Lesbók Morgunblaðsins - 05.12.1992, Page 2

Lesbók Morgunblaðsins - 05.12.1992, Page 2
Minningar frá hemámsáninum Hermenn með vélbyssu við Herkastalann í Reykjavík. Tveir menntaskólanemar, þeir Sveinn K. Sveinsson, nú verkfræðingur, og Guðmundur Þórarinsson, síðar íþróttakennari, fylgjast með ásamt kennara sínum, Sigurkarli Stefánssyni frá Kleifum í Gilsfirði. Eftir LEIF SYEINSSON I 10. maí 1940 rann upp og spennan var í hámarki, hvor skyldi verða á undan, Hitler eða Chamberlain. Við bræðumir sváfum sam- an í kjallaraherbergi í Tjamargötunni og var Haraidur nokkm fyrr á fótum en ég og kom niður á kasti miklu og tilkynnti mér, að það væri búið að hernema landið. „Hveijir voru á undan?“ mælti ég spennt- ur. „Þjóðverjar," svaraði Haraldur. Hélt ég nú í skyndi niður í bæ, beint til Júlla skó í Aðalstræti 9, en þar var allsheijar fréttamið- stöð á þeim tíma og sóttu hana mörg stór- menni, svo sem Oddur á Skaganum, Þórberg- ur Þórðarson og Bogi Ólafsson menntaskóla- kennari. Þegar hlé varð á samræðum í skó- vinnustofu Júlíusar Jónssonar sagði ég: „Ansi eru þýsku hjálmamir líkir þeim bresku." „Hvaðan kemur þú eiginlega," mælti Júlli skó, „Bretar hemámu landið í nótt.“ „En Halii bróðir sagði...“ Á meðfylgjandi mynd má sjá tvo mennta- skólakennara standa hjá Uppsölum, en bresk- um þótti undarlegt, að heimamenn tækju á móti innrásarliði með hendur í vösum. II Breskir lögðu undir sig fjölda húsa í Reykjavík og úti á landi. I Reykjavík m.a. Menntaskólann og timburgeymsluhús í Völ- undi við Klapparstíg. Margar áletranir voru krítaðar á bita austurhússins í Völundi, en best þótti mér þessi: „The never dull moment comer“ (Glaðheimahorn). Vonandi hefur borgarminjavörður myndað þessar áletranir áður en húsið var rifið af Reykjavíkurborg. Hemámsliðið var ákaflega duglegt við að brenna hús og bar þar hæst Laugamesspít- ala (Holdsveikraspítalann) og Borðeyrarhús- in. Þegar ég spurði vin minn fyrir skömmu, hvers vegna Bretar hefðu ekki brennt mennta- skólann, svaraði hann: „Það var ekkert bók- hald þar.“ Skömmu eftir hernám Breta hófst mikið blómaskeið hjá ljósmyndurum, því breskir heimtuðu, að allir íslendingar yfir 12 ára aldri gengju með nafnskírteini með ljósmynd. Fylg- ir hér mynd af greinarhöfundi og nafnskír- teini hans. í Hafnarfirði eru til allar myndir, sem teknar voru af Hafnfirðingum í nafnskír- teinum, svo menn geta hætt að hlæja að Göflurum, þeir eru þar allir á vísum stað á safni. III í lok maí hélt ég norður í Mývatnssveit til sumardvalar í Vogum. Urðu þar fagnað- arfundir með mér og leikfélögum mínum þeim Hallgrími og Pétri Jónassonum og var fljót- lega ákveðið að reyna að hrekkja hemámslið- ið með einhvetjum hætti. Tvær gamlar hagla- byssur, skaftlausar, voru til í Vogum og höfðu verið notaðar í eynni Varpteigum til að fæla varg í burt þaðan. Hétu byssur þessar Júnka gamla og Dóra. Fórum við með annan byssu- ræfílinn upp á.braut (veg) og stilltum henni upp austan við smáhæð á veginum, þannig að hlaupið gein við þeim, sem þar ók um. Skömmu eftir að við höfðum komið byssu- hlúnk þessum fyrir, kemur Humberbifreið af dýrustu gerð með hóp breskra liðsforingja og snarstoppar við vígtól okkar hrekkjalómanna ... Gengu þeir síðan heim að húsi Sigfúsar Hallgrímssonar í Vogum og inna hann eftir því, hvort