Lesbók Morgunblaðsins - 13.04.1996, Síða 2

Lesbók Morgunblaðsins - 13.04.1996, Síða 2
SKANSINN í Vestmannaeyjum. Árið 1586 lét Friðrik II Danakonungur reisa lítið grjót- og trévirki þar sem núverandi Skans er. Eftir Tyrkjaránið var virkið endurreist og komið þar fyrir fallbyssum og öðrum vopnabúnaði. Ráðin var sérstök byssuskytta sem gætti vopna og æfði menn í vopnaburði. Úr íslenskum söguatlas, sem Almenna Bókafélagið gaf út. VIÐKOMUSTAÐIR Tyrkja á fslandi. Úríslenskum söguatlas, sem Almenna Bókafélagið gaf út. um þeim dönsku og Skansinum, því mið- ur, en íslenzkir vildu að að þeim sem mest skotið væri meðan þeir voru í þessu svamli hvers þeir ei ráðið fengu, og því komst þetta ránsmannaskip af grynning- unum með aðfallinu... (Tyrkjaránið á Is- landi 1627, „Frásögn Jóns Ólafssonar Indíafara." bls 308.) Þó Rosenkrantz hafi ekki ráðist gegn Tyrkjum sat hann samt sem áður ekki að- gerðalaus er fréttist af ránskap þeirra. Hann lét setja upp virki við Bessastaði og jafn- framt lét hann kalla þijú kaupför frá nær- liggjandi versiunarhöfnum inn á Seyluna. Jón Indíafari getur þess í minningum sínum að áhafnir skipanna hafi verið vel vopnum búnar. í hirðstjóraannál er annars gert lítið úr virkisgerðinni og segir að í virkinu hafi tæplega verið pláss nema fyrir fáeina menn, hvað þá flokk manna eða varnarlið. Jafn- framt segir frá því að þangað hafi verið færðar fallbyssur en þær hafi fæstar verið til gagns. Af annálnum er hvorki ljóst hve- nær né hveijir hafa staðið fyrir uppsetningu þeirra á Bessastöðum. Ekki er heldur víst að þetta séu sömu fallbyssurnar og Fitja- annáll segir að fluttar hafí verið á Þingvöll árið 1649 við erfðahyllingu Friðriks III. Danir Senda Herskip Sverrir Kristjánsson sagnfræðingur segir í formála að ferðasögu Ólafs Egilssonar að árið 1626 hafí Danir fyrst sent herskip með ísiandskaupförunum. Tyrkjaránsárið hafí orðið töf á tilskipuninni um siglingu herskip- anna vegna ófriðar við Þýskalandskeisara. Þessvegna hafí það örlagaríka ár verið her- skipalaust við íslandsstrendur. Þessar ráð- stafanir gefa til kynna að Danir hafi hálft í hvoru búist við Tyrkjum við ísland því árið 1623 hafði Kristján IV þurft að Ieysa þegna sína úr ánauð Tyrkja. Tyrkirnir höfðu rænt fólkinu af skipum úti fyrir ströndum. Það voru annars ekki bara Tyrkir sem fengu herskip Danakonungs út á Atlantshafíð. Rán John Gentlemanns í Vestmannaeyjum árið 1614 og róstumar á Vestfjörðum 1615-16, (Spánveijavígin) sýndu hvers gat verið að vænta. Nýbreytnin frá árinu 1626 lýsir því áhyggjum konungsvaldsins vegna vaxandi ágangs útlendinga við landið. Víst var að Tyrkjaránið dró ekki úr eftirlitinu við strend- ur landsins. Það kemur fram í Skarðsárann- ál að konungur sendi vamarskip til landsins árin 1628, 1629, 1631 og 1632. Þarna er árið 1630 undanskilið en þá stóð konungur í eijum við Hamborgara og beitti hann flota sínum gegn þeim á heimaslóð. Skarðsár- annáll telst nokkuð góð heimild um atburði þessara ára þar sem hann var skrásettur á fjórða áratug 17. aldar. Skrásetjari anná- lsins var Bjöm Jónsson lögréttumaður á Skarðsá í