Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 06.05.1995, Qupperneq 2

Lesbók Morgunblaðsins - 06.05.1995, Qupperneq 2
Myrkrið hvítt Eftir BALDUR ÓSKARSSON GARCÍA Lorca hélt því fram að til væru þrenns konar skáld, þau sem eiga sér gyðju, þau sem eiga sér engil, og þau sem eiga sér anda, svokallaðan dunanda. Engillinn svífur yfir skáldi sínu og syngur því ljóð, gyðjan hvíslar í eyra, en dunandinn sem við köllum svo hefur annað háttalag. Hann kemur til listamanna af ýmsu tagi, skálda, söngvara og dansara; hann kemur úr jörðinni og smýgur upp í fætur manna, og þegar hann er kominn upp undir hné, þá dylst það engum. Og þá er hrópað: Olé; Olé;, sem ku verá afbökun á Allah. Þetta er guðlegur kraftur. Lorca tekur sem dæmi franska skáldið Apollinaire, hann átti sér gyðju. Annað dæmi er spænska skáldið Jóhann á Krossi, hann átti sér engil. En dæmi um þá sem dunandinn sækir heim velur hann helst úr hópi túlkandi listamanna. Þó má geta sér til um það, að hann telji sjálfan sig á með- al þeirra sem verða haldnir, ef ég má nota það orð. Það er ljóst að með umfjöllun sinni um þessi þrenns konar skáld var Lorca fyrst og fremst að gefa í skyn að skáldskapurinn væri ekki upp runninn hjá skáldinu, hann kæmi annars staðar frá, og það að vera skáld, væri fyrst og fremst það að vera móttækilegur. - Af þessu leiðir að fullgild- ur sjálskapur getur sprottið fram, svo að segja hvenær sem er á mannsævinni, en algengast mun þó að svo verði þá fyrst, þegar búið er að fínstilla tækin, en slíkt tekur oftast nær langan tíma. - Ég get um þetta hér vegna þess að ég tel að Ingi- mar Erlendur Sigurðsson sé nokkuð sama sinnis og Lorca í þessu efni, hann telji að skáldið taki það ekki allt hjá sjálfu sér, sem það er að yrkja. Fyrir nokkrum árum spurði ég góðkunn- ingja minn sem sjálfur er skáld, hvað ljóð væri. Hann svaraði mér, og fyrst hálfönug- lega, eins og honum væri spurningin hvim- leið: - Það veit enginn maður! Svo bætti hann við stillilega: - En við þekkjum það þegar við sjáum það. Nokkur orð um Ingímar Erlend Sigurðsson og ljóðlist hans. Við þekkjum ljóð þegar við sjáum það eða heyrum, og meira verður eiginlega ekki um það sagt. Af þessu má ráða, að það að yrkja, er engin venjuleg iðja, og breytir þá engu hvort menn yrkja daglega eða við og við. Ekkert skáld gengur að því að yrkja eins og gengið er að venjulegu i verki. Aðeins frágangurinn ber keim vana- bundins starfs. Af því má ráða að skáld- skapur er ekki verkefni fyrir hvern sem er. Ingimar Erlendur orðaði það svo í mín eyru: - Eiginlega ætti enginn að fást við skáldskap ef hann getur fengist við eitt- hvað annað. - Og þetta er mergur máls. Skáldskapurinn tekur menn, altekur þá; enginn kemst undan sem fyrir því verður. En þeir eru, og kansnki sem betur fer, ekki mjög margir sem verða fyrir því. Skáldskapurinn batnar ekki með hækk- andi höfðatölu. Það er eitthvað bogið við það, þegar menn koma fram hópum saman og kalla sig skáld. Ingimar Erlendur Sigurðsson var ekki ljóðskáld einvörðungu. Hann á einnig að baki tvær skáldsögur, tvö smásagnakver og eina bók af því tagi sem kallast Ijóð- saga. Fyrsta bók hans var safn óbundinna ljóða og hét Sunnanhólmar. Næst komu Hveitibrauðsdagar, smásagnasafn er sýndi ljóslega hve skáldskapur getur blómgast á ungum aidri, en flestar sögumar voru skrif- aðar milli tektar og tvítugs. Fyrir þá bók hlaut Ingimar Erlendur mikla viðurkenn- ingu, og viðurkenningu margra og mikla athygli hlaut