Lesbók Morgunblaðsins - 21.12.1992, Síða 20

Lesbók Morgunblaðsins - 21.12.1992, Síða 20
JOSH Örsaga hér er átt við 2. umferð: Þ.E.) Aðrir kepp- endur voru: 4 Svíár; 2 Tékkar; 4 Hollending- ar; 1 Rússi, 1 Þjóðveiji; 1 Ungveiji; 1 Tyrki og 4 Bretar." Allt voru þetta þekktir fang- bragðamenn innan Evrópu og þjóða sinna, að aldri 20-26 ára og líkamsþungi 65-73 kg. Sumir höfðu 9 ára reynslu í íþróttinni. Reynsla Jóhannesar var U/2 ár. Hann var 25 ára og líkamsþungi 73 kg. „í miðþyngdarflokknum var 21 kepp- andi. J. Belmer (Holland) sýndi best lag ásamt Tyfa (Tékkóslóvakía) og J. Jósefsson (ísland) var einnig athyglisverður fyrir virkni. Hann var vissulega öflugasti fang- bragðamaðurinn af þeim sem kepptu í fyrstu og annarri umferð. í þriðju umferð var Jó- sefsson sigraður af M. Andersson (Svíþjóð), en að henni lokinni kom í ljós að laskast hefði annar handleggur hans alvarlega." „BROTINN HANDLEGGUR“ „Undanúrslit í miðþungaflokki í grísk- rómversku fangi voru eingöngu milli útlend- inga (blaðið var enskt; nafn þes_s þekki ég ekki). Áhugi flestra beindist að íslendingn- um Jósefssyni. Hann var samt sem áður ekki nógu góður fyrir M. Andersson (Sví- þjóð), sem náði honum niður með líkams- þunga og hálstaki, en það gerðist á 10 mín. framlengingu dómaranna. Það spurðist að Jósefsson var í viðureign- inni þjáður af broti á handlegg. A. Andersen (Danmörk) hlaut bronsverð- launin, þar sem Jósefsson gat eigi sökum meiðslanna fengist við hann. M. Andersson (Svíþjóð) átti sama dag og hann fékkst við Jósefsson að keppa um gullið við landa sinn, F. Mártensson, sem vegna smámeiðsla fékk að fresta viðureigninni til næsta dags.“ (Lauslega þýtt af Þ.E.) I skýrslu ólympíunefndar Londonleikanna 1908 er þannig skýrt frá úrslitum í milli- þyngd (73 kg) grísk-rómverska fangsins: MIDDLE WEIGHT I. F.M. Martenson (Sweden). II. M. Andersson (Sweden). III. A. Andersen (Denmark). Special Merit: J. Josefsson (Iceland). Sérstakt heiðursskjal J. Jósefsson (ísland) (sjá mynd af heiðursskjali). Umsögn sérfræðings í skýrslu ÓL-nefnd- ar Bretlands um miðþyngdarflokkinn var að eigi hefðu sést betri viðureignir á alþjóð- legu móti. Dómgæsla góð; engar þrætur. Lagt til að lotulengd verði færð úr 20 mín. í 30 mínútur. Síðasta dag þessa aðalhluta leikanna, 25. júlí, sýndu glímumennirnir á leikvanginum í annað sinn. íslendingamir, sem rituðu um förina, geta ekki þessarar sýningar nema Jóhannes nefnir hana og segir að blöðin hafí gert henni góð skil en þessa fínnst ekki staður. Efalaust hefur sýningin verið góð; Jóhannes gengið með sveitinni í litklæð- um með hönd í fetli. Einhver annar borið Hvítbláinn, en Jóhannes staðið undir honum meðan sýnt var. Blaðamenn hafa haft mörgu að sinna, því að verðlaun voru veitt og við það tækifæri komu fram athyglisverðar persónur, sem veittu viðtöku viðurkenning- um úr hendi Alexöndru Bretadrottningar, t.d. maraþonhlauparinn frá Ítalíu, Dorando Pietri, sem var 5 sinnum reistur við síðasta spölinn og nær borinn í mark og dæmdur úr leik en drottningin veitti honum gullbik- ar; guðfræðingurinn frá Bandaríkjunum, Forrest Smithson, sem með Biblíuna í hendi (il þess að minnka syndsamlegt athæfi að keppa á sunnudagi) vann 110 m grinda- hlaup á heimsmeti. Jóhannes Jósefsson var einn þeirra sem var veitt heiðursskjal fýrir að dæmast í 4. sæti í milliþyngd í grísk-rómversku fangi. Rógstungur báru á Jóhannes að honum hefði verið vísað frá keppni vegna þess að hann hefði smurt sig, svo viðfangsmaður næði síður á honum taki. Ennfremur að skjal það, sem hann hefði fengið afhent af Alexöndru, hefði verið þakkarskjal, sem all- ir flokkstjórar hefðu fengið afhent í garð- veislu einni konunglegri. Þær