Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 06.05.1995, Qupperneq 7

Lesbók Morgunblaðsins - 06.05.1995, Qupperneq 7
rr » Fögnuður á friðardaginn í London. Á síðasta afmælisdegi sínum úthlutaði Hitler æðsta heiðursmerkiþýzka hers- ins, járnkrossinum, tilhermanna sem tæpast voru af barnsaldri. Berlínarbúar hlaupa úr einum kjallaranum í annan; skothríðin allt um kring og borgin brennur. Bandarísku herirnir náðu saman austan við Ruhr-héraðið, nú var það umkringt og þar með 300 þúsund manna liðsafli Models marskálks. Bradley hershöfðingja var falið að ganga frá Ruhr-svæðinu og Montgomery lét honum eftir 9. herinn. Sótt var að Þjóðveij- um úr þremur áttum. Þeir vörðust af offorsi en svo fór að þeir gáfust upp 13. apríl. Mod- el offursti neitaði að gefast upp og batt endi á líf sitt með skammbyssuskoti. En nýtt vandamál kom upp hjá bandamönnum: allt í einu sátu þeir uppi' með 317 þúsund stríðs- fanga. ÍTALÍUSTRÍÐIÐ Damörk og Noregur voru hersetin af Þjóðveij- um til stríðsloka og ítalia var vígvöllur fram á vor 1945. Þar gerði Áttundi bandaríski herinn fyrst inrás í september 1943 og skömmu síðar var aðalinnrásih hjá Salerno gerð. Fjalllendi Ítalíu hentaði vel til vama og tók langan tíma og kostaði mörg mannslíf að hrekja þýzka herinn norður eftir skagan- um. Harðvítugustu átökin urðu um Monte Cassino; fjallstind austur frá Napoli þar sem um aldir hafði verið frægt munkaklaustur. Um þann stað var barizt frá 12. janúar 1944 til vors og klaustrið var rústir einar að því loknu. Það má segja Kesselring, hershöfðingja Þjóðveija, til hróss að hann gaf Rómaborg eftir til að koma í veg fyrir eyðileggingu; 4. júní 1944 var.borgin tekin. Nú var hinsvegar komið framyfir miðjan apríl og vorið kom á meginlandi Evrópu „eins og vorin komu forðum“ og allt leit nú betur út. Versta vosbúðin var úr sögunni og fram- sókn heijanna gekk vel. Þó var aldrei að vita á hveiju menn áttu von. í gegnum suma bæi var farið án þess að hleypa af skoti; annars- staðar urðu á vegi bandamanna þýzkir her- flokkar sem börðust af offorsi. Hermenn bandamanna rákust oft á það að Þjóðveijar voru búnir að hengja nokkra úr eigin liði; þeir dingluðu niður úr tijám. Það vorit menn sem sáu fáránleika þess að halda þessari baráttu áfram og vildu gefast upp. Það var ekki á stefnuskrá bandamanna að níðast á óbreyttum borgurum. En vitaskuld reyndist erfitt að framfylgja því, enda mis- jafn sauður í mörgu fé. Þannig var fólk mis- kunnarlaust rekið út úr húsum sínum til þess að hermenn gætu gist þar. Þeir létu greipar sópa; tóku með sér silfur og annað fémætt. Og konur urðu þarna fyrir nauðgunum og svívirðingum. FANGABÚÐIR FRELSAÐAR Skömmu eftir að Þriðji her Pattons tók Kassel eftir harða bardaga, rákust menn hans á fyrirbæri sem ekki hafði áður sést: Fangabúðir eða öllu heldur útrýmingarbúðir. Einhveija hugmynd höfðu bandamenn um þá starfsemi og hafði komið til tals að gera sér- Wehrmacht - þýzki herinn - leystist að lokum upp í skipulagslaus brot, en margir börðust samt af heift. Þessi sjón var algeng á síðustu dögum stríðsins., Lokaátökin: Orrustan um Berlín var óskapleg þótt staða Þjóðverja væri þá orðin vonlaus. Myndin sýnir rússneska fótgönguliða á leið til Þinghússins, sem var dla leikið eftir skothríðina. staklega loftárásir á einhveijar þeirra. En þrátt fyrir margvíslegar njósnir er svo að sjá, að menn hafí furðulega lítið vitað hvað mann- drápin þar voru geypileg. Herstjómendur bandamanna skipuðu svo fyrir að fólk úr næstu borgum og