hann fyrir næstu bók sína, skáldsögu sem hann kallaði Borgarlíf. ís- landsvísa, önnur skáldsaga, fylgdi í kjölfar- ið, og ljóðsagan Undirheimur sem er að Ogöngnr - brot úr hugmyndasögu Líflð er lotterí Eftir ATLA HARÐARSON Ingimar Erlendur Sigurðsson. minni hyggju eitt magnaðasta verk sinnar tegundar, verk sem er þó afar auðvelt að misskilja - sú bók ijallar um hreinsun. Ég vil bæta því við að mér virðist sem fáir hafi lesið þá bók, og fer það að vonum þar sem fátt virðist rata til manna nema gaspr- að sé um það í samfélaginu. Um Ingimar Erlend hefur lítið verið gasprað í seinni tíð. Og satt að segja hlýt- ur maður að undrast hve samfélagið hefur hljótt um slíkan mann, og hve bækur hans, þær síðustu, þær sem mest er um vert, hafa hlotið litla umfjöllun í hinum svoköll- uðu fjölmiðlum. - í sumt er auðvelt að ráða, annað ekki. Ingimar Erlendur afréð á sínum tíma að draga sig út úr skarkala borgarlífsins; hann settist að í stijálbýli við Elliðavatn. Hann sneri baki við stjórnmála- stefnu sem hann hafði fylgt, en lét aldrei af því að sýna réttlætiskennd sína í orði og verki. Þannig kom hann sér út úr húsi hjá veiklunduðum. Hann leitaði sanninda, æðri sanninda en hafði áður þekkt, fyrst í austrænni heimspeki, en síðar og ávallt síð- an í kristindómi. Hann varð öðrum þræði trúarskáld. Skáldskapur hans af þeim stofni er ekki trúarlegur, eins og komist er að orði um ýmislegan samansetning með óljósu ívafi trúartogans, heldur eru það trúarljóð sannkölluð, þó ekki sálmar. Engin hálf- velgja er í þessum ljóðum, og erum við þá nokkru nær því að skilja það fálæti sem hið menningarsögulega fírrta samfélag hef- ur sýnt þessu skáldi sínu nú um stundir. En fleira kemur til: Ingimar Erlendur hefur árum saman unnið að því að end- urnýja ljóðstíl sinn, hverfa frá fríljóðinu svokallaða og leita endurnýjunar í bragar- háttum fyrri tíðar, breyta þeim og fella að tungutaki nútímans og þeim hugsunar- hætti sem hann hefur sjálfur tileinkað sér. Hann stillti tækin á nýjan leik, og nýjungar þurfa sinn tíma á leið til manna. Það sýnir sagan í hveiju dæmi sem máli skiptir. Ingimar Erlendur er í raun réttri ákaf- lega róttækur maður, og róttækni hans birtist hvergi betur en í skáldskapnum, í heilindum forms og innihalds, sem verður ekki sundur greint. Það er kennimark skáld- skapar: innihaldið er form, formið innihald. Af ljóðabókum hans fer það ekki á milli mála, að mest er um vert þá síðustu, Hvíta- myrkur, sem kom út í hitteðfyrra. - í raun réttri er það svo að Hvítamyrkur hefði get- að komið út fyrir löngu; hún er einnig bók framtíðar, og í vissum skilningi mun hún ekki koma út fyrr en menn eru tilbúnir að meðtaka hana. Einnig það er kennimark skáldskapar, og fleiri lista. En hvað segir það okkur, þetta bókar- heiti? Hvernig getur myrkrið verið hvítt? - Sú er þó raunin á Ijósum degi. Við sjáum ekki heiminn fyrir birtunni, sjáum ekki þá mynd sem við blasir þegar sól er af lofti og nóttin kemur. Við þetta líkja þeir hugar- ástandi sínu, sem komnir eru áleiðis, ástandi sem þeir vona, að því muni linna, og þeir megi aftur sjá og lengra og dýpra en fyrr. Orðsmíð Ingimars Erlendar mun þó vera einsdæmi. - En um þetta talaði postulinn Páll þegar hann sagði: - Því að nú sjáum vér svo sem í skuggsjá, í óljósri mynd, en þá augliti til auglitis. Kristin mystik - hin kristna dul - er fáæt í skáldskap norrænna manna, en suð- ur við Miðjarðarhafið, og víðar, hafa löngum verið skáld þeirrar stefnu. Ég