Lesbók Morgunblaðsins - 21.12.1992, Page 18
Fyrsta þátttaka Islendinga í Olympíuleikunum:
Jóhannes Jósefsson á
Ólympíuleikunum 1908
vað veldur því að sambandsstjóri UMFÍ, Jó-
hannes Jósefsson, dreif í að flýta því að stað-
ið væri við heitstrenginu þá sem nánasti vin-
ur hans, Þórhallur Bjamason, mælti fram á
eins árs afmælisfagnað Umf. Akureyrar 6.
Þessi grein er rituð til
þess að leiðrétta
missagnir, villur og
jafnvel niðrandi
sögusagnir um fyrstu
þátttöku íslendings í
keppni á Ólympíu-
leikunum. Jóhannes
Jósefsson varð að vísu að
teljast í danska liðinu, en
það var ævinlega Qallað
um hann sem Islending
og hann stóð sig vel.
Brákað bein kom þó í veg
fyrir að hann gæti keppt
um bronsverðlaunin.
Eftir ÞORSTEIN
EINARSSON
janúar 1907? Þennan fagnað undirbjuggu
þeir sambandsstjórinn og Lárus Rizt, sem
þá var nýkominn frá íþróttanámi í Dan-
mörku. Þeir ákváðu að til skemmtunar
skyldu vera heitstrengingar að hætti fomra
forfeðra. Sumar vom spaugilegar og hnittn-
ar, en aðrar efldu athöfn og framkvæmda-
semi. Til að mynda loforð þeirra Jóhannesar
(sem glímumaður og halda velli í glímu-
keppni á Þingvelii fyrir konung ella lítil-
menni heita), Lámsar (að synda yfir Eyja-
fjörð klæddur sjófötum, áskildi sér rétt að
afklæðast ella minni maður heita) og Þór-
halls: „Stíg ég á stokk og strengi heit, bið
mér heill hollvina, þá er hver má veita og
lið ljá, er lífs mér unna, að koma því til
leiðar að vér íslendingar stöndum eigi verr
að vígi til sæmdarvænlegrar þátttöku í hin-
um Olympisku leikum innan fimm ára hér
frá en aðrar þjóðir að tiltölu; tel ég mig
ella minni heita mega.“
Þessi orð Þórhalls urðu hvatinn að því
að við íslendingar fómm að hugsa um
Ólympíuleika sem vettvang íþrótta okkar.
Hann, þessi varfæmi og hyggni maður,
hafði í huga undirbúning góðan svo að þátt-
taka verði til sæmdar og setur henni „hér
frá“ (þ.e. 1907) „innan fimm ára“, átímabil-
inu 1907-1912. Hann á þá við Ólympíuleik-
ana 1908 (í London) eða 1912 (í Stokk-
hólmi).
I ævisögu Jóhannesar Jósefssonar: Jó-
hannes á Borg (Stefán Jónsson ritaði; útg.
1964) lætur Jóhannes hafa eftir sér um
heitstrengingu Þórhalls: „Hann strengdi
þess sem sé heit, að stjóm ungmennafélags-
ins skyldi koma því til leiðar, að íslendingar
tækju þátt í Ólympíuleikunum í Lundúnum
á næsta ári sem sérstök þjóð.“
Margt ber á milli upphaflegrar heitstreng-
ingar Þórhalls og upprifjunar Jóhannesar
58 árum síðar: Stjóm Umf. Akureyrar skyldi
koma íslendingum til keppni á ÓL í London
þegar næsta ár og þá sem sérstakri þjóð.
Hér í fólust þijú Grettistök. Stuttur tími til
undirbúnings (U/2 ár). Hverja skyldi senda
og í hvaða íþróttum keppa. Vankantar á
þessu voru margir. F'yrst og fremst höfðu
engin mót verið haldin, nema í glímu og
hún ekki ólympsk íþróttagrein. Þá hið
þyngsta, að fá þjóðina viðurkennda sjálf-
stæða og fullvalda.
Hafí Jóhannes meðtekið heitstrengingu
Þórhalls þannig 1907, þá hlýtur að hafa
verið ástæða fyrir því að hann gekk fram
til átaka við þessi Grettistök án tafar. Hin-
um þekktasta íslendingi á Englandi, Einari
Benediktssyni skáldi og athafnamanni, var
skrifað og falið að ná sambandi við hina
bresku framkvæmdanefnda ÓL. Á útmánuð-
um 1907 barst bréf frá Einari. Hann kvaðst
hafa haft samband við nefndina og verið
tjáð bréflega, að íslendingar ættu rétt á að
taka þátt í OL 1908 og að nefndin myndi
skrifa nánar um væntanlegt samkomulag.
