Lesbók Morgunblaðsins - 03.03.1990, Side 9

Lesbók Morgunblaðsins - 03.03.1990, Side 9
nýs lífs er. Myndin er á Listasafninu í Rennes í Frakklandi. „Hinn nýfæddi" er eitt fegursta verk La Tours og óður til þess undurs sem fæðing í draumi heilags Jósefs byrgir engill í stúlkumynd fyrir kertaljósið, en kertaljós er einskonar kennimerki í verkum la Tours. Myndin er í Listasafninu í Nantes í Frakklandi. úruleg vera. í þessum myndum virðist La Tour við fyrstu sýn vera undir áhrifum ítalska barokkmálarans Caravaggios, þar sem báðir málararnir leggja áherslu á hversdagslegt raunsæi og sýna guðspjallafólkið sem al- þýðufólk. En þegar nánar er að gætt kemur í ljós að hlutverk ljóssins er alls ólíkt í verkum þeirra. í trúarmyndum sínum notar Caravaggio dagsbirtu sem áhrifamikla sviðslýsingu, þar sem hann með spili ljóss og skugga dregur fram þá þætti myndarinnar sem hann vitl leggja áherslu á. í rökkurverkum La Tours er sjálft ljósið hins vegar aðalatriði myndar- innar, eins konar forsenda fyrir tilurð hennar og táknar þar nálægð hins guðdómlega. I þessum verkum gerir La Tour meira út á litinn. Þar eru litimir djúpir og heitir, mik- ið er um rauða og brúna liti og leikur ljóssins er ákaflega blæbrigðaríkur. Oft er byrgt fyrir uppsprettu ljóssins af hendi eða öðrum líkamshluta sem gerir það að verkum að ljósuppsprettan virðist vera inni í myndinni og flæða út úr henni á móti áhorfandanum. Þessi lýsing ljær myndinni trúarlegan blæ jafnvel þó áhorfandanum sé ekki augljóst kristilegt inntak myndarinnar. Taka má sem dæmi myndina „Hinn ný- fæddi“, þar sem tvær konur klæddar að hætti alþýðukvenna þeirra tíma virða fyrir sér reifabam sem önnur þeirra heldur á. Ekkert gefur til kynna að þar sé komin María með Jesúbarnið, engin tákn þeirra eru sýni- leg. Guðspjallafólk La Tours ber aldrei geisla- bauga, englar hans aldrei vængi. Það er hin sérstæða birta, jafnvægi og friður sem ríkja í myndinni, sem em áhorfandanum vísbending um inntak hennar. María myndar jafnarma þríhyrning og er bamið grunnur hans. Kerta- loginn sem hin konan bregður hendi fyrir, dregur vangasvip hennar fram úr dökkum bakgrunninum og varpar mildri birtu á and- lit Maríu og bamsins. Algjör kyrrð og hreyf- ingarleysi ríkja í myndinni. Burtséð frá því að vera helgimynd, hefur málverkið einnig almenna merkingu sem staðfesting á því undri sem fæðing nýs lífs er. í málverkinu „Trésmiðurinn .Jósef“ má sjá eldri mann við smíðavinnu og unglingsdreng sem situr andspænis honum. Drengurinn held- ur á kerti og bregður annarri hendinni fyrir logann sem lýsir upp andlit hans og trésmiðs- ins og skapar óvenju einkanlegt og heillandi andrúmsloft. Hér er ljósið einnig vísbending um inntak myndarinnar. Unglingurinn Jesús fylgist með föður sínum við starf hans, starf sem hann Hörpuleikarinn er ágætt dæmi þess myndefnis Ia Tours, sem hann sækir í raunsæi daglegs lífs. Myndin er i lista- safninu í Nantes í Frakklandi. hefði ef til vill einnig lagt fyrir sig, ef honum hefði ekki verið ætlað annað. Það er athyglisvert að sjá nær geómetríska einföldun La Tours á persónum myndarinnar, hér er öllum aukaatriðum sleppt og formin einföld og hrein. Oft hafa verk hans yfir sér ótrúlega nútimalegan blæ og er ekki að ástæðulausu sem listhugtakið „kúbismi" hef- ur verið orðað í sambandi við stíl hans. Dagsbirtuverkin sýna, andstætt við hið trú- arlega inntak náttbirtumyndanna, hvers- dagsleg atvik úr daglegu lífi eða genre- myndir, sem svo hafa verið nefndar. Þar bregður fyrir dauðlegum persónum, stundum klæddum viðhafnarmiklum 17. aldar búningum og lýsir málarinn þar kannski yfir- stéttarumhverfí sínu. Höfundur er listfræðingur og starf- ar í Listasafni fslands. LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 3. MARZ 1990 f

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.