nefndi í upp- hafí Spánverjann Jóhann á Krossi. Mér virð- ist sem skáldskapur Ingimars Erlendar sé með vaxandi styrk að berast inn í þá birtu. Höfundur er Ijóðskáld og útvarpsmaður. Hamingja manna veltur að miklu leyti á heppni. Sumir fæðast hraustir og heilbrigðir, aðrir fatlaðir og vanskapaðir. Sumir fæðast inni í auðugt samfélag þar sem allt er á uppleið. Aðrir eru dæmdir til að líða skort. Sumir eru heppnir og sumir óheppnir og þetta kemur verðleikum fólks yfirleitt ekkert við. Lán og ólán eru utan við allt réttlæti. Um þetta þarf kannski ekki að orðlengja svo augljóst sem það er. En þó þetta virðist augljóst neita því marg- ir. Mér skilst að þeir sem aðhyllast hindúa- trú álíti að bág kjör manns í þessu lífi séu afleiðing af einhveiju sem hann gerði í fyrra lífi. Ef þetta er rétt þá er hamingja manna ekki komin undir heppni, tilviljunum og blindum náttúrukröftum heldur veltur hún algerlega á verðleikum þeirra og eng- inn verður fyrir meira óláni en hann á skilið. Þessi kenning hindúa á sér samsvörun í mörgum öðrum trúarbrögðum enda boða flest trúarbrögð að einhvers konar æðra réttlæti sé að baki öllu því sem okkur virð- ist velta á heppni og hendingum. En trúar- brögðin eru ekki ein um að hafna því sem virðist liggja í augum uppi. Ein af áhrifa- mestu heimspekistefnum fornaldar, Stóu- spekin, tók í sama streng. Stóuspekin varð til í Grikklandi um 300 f.Kr. en er kunnust af ritum Rómveija sem voru uppi nokkrum öldum síðar. Meðal þessara rómversku Stóuspekinga voru Markús Arelíus keisari sem var uppi á árunum 121 til 180 og þrællinn Epiktet sem var grískur að uppruna og lifði frá 55 til 135. Eftir þann síðarnefnda er til lítil bók sem er yfirleitt kölluð handbók Epiktets og Broddi Jóhannesson þýddi á íslensku fyrir um það bil 40 árum síðan og gaf út undir nafninu Hver er sinnar gæfu smiður. Þessi nafngift lýsir vel siðfræði Stóu- manna. Þeir töldu að hver maður ætti það undir sjálfum sér en hvorki heppni né til- viljunum hvort hann væri hamingjusamur eða ekki. Að dómi Epiktets geta menn verið hamingjusamir á hveiju sem gengur ef þeir kunna að taka því með æðruleysi og hafa vit á að ergja sig ekki yfir því sem þeir fá ekki við ráðið. Raunar gekk hann svo langt að halda því fram að ástvinamiss- ir, sjúkdómar, kúgun, illt atlæti og annað það sem gerir mönnum lífið leitt hafi eng- in áhrif á hamingju þeirra - það séu ekki atvikin sem geri mann óhamingjusaman heldur viðhorf hans til þeirra. í 16. kafla bókarinnar segir Epiktet: „Ef þú sérð einhvern gráta af trega vegna þess að bam hans er fjarri eða látið eða hann hefur týnt fé sínu, þá gættu þess, að sú hugmynd villi ekki um fyrir þér, að hann sé hryggur vegna þessara ytri hluta. Hugfestu að atvikin hryggja hann ekki, því þau hryggja ekki aðra, held- ur horf hans sjálfs við þeim. Með orðum einum mátt þú taka þátt í harmi hans og einnig andvarpa með honum, ef svo ber við. En gættu þess að klökkna ekki með honum á hjarta.