa
orðið fyrir áföllum af mannavöldum era því
styggari og illskeyttari í návist manna.
Margar sögur era til af fílum sem fela sig
í þéttum skógum á daginn, og voga sér
ekki út nema á nóttunni og hafa þannig
breytt lífsstfl sínum jrfír í lífsstíl næturdýra.
Þótt fflar séu ekki í bráðri útrýmingar-
hættu, eins og t.d. nashymingurinn, er
augljóst hvert stefnir ef ekkert er að gert
til að hindra hið látlausa fíladráp. Maðurinn
er skæðasti óvinur fílsins og meðan sóst er
eftir landi til ræktunar og skrautmunum
úr fflabeini er hætta á að innan fárra ára
verði eins ástatt fyrir fílnum og nú er fyrir
nashymingnum.
Hvað getur almenningur gert til að koma
í veg fyrir fækkun fíla? Eitt ráð er fyrir
hendi og teija margir umhverfísvemdar-
menn að það muni vera hvað áhrifarikast.
Það er einfaldlega að vekja athygli ferða-
manna og annarra á vandamálinu og hvetja
alla til að hætta að kaupa fflatennur og
skrautmuni úr fflabeini. Framboð á fílabeini
er háð eftirspum, og því færri ferðamenn
sem láta glepjast af þessum ólöglega sölu-
vamingi, þeim mun fleiri fílar sleppa við
að þola hörmulegan dauðdaga. Sé unnt að
fá fólk til að hætta að kaupa glingur úr
fflabeini er einhver von til þess að fleiri fflar
fái að lifa og þessum stórkostlegu dýram
verði ekki útrýmt af jörðinni.
Ella B. Bjarnarson er sjúkraþjálfari við Nairobi
Hospital í Kenya, en er nýflutt heim. Myndir
tók Helgi Torfason.
Heimildir:
SWARA árg. 1985-1987. Rit East African
Wildlife Society.
THE LAST SAFARI. Newsweek, ágúst 11
1986.
NATION, Kenyanskt dagblað, — ýmsar
greinar — 1986 og 1987.
AMONG THE ELEPHANTS. Ian og Oria
Douglas Hamilton.
THE ORPHANS OF TSAVO. Daphne
Sheldrick. '
J
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 10. OKTÓBER 1987 13