Sæmundarhlíð. Af annálnum að dæma virðist draga úr ferðum varnarskip- anna þegar frá leið. Næst minnist annállinn á vamarskip 1636 þegar Pros Mund hirð- stjóri er sagður hafa komið á einu slíku. Það bendir margt til þess að Dönum hafí þótt þessar ferðir dýrar og þeir hafí viljað koma kostnaðinum yfir á Islendinga. Kristján IV fór fram á það við Pros Mund hirðstjóra árið 1638 að hann setti upp sérstakan vemd- artoll af íslandi. íslendingar borguðu þennan toli að mestu leytu en ályktun Lögréttu frá árinu 1639 að, „. . . hans majestet vildi hafa þetta fátæka land í betenkende upp á þá defension, sem það með þarf og nauðsyn- legt er . . .“ ber með sér að landsmenn hafi viljað fá Dani til að leggja meira af mörkum til landvama. (Alþingisbækur ís- lands V, bls 560). Vafalaust átti hræðslan við Tyrki sinn þátt í því. Árið 1631 segir í Skarðsárannál. Sú fréttasögn kom í Englandi, að 12 Tyrkjaskip ættu að sendast tii íslands að sækja fólk, og ákveðið hjá þeim, hvað mikill ijöldi skyldi takast af hvetjum landsins fjórðungi. (Annálar 1400-1800, I, bls 236). Þessi Tyrkjahræðsla var lifseig langt fram eftir öldinni. í Eyrarannál frá árinu 1671 segir að tyrkneskt skip sem var á leiðinni til Vestmannaeyja hafi farist við Skotland og í annálnum segir við árið 1673, að frést hefði um Vestfirði að 16 Tyrkjaskip stefndu á landið. Danir Heimta Varnarskatt Danir beittu þessari hræðslu fyrir sig til þess að fá landsmenn til að leggja fé til landvarna. Samfara einveldisskuldbinding- unni 1662 fór Bjelke höfuðsmaður fram á það við íslendinga að þeir kostuðu sjálfír varnarskip gegn Tyrkjum og öðrum reyfur- um og var Tómasi Nikulássyni landfógeta ætlað að fylgja tilskipuninni eftir. í Lögréttu var þessum álögum hafnað árið 1663 vegna þess að landsins, „. . . vanefni og fátækt, sem engum góðum útlátum eða reputerlig kontribution er í færum um að svara,. . . “ (Alþingisbækur íslands 1663-1683 bls 25). Islensk stórbændastétt vísaði síðan kröfun- um frá með mútugreiðslum til handa danska landfógetanum og gaf sérhver físk af hundr- aði ef marka má Kjósarannál. Danir héldu áfram að knýja varnarskatt út úr íslendingum og sendu þeir þijú her- skip til landsins árið 1667. Reyndar komst ekki nema eitt þeirra á leiðarenda, (Ölden- borg) og var stór hluti áhafnarinnar dáinn úr hungri sem gefur til kynna að skipið hafði verið lengi í hafi og vistir því á þrot- um. Skipherrann var Otto Bjelke, systurson- ur Hinriks Bjelke höfuðsmanns. „Hann hafði og befalning til að leggja contribusion upp á Iandi til skansabyggingar á Bessastöð- um . . .“(Annálar 1400-1800 III, bls 276). Það varð lítið úr þessum framkvæmdum og var aðeins reistur einn skans á Bessastöðum því megnið af fénu sem safnaðist var flutt til Danmerkur með Klein landfógeta. Af þessu má sjá að Danir vildu efla strandvam- irnar en landsmenn voru ekki svo ýkja spenntir fyrir því þrátt fyrir slæma reynslu af sjóránum. Hagsmunir Dana Og Íslendinga Fóru Ekki Saman Á 17. öldinni var Dönum umhugað um að efla einokunarverslun sína á íslandi og unnu þeir gegn allri launverslun útlendinga við landið. Af