bannað sé að halda áfram í átt að Reykjahlíð. Sigfús, sem var vel mæltur á enska tungu, tjáði þeim, að svo væri ekki, heldur væri hér um strákapör að ræða. Lauk þar með einu tilraun íslendinga til að hefta framsókn breska hemámsliðsins. IV Haustið 1940 hóf ég nám í Gagnfræða- skóla Reykvíkinga við Vonarstræti, þar sem nú er safnaðarheimili Dómkirkjunnar. Fljót- lega voru fest upp í skólanum fyrirmæli frá ríkisstjóminni þess efnis, að nemendum væri bannað að hafa nokkur samskipti við hemá- msliðið, ekki yrða á þá, hvað þá annað. Var þessu vel tekið, því enginn áhugi var á við- skiptum við þessa menn. I 2. bekk í gaggó var mjög snjall nem- andi, sérfræðingur í alls konar sprengingum og við þær kenndur, Bombu-Loftur Loftsson, nú verkfræðingur hjá SÍF. Engin áform hafði Loftur um að hætta sprengingum, þótt bresk- ir væm komnir tii Islands. Fjölbreytni var mikil í sprengingum Lofts, ýmist sprengt á þurm landi eða undir íshröngli við Tjömina. Fengu sumir bændur góða skvettu, þegar þeir gengu út úr gamla Búnaðarfélagshúsinu í þann mund, sem neðansjávarsúla Lofts reis þetta 5-6 metra í loft upp. Þó bar hæst, þegar Loftur sprengdi á þurrn og herbíl með 20 manns bar að um leið. All- ir stukku út úr herbílnum og lögðust á malbik- ið í skotstöðu og vissu ekki hvaðan á þá stóð veðrið. Breskir reistu sandpokavígi, þar sem læk- urinn rennur út Tjörninni. Stóð vígi þetta allt þar til vorið 1942, að við nemendur fleygð- um öllum pokunum í Tjömina og var ekki að því fundið. V — Febrúarveðrið Hinn 28. febrúar 1941 um tíuleytið fómm við bekkjarbræðumir í gaggó austur eftir Skúlagötu, því við höfðum frétt, að mikill skipskaði hefði orðið í Rauðarárvík. Rúmlega ökkladjúpur krapaelgur var á Skúlagötunni, en við komumst þó eftir henni allri og allt niður í fjöm. Þaðan vom við reknir tafar- laust, því enn var verið að bjarga skipbrots- mönnum úr portúgalska skipinu Ourem, sem var með 500 tonn af sementi til H.Ben. & Co. og 200 víntunnur til Áfengisverslunar ríkisins. Áhöfn hins skipsins, Sonju Mærsk, 24 manna, hafði þegar verið bjargað. Sonja Mærsk var í eigu hins kunna Dana, A.P.Möll- er. Fimm hraustmenni unnu það frábæra björgunarafrek að láta draga sig í björgun- arstól yfir í Sonju Mærsk, leggja síðan kaðla á milli skipanna og í brúna á Ourem og fíkra sig eftir þeim yfír í það til þess að sækja hina þjökuðu skipshöfn, einn á eftir öðmm. Sá hét Hafliði Magnússon, er fór fýrir þeim fímmmenningum. Hann er bróðir Ólafs K. Magnússonar ljósmyndara Morgunblaðsins og er Hafliði enn á lífí. Björgun Portúgalanna lauk kl. 11.30 og tókst giftusamlega. Jón Bergsveinsson, sem björguninni stjórn- aði, rómaði mjög kjark og dugnað þeirra, sem að björguninni unnu. Þau urðu örlög Ourem, að þeir Kristján Bergsson og Garðar Þorsteinsson keyptu skip- ið, létu gera við það og hét skipið síðan Hrím- faxi. Sonju Mærsk var einnig náð af strandstað og vildu íslensk skipafélög gjaman fá það keypt, en það fékkst ekki og urðu örlög skips- ins þau, að það fórst við austurströnd Skot- lands 5. júní 1942. Mjög minnisstæð var mér heimleiðin frá strandstað, vestur Skúlagötu. Fyrir framan Nýborg, hús Áfengisverslunarinnar, barðist 898 tonna skip, Cler Miston, fyrir lífí sínu. Veðurofsinn var svo mikill, að í verstu norð- anhryðjunum hrakti skipið ískyggilega nærri landi. Svo lægði aðeins og vom þá kyntir allir katlar skipsins til þess að komast úr þessari bráðu hættu. Þetta var eins og særð hind, sem neytir síðustu krafta til að bjarga lífí sínu. Aldrei hélt ég að ég myndi finna til með skipi eins og lifandi vem. En Cler Mist- on hafði betur í þessum hildarleik, Kári varð að lúta lægra haldi. í hinum 200 víntunnum var koníak, romm og vermouth. 