Við heimkomu frá ferð til Þingvalla, þar sem
Jóhannes tók 2. ágúst þátt í konungsglímu,
vann austur þar og í Reykjavík að stofnun
UMFÍ, beið hans bréf frá ólympíunefnd
Bretlands. Látin var í ljós ánægja á að ís-
lendingar tækju þátt í leikunum, sýndu
glímu 0g kepptu í einhverri hinna ólympsku
keppnisgreina. Bréfaskipti urðu nokkur áður
en gengið var frá að sjö glímumenn sýndu
glímu, en Jóhannes keppti í 73 kg flokki
grísk-rómversks fangs.
Æft Af Kappi
Veturinn 1907-08 var glíma og grískt-
rómverskt fang æft af ötulleika. Efnt til
keppni 0g sýninga á Akureyri og í ná-
grenni. Með þessu og fleiri ráðum var safn-
að ljár til ferðarinnar.
Enn hefur eigi verið svarað þeirri spurn-
ingu: Hvers vegna þessi flýtir? Jóhannes
hafði um skeið þjálfað sig og æft ákveðnar
íþróttir og haldið sér lengi í fullri þjálfun.
Langað til keppni á ÓL en fundist of langt
að bíða til ÓL 1912? Honum hefur fundist
orðið þröngt um sig á Akureyri og ótryggt
með verslunarstörfín hjá föður sínum eftir
bruna verslunar hans. Sumir hafa álitið
þetta stafa af reiði eða vonbrigðum af ósigri
hans á konungsglímunni. Hann heyrði menn
kalla á milli sín eftir að hafa ekki getað
staðið undir heitstrengingu sinni og kölluðu
hann „minni mann“. Undan þessu sveið,
segir Jóhannes í ævisögu sinni. En konungs-
glíman fór fram eftir að Jóhannes hóf að
undirbúa að íslendingar kæmust á ÓL 1908.
Hér mun hafa vegið mest áhugi Jóhannesar.
Þó að skjótt sé brugðið við til athugunar
á Englandi um leyfi til þátttöku í ÓL 1908,
þá dregst fram á vetur 1907-08 að fá hæfa
glímumenn til fararinnar. í júní, þegar Aust-
fírðingurinn Páll Guttormsson, síðar Þorm-
ar, Norðlendingarnir Jón Pálsson, Akureyri,
og Pétur Sigfússon, Laxárdal, Suður-Þing-
eyjarsýslu, komu til Reykjavíkur, ásamt
Jóhannesi, höfðu þrír glímumenn ekki verið
valdir. Eftir að Hallgrímur Benediktsson og
Siguijón Pétursson annars vegar og Jóhann-
es Jósefsson hins vegar höfðu eytt ákveðn-
um misskilningi eða grunsemdum um að
Reykvíkingarnir vildu ná þátttökunni í sínar
hendur og gert út sendimann til meintra
funda við bresku ólympíunefndina, þá gengu
Ármenningamir í hópinn. Sá sjöundi varð
svo Mývetningurinn Guðmundur Hafdal Sig-
uijónsson, sem hafði þá að vísu æft og
keppt um skeið í nafni Ármanns. Æfíngar
voru hafnar af ötulleik fram til brottfarar.
Jóhannes, sem hafði álitið sig hafa aflað
nægjanlegs fjár, komst nú að því að þar
vantaði allmikið á. Hann leitaði til Hannes-
ar ráðherra Hafstein, en honum hafði hann
neitað að leggja til hliðar Hvítbláinn, fána
ungmennafélaga, í Almannagjá meðan kon-
ungur dveldi á Þingvöllum í ágúst 1907.
Ráðherrann veitti flokknum það fé, sem á
vantaði, kr. 4.000,00.
Hinn 4. júlí kom flokkurinn með danska
farþegaskipinu Vestu til Leith á Skotlandi.
