Lesbók Morgunblaðsins - 14.09.1991, Page 13
I
14. SEPTEMBER ,1991
Iðandi mannlíf og fagrar byggingar á Eldon square, aðaltorgi borgarinnar.
NEWCASTLE
við Tínarfljót
byggingar sem setja svip á borg-
ina: kastalinn, sem borgin dregur
nafn sitt af, Nikulásarkirkjan,
brýrnar yfir Tyne og árbakkinn,
Quayside.
Bær síðan á dögum
Rómveija.
Svo hlaupið sé í fáum orðum á
staðreyndum sögunnar, má geta
þess að einmitt frá Neweastle og
þvert yfír England þar sem það
er mjóst, byggðu Rómveijar
Hadríanusarmúrinn, sem ennþá
sést. Við ósa árinnar Tyne byggðu
þeir brú og kastala, sem raunar
var úr timbri. Löngu síðar eftir
að Vilhjálmur sigurvegari hafði
lagt undir sig England, endur-
byggði hann kastalann árið 1080
ATHYGLIS-
VERÐ VERZL-
UNAR- OG
MENNINGAR-
BORG í
NÆSTA NÁ-
GRENNI
Newcastle við ána Tyne er höfuð-
borg Norðimbralands í norðaust-
urhorni Englands og verður með
tilliti til nútíma samgangna að
teljast í næsta nágrenni; Þangað
er liðlega eins og hálfs tíma flug.
Stuttar borgarferðir eru nú mjög
í tízku og þá hefur athyglin beinst
að Glasgow, Dublin eða Amsterd-
am. En Newcastle er ekki síður
athyglisverður áfangastaður.
Ibúatalan er 280 þúsund, liðlega
eins og allir Islendingar, svo
Newcastle telst ekki stórborg.
Hún er þægileg vegna þess að
þar er á tiltölulega litlu svæði
urmull verzlana; mest af þeim í
gífurlega stórri „Kringlu" á Eldon
Square og þar að auki fjöldi hót-
ela, veitingastaða, ölkráa, leikhús-
ið Theatre Royal, svo og fornar
í Metro Centre,
stærstu verzl-
anamiðstöð í Evr-
ópu, sem er
skammt utan við
Newcastle.
Byggingarlist liðinna alda: Kirkja með
turn í kastalastíl, Kastalinn, sem borgin
er kennd við og er upphaflega frá dög-
um Rómverja. Neðst: Hús Bessie Surte-
es, eitt af elztu húsum borgarinnar.
og á 12. öld var enn bætt við
hann. Þetta er sá Nýi kastaii, sem
borgin dregur nafn af. Það var
þó ekki fyrr en í iðnbyltingunni,
að bærinn fór að vaxa og helgað-
ist af ríkulegum kolanámum í
hæðunum í kring. Eina slíka kola-
námu geta ferðamenn séð í Bea-
mish-safninu skammt utan við
borgina og er það í senn enskt
atvinnusögu- og byggðasafn,
kjörið bezta safn Evrópu 1987.
A safninu hafa gömul hús verið
endurgerð, stein fyrir stein. Þar
er t.d. kaupfélag með öllum þeim
varningi, sem þar fékkst árið
1913, rakarastofa, blaðaprent-
smiðja og heimili góðborgara. En
ugglaust vekur kolanáman mesta
athygli og hefur eins og nærri
má geta verið óhugnanlegur
vinnustaður. Þar byijuðu drengir
að vinna 12 ára gamlir og æði
margir voru þar alla ævina, sem
kannski varð ekki löng í kolaryk-
inu.
Kolin voru undirstaða þess að
upp spratt iðnaður í Newcastle,
ekki sízt málmsteypa og geysi-
miklar skipasmíðar. Og nú er þess
minnst á 100 ára afmæli Ölfusár-
brúar, að járnsmíðin í hana fór
einmitt fram í Newcatle. Mörgum
árum síðar var Einar skáld Bene-
diktsson á ferðinni í Newcastle.
Hann hreifst af athafnaseminni
og orti Tínarsmiðjur, langt kvæði
sem byijar svo;
Eldar brenna yfir Tíni
eins og sterkir vitar skíni.
Myrkrið Ijósið magnar óðum.
Málmlog gjósa af hverri stó.
Skolgrátt fljótið fram í sjó
Flýtur allt í rauðum glóðum,
eins ogjárn úr hundrað hlóðum
herði sig í straumsins þró.
Fyrr og síðar var margur kola-
pokinn fluttur út þaðan, einnig til
íslands. Nú er öldin önnur; kolin
einkum notuð í orkuverum og
kolareykurinn grúfir ekki yfir ■
borginni, sem hefur smám saman
fengið nýtt hlutverk sem mesta
verzlunarborg í norðanverðu Eng-
landi.
Á sturlungaöld var byggður
múr utanum borgina eins og þá
þótti jafn sjálfsagt og umferðar-
mannvirki núna. Newcastle-búar