töflur, sem hér eru birtar, frá FILA (Alþjóðafang- bragðasambartdinu) og ljósrit af skrá fjög- urra efstu manna í milliþungaflokknum sýna að engin brögð hafa verið í tafli, Jóhannes varð fjórði og fékk fýrir það, sem allir aðr- ir sem náðu í það met, heiðursskjal. Heiðurs- skjalið hvarf úr eigu Jóhannesar eins og fleiri verðlaun hans. Hér með greininni er birt ljósrit af heiðursskjali eins og því sem Jóhannes hlaut og missti. Glímumennirnir gerðu glímunni góð skil í ágætum tveimur sýningum. Við komuna til Edinborgar frá íslandi höfðu glímumennirnir lofað að sýna á leið heim á þjóðlegri skoskri hátið. Dagblaðið The Scotsman birti 24. ágúst eftirfarandi um hlutdeild þeirra í þessari hátíð. (Vegna þess að minnst er á skosk fangbrögð er rétt að skjóta hér inn að í Skotlandi eru iðkuð þjóðleg fangbrögð „Back-hold“ (axla- tök) og „La catch“ (frjálst fang).) „Sýning íslendinganna á þeirra þjóðlega 'fangi, glímu, vakti töluverðan áhuga þó ekki eins mikinn og ef tími hefði gefist til að koma á keppni við skoska fangbragðamenn. Kringumstæður gerðu ómögulegt að koma á slíkri keppni, svo að úr varð sýning þar sem íslendingamir áttust við innbyrðis. Hin sérstaka tegund fangs og hin athyglisverða fími, sem þeir sýndu, gerðu frammistöðu þeírra eftirtakanlega. Tök þeirra voru á ólar hvers annars og fall er aðeins, ef einhver líkamshluti frá hné til axlar snertir völlinn." Fyrsta keppni íslendings á Ólympiuleik- um varð eftirminnileg. Undravert má vera að tókst innan.tveggja ára að staðið væri við heitstrengingu Þórhalls Bjarnasonar. Þar átti Jóhannes Jósefssoon stærstan hlut að sem „hollvinur". Frammistaða Jóhannes- ar sýndi honum sjálfum, að þann gat verið meðal færustu fangbragðamanna heimsins. Sýningar þeirra á glímunni opnuðu augu Jóhannesar á að hún var íþrótt, sem almenn- ingur vildi sjá. Framrhistaða glímumann- anna í fjölleikahúsi eftir leikana, meðan beðið var heimferðar, leiddi án efa hjá Jó- hannesi fram sýn til líklegs frama og fjár við að sjá félögum sínum græðast fé á að leggja að velli eða standa viðfang þeirra er freistuðust til að ganga upp á svið til fangs við þá og lögðu peninga undir. Það leið rúmlega hálft ár frá heimkomu að hann var kominn af stað út í heiminn með þijá glímu- menn til þess að sýna ágæti glímu og færni sína. Það kom á daginn að rétt var að hann notfærði sér heitstrengingu vinar síns, Þór- halls, að reyna sem fyrst getu sína á heims- vísu og „þjóðargullið“, glímuna. í Edinborg skildu leiðir glímumanna- flokksins, því að Hallgrímur Benediktsson, Jóhannes Jósefsson og Siguijón Pétursson héldu til Kaupmannahafnar. Hina fjóra flutti Ceres heim. Þeir tóku fyrst höfn á Seyðis- fírði og eins gerðu þremenningarnir sem síðar komu. í báðum tilvikum var þeim fagn- að með veislum, þar sem ræður voru fluttar svo og kvæði. Þeir höfðu komið fram sem íslendingar á stærsta íþróttamóti heimsins, sem féll auk þess sem liður inn í heimssýn- ingu. Orðið sér og þjóðinni til sóma. Höfundur var íþróttafulltrúi ríkisins í áratugi og glímumaður á yngri árum. eftir SVEIN S. SVEINSSON 1 Hveijum á ég að gefa ást mína?“ æpti Josh þar sem hann stóð á hamrabrúninni og lyfti höndum til him- ins. „Gefðu mér hana,“ mælti Guð þýðum rómi niður til hans. „Ef ég gef þér hana, hver verða þá laun mín í þessu lífí?“ spurði Josh áhyggjufullur. „Engin, þú kemst til himnaríkis eftir dauðann," svar- aði Guð. „Það gagnast mér ekkert,“ sagði Josh upphátt við sjálfan sig. Brimið hamaðist á klettunum tugum metra fyrir neðan. Hvítfyssandi löðrið skvettist hátt í loft upp og skall á kletta- veggnum þegar alda brotnaði á steini. „Hveijum á ég að gefa ást mína?