Lesbók Morgunblaðsins - 01.02.1992, Page 3

Lesbók Morgunblaðsins - 01.02.1992, Page 3
LESBOK HssiaiasiiEssiiŒifaii Útgefandi: Hf. Árvakur, Reykjavík. Framkvstj.: Haraldur Sveinsson. Ritstjór- ar: Matthías Johannessen, Styrmir Gunn- arsson. Ritstjórnarfulltr.: Gísli Sigurðs- son. Ritstjórn: Aðalstræti 6. Sími 691100. Eyðiland lágkúru, klisju óg kláms, nefnir Karl Bretaprins nútíma ensku í hvassri ádrepu, sem hann flutti í tilefni nýrrar bænabókar. Hánn bar hana sam- an við þá gömlu í málfarslegu tilliti og gerði það að tilefni til víðtækari hugleiðinga um þá stefnu, sem honum finnst að móðurmál hans hafi tekið. Þær ábendingar eiga til dæmis vel við hér, þeg- ar við íhugum stöðu og stefnu íslenzkunnar. Forsíðan Myndin er eftir Svein Bjömsson, listmálara í Hafn- arfirði, og verður á sýningu sem hann opnar í dag í Hafnarborg. Allar myndirnar á sýningunni hefur Sveinn byggt á ljóðabálknum „Sálmum á atómöld“ eftir Matthías Johannessen. Á bls 9 er nánar gerð grein fyrir tilurð myndanna og fátæktinni í trúar- legri list á íslandi það sem af er öldinni. Myndin á forsíðunni er við 19. sálminn í Sálmum á atómöld. Melkot stóð við Suðurgötu í Reykjavík, ofanvert við ráð- herrabústaðinn. Þar er fyrirmyndin að Brekkukoti í Brekkukotsannál Halldórs Laxness, og skáldinu var auk þess bærinn sérstaklega tengdur, þvi þar fékk amma hans athvarf með unga dóttur sína og þar kynntust þau Sigríður og Guðjón, foreldrar Halldórs. Um mannlíf í Melkoti skrifar Guðjón Friðriksson. JÓHANN SIGURJÓNSSON Ódysseifur hinn nýi Svikult er seiðblátt hafið og siglingin afar löng. Einn hlustar Ódysseifur á óminnisgyðjunnar söng. Marmarahöllin heima. - Ég húmdökku gluggana sá mæna eins og andvaka augu út á hinn dimmmjúka sjá. HöIIin er löngu hrunin. hásætið orpið sand. - Það bar enginn kennsl á beinin, sem bylgjan skolaði á land. Jóhann Sigurjónsson, 1880-1919, var frá Laxamýri í Þingeyjarsýslu, en gerðist rithöfundur i Danmörku í anda nýrómantíkur og skrifaði mörg leikrit og orti bæði á islenzku og dönsku. B B FUKYRÐIUM BÆKUR Eg átti þess ekki kost að fylgjast með endaspretti bókmenntaleikanna sem lauk nú um jólin. Ég dvaldist erlendis og vissi ekki margt af því sem fram fór í menningarlífi landsmanna. Þar sem það er þó aðaláhugamál mitt fór ég strax á stúf- ana er heim kom og reyndi að átta mig á helstu viðburðum. Varð mér það helst til ráðs að kanna vel ritdóma dagblaðanna til að komast að því hvað bitastætt teldist og hvað bæri að varast. Ekki hafði ég lengi setið við athuganir mínar á dómum um bækur síðasta árs er ég veitti því athygli að við eitt dagblaðanna starf- aði ritdómari sem fátt eitt gladdi, virtist raun- ar hafa aldeilis takmarkalausa fyrirlitningu á bókum og höfundum þeirra og auk þess leggja fæð á bókmenntafræðinga. Baljið virðist hafa byrjað sl. sumar er dr. Örn Ólafsson gaf út verk sitt um Rauða penna. Umræddur ritdómari fékk verkið til umsagnar og finnur því ekki flest til foráttu, heldur allt — enda ber ritdómurinn titilinn „Hvorki fugl né doktorsrit“ — og virðist