Lesbók Morgunblaðsins - 14.09.1991, Page 11
Sprækir og renni-
legir Mazda-bílar
Mazda umboðið Ræsir
hf. er nú komið á
fulan skrið í sölu
Mazda-bíla og hafa
selst að meðaltali
um 50 bílar á mán-
uði frá því salan fór
í gang fyrir alvöru
seint í mars síðastliðnum. Mazda hefur sem
fyrr ýmislegt að bjóða, gerðirnar 323 og
626, báðar með og án aldrifs, og síðan
sportlegu bílana MX-3. Við lítum í dag á
tvær gerðir af 323-bílnum, annars vegar
323 1600 GLXi, sem er með framdrifi, og
hins vegar aldrifsbílinn 323 1800 GLXi.
Aldrifsbíllinn kostar um 1.150 þúsund
krónur og hin gerðin 1.180 með sjálfskipt-
ingu. Annars er verð á Mazda-bílum allt
frá um 900 þúsund krónum upp í tæpar
1.700 þúsund ef menn kaupa sportbíl eða
vel búinn bíl af 626 gerðinni og allt þar
á milli. Á þessu verðbili er ýmislegt for-
vitnilegt og víst eru margar gerðirnar eigu-
legar.
Mazda 323 er fáanlegur í þremur grunn-
gerðum eftir að hann kom nýr og breyttur
til sögunnar. Þær eru misstórar og gerólík-
ar, þrennra dyra, fernra dyra stallbaks,
hlaðbaks, sem er stærst að utanmáli, köll-
uð 323 F, og síðan langbaks eða skutbíls-
gerð.
Sameiginleg atriði með öllum þessum
gerðum eru 16 ventla vélar, vökvastýri, 5
gíra handskipting eða sjálfskipting og eins
og fyrr segir eru þetta nýir bílar frá grunni.
Allar gerðir rennilegar
Mazda 323 er rennilega hannaður bíll
og það eiga allar gerðirnar sameiginlegt.
Allar línur eru ávalar, framendinn er lágur
og stuðari og aðalluktir eru þannig felld
inn í framendann að allt klýfur loftið mjúk-
lega. Afturendinn er ekki síður í mjúka
stílnum. Ávalar línur hans mynda eina
heild þar sem allt rennur eiginlega saman,
stuðari luktirnar og hallandi rúðan.
Stallbakurinn er á sama hátt rennilegur
bíll og er það aðallega skottið sem gerir
hann frábrugðinn. Svartur hliðarlisti og
svartir listar kringum rúður setja sterkan
svip á bílinn og má segja að stallbakurinn
virðist mun meiri bíll en sá minnsti þótt
hann sé ekki nema rúmum 20 sm lengri.
Að innan eru allar gerðimar með sama
heildarsvip, mælar stórir og góðir og allt
vel bólstrað en mælaborðið er þó með
nokkuð öðru sniði í F-bílnum. I hinum
gerðunum er mælaborðið það sama. Þar
er hlutunum vel raðað og allt innan seiling-
ar og raunar með nokkuð hefðbundnum
hætti. Þurrkurofar eru á armi við stýrið
og fyrst hann er þar á annað borð hefði
mátt nýta hann öðru vísi. Til að gangsetja
þurrkur þarf að taka hönd af stýri og
snúa arminum en oft er honum ýtt upp
eða niður til að kveikja. Slíkt fyrirkomulag
er betra því þá þarf ekki að sleppa stýrinu.
Miðstöð getur blásið kröftuglega og er
ekki hávaðasöm. Gírstöng liggur vel við
og er skiptingin þægileg og sama er að
segja um sjálfskiptinguna. Af öðrum innri
búnaði má nefna rafstillanlega útispegla,
samlæsingar og rafknúnar rúðuvindur,
viðvörun vegna ljósa, klukku, leslampa,
spegil í sólskyggni og útvarpsloftnet ásamt
hátölurum.
Þrennra dyra útgáfan af 323 er 3,99 m
löng, breiddin er 1,67 m, hæðin 1,38 m
og hjólhafið er 2,45 metrar. Fernra dyra
Mælum og stjórntækjum er ágætlega
komið fyrir.
Verðið
Verðið á Mazda 323 er frá 885 þúsund
krónum, þ.e. LXi með 1300 vél, GLXi
gerðin með 1600 vél kostar 985 þúsund
krónur og með aldrifi kostar hann 1.149
þúsund krónur. GLXi 1600 bíllinn (stall-
bakur) kostar 1.180 þúsund krónur og þá
með sjálfskiptingu. Hann er um 70 þúsund
krónum ódýrari með handskiptingunni.
Segja má að fyrir þetta vérð, milljón til
tólfhundruð þúsund, megi fá allvel búna
og eigulega bila. Á þessu verðbili eru lang-
flestir fimm manna fjölskyldubílar orðnir
í dag og þar er um auðugan garð að
gresja. Ekki skyldu menn gleyma bílum
frá Mazda í því sambandi.
jt
Morgunblaðið/Júlíus
Mazda 323 er fáanlegur í þremur grunngerðum. Hér eru tvær þeirra, þrennra
dyra ldaðbakur (Coupe) og stallbakur sem er fernra dyra.
Hér má vel sjá útlitsmuninn á öllum gerðunum þremur.
stallbakurinn er 4,21 m langur, 1,67 m
breiður, 1,37 m hár og hjólhafið er 2,5
metrar. Minni bíllinn er 935 kg að þyngd
en sá stærri slétt 1.000 kg með sjálfskipt-
ingunni. Beygjuhringurinn er 9,6 metrar
hjá minni bílnum en 9,8 hjá stærri bílnum.
