Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 01.02.1992, Qupperneq 10

Lesbók Morgunblaðsins - 01.02.1992, Qupperneq 10
I auga óreiðunnar Eitt regnþungt síðdegi, á skipi úr víðförlum draumi, kom sagnaþulurinn Hómer til Reykjavíkur. Hann gekk frá hafnarbakkanum og tók leigubíl sem ók með hann eftir regngráum götum þar sem dapurieg hús liðu hjá. Við gatnamót sneri sagnaþulurinn Hómer sér að bílstjóranum og sagði: „Hvernig er hægt að ímynda sér að hér í þessu regngráa tilbreytingarleysi búi söguþjóð?“ „Það er einmitt ástæðan, “ sagði bílstjórinn, „aldrei langar mann jafn mikið að heyra góða sögu og þegar dropamir lemja rúðurnar. “ Yrkisefnin búa alis staðar: á brautarstöðinni þar sem heimurinn hangir og bíður, íryðguðu bárujárni frystihússins, í húsum ogþorpum. Það er ekki sjálft viðfangsefnið sem skiptir máli, heldur samband listamannsins við það; sá andi sem hann miðlar. Myndin er af málverki Jóns Engilberts: Við ströndina. SARSAUKINN IHEILANUM H vaðan kemur listin? Þessi spuming kann að hljóma sem gamla spumingin hjá Mao Tse Tung: Hvaðan koma réttar hugmyndir? Falla þær af himnum ofan? spurði Mao og hélt nú síður. Hvert sem maðurinn fer skilur hann Hvaðan kemur listin? Birtist hún í í bíómyndum sem kosta milljarð eða metsölubókum á stærð við tíuþúsund framhaldsþætti? Kostnaður er töfraorð í nútímanum þó svo að flest stærstu menningarafrek fortíðarinnar hafi verið unnin við kjör sem flestir myndu telja kröpp í dag. Eftir EINAR MA GUÐMUNDSSON eftir sig slóða af orðum, atvik í frásögur færandi, og þó að sagan hvíli sem skuggi á herðum okkar er hún einnig birtan sem við böðum okkur í. Þannig líður tíminn. Hver getur horft fram á við nema sá sem lítur til baka? Lífið stend- ur andspænis dauðanum en ekki í skugga hans. Sagnfræðin skiptir sögunni í afmörkuð tímabil, en í bókmenntalegum skilningi er tíminn ein heild. Fortíðin er hluti af nútíð- inni og framtíðin hefur áhrif á hvort tveggja. Þó að hinn ytri heimur breytist glíma menn- imir ávallt við sama vandann í samskiptum sínum. „Staðreyndin er sú að sérhver höfundur býr sjálfur til forvera sína,“ sagði Jorge Li/is Borges. Þetta eru vitaskuld almenn sannindi en Borges skrifaði þessa setningu í grein um Kafka. Svipaðan hugblæ og í verkum Kafka er að finna í verkum eldri höfunda en vitundin um þennan hugblæ í verkum forveranna er óhugsandi án Kafka. Þannig víxlast tímabilin í bókmenntunum. Höfundur í nútimanum getur haft áhrif á forvera sína. Ekki er óhugsandi að svokallað töfraraunsæi nútímans geti verið ýmsum lykill að Islendingasögunum. Að bókmenntasköpun hafi verið tengd göldrum á sér eðlilega skýringu, sem sé þá að sköpunarkrafturinn verður ekki skýrður með neinum óyggjandi vísindalegum aðferð- um. Stöðugt má búa til skýringar, en það er líka hægt að vera án þeirra. Jafnvel nú á timum tækninnar er staða skáldsins engan veginn skilgreind. Ekki þarf nein próf til að öðlast réttindi í faginu og ekki er til neinn einn mælikvarði á gildi skáldskapar. Réttlæti skáldið iðju sína má vísast fmna svipaða skýringu frá fyrri tím- um. BeðiðEftirGodot Það er því engin furða þó að villigöturnar séu margar og öngstrætin endalaus. Ritlist- in er fom. Við hlið hennar er dægurlaga- heimurinn sem ungabarn. Nú á dögum eiga þó dægurlagaheimurinn og bókmenntaheimurinn eitt sammerkt; stöðugt er verið að leita að nýju bítlaæði, að hljómsveitinni sem slær í gegn, að rithöf- undinum í dag. Markaðsfulltrúamir skima yfir sviðið og bíða eftir guðunum eða Godot, en það er einsog guðirnir gefi sig aðeins fram af tilefn- islausu og séu jafnvel síst þar sem þeirra er leitað. Hvað dægurlagatónlistina áhrærir liggur þetta kannski í eðli hennar, því að dægrin koma og fara, en þegar að bókmenntunum kemur er eins víst a höfundurinn í dag hafi verið uppi fyrir mörgum öldum. Það er hins vegar staðreynd að í dægur- lagaheiminum verða bítlaæðin æ skamm- vinnari og oft er „höfundurinn í dag“ aðeins loftbóla, markaðssett loftbóla sem springur um leið og upplagið er á þrotum. Loftbólubókmenntirnar sækja styrk sinn í lífsstíl líðandi stundar, dægurflugur fjölm- iðlaheimsins og aðdráttarafl þeirra er svipað og kvennablaða, nema hvað stór hluti þeirra er skrifaður af karlmönnum. Hvaðan kemur listin? Hér að framan ýjuð- um við að því að í bókmenntalegum skiln- ingi sé tíminn ein heild, að samtími okkar sé annað og meira en dagurinn í dag, að hér og nú sé líka þar og þá. Þegar um listsköpun er að ræða, eða öllu heldur mat á listsköpun, mætti einnig benda á önnur grundvallarsannindi, en þau verða víst að teljast vísindalega sönnuð, sem sé sú staðreynd að jörðin er hnöttótt. Það þýðir að miðja hennar er þar sem hver jarðarbúi er staddur hverju sinni. Eigi að síður er talað um stórar þjóðir, smáar þjóðir, jaðarsvæði, heimshorn, útkjálka- menningu og fleira í þeim dúr. Þar eð slík skipting heimsins er ekki í samræmi við nein vísindi birtast aðeins í henni ríkjandi valdahlutföll. í okkar heims- hluta kyngjum við engilsaxneskum lífsskil- yrðum, einsog ekkert sé, á meðan önnur þurfa skýringa við. Þrátt fyrir allan alþjóðleik og fjölþjóðleg samskipti er sú menningarlega hugsun sem ríkir ákaflega svæðisbundin, að ekki sé sagt útúrboruleg. Á svipaðan hátt og beðið er eftir hljóm- sveitinni sem slær í gegn og „höfundinum í dag“ leita menn með logandi ljósi að spenn- andi svæðum. Ef „höfundurinn í dag“ f.nnst ekki í frum- skógum Afríku er vel þess virði að leita hans í rústum kommúnismans: meistaraverkin hljóta að vera skrifuð þar sem bægslagang- urinn er hvað mestur. Eitt sinn nutu Norðurlöndin, sumir myndu segja, þeirra forréttinda að vera álitin spenn- andi svæði, belti villtra þjóða, heillandi í fjar- lægð sinni. Það er langt síðan ferðaskrifstofur fundu enn fjarlægari verur úti í hinum stóra heimi og nú á dögum lætur enginn heilvita maður 10

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.