Lesbók Morgunblaðsins - 30.09.1989, Síða 13
LESBOK
MORGUNBLADS I NS
30. SEPTEMBER 1989
FERDÍRIID
LESBÓKAR
Hvernig er að skipta á
heimili við fjölskyldu í
Belgíu?
í hverju felast heimilis-
skipti?
Er Glasgow borg
íslenskra ferðamanna?
Leigubílstjórinn bjarg-
aði málunum fyrir
Onnu Bjarnadóttur sem
fór — án vegabréfsárit-
unar — án þess að eiga
bókað hótelpláss með
næturlest til Búdapest.
Ungir eyja-
skeggjar.
göngutæki: Bátar, iijól og tveir
jafnfljótir. Og gist í iitlum hús-
um við jaðar frumskógarins.
Það er nóg að gera í eldhúsinu
þegar ferðamenn gista alla kof-
ana, og e.t.v. 6 manns bætast við
í mat og drykk hjá fjölskyldunni.
En eins til tveggja stunda bið eft-
ir glænýjum og listalega mat-
reiddum fiski, sem þú hefur valið
úr afla dagsins, er hverrar mínútu
virði. Máltíðin hefst svo ásamt
heimilisköttum og gestum þeirra
frá næstu bæjum. Auðvitað vilja
þeir sinn skerf af kræsingunum.
Hún heitir Tioman og er lítil
eyja 19 km löng og 12 km breið,
en þó stærst af mörgum ^máeyj-
um úti fyrir austurströnd Malasíu.
Gamlar sögur segja Tioman,
drekaprinsessu í álögum, sem
vegna ástarsorgar hafi orðið að
steini. Eyjan er lítt byggð, nokkur
smáþorp „Kampung“ eru á víð
og dreif meðfram strandlengj-
unni. Það eru fáir bílar á Tioman,
enda eini vegurinn á eyjunni, að-
eins tveggja km langur. Hann
liggur á milli fjarskiptastöðvar og
flugbrautar, með viðkomu á eina
hóteli eyjunnar. Þar hefur nútíma-
tæknin skotið rótum, með raf-
magni allan sólarhringinn, og
símasambandi við umheiminn.
Samgöngutæki eyjarskegga hafa
verið bátar og tveir jafnfljótir en
nú eru mótorhjólin að hefja inn-
reið sína.
Innfæddir eru múhameðstrúar
og bænaómurinn frá moskunni
heyrist um kyrrláta eyjuna. Fólk-
ið, sem er hlýlegt og mjög vina-
legt heim að sækja, lifir róleg-
heita lífi og stundar fiskveiðar.
Til hjálpar eyjarbúum og til áð
viðhalda byggð á eyjunni, veittu
stjórnvöld Malasíu innfæddum
aðstoð. Byggðir voru tveir til þrír
kofar, „bungalowar“, við heimili
þeirra. Þó fjöldi ferðamanna sé
ekki mikill, þá hafa kofarnir gefið
ungum sem öldnum atvinnu og
bætt lífskjörin.
Tioman er undur fögur og ós-
nortin, Sjórinn er tær og geymir
stórkostlega kórala og ógrynni af
fagurlitum fiskum. Pálmatrén
bera við himin á hvítum og mann-
lausum ströndunum. Stuttan spöl
upp frá strandlengjunni tekuí
óbyggt fjalllendið við þar sem
ævintýralegur frumskógargróður
og stórkostlegt dýralíf vex og
dafnar eins og það hefur gert frá
alda öðli.
Það tekur u.þ.b. þijár klst. að
ganga þvert yfir eyjuna til Kamp-
ung Juara, kattfiskaþorpsins. En
flestir koma fyrst til Kampung
Tekek, eðluþorpsins, með bát frá
meginlandinu, flugi frá Kuala
Lumpur eða Singapore, en þaðan
er aðeins hálftíma flug til eyjar-
innar.
Biðin eftir fisknum var hverrar
mínútu virði og það var svo sann-
arlega dvölin á fallegu Tioman
líka.
HRÖNN STVRLA UGSDÓTTIR
Hús inni í skóginum fyrir ferðamenn.
Undrafögur, ósnortin lítil
eyja. Kóralrif og fagurlitir fisk-
ar í blátærum sjávarbotni. Pál-
matré á hvítum, auðum strönd-
um. Frumskógur í fjalllendi.
Eitt hótel. Ein akbraut. Sam-
Upplýsingar: þriggja daga
dvöl, gisting í tvær nætur í
litlu húsi í skóginum kostar
frá Kuaia Lumpur eða
Singapore uin 15.000 kr.
Flogið er með Pelaugi
Air-flugfélaginu.
Paradís í Kínahafínu