Lesbók Morgunblaðsins - 06.05.1995, Side 9

Lesbók Morgunblaðsins - 06.05.1995, Side 9
"o-r- Mynd: Búi Kristjánsson VETURINN 1158, hinn 13. dag febrúar, ber eldstróka upp úr Heklufelli við þakbrún hinnar reisulegu dómkirkju í Skálholti, sem vígja átti þá um sumarið. BISKUP með bagal og mítur, en konungur sem situr skör hærra er með exi, kórónu og (lög)bók. Tími Klængs bisk- ups er tími kirkjuvaldsstefnunnar þegar vaxandi áhersla er lögð á aðskilnað veraldlegs valds og kirkjuvalds. Klæng- ur biskup vingastjafnt við tvo voldugustu veraldlegu höfð- ingja landsins, Gissur Hallsson og Jón Loftsson. þetta ár eftir lát Gregorísusar ásamt Þor- varði, föður síðara barns hennar, sem sannan- lega kom út þetta ár en í ljósi þess að ekk- ert var lengur á milli þeirra Þorvarðar þá er allt eins sennilegt að hún hafi komið út nokkru síðar. Klængur gæti því sem best hafa hitt Yngvildi, barnsmóður sína, í Noregi þetta haust og hún jafnvel komið út með honum að ári liðnu. Við vígslu erkibiskups voru saman komnir allir biskupar Noregs, Noregskonungur og eflaust fleiri höfðingjar. Þarna hefði staða Klængs mótast af því, að hann hafði þá nýlokið við að reisa dómkirkj- una í Skálholti, stærstu og vönduðustu bygg- ingu íslands, sem jafnframt var stærsta timb- urhús, sem reist hafði verið á Norðurlöndum. Af Siðvendni OG Varðveislu Valds Þessi hugmynd mætir eflaust þeirri and- stöðu að Klængur hafi verið svo mikill líf- snautnamaður að hann hefði ekki fyrir nokk- urn mun viljað hætta sér ótilkvaddur í gin ljónsins, þ.e. erkibiskupsins í Noregi, sbr. orð Magnúsar Stefánssonar í Sögu Islands 2: „Klængur Skálholtsbiskup var aldraður og lifnaður hans og viðhorf samræmdust varla siðgæðiskröfum umbótahreyfingarinnar. Erkibiskup hefur því senniiega engan um- bótasinnaðan erindreka átt á Islandi". En miðað við þann skilning á persónu Klængs, sem hér er lagður til grundvallar, þ. e. að Klængur hafi að geyma tveggja heima mann lífsnautna og meinlætis, þá ætti þetta vel að geta átt sér stað. Áhrifanna af ferðalag- inu gæti síðan séð stað í stofnun tveggja klaustra heima á íslandi á síðari hluta áratug- arins, í Hítardal, 1166 þangað sem hann víg- ir Hrein skólabróður sinn úr Hólaskóla og í Þykkvabæ í Veri, 1168, sem Þorlákur Þór- hallsson, eftirmaður hans á biskupsstóli, víg- ist til. Sú skýring, að áhuga Klængs á stofn- un þessara klaustra beri að skoða í ljósi þess, að hann hafi sem aldraður biskup (um 60 ára), loksins fallið fyrir freistingum holdsins og getið barn í biskupsdómi sínum, er miklu langsóttari, einkum þegar haft er í huga að þetta barn hafi hann átt að eignast með konunni, sem hafði haft hann að ginnunga- fífli nokkrum árum áður á alþingi í alvarlegu frændsemisspellsmáli. Átti hann nú að endur- taka þann leik og fremja nákvæmlega eins glæp? Þótt mannlegt eðli sé óútreiknanlegt og skynsemin fái oft litlu ráðið um breytni manna, einkum þegar ástir karts og konu og fýsnir holdsins í veisluglaumi eiga í hlut, þá er vafasamt að horfa framhjá því, að Klængur hefur verið agaður á kristna vísu og stálgreindur, sbr. virðingar þær sem hann naut við Hóladómkirkju. Pólitísk snilld hans kemur m.a. fram í því hve skynsamlega hann treystir stöðu sína í biskupsembætti bæði með því að vingast jafnt við mestu höfðingja landsins, leika og lærða, greiða úr málum manna með þekkingu, lögspeki og málsnilld og láta verkin tala með kirkjubyggingu bókagerð og kennslustörfum. Hann hefur því haft alla burði til að gera sér grein fyrir því að hann mætti ekki misstíga sig í biskups- dómi sínum. BERSYNDUGA kqnan Klængur gæti hins vegar hæglega hafa skotið skjólshúsi yfir Yngvildi frænku sína á staðnum eftir 1162 og í því sambandi má taka undir skoðun Björns Þórðarsonar, þegar hann segir að saga Yngvildar sé með þeim hætti að hún hljóti að hafa hneigst til trúar- lífs síðari hluta ævinnar, eins og Guðrún Ósvífursdóttir, sem gerðist trúkona mikil og var löngum um nætur að kirkju á bænum sínum. Þannig hefði verið hægt að réttlæta veru hennar í Skálholti, sem iðrandi