“ Epiktet og aðrir Stóumenn þóttust geta varist valdi tilviljunarinnar með því að láta sig það engu varða hvernig veröldin velt- ist. Varnartæki þeirra voru æðruleysi og viljastyrkur. En þeim virðist ekki hafa kom- ið til hugar að hending og blindir náttúru- kraftar ráði því hvort maður skarar fram úr að æðruleysi og viljastyrk eða er hug- laus óhemja. Þeir trúðu því að hveijum manni sé sjálfrátt um hugarfar sitt. Þótt það blasi við að menn skammta sér ekki sjálfir andlegt atgervi hefur þessi hugsun Stóumanna orðið ákaflega lífseig. Henni hefur skotið upp aftur og aftur í vest- rænni siðfræði, meðal annars í ritum þýska heimspekingsins Immanuels Kants (1742- 1804) sem er jafnan talinn með merkustu siðfræðingum seinni alda. Kant áleit að þótt veraldlegt gengi manns sé að miklu leyti háð heppni þá séu verðleikar hans það ekki. Samkvæmt þessu geta menn átt hamingju sína undir heppni og tilviljunum, en hvort þeir eiga illt eða gott skilið kvað vera óháð allri heppni. í sínu frægasta siðfræðiriti Grundlegung zur Metaphysik der Sitten (Undirstöður að frumspeki siðferðisins) segir Kant: „Það er engin leið að hugsa sér neitt í. þessum heimi, og ekki einu sinni neitt utan þessa heims, sem hægt er án nokkurra fýrirvara að kalla gott, nema góðan vilja. Skilningur, fýndni, dómgreind, og allir aðr- ir andlegir hæfileikar ... eru vafalaust á ýmsan hátt góðir og eftirsóknarverðir. En þeir geta orðið ákaflega illir og skaðlegir ef viljinn sem nýtir sér þessar náttúrugáfur ... er ekki góður. Allt þetta má kannski til sanns vegar færa. En Kant lætur ekki staðar numið hér heldur bætir því við að verðleikar manns fari ekki eftir því hvert gagn hann vinnur heldur eingöngu eftir því hvort hann vill vel. „Hinn góði vilji er hvorki góður vegna afleiðinga sinna eða þess sem hann kemur í kring né vegna þess að hann henti til að ná einhveijum tilteknum markmiðum. Hann er góður fyrir það eitt að vilja, það er að segja hann er góður í sjálfum sér. Hann er miklu æðri öllu því sem hann getur komið til leiðar. ... Jafnvel þótt óblíð örlög eða naumt skornar náttúrugáf- ur valdi því að þessi vilji komi engu til leiðar, jafnvel þótt ítrasta áreynsla dugi honum á engan hátt til að ná marki sínu og jafnvel þótt ekkert sé eftir nema viljinn einn (ekki bara ósk heldur vilji sem beitir öllum aðferðum sem við höfum á valdi okkar) þá glitrar hann eins og gimsteinn U Þetta dugar að vísu ekki til þess að verð- leikar manns séu óháðir heppni og blindum náttúrukröftum. Til þess að kaupa sér frelsi undan höfuðskepnunum reiðir Kant fram þá kenningu Stóuspekinga að hveijum manni sé sjálfrátt um hugarfar sitt. Hann orðar þessa kenningu svo að vilji mannsins sé fijáls. í þessu felst að hvort maður vill vel eða illa velti hvorki á uppeldi né erfð- um, efnaferlum í heilanum né neinu öðru því sem hann hefur ekki algerlega á valdi sínu. Kant var vel að sér í raunvísindum og gerði sér fulla grein fyrir því að allt sem gerist í náttúrunni, og þar með allt sem gerist í mannslíkamanum, fylgir lögmálum sem menn fá engu um breytt. Hann gerði sér manna best grein fyrir því að kenning- in um fijálsan vilja passar illa inn í heims- mynd vísindanna. En til þess að skapa vilj- anum svigrúm setti hann saman einhveija stórkostlegustu heimspeki sem sögur fara af. Samkvæmt þessari heimspeki lýsa vís- indin heiminum ekki eins og hann er í sjálf- um sér heldur eins og hann kemur okkur fyrir sjónir eftir að skynfæri okkar og skiln- ingur hafa matreitt hann ofan í okkur. Vísindin fjalla sem sagt ekki um veruleik- ann heldur um reynsluheim manna. Um veruleikann sjálfan er ekkert hægt að vita og í honum gæti viljinn sem best verið frjáls. Þetta er mikil kenning og myrk. En þeir sem telja sig hafna yfir duttlunga höfuðskepnanna, þótt ekki sé nema að því leyti að þeir eigi það undir sjálfum sér hvort þeir eru góðir menn eða vondir, verða líklega að trúa einhveiju ámóta. 2

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.