annálum að dæma má sjá að ekki hafí verið friðvænlegt á íslandsmiðum á öldinni. Árið 1636 segir í Skarðsárannál að hirðstjórinn Pros Mund hafí komið út tii íslands á varnarskipi og tekið af Englending- um allt sem þeir höfðu, hættu þeir sér of nærri landinu. Árið 1655 segir í Sjávarborg- arannál að tvö vamarskip hafí náð þremur hollenskum skipum á sitt vald. Danir virðast hafa notað hvert tækifæri til að gera útlend- ingum skráveifu. í Eyrarannál frá árinu 1671 segir að konungur hafi sent skip til Grænlands. Umrætt skip kastaði akkemm í ísafjarðardjúpi. Þar fundu þeir hollenskt kaupfar undir stjórn Pétur nokkurs Ólafs- sonar Fox og er viðskiptum skipanna svo lýst í annálnum: ....að þeir á landi voru, sáu gerla þær glóandi kúlur, er þeir eftir Pétri skutu. Þennan eltingarleik áttu þeir allan daginn fyrir uppstigningardag og fram á nótt, svo það voru talin meir en 30 skot, er þeir skutu . . . (Annálar 1400-1800, III, bls. 291). Þrátt fyrir þessa hörku af hálfu Dana fóm þeir skipsmenn sem hingað sigldu yfir- leitt með friði. Árið 1626 segir í Skarðsáran- nál að stórt þýskt skip með öllum stríðstil- búnaði hafi á aðfangadag það ár leitað vars inn á Skagafjörð og segir að skipið hafi leg- ið til 16. janúar og siglt á brott með mein- leysi. Annálaritarinn er hljóður um það sem sennilegast fór fram á milli skipshafnarinnar og heimafólks, nefnilega vöruskipti. Áhöfnin þurfti að birgja sig upp af nauðsynjavöru fyrir áframhaldandi siglingu. íslendingarnir hafa að líkindum helst fengið varning sem dönsku einokunarkaupmennirnir buðu ekki upp á. Frá árinu 1628 er til dómur gegn ólöglegum klæðaburði landsmanna. Þessi dómur getur verið vísbending um mikla laun- verslun á þessu tímabili. I dómnum segir að margir eyði fé sínu í dýrindis klæði, klæði sem þeir megi ekki bera lögum samkvæmt. Það sem bendir til launverslujjar framhjá dönsku einokuninni eru þau orð að: ....fyrir hvem mikla ósið og ólöglegan klæðaburð kongurinn missir síns rétt- ugheits, sem er skattur og tíund, sömu- leiðis prestur, kirkja og fátækir sínar tí- undir . . . (Alþingisbækur íslands 1620-1639 bls. 167). í dómnum segir jafnframt að hinir sömu eigi oft ekki vopn til að veija sig með og er sú staðhæfíng vafalaust lituð af atburðum undangengis árs. Annars hafa landsmenn vafalítið litið með velþóknun á þá sem hing- að komu, færu þeir með friði og 'oyðu fram vaming til vöruskipta. Öðra máli gegndi um ránsmenn og ribbalda. Gegn þeim vildu landsmenn vemd. Danir gátu svo sem fallist á það en þeir vildu líka stugga óviðkomandi kaupförum frá. Bænaskrá sýslumanna norð- anlands frá árinu 1613 um fijálsa verslun útlendinga sýnir áhuga íslendinga á því að versla við sem flestar jóðir. „. . . att disse femm haffner, paa Norre siiden aff Jsland matte frii opladiss hvem der haffde lust till dennom att besegle, og denne fattige Landtz nodtrofftt att forbedre. Dett vere sig Danske, Tyske, Norske, Engelske eller andett gott folk et cetera. (Alþingisbækur íslands 1606- 1619, bls. 210). Þarna vantar tvær verslunaþjóðir sem létu til sína taka við landið unj og eftir