syndara í gervi bersyndugu konunnar jafnvel í nunnu- klæðum. Gróa, dóttir Gissurar ísleifssonar og kona Ketils biskups á Hólum, sem Klæng- ur ólst upp hjá, fékk t.d. húsaskjól í Skál- holti, varð nunna þar „og andaðist í Skála- holti um daga Klængs biskups" eins og segir í Hungurvöku. Einnig má minnast kvennanna á Hólum í þessu sambandi og trúariðkun þeirra í og við dómkirkjuna svo og lýsingu einsetukvenna í Skálholti í Guðmundar sögu Arngríms Brandssonar. Þetta verður að telj- ast trúverðug þróun í samskiptum þeirra Yngvildar og Klængs en ástarfar og barns- burður á þessum tíma með miklum ólíkindum. Bréfin Björn Þórðarson, Sveinbjörn Rafnsson o.fl. fræðimenn gera ráð fyrir að náið samband hafi tekist með þeim Yngvildi og Klængi eftir að Yngvildur kom heim frá Noregi og að barnið Jóra hafi fæðist um áratuginn miðjan, þ.e. um 1165. Mikilvæg röksemd að þeirra mati í þessu sambandi er erkibiskups- bréf frá 1173, sem beint er gegn syndsam- legu líferni íslendinga almennt, jafnt leikra sem lærðra svo og bréf páfa til Eysteins erkibiskups. Ekki verður tekið undir þessa skoðun hér nema að því er varðar veru Yng- vildar á biskupssetrinu á þessum tíma. Björn Þórðarson getur ekki haldið því fram með rökum að það sé eitthvað ólíklegt að Klæng- ur hafi getað stundað meinlætalifnað á sama tíma og hann haldi veislur og því sé nær að tengja þessa lífsvenjubreytingu hans efri árum hans, þ.e. tímabilinu, þegar hann efnir til klaustrastofnunar. Hvort tveggja sé það tiptun sem rekja megi til hrösunarinnar, þeg- ar hann var kominn hátt á sjötugs aldur, segir Björn. I Hungurvöku er þvert á móti bent á meinlætalifnað Klængs sem athyglis- vert einkenni á hinum veisluglaða og örláta Klængi í samanburði við aðra biskupa. Það er ekkert í lýsingu Hungurvöku, sem bendir til að píslargöngur hans í snjó og frostum eigi við hin síðustu ár hans. Þvert á móti er lýsingin römmuð inn í frásögn af fyrstu árum biskupsdóms hans, eins og gerð hefur verið grein fyrir í fyrri Lesbókargreinum. Þessi mannlýsing er einkar vel til þess fallin að gera manninn áhugaverðan og hefja hann upp úr flatneskju veraldarhyggjunnar. Ef lífsvenjubreyting hefði átt að vera eins konar svar við erkibiskupsins Boðskap undir lok starfsævinnar þá hefur slík lífsvenjubreyting hafíst alltof seint til að vera í frásögur fær- andi. Sveinbjörn Rafnsson segir að frilluhald Klængs hafi borist til eyrna Niðaróserkibis- kupi, sem í framhaldi af því hafi ieitað ráða hjá páfa og svar páfa birst í dekretalíu, þ.e. páfaboði til Eysteins erkibiskups. Þetta má vel vera rétt í ljósi veru Yngvildar í Skál- holti og varpar áhugaverðu ljósi á bréf erk- ibiskups frá 1173 til íslendinga og Klængs. Páfabréfið sjálft hlýtur að vera svar við bréfi Eysteins, því í páfabréfinu kemur fram að Klængur sé búinn að fara þess á leit við erkibiskup að fá að draga sig í hlé, þar sem hann sé ekki lengur ferðafær. Bréf Klængs til erkibiskups mun hafa verið sent haustið 1172, með beiðni um lausn frá embætti, sem ekki hefur verið óeðlileg ósk fyrir biskup, sem ekki getur lengur vísiterað vegna fótar- meina. Páfi svarar erkibiskupi m.a. með þess- um orðum: „Biskup þann sem heldur frillu sína opinberlega í húsi sínu og hefur jafnvel játað það sjálfur svo hneyksli er orðið af þvi skalt þú, bróðir erkibiskup, dæma frá emb- ætti með umboði frá sælum Pétri og oss með ráði viturra og trúaðra manna, einkum sam- biskupa þinna, og láttu ekki tefjast að skipa annan hæfan og heiðarlegan í hans stað. Því að biskup þann sem er ónýtur og vill leggja frá sér byrðar embættisins getur þú leyst frá störfum og sett annan til kirkju þeirrar er hann stjórnaði". Vissulega er nokkuð höstug- ur tónn í þessu bréfi enda gerum við ráð fyrir, að biskup hafi á þessum tíma haft Yngvildi hjá sér á stólnum. Sveinbjörn undr- ast hversu mjúkum orðum heimildirnar fari um Kiæng. En er það ekki vegna þess að Klængur eignaðist ekki barn sitt í biskups- dómi sínum, eins og þeir Sveinbjörn og Björn halda fram en hélt hins vegar Yngvildi og ef til Jóru litlu