“ æpti Josh enn, og lyfti höndum til himins. Það hvessti. „Gefðu mér hana,“ mælti rödd, djúpum rómi að ofan. „Ef ég gef þér hana, hver verður þá umbun mín í þessu lífi?“ spurði Josh. Ef til vill örlaði fyrir vonarblæ í spyijandi rödd hans, því þegar röddin svaraði, mátti ímynda sér að mælandi hennar brosti glóðlátlega. „Umbun þín, verður fullvissan um hið fjar- læga Nirvana sem ég hef vald til að veita — og mun veita þér að þessari síðustu jarðvist þinni lokinni." Röddin lagði áherslu á orðin „mun“, því þótt allir menn, að meðtöldum himnaskaranum viti, að guðlegar verur fari aldrei með fleipur, þá var aldrei hægt að vita til fullnustu hugs- anir þessarar undarlegu veru sem mann- skepnan er. „Hvað hef ég að gera með fullvissu sem er mér ekki áþreifanleg?" spurði Josh sjálfan sig dapurlega. II Þannig liðu dagar og nætur. Josh ávarp- aði guð, forna og nýja, með spurningu þeirri er hvíldi svo þungt á huga hans. Svarið sem hann fékk var ávallt á þá leið, að hann hlyti vist í himneskum bústað guðanna, eftir dauðann. „Fyrir hvað er dauðinn svona merkilegur?" spurði Josh einn guðinn meðan á samtali þeirra stóð. „Það er ekki dauðinn sjálfur sem er merki- legur,“ svaraði guðinn. „Það er táknræn merking dauðans. Dauðinn leysir ykkur undan þjáningum jarðlífsins sem veitt hefur ykkur guðlega visku, eða ... það var að minnsta kosti ætlunin," bætti guðinn niðurlútur við. III Josh sat hugsi á hamrabrúninni. Hann hugsaði um orð eins guðsins. Guðinn, sem var ævaforn, hafði sagt eitthvað á þá leið að ást mannanna væri sprottin frá jörð- inni; að ást mannanna væri komin dýpst úr hjartarótum; að hún væri þeirra eign; að hún væri guð. Josh velti þessu fyrir sér óralengi. Hann var kaldur og svangur. Vindinn ætlaði aldrei að lægja; og það var komið rökkur eina ferðina enn. Honum fannst eitthvert sannleikskorn í því sem guðinn hafði sagt. Honum fannst, sem hann sjálf- ur væri guð ... og raunar allar aðrar ver- ur á jörðinni. — Hann réði hvemig hann hagaði athöfnum sínum þennan daginn, hann réði hvenær hann færi að sofa og hvort hann borðaði, og ef hann borðaði, á hvað hann borðaði. raun var hann sinn eiginn herra, — hann þjónaði engum?, hélt hann. Reyndar fannst honum margt líkt með^sér og Guði; báðir voru sínir eigin herrar. Hann vissi þó, að ef honum hefði auðnast að eignast barn með fagurri konu, þá hefði hann þjónað þeim báðum hvern dag lífs síns. Og hann hefði orðið hamingjusamur. Hann hefði hitt Guð ... fannst honum einhvern veginn. — Hvers vegna þjónar Guð ekki mönnunum? hugsaði hann með sér. — Hin æðsta hamingja hlýtur að vera sú að þjóna þeim sem maður elskar, ... ef maður á annað borð hefur einhvern að elska,“ hugsaði hann dapuriega. IV Það var hvasst. Vindurinn ýfði dökkt hár Joshs þar sem hann stóð á hamrabrún- inni. „Það var margt líkt með sjónum og honum,“ hugsaði hann með sér. Hann elskaði sjóinn vegna þess að sjóinn braut á klettana fyrir neðan; hann elskaði sjóinn vegna þess að vindurinn ýfði öldurnar af styrkleika sínum og mætti.“ -Hann elskaði sjóinn, því sjórinn elskaði hann. Höfundur er ungur listamaður og nemi í Reykjavík. UNNUR SÓLRÚN BRAGADÓTTIR Jólaljóð jólin að nálgast og nýjar gardín ur fyrir eldh ús- gluggann lömb fyrir utan Ijárhús vitringar í ölluiri hornum jósef hlaðinn gjöfum maría í nýjum kjól og beint fyrir ofan vaskinn var stjarnan en hvar var barnið / líklega jifklippt í ákafanum í ruslinu mamma við límdum það varfærnislega á viðeigandi stað litla jesúbarnið Höfundur er húsmóðir í Reykjavík Heiðursskjalið, Diploma of Merit, sem Jóhannes Jósefsson hlaut fyrir 4. sætið í frjálsu fangi. Vegna meiðsla gat hann ekki"keppt um bronsverðlaunin.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.