Lesbók Morgunblaðsins - 01.09.1990, Side 6
Séra Snorri hefur orðið
Páli hugleikinn. Mynd
hans afþessum fræga
galdraklerki er til
hægri, en á hinni er einn
draugurinn, sem Snorra
varsendurað vestan og
hann kvað niður í kvíun-
um.
LISTASAFN
f BÆJARGILINU
Dagstund hjá Páli
Guðmundssyni,
myndhöggvara á
Húsafelli, sem finnur
efnivið í höggmyndir í
gilinu ofan við bæinn og
lætur verkin standa þar.
Á leiðinni upp í Bæjargilið gengum við framhjá kvíunum og Pál
sýndi, að hann gat farið léttilega með kvíahellnna fræoni
inn fylgdist með hverri hreyfingu.
Meðal þeirra sem eitthvað fylgjast
með myndlist, er Páll mynd-
höggvari í Húsafelli vel þekktur,
þótt ekki sé ferillinn langur að
baki; maðurinn rétt liðlega þrítugur. Það
eitt út af fyrir sig er óvenjulegt meðal lista-
manna, að þeir velji sér búsetu og starfsvett-
vang í sveit, en ekki er það einsdæmi. Gunn-
ar Om er fluttur austur í Holt og Magnús
Tómasson uppá Mýrar, þar sem þeir keyptu
bújarðir með góðum húsakosti.
Páll í Húsafelli situr hinsvegar á föður-
leyfð sinni, en búskapur hans þar er allur
í ríki listarinnar; Páll er jöfnum höndum
myndhöggvari og málari. í hvora tveggja
hefur hann skapað sér sérstöðu meðal yngri
listamanna. Þótt hann sé skólaður listamað-
ur með framhaldsnám í Þýzkalandi að baki,
era rætur hans svo kyrfilega festar í íslénzk-
um jarðvegi, að ekkert verður honum yrkis-
efni annað en það sem hann þekkir úr
umhverfí sínu. Fljótt á litið er hann mjög
venjulegur, ungur maður. En við nánari
kynni sést að svo er ekki; þroski hans er
mun meiri en aldurinn segir til um. Hann
ber það heldur ekki utan á sér að vera
kraftajötunn, sem fer léttilega með Húsa-
fellshelluna frægu. Hann stælir stundum
kraftana á henni, tekur hana þó ekki uppá
Af föður sínum hefur PáJI klappað í steih þessa
mynd. /