líka í Skálholti síðustu ár sín sem biskup og varð þá fyrst uppvíst að Jóra væri dóttir hans? Maðkurinn í mysunni, sem Sveinbjörn telur sig finna í heimildunum, „þegar tekið er á textanum“ eins og hann orðar það, gæti verið frændsemisspellið hið meira, sem eftir sem áður er staðreynd og menn hafa átt erfitt með að sætta sig við, þegar bert varð hin síðari ár. Því eins og hér hefur verið stungið upp á þá var það ekki alþýðu kunnugtfyrir en um 1162-1165 hveij- ir væru foreldrar biskupsdótturinnar. Þetta verður auðvitað ekki sannað og ljóst er að ýmsir munu telja slíka atburðarás með nokkr- um ólíkindum, eins og greinarhöfundi hefur raunar þegar verið bent á. Eysteinn erkibis- kup ritar Islendingum bréf 1173 eða 1174, sem virðist endurómur frá bréfi páfa (amast er við frillulífi leikra sem lærðra) en engin nöfn eru nefnd fyrr en í lokin að hvatt er til þess að nýkjörið biskupsefni taki við af Klængi, sem bæði „þrotar móð og mátt og skuluð þér ekki lengur þar ætla til þjónustu- gerðar". Hér hlífir erkibiskup Klængi í raun, sem gæti stutt þá skoðun, að þeim Klængi hafi verið vel til vina, sem rekja megi til kirkjubyggingarinnar, hugsanlegrar komu Klængs til erkibiskupsvígslu Eysteins 1161, gjafavíxl þeirra og síðan klaustrastofnanna Klængs. Klængur stofnar raunar enn eitt klaustrið um þessar mundir í Flatey á Breið- arfirði, 1172, sama ár og hann óskar eftir því að fá að verða leystur frá embætti. Eftirmaðurinn Og TILFÆRSLA VALBS Kjör eftirmanns Klængs fór fram 1174 og var Þorlákur Þórhallsson þá kjörinn til biskups en það var látið dragast að hann tæki vígslu. Björn Þórðarson telur að iðrun og umskipti í lífsháttum Klængs vegna ástar- mála hans og Yngvildar valdi því að hann kaus Þorlák sem eftirmann sinn. Sveinbjörn tekur undir þessa skoðun alveg sérstaklega. Ekki verður fallist á þessa skoðun hér heldur bent á þá sálfræðilegu staðreynd að eftir því sem árin færast yfir, tekur heimur andans yfirhöndina í sál þess manns, sem komist hefur til nokkurs þroska. Persóna Þorláks fellur einfaldlega vel að þróun sálarlífs Klængs. Þar fyrir utan er langlíklegast að Oddaveijinn Jón Loftsson, sem stöðugt hefur verið að auka völd sín frá því að Klængur settist á biskupsstól, hafi ráðið mestu um hver tæki við biskupsembætti í Skálholti enda búinn að koma sér upp sínum manni með ærnum tilkostnaði, sem var Þorlákur Þórhallsson. Oddaveijar kostuðu hann til mennta og ætluðu honum þetta embætti. Jóni Loftssyni er svo lýst í Oddaveijaþætti: „í þann tíma réð Jón Loftsson fyrir Odda, sá er þá var mestur höfðingi á Islandi" ... „Metnaðarmaður var hann svo mikill og kappsamur, að varla varð meiri, því að hann vildi fyrir engum vægja eða af því láta, sem hann tók upp“. Þessi maður, sem hnekkti veidi Haukdæla og orðinn var voldugasti maður landsins hefur augljóslega ráðið því, hver yrði næsti biskup í Skálholti en ekki hinn rúmfasti öldungur Klængur af ætt Reyknesinga. Það var Jón sjálfur, sem sótti Þorlák í Þykkvabæjarklaustur í Veri, eftir að hann hafði verið kjörinn biskup og ein- sýnt þótti að hinn nýkjörni biskup yrði að taka við rekstri Skálholtsstóls, þó svo Klæng- ur væri þar enn á staðnum. Þótt engu sé hægt að slá föstu um það, hvað hafi valdið skapraun Þorláks í upphafi biskupsdóms hans í Skálholti, sem getið er um í sögu hans og Sveinbjörn og Björn tengja nei- kvæðri afstöðu Þorláks í garð Yngvildar og Jóru, sem þar hafi verið á staðnum, þá getur það sem best verið rétt að viðurvist Yngvild- ar og jafnvel Jóru einnig, hafi valdið ein- hverju þar um. En það segir ekkert um frillu- líf eða barnsburðarmál. Gæti ástæðan ekki allt eins hafa verið allt of mikill ágangur ölmusumanna, sem Klængur hafði aumkvað sig yfir í óhægindum sínum og reyndar alla sína tíð, því um Klæng segir í Hungurvöku að liann hafi verið örr og ölmusugóður við fátæka menn? Hann hafi síðan ekki verið maður til að stemmá stigu við ágangi fátækl- LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 6.MAÍ1995 9

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.