bæjum færi á staðinn og sæi hryllinginn með eigin augum. Þeim skyldi ekki hlíft við neinu. Fólk var orðlaust og margir grétu. Bæjarstjórinn í Ohrdruf og kona hans hengdu sig eftir að hafa séð búð- irnar. Aðkoman í þessum fyrstu fangabúðum sem voru frelsaðar var hræðilegri en flest sem menn höfðu áður séð og fékk svo mikið á Patton, þótt harður væri, að hann ældi. Patton var í hraðri framsókn í sunnanverðu landinu. Her hans náði þar merkilegu her- fangi; Gullforða þýzka ríkisbankans, sem kom- ið hafði verið fyrir í saltnámu. Auk gullsins var þar aragrúi af listaverkum úr þýzkum söfnum. Strax eftir töku Ruhs-héraðsins fóru menn að beina sjónum sínum til Berlínar og var talið víst að þangað yrði stefnt rakleiðis. Eis- enhower fékk hinsvegar svipaða hugmynd og Stalín, þ.e. að geyma Berlín þar til síðar og olli með því verulegum vonbrigðum, bæði hjá herstjómendum og hermönnum sem þóttust sjá að styijaldarlok og uppgjöf yrðu ekki fyrr en Berlín yrði tekin. Megintakmark Eisenhow- ers á undan Berlín var samgönguæðin Saxelf- ur. Við hana voru þá mikilvæg iðnaðarsvæði í Dresden, Wittenberg, Torgau og Magdeburg. Einnig er þess að geta að vígvöllurinn í Evr- ópu var ekki bara í Þýzkalandi. Enn var bar- izt við þýzkan her í Hollandi og á Ítalíu. SÍÐASTA HERHVÖT HITLERS Adolf Hitler hélt kyrru fyrir í aðalbækistöðv- um sínum í Berlín og trúði því nú helzt að kraftaverk yrði Þriðja ríkinu til bjargar. Þann 1. apríl 1945 lét hann lesa allsheijar herhvöt í ríkisútvarpið. Allir karlar, konur og böm, áttu að mynda leynisamtök og hefja skæm- hemað og skemmdarverk að baki víglínu óvin- anna. Þessu fylgdi hann eftir með fyrirskipun um að allar borgir og bæir skyldu varin til síðasta manns. Til frekari tryggingar vom nasistaleiðtogar á hverjum stað skipaðir „stríðsstjómendur“. Fyrir ósigurshjal og lið- hlaup skyldi hinsvegar refsa tafarlaust með aftöku. En um leið og Níundi herinn náði allar götur að fljótinu Elbe 13. dag aprílmánaðar, bámst þær fréttir um heimsbyggðina, að Roosewelt Bandaríkjaforseti hafði orðið bráð- kvaddur á sveitasetri sínu. BERLÍN í SIGTI Á korti yfir austur- og vesturvígstöðvarnar í Þýzkalandi, sem birtist á forsíðu Morgun- blaðsins 15. apríl, má sjá að bandamenn em komnir um miðbik landsins austur þangað sem landamæri Austur-Þýkalands urðu síðar. Svo er að sjá að báðir séu viðlíka langt frá Berlín; Rússar þó heldur nær. Belti meðfram Norðursjó; þar á meðal borgirnar Hamburg og Bremen, era enn á valdi Þjóðveija, svo og Númberg, Múnchen og megnið af Suður- Þýzkalandi. Franski herinn sem átti að sjá um Svartaskóg og svæðið þar austur af, hef- ur eitthvað dregizt afturúr. Fyrmm kanslari Þýzkalands, Franz von Papen, fannst í Ruhr-héraðinu og var tekinn höndum, en staðgengill Hitlers, Rudolf Hess, hefur verið fluttur á geðveikrahæli í Wales eftir sína furðulegu ferð til Englands. Nú líður á seinni hlutann. Númberg féll 20. apríl og Múnchen þann 30. Nokkm áður, 13. apríl, höfðu Rússar lýst yfir sigri í Vínar- borg. Svo kom þar að herir bandamanna og Rússa næðu saman; það gerðist þann 25. apríl í Torgau við fljótið Elbe. Wehrmacht, hinn voldugi þýzki her var nú brotinn niður í skipulagslitla parta sem börðust þó oft af heift. í örvæntingu, líkt og væru þar síðustu krampaflog Þriðja ríkisins, var nánast þeim sem eftir voru smalað í herinn. Sumir vom 12 ára, aðrir áttræðir. SJÁ NÆSTU SÍÐU LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 6. MA(1995 7

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.