Góð vinnsla
Sem fyrr segir eru Mazda 323 með 16
ventla vélar og voru bílarnir sem prófaðir
voru með 1600 og 1800 vélum, 90 og 140
hestafla. Vinnsla þeirra er með ágætum
og sérstaklega er handskipti bíllinn spræk-
ur.
Fernra dyra stallbakurinn sem var með
sjálfskiptingu er sérlega lipur og notalegur
bíll. Ökumaður kann strax vel við sig og
finnur sig vel heima undir stýri. Ekki veit-
ir af þessari vélarstærð, 90 hestöflum, en
vinnslan er ágæt. Skiptingin er búin þeim
eiginlegum að hægt er að láta hana halda
við þegar ekið er niður í móti.
Minni bíllinn sem prófaður var líka var
búinn sítengdu aldrifi. Hann var með 1800
vél og því heldur kraftmeiri og með 5 gíra
handskiptingu. Sá bíll virkaði nokk.uð
þyngri í stýri en hann var mun sneggri í
öllu viðbragði og vinnslu. Sem fjöl-
skyldubíll hentar stallbakurinn trúlega
betur enda stærri og rúmbetri en sá minni
er skemmtilegri og röskari til brúks í snún-
ingum í borginni.
Báðir fjaðra þeir vel á sjálfstæðri gorma-
fjöðrun og liggja vel. Má raunar segja að
bíllinn með eindrifínu gefí aldrifsbílnum
lítið eftir í því efni. Þó má kannski segja
að meiri kröfur séu gerðar til aldrifsbílsins
þannig að útkoman virðist svipuð þegar
þeir eru bomir saman.
4
Daihatsu sérhannar
bíl fyrir Evrópu
|aihatsu verksmiðjumar hafa ákveðið
að heija framleiðslu í haust .á Dai-
hatsu Applause skutbíl. Þetta er
eingöngu gert til að mæta þörfum Evrópu-
markaðar en skutbílar eru ekki mikil söluvara
í Japan og Applause sem er bíll af millistærð
er aðallega seldur utan heimalandsins. Fram-
kvæmdastjóri Daihatsu í Þýskalandi, Yoichi
Shibaike, hefur haft forgöngu um að hrinda
þessari framleiðslu af stað en áður en hann
tók við forstöðu Daihatsu í Þýskalandi starf-
aði hann á aðalskrifstofu fyrirtækisins í
Belgíu. Hann heimsótti Reykjavík fyrr í sum-
ar til að kynna forráðamönnum Brimborgar
þessa nýju framleiðslu.
-Japansmarkaðurinn er að ýmsu leyti frá-
brugðinn Evrópumarkaði og þegar fram-
leiðsla á Applause hófst þótti forráðamönnum
Daihatsu ekki þörf á því að bjóða hann sem
skutbíl, segir Yoichi Shibaike í samtali við
blaðamann Morgunblaðsins. -Við höfum hins
vegar orðið varir við vaxandi áhuga á slíkum
bíl en þar sem Daihatsu hefur ekki getað
svarað þessari þörf höfum við mátt sjá eftir
ákveðnum kaupendahópi leita annað. Þetta
gildir ekki aðeins um Þýskaland heldur flest
þeirra 22 landa í Evrópu þar sem Daihatsu
er seldur, ísland þar með talið.
Góður í samkeppnina
Undir það taka Jóhann Jóhannsson og Sig-
tryggur Helgason forráðamenn Brimborgar
og segjast lengi hafa beðið eftir að bjóða
slíkan bíl í samkeppni við Toyota og Subaru.
Applause skutbíllinn verður fáanlegur bæði
með aldrifi og eindrifi en hann er að öllu leyti
eins og sá Applause sem menn þekkja. Hann
er aðeins 22 kg þyngri en fólksbíllinn. Nýi
Applaus bíllinn er kynntur á bílasýningunni
í Frankfurt sem nú stendur yfír en von er á
bílnum til íslands snemma í vetur. En hvern-
ig gekk Yoichi Shibaike að sannfæra yfir-
menn Daihatsu um nauðsyn þess að bjóða
Applause sem skutbíl?
-Það gekk ágætlega og það hefur ekki lið-
ið nema hálft annað ár frá því hugmyndin
kviknaði fyrir alvöru þar til framleiðslan er
að hefjast. Evrópumarkaðurinn er ráðandi
fyrir Applause því hann selst mun meira þar
en í Japan. Við höfum rætt þetta mikið sam-
an söluaðilarnir í Evrópu og þegar ákveðið
var að hefja hönnun skiptumst við á teikning-
Morgunblaðið/Kristján
Yoichi Shibaike kynnti Daihatsu Applause skutbíl fyrir forráðamönnum Brimborgar
á dögunum.
um og hugmyndum við starfsmenn hönnunar-
deildarinnar í Japan. Þær voru endanlega
mótaðar í líkan í október og í febrúar sl. var
frumgerðin smíðuð. Framleiðslan fór svo í
gang í byijun september.
Lítið þekktur
Yoichi Shibaike segir að sala Daihatsu bíla
gangi vel í Þýskalandi, hafi aukist um 37%
á síðasta ári og sé vaxandi í flestum Evrópu-
löndum. I Þýskalandi eru nú seldir milli 540
og 600 bílar í mánuði og ósk um skutbíl sé
sífellt meira áberandi. -Annars er Daihatsu
ekki með nema 0,5% markaðshlutdeild enda
ekki mikið þekktur í Þýskalandi, segir Yoichi
Shibaike. -Menn halda að Daihatsu sé gos-
drykkur eða eitthvað ofan á brauð! En með
þessum bíl skapast nýr möguleiki enda tel
ég að þarna sé búið að sérhanna bíl fyrir
þarfir Evrópubúa. u
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 14. SEPTEMBER 1991 11