103 fundust, ýmist fullar, lekar eða tómar. 97 hafa ekki komið fram ennþá, og ætti að vera óhætt fyrir fínnendur þeirra að játa núna eftir 51 ár, sökin er löngu fymd. VI í maí 1941 vomm við nokkrir skólapiltar fengnir til þess að telja bifreiðar í Reykjavík- ummferðinni fyrir skrifstofu bæjarverkfræð- ingsins. Við Tómas Helgason, nú háskólapró- fessor, vomm staðsettir á Melavellinum gegnt Háskólabyggingunni nýju. Töldum við bifreið- ar frá kl. 8-23 og reyndust þær 1.440, 50% íslenskir bílar, 50% breskir herbílar. Svipuð var skipting milli fólks og börubifreiða. Á gmnni þessarar talningar vom Bretar látnir taka þátt í viðhaldi Reykjavíkurgatna. Hinn 24. maí 1941 sökkti þýska orustuskipið Bi- smarck flaggskipi Breta, ms. Hood, miðja vegur milli Islands og Grænlands. Næstu dagar á eftir voru hlaðnir slíkri spennu, að aldrei mun úr minni líða, þeim sem lifðu. Öll íslenska þjóðin fylgdist í ofvæni með eltingar- leik Breta við þennan ógnvald. Hvar sem tveir á fjalli fundist var ekki talað um annað: „Skyldu þeir ná Bismarck, áður en skipið nær höfn í Berst?“ Beitiskipið Dorestshire veitti því náðarhöggið méð tundurskeyti hinn 27. maí 1941 eftir að flugvélar frá Ark Royal höfðu laskað það mjög. Menn önduðu léttar, þegar þetta ferlíki var að velli lagt. Verr gekk að vinna á systurskipi þess Tirpitz, en þó var það gert óvirkt síðar í stríðinu af áhöfn dvergkafbáts frá Skotlandi. Þann 22. júní 1941 gekk ég inn í stofuna í Vogum í Mývatnssveit, þar sem ég dvaldi um sumarið. Útvarpsfréttir hófust þannig: „Þjóðveijar hafa gert innrás í Sovétríkin." Eg hljóp út á hlað og tilkynnti Vogungum tíðindin og setti menn hljóða. VIII í júlí 1941 gera íslendingar samning við Bandaríkin um hervemd. Verða þá þáttaskil hér á landi og mun ég ekki fjalla um seinni stríðsárin hér að sinni. Nú gerumst við gamlir, sem munum eftir dvöl í loftvarnabyrgjum í Reykjavík. Við sem unnum í Völundi áttum að leita hælis í byrgi í kjallara á Klapparstíg 16. Þýsk flugvél hafði sést yfír Reykjavík, loftvarnamerki var gefíð og við starfsmenn upp í Klapparstíg 16. Sú stund, sem þar var dvalið, var fljót að líða, því Guðbrandur Jónsson prófessor skemmti mönnum með sögum, þannig að aldrei varð hlé á. Enskumælandi menn kalla slíkar uppá- komur: „Non stop stories" og er ég hræddur um, að ég hafí smitast af prófessornum, en ég læt lesendur um að dæma um það. Lýkur svo að segja frá hemámsárunum. Höfundur er lögfræðingur í Reykjavík. b&JMl iiixtnr iiiHUrtkHtt: ^íieim------- 50 ára gamalt nafnskírteini greinarhöfundar, útgefið af Agnari Short Sunderland flugbátur. Hann vakti mesta athygli allra vígtóla, sem Bretar komu með til Kofoed Hansen lögreglustjóra, 15.2.,1942. íslands. Einn slíkur kostaði jafn mikið og nýbygging Háskóla íslands, er vígð var 17. júní 1940, eða kr. 2.152.759,93. 2

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.