Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 31.10.1987, Qupperneq 7

Lesbók Morgunblaðsins - 31.10.1987, Qupperneq 7
GUÐBRANDUR SIGLAUGSSON: Orfeus úr draumi Um konuna sem leiðátti hjá brunninum læddist grunur um gítar í runna Hliðið var aftur og dyr stóðu á gátt Georg Trakl kyr eins og ungt lík hvftt lagði gnístandi andvaka tðnnum úr klóróformdraumi um eter í kókaínljóð Og Orfeus hrærði í lútu Orfeus hrærði í lútu Marmaragrár lagði tíminn af stað flaug oddflug ofar á eftir ofar varð gulltafla rist framandi þegjandi skugga og yst reis fallandi tónn með tign Orfeus steigfram öðrum ákveðnum fæti Og Orfeus steig ákveðnum öðrum fæti Framan af rökkri er Orfeus baðaður vængjum hann hrærir í lútu Meðal annarra orða heldurkonan sinn veg hverfur fyrir apríl og hafnar f júlí verður að draumi úr steini sem verður loks mugga Og Orfeus eins og úr draumi. Jorge Luis Borges Blindi maðurinn sem slær staf sínum hikandi í og rótar í tíma hefur nú einan drauminn ogþegir Hsmn hefur loks kastað af herðum sér píramfðum og spegillinn hnippir ekki framar í hann hann þennan fjölmenna guð sem renndi skipi af morgunvötnum þangað sem útlegðin beið hans eins og hallandi múr eða dreymt andlit dauðsfædds manns. Höfundurinn býr í Þýzkalandi. KARLÍNA HÓLM Haust Falla laufin eitt og eitt áfram þar til ekki neitt eftir er á einum hlyn ungan kveð ég sumarvin. Átti bjart og indælt vor upp óx fræ úr þröngri skor áður var þar ekki neitt nú uxu laufin eitt og eitt. Kaldur vetur kveður hljóðs kulna raddir sumaróðs nú er mál að ljúki leik loft er grátt en jðrð svo bleik. Elfur tímans áfram knýr annar dagur hreinn og nýr kemur bæði í koti og hðll kastar-á oss hvítri mjöll. Höfundurinn er starfandi hjúkrunar- fræðingur í Reykjavík. Bærinn í Haukadal í Biskupstungum 1898. Húsin munu flest hafa veríð rífin nálægt aldamótunum, þegar Greipur Sigurðs- son bóndi í Haukadal á árunum 1885-1910, endurbyggði bæinn. Kláffeija á Héraðsvötnum þjá Flatatungu. í baksýn er Silfrastaðafjall. Bærinn í Hriflu i Þingeyjarsýslu 1896. Hér má sjá all óvenjulegt byggingarlag. Fremst á myndinni er baðstofa, eldhús í miðið og loks búr. Þegar myndin var teiknuð, var ungur maður að alast upp / þessum bæ og átti síðar eftír að verða mikill áhrífamaður: Jónas Jónsson, sem löngum var kennd- ur við Hriflu. LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 31. OKTÓBER 1987 7

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.