Lesbók Morgunblaðsins - 30.11.1991, Blaðsíða 6

Lesbók Morgunblaðsins - 30.11.1991, Blaðsíða 6
Sjö veraldarundur í nútíma arkitektúr yrir skemmstu komu nokkrir af þekktustu list- fræðingum og arkitektum Þýzkalands saman á ráðstefnu sem þýzka listfræðitímaritið art efndi til þar í landi. Á ráðstefnu þessari skyldi það vera verkefni þátttakenda að útnefna sjö helztu meistaraverk heims í húsagerð á þessari öld (og það þótt öldin sé raunar enn ekkii á enda runnin). Eins og nærri má getai var í þessu tilviki ekki hrapað að neinu. við undirbúning svo sérstæðrar dóms-i uppkvaðningar: Alls voru kvaddir til sjö valinkunnir fræðimenn á sviði listfræðh og húsagerðarlistar, og tilnefndi hver þeirra um sig sjö dæmi um framúrskar-' andi, og um leið að hans dómi, óvenjuleg- ustu mannvirki 20. aldarinnar. Varð hver þátttakandi og vitanlega að rökstyðja vandlega tillögur sínar. Undir lok ráð- stefnunnar greiddu svo sérfræðingarnir atkvæði um framkomnar tillögur og kusu þannig sjö mannvirki frá þessari öld sem helztu dæmin um hina frábærustu húsa- gerð aldarinnar. Talan sjö var annars valin með hliðsjón af hinum sjö furðu- verkum veraldar frá fornöld. Umrædd ráðstefna einkenndist mjög af eldheitum umræðum og snörpum deil- um um ágæti einstakra bygginga og mannvirkja sem tilnefnd höfðu verið. Sérhver þátttakandi barðist með oddi og egg fyrir sínum eftirlætisbyggingum og snerist öndverður gegn þeirri röðum meistaraverkanna sem ákveðin var eftir lokaatkvæðagreiðsluna. Og hvað er það þá í húsagerð okkar aldar,- allt frá aldamótáárinu 1901, sem teljast verður svo einkennandi fyrir þetta tímabil, svo sérkennilegt, framúrskarandi eða svo afgerandi fyrir einmitt okkar tíma, svo mjög stefnandi í framfaraátt, nýstárlegt, svo dirfskufullt eða óviðjafn- anlega fagurt að það verði án nokkurs vafa að teljast til hins.besta? því nær sem umræðurnar beindust að einstökum byggingum frá síðari áratugum aldarinn- ar, þ.e.a.s. frá okkar tímum, þeim mun erfiðara reyndist mönnum að ná fullri samstöðu og komast að samkomulagi um ágæti einstakra húsa sem stungið hafði verið upp á. Þau mannvirki sem endan- lega voru kjörin helztu meistaraverk ald- arinnar á sviði arkitektúrs voru þessi: Bauhaus-húsið í Dressau, Chrysler- byggingin í New York, Giiell-lystigarð- urinn í Barcelónu á Spáni; hljómleika- hús Philharmonie í Berlín; Venturi House á Chestnut Hill í Bandaríkjunum; Óperuhúsið í Sydney í Ástralíu og Ólympíuleikvangurinn í Munchen. En það er vitanlega líka mjög við hæfi að geta hér þeirra mannvirkja sem Byggingar eru eitt af því sem fólk hefur ákaflega skiptar skoðanir umog oft hafa fagmenn á þeim aðrar skoðanir en hinn almenni borgari. Hér eru birtar niðurstöður skoðanakönnunar, sem fram fór meðal þýzkra arkitekta og listfræðinga og eðlilega bera þær keim af þjóðerni þeirra sem svara. En þarna á meðal eru líka nokkur meistara- verk í nútíma arkitektúr; hús sem flestir eru sam- mála um að séu framúr- skarandi á einhvern hátt. Hús Fílharmóníusveitar Berlínar Það gerist sjaldan: Einhver bygging er talin í röð sérkennilegustu afreka á sviði arkitektúrs á þessari öld vegna innra ágætis — og það þrátt fyrir þunglania- legt og heldur lítt aðlaðandi ytra útlit. íþessari húsgerð arkitektsins Hans Scharo- uns sem hann teiknaði fyrir Fílharmóníusveit Berlínar (1960-63), er það reyndar innri gerð hússins sem réð allri lögun og heildarsvip. Það er tónlistin sem látin er vera miðpunktur þessa mannvirkis. I margliyrndu rými hljómleikasalarins er horfið frá því hefðbundna fyrirkomulagi að áheyrendur sitji beint andspænis liljómsveitinni, heldur mynda hljómleikagestir hring utan um hljómsveitina og sitja á hallandi pöllum. Kallaði Scharoun þessa áheyrendapalla í gamni „vínviðar- hjalla ” en þeir umlykja hljómbotninn niðri í „dalnum ”. Yfir kristallöguðu salarrým- inu — þar eru engir lóðréttir veggir, engin lóðrétt handrið — hangir bungumynd- að salarloftið líkt og slakt tjald. Arkitektinn rökstyður þá ákvörðun sína að hafa hvergi rétt horn í hljómleikasalnum með því, að það fyrirkomulag þjóni bezt þeim kröfum sem gerðar eru til hljómburðar, en hljómgæði hússins eru talin al- veg framúrskarandi. I húsinu getur að líta stiga sem eru margsinnis látnir breyta um stefnu milli hæða og liggja í mismunandi kröppum hornum, brúnir og bríkur, brýr og palla, súlur og skáhallar stoðir — allt þetta til þess eins að skapa tilbreytingu og veita gestum þá einkar ánægjulegu tilfinningu að vera þarna staddir í skemmiilegu völundarhúsi. Hús Vannu Venturis Þegar arkitektinn ungi Robert Venturi var að teikna hús móður sinn- ar, Vannu, vann hann einmitt að bókinni „Fjölbreytni og andstæður í arkitcktúr” en það verk þótti marka viss tímamót varðandi gagnrýna úttekt á nútíma húsagerð. Við gerð þessa fjölskylduhúss á Chestnut HiII í Pennsylvaníufylki í Bandaríkjunum, (1962-64) gat arkitektinn Venturi í fyrsta sinn komið að sínum eigin, uppreisnarkenndu hugmyndum um nútíma arkitektúr. Hann sýnir í þessari húsagerð sinni margræðni og skorar þannig á hólm þá drembilegu formúlu fyrir nútíma húsagerð, „minna er meira", sem verið hafði allsráðandi þá um skeið. Um hús móður sinnar hefur hann það að segja, að það sé „samtímis flókið að gerð og þó einfalt, opið en samt aflokað, stórt en þó lítið”. Húsið er reyndar ekki ýkjastórt, en arkitektinn Ijær ytra útliti hússins mjög sérkennilegan blæ og reisn, allt að því tignarlegt form með framgafli sem minnir á musteri, klofinn að manérískum hætti. Innri gerð hússins sýnir líka fjölmargar skemmtilegar og eftirtektarverðar hugmyndir: Sveigðir og skáhallir veggir liggja að rétthyrndum útveggjum, lárétt herbergisloft hreytast óforvarandis í hvelfingar; arininn tálmar eðli- legri framvindu stigans upp á efri hæð hússins. Oll þessi húsgerð seg- ir einstaklingsbundna sögu, viðhurðaríka og fulla af óvæntum atvikum. Chrysler- Byggingin Arið 1930 var smíði Chrysler-bygg- ingarinnar í New York að fullu lokið: 319 metra á hæð með 77 hæðir alls taldist þetta stórhýsi hæsta hús verald- ar, en það met stóð aðeins í nokkra mánuði. Hins vegar var það ekki þetta heimsmet sem gerði Chrysler-skýja- kljúfinn svona frægan, heldur hin stórglæsilega og einkar geðþekka lög- un hans. Arkitektinn, William Van Alen, lét kröftugan, hvassbrýndan turndrang skýjakljúfsins rísa upp úr breiðri, stall- aðri undirstöðubyggingu. Sjálfur turn- hjálmurinn er höfuðprýði hússins, stór- fenglegur og glæsilegur í lögun með sérkennilegum bogum, klæddum gljá- andi krómstáli, en bogadregnu gaflarn- ir mjókka eftir því sem ofar dregur og upp af þeim efsta teygir sig grönn turnspíra hátt til liimins. Gluggarnir á bogagöflum turnþjálmsins eru hvass- hyrndir þríhyrningar og á ljósið frá þeim að virka sem stjörnugeislar til að sjá: Þessi hönnun er í stíl við svokallaða „art deco” eins og tíðkaðist á árunum í kringum 1930, þegar liönnuðir reyndu að samræma notagildi og skreytingar í húsagerð, augnayndið og hið nytsam- lega, íburðarmikinn listiðnað og heill- andi nútímatækni. Sé hin veglega, krýn- andi turnspíra á Chrysler-byggingunni ásamt turnhjálminum sjálfum borin saman við heldur klunnaleg, þverskorin efri mörkin á öðrum skýjakljúfum sem reistir voru þar í grenndinni á sjötta og sjöunda áratugnum, þá verður mönnum fyllilega Ijóst hve erfið list í arkitektúr það er að hanna efsta hluta háhýsa þannig að vel fari. Gúell-lystigarðurinn Lystigarður sá sem arkitektinn An- toni Gaudi skóp á árunum 1900-1914, ljær hæð einni rétt ofan við spænsku stórborgina Barcelónu sannkallaðan töfrablæ. Tvö hús, stórfurðuleg í lögun, standa sitt hvoru megin við