Koma þeirra þangað vakti athygli eftir
greinum að dæma sem birtust í þremur blöð-
um í Edinborg með myndum af Hallgrími
og Jóhannesi. Skotunum leist það vel á
flokkinn að hann var falaður til að sýna
glímu á þjóðlegri skoskri sýningu er hann
sneri heim í ágúst frá leikunum.
Daginn eftir komuna til London hafði
flokkurinn mætt til fundar við framkvæmda-
stjóra leikanna, sem bréfaskipti höfðu verið
við. Fagnaði hann þeim og ræddi við þá um
þau atriði í dagskrá sem þá varðaði. Jóhann-
es yrði sem keppandi í grísk-rómversku
fangi að vera í flokki Dana á setningarhátíð-
inni. Glímumennimir sex, sem sýna ættu
glímu, fengju að koma fram sem fulltrúar
þjóðar sinnar, sveit íslendinga, á sérstökum
tveimur sýningum í tengslum við leikana.
JÓHANNES í LITKLÆÐUM
í samræmi við þessi orð framkvæmda-
stjórans bjuggu glímumennimir sig til sýn-
ingarinnar 12. júlí, daginn fyrir setningarat-
höfn. Klæddir voru þeir, sem skyldu sýna,
hvítum leistabrókum, ermalausum og flegn-
um bolum, ljósum mittisskýlum, lágum ljós-
um leikfimiskóm. Glímubeltin voru sívöl,
mjó, brún að lit. Jóhannes var í litklæðum;
bláum buxum, hnepptum undir hné; svörtum
sokkum, ljósum hvítbrydduðum sauð-
skinnsskóm með þvengjum brugðnum upp
um leggi. Kyrtill rauður, hár í hálsinn og
ermalangur; skikkja blá að ytra sem innra
byrði, náði í hnésbætur, faldar bryddaðir
hvítu skinni, felld fram um axlir og tekin
saman um háls. Uppslög erma, svo og jaðar
skikkju sem hálsmál, skreytt listsaumi.
Þennan búnað bar Jóhannes vel og var
kempulegur með burðarstöng Hvítbláins í
höndum. Er sveitin kom að hliði því sem
fara skyldi um inn á leikvanginn var þar
fyrir í vegi fylking hvítklæddra Dana og
framan við hana formaður ólympíunefndar
Dana og einnig íþróttasambands Danmerk-
ur, Fritz Hansen, kapteinn. ,Stöðvun hans
var gerð af því, að sérstök þjóð væru Islend-
ingarnir ekki að hans danska áliti. Einhver
hávaði hefur heyrst frá fylkingum frænd-
þjóðanna eða foringjum þeirra, því að allt
í einu er framkvæmdastjórinn kominn á
vettvang með sveit blaðamanna, því að víða
f = byltusigur
p = unnið á stigum
x = byita (tap)
73 kg Nr. 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21
Andersson Mauritz SW 1 f P f P II
Bacon Stenley GB 2 X E1R
Beck Frederick GB 3 X P E2R
Challstorp Harry SW 4 x | E1R
Eriksen Johannes DE 5 X f E3R
Bacon Edgar GB 6 X / E2R
Josefsson Johannes IC 7 X : :»i f f IV
Orosz Miklós HU 8 X j. E2R
Frank Axel sw 9 X p E3R
Demin G. RS 10 X E2R
Mártensson Frithiof SW 11 f f f P f I
Jakoubek Josef BO 12 X E12
Bradshaw G. GB 13 X E2R
Larson Axel DE 14 X f P E3R
Duym G. NE 15 X E1R
Lelie A. NE 16 X E2R
Andersen Anders DE 17 r X f III
Lorenz J. NE 18 X E2R
Belmer J. NE 19 X f f E3R
Grungmann Wilhelm GE 20 X E1R
Tyfa Josef BO 21 X E2R
1. umferð 2. umferð 3. umferð
1-2 1-3 11-13 1-5
3-4 5-6 14-16 7-9
11-12 7-8 17-18 11-14
15-15 9-10 19-21 17-19
19-20 Nr. 5, 6, 7, 8, 9,10,13,16,17,18, 21 sátu ■
4. umferð
1-7
11-17
5. umferð
1-11
7-17 ®
® Jóhannes, nr. 7, •
mætti ekki, en
hann var meiddur.
Keppnistaflan fyrir frjáJst fang á Ólympíuleikunum 1908, þar sem sést svart á hvítu hvernig frammistaða Jóhannesar var.