dóm- . arinn okkar með þeim titli setja sig þar á þann háa hest að bera brigður á að verk Arnar sé verðugur grundvöllur doktorstitils — sem auðvitað er glænýtt hlutverk ritdóm- ara hér á landi. „... hún (bókin) er eitthvert það ókræsilegasta samsafn af fljótfæmi og flumbrugangi sem ég hef nokkurn tíma les- ið,“ segir dómarimx og bætir svo við: „Oft minnir þetta verk AÓ mig á símaskrána vegna þess hve mikið er af þurrum og andlausum staðreyndaupptalningum. Munurinn er aðal- lega sá að símaskráin er miklu betur skipu- lögð og auk þess verulega gagnleg." \ Nú er það svo að þekking okkar á bók- menntasögu stendur á brauðfótum í mörgu tilliti. Enn eigum við ekki góða bókmennta- sögu nema helst skólabækur sem vitaskuld geta vart verið anr.að er ágrip. Ég þekki engan mann sem lesið hefur verk Arnar sem ekki telur að mikill fengur sé að því þótt það sé náttúrlega ekki fullkomið fremur en önnur mannanna verk. Öm gerir þau reginmistök að bera hönd fyrir höfuð sér og bendir á margt það sem dómaranum hafði orðið á. En viti menn. Dómarinn var greinilega kominn til að dæma lifendur og dauða og svarar hann Erni að bragði og kom þá í ljós að ritdómurinn var aðeins hluti þess sem pokahornið geymdi — hann hafði nefnilega verið styttur af öðrum áður en hann birtist. Bætti nú ritdómarinn úr þessu og birti ýmislegt af því sem hann hafði látið ósagt í sínu fyrra verki. Bendir hann þar Erni á að hann sé á rangri hillu sem bókmenntafræðingur og leggur til að verk hans um Rauða penna gleymist maklega hið fyrsta og bætir síðan um betur með því að dylgja um það heldur betur dónalega hví Örn Ólafsson hafí ekki enn fengið embætti við Háskóla ísiands og fer það með staðlausa stafi, líklega viljandi, þvi að Örn hefur fyrir löngu fengið góðan hæfnisdóm til slíkra starfa — og starfar nú um stundir við Kaup- mannahafnarháskóla. Þannig hefur ritdómur- inn snúist upp í níð, rógburð og hreinar lygar. En nú var fjandinn laus og dómarinn búinn að finna sína réttu hillu. Bókmenntastofnun Háskóla íslands sendi frá sér „Spor í bók- menntafræði 20. aldar", nokkrar þýddar greinar valinkunnra erlendra fræðimanna um bókmenntir og textafræði — og hefði betur látið það ógert að mati hins vígreifa dómara. Þar finnur hann ekkert gott eða vel unnið er „hálfmenntaðir íslenskir bókmenntafræð- ingar“ eru að „auglýsa útnesjamennsku sína og minnimáttarkennd". Illugi Jökulsson lenti í þeirri hremmingu að skáldsaga hans endaði í höndum okkar manns sem sá náttúrlega ekkert af viti þar. Sigurður A. Magnússon var svo óheppinn að senda frá sér þýðingu á ágætri bók, Safn- aranum eftir John Fowles, og fær líka hirt- ingu fyrir það frumhlaup sitt. Dómaranum okkar kemur það mjög á óvart að Sigurði skuli treyst fyrir þýðingunni og bendir á 9 ára gömul pennaglöp eða mistök í prófarka- lestri til að berja á þýðandanum. Auk þess fínnur hann í þýðingunni þijú dæmi um óná- kvæmni í hinni nýju þýðingu Sigurðar og dregur síðan þá ályktun að Sigurður „sé ekki vel læs á skáldsögur“ og alls ekki treystandi til að þýða stórvirki James