aðalinn- ganginn, en ofar, skrautlegir ýmist bylgjumyndaðir eða klettlaga þakhjálm- arnir koma mönnum einna helzt fyrir sjónir sem hreistraður skrápur á forsög- ulegum risaeðlum. Með alveg ótrúlega fjölbreytilegum mósaíkskreytingum úr marglitum veggflísabrotum (sem þrýst hefur verið í raka steinsteypu) hefur arkitektinn Gaudi klætt bogalaga, íbjúgt yfirborðið á þökum þessara húsa, salarloftum, þakskeggjum, stein- handriðum, stigum og steintröppum, svo ogytra byrðið á afar löngum, bugð- óttum steinbekknum sem látinn er hlykkjast meðfram jaðrinum á hinu feiknastóra hellulagða sólhlaði í lystigarðinum. Giiell-garðurinn er eitt órofa listaverk, þar sem arkitektúr, málaralist, höggmyndalist, náttúra og formjafnvægi mynda eina margslungna heild. BAUHAUS Húsakynni „Bauhaus" listastofnunar- innar í Dessau, Þýzkalandi, voru reist á árunum 1925-26, og er arkitektúr þessarar húsasamstæðu í senn braut- ryðjandaverk Walters Gropiusar og eitt helzta afrekið á sviði nútíma arkitekt- úrs á þeim áratugum. Húsagerðin er öll í anda ítrasta raunsæis, laus við hvers kyns tildur og prjál enda var húsið reist fyrir hinn framsækna lista- skóla í Dessau, þar sem veigamiklar línur í þróun nútímalistar voru lagðar og nýstárlegar, djarfar hugmyndir komu fram um nýsköpun í húsagerð 20. aldarinnar. Við teikningu og hönn- un þessarar húsasamstæðu fylgdi Walt- er Gropius í fyrsta sinn í einu og öllu þeim grundvallarreglum og kröfum sem hin „Nýja húsagerðarlist” boðaði. SIó arkitektinn þar hvergi af: Hann hafnar með öllu lánsfjöðrum frá fyrri, sögulegum stíltegundum en lætur þess í stað ströngustu formkröfur og tær- Icika ráða í húsagerð sinni með full- komið samræmi á milli forms og nota- gildis að helzta leiðarljósi. Þessi stefna lýsir sér vel í hvössum brúnum og rétt- um hornum, sléttum, hvítum flötum, flötum þökum og í framhliðum sem virka opnar oggagnsæjar með láréttum gluggabitum. Hið fagurfræðilega íyfir- bragði húsanna skyldi eingöngu spretta af vandlega yfirveguðu formjafnvægi og hlutföllum í einstökum hlutum bygg- ingarinnar. Sú uppfinning Walters Gropiusar að gera húsaframhliðina úr þunnu ytra byrði með gleri og grönn- um, svörtum stálbitum átti eftir að hafa geysileg áhrif á þróun nútímalegr- ar húsagerðar um allan heim á næstu fjórum áratugum. i i ! \wm miím múúíite! ú iJmm’ ii i «*s: , iiiiiii4 * s á i: i gSðiði iffssi P m' 4SS*S v is ÍfiHSS |> iSÍaSgá !5 IIhsiIS Óperuhú sið í Sydney Arkitektúr sem sérstætt kennileyti, sem menningartákn heils borgarhluta: Óperuhúsið sem Jörn Utzon skóp fyrir áströlsku stórborgina Sydney, býryfir þessum kynngikrafti og sérstaka þokka. Húsið var byggt á árunum 1959 til 1973 á tanga sem skagar langt út í vogskorinn hafnar- flóa Sydneyborgar. Þökin á stórliýsinu tíkjast einna lielzt risavöxnum, opnum skeljum, en til- sýndar eru þau áþekk þöndum seglum og gnæfa allt að 60 metrum yfir viðamikilli pallbyggingu. Heildarsvipur hússins er harla stórfenglegur, minnir einna helzt á risavaxna höggmynd, sama frá hvaða sjónarhorni horft er til hússins. Þegar komið er inn í húsið og litið til lofts, blasir við sjónum manna sveipur af steinsteyptum þak- sperrum, einna líkastar geislastöfum, enda áhrif- in svipuð og komið sé í gotneska dómkirkju nú- tímans. Við nánari, tæknilega útfærzlu hugmynda sinna, naut danski arkitektinn Jörn Útzon fulltingis landa síns, verkfræðingsins Ove Arups. Utzon ákvað því að teikna fyrir þennan stað til- komumikið, expressíónískt þaklandslag 'sem hvelfist yfir alla nauðsynlega liluta slíks húss, allt frá sviðsturnunum upp í áheyrendasali, veit- ingaskála og anddyri. Operuhús þetta íykur um listina líkt. og skelin um perluna. LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 30.NÓVEMBER 1991 7

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.