miðja 17. öld, Hollendinga og Frakka. Annálar greina frá vinsamlegum samskiptum við þessar þjóðir. Árið 1659 segir í Ballarár- annál að Hollendingar hafí brotið stórt haf- skip við Breiðafjörð og dvalist í Flatey um veturinn við góðan orðstír og smíðað haf- fært skip úr flakinu. Einnig getur annállinn um tvo Frakka sem dvöldu sama vetur í Bjarnareyjum og söfnuðu blautum fiski. Það var ekki nóg með að samskiptin við útlendingana ógnuðu einokunarverslun Dana heldu gátu þau líka flækt þá í milli- ríkjadeilur sem þeir vildu vita sem minnst af. Þetta sýnir tilskipun Friðriks III til Islend- inga árið 1653 þegar Englendigar og Hol- lendingar áttu í stríði. í tilskipuninni bannar konungur íslendingum að róa út í framandi skip eða vísa þeim inn á hafnir. Þessa sama ótta virðist gæta hjá honum árið 1667 er hann sendi Otto Bjelke til landsins. í ófriðn- um sem þá ríkti í Evrópu stilltu Danir sér upp með Hollendingum gegn Engiendingum. Friðrik III fór fram á það við landsmenn að þeir veittu óvinaþjóðinni: .....ai mulig Resistens imod fjendtlig Ánfald der paa Landet, saavel som Fjend- en al anden Afbrek i alle Maade ad gjöre, og ellers at befestige Bessested eller en anden bekvemmelig Plads til Defensi- on . . .“(Lovsamling for Island 1096- 1720 bls 314). Sennilega hafa flestir lagt lítið upp úr þessháttar mótþróa við erlendar siglinga- þjóðir hvernig svo sem háttaði í stórvelda- pólitíkinni og borið jákvæðan hug til veru þeirra þótt ekki hafí alltaf venð um bein verslunarsamskipti að ræða. Á ýmsu var nefnilega að græða og má í því sambandi nefna dóm sem gekk í Holtum í Hornafirði árið 1650. í dómnum segir að Hallur nokkur Jónsson hafi bjargað áhöfn ensks báts og dæmdu dómendur Halli bátinn til eignar fyrir björgunina. Sermilega hefur dönskum yfirvöldum fundist íslendingar oft gera of vel við erlenda strandmenn. Ályktun lög- réttu getur bent til þess. Það er afsökunar- tónn í ályktuninni. Þar segir að það sé nauð- synlegt og kristilegt að bjarga Englending- um sem og öðram skipbrotsmönnum „. . . og þeirra gózi fyrir tilbærileg bjarg- laun . . .“(Alþingisbækur íslands 1620- 1639, bls. 301). Islendingar vildu því hafa sem mest samskipti við skipbrotsmennina. Þau samskipti gátu oftar en ekki gefið eitt- hvað í aðra hönd, þótt ekki væri nema mögu- leikann á einhverri verslun. Það sýndi sig í Tyrkjaráninu að hagsmun- ir Islendinga og Dana fóru að mestu saman. Tyrkirnir ógnuðu bæði danskri verslun- arstétt og íslenskri alþýðu með ránum sínum og ofbeldi. En Danir ætluðu sér meira með herskipum á íslandsmiðum en vernda landið fyrir sjóránum. Þeir ætluðu líka að uppræta launverslunina sem íslendingar stunduðu af kappi við evrópskar siglingaþjóðir. Danir létu alltaf í það skína að herskipahaldið væri til að halda Tyrkjum frá landinu og því ættu Islendingar að taka þátt í kostnað- inum sem því fylgdi. En í raun og veru voru íslendingar áhugalausir um að kosta vamar- skip sem öðru fremur voru fengin til að stugga erlendum verslunarþjóðum frá land- inu. Höfundur er sagnfræðingur.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.