Joyse, Ulysses. Allt er þetta með miklum firnum. Skáldsaga Jóns Óttars Ragnarssonar er ekki góð og það er náttúrlega nógu leiðinlegt fyrir höfundinn. Og nú komst dómarinn í feitt. Hann lætur sér ekki nægja að hæðast mjög að verkinu heldur snýr sér að höfundin- um með ótrúlega rætnum háðsglósum og bætir gráu ofan á svart með því að uppnefna hann eins og götustrákur. Kallar hann Dr. Mat. Væl. og Jón Ó Tar og finnst það greini- lega með ólíkindum fyndið. Uppnefningar í ritdómum hef ég ekki fyrr séð hér — en svo lengi lærir sem lifir. En nú leið að lokum ársins og jólin sín hélt dómari vor hátíðleg með því að úthrópa eitt verk enn, „Greinar um bókmenntir og menningarástand" eftir Matthías Viðar Sæmundsson. Þessar greinar eru að inínu mati — og fleiri — alveg sérlega fróðlegar og auk þess skemmtilegar og um margt nýst- árlegar í íslenskri bókmenntaumfjöllun og bæta verulega við heldur fátæklega umræðu um bókmenntir seinni tíma. Ritdómarinn spennir sig nú megingjörðum og kallar dóminn „Skólaritgerðir" enda telur hann að höfundur sé „eins og menntaskóla- strákur sem er að sýna kennaranum sínum að hann hafi lesið heima og kunni að beita því sem hann hefur lært“. Auk þess er Matt- hías sakaður um skort á „sálfræðilegu inn- sæi“, bókin sé „upphafínn vaðall um ekki neitt“ og höfundur sirkusdvergur sem lítur á sig sem mannvitsbrekku. Að lokum er öðrum aðstandendum bókarinnar bent á að þeir séu litlu skárri: „Þessir þrír mætu menn (Ástráð- ur Eysteinsson, Garðar Baldvinsson og Þor- steinn Antonsson), sem ættu að hafa mennt- un og skýrleika til að bjarga MVS frá því að valda hneyksli með vankunnáttu sinni, eru annaðhvort ekki betur að sér en hann eða þá að þeir hafa ekki unnið eins vel og MVS vill vera láta.“ Allt er þetta vítaverður subbuskapur. Skítkast, skætingur og uppnefningar eru fyr- irbrigði í íslenskum ritdómum sem ekki hafa sést lengi og vonandi marka þessir dómar ekki upphaf slíkrar hnignunar. Ég veit ekki hvert hlutverk ritstjóra umrædds dagblaðs er ef ekki að koma í veg fyrir óhæfu sem þessa, sérstaklega þegar þess er gætt að blað- ið hefur um árabil staðið fyrir myndarlegum menningarverðlaunum, m.a. til rithöfunda. Ég tel raunar að blaðið ætti þegar að sjá sóma sinn í því að fá þessi verk, sem ég hef nú nefnt, dæmd að nýju. Ritdómarar verða að skilja það að þeir eru að dæma bækur sem jafnan liggur gríðarleg vinna að baki — hvert nýtt verk er yngsta barn höfundarins og fráleitt að ata það auri og skít að tilefnislausu. Ég tók eftir því að fleiri dómurum en okkar manni varð illilega á. Hvað eftir annað þurftu höfundar að svara fyrir sig eftir að ritdómar birtust vegna þess að dómararnir fóru með staðlausa stafi, sýndu allmikla vankunnáttu eða birtu kolvitlausar tilvitnanir í verkin sem um var fjallað. Traust- ari vinnubragða verður skilyrðislaust að krefj- ast eigi að vera liægt að taka mark á dómum blaðanna. ÞÓRÐUR HELGASON LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 1. FEBRÚAR 1992 3

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.