Lesbók Morgunblaðsins - 13.04.1996, Side 4
!
f
I
GREINARHÖFUNDUR og plöntufræðingurinn og garðeigandinn Petignat
standa fyrir framan einlent Pachypodium tré, sem nefnt er fílafótur.
KRÓNU-LEMÚR er einn af 30 tegundum lemúra, sem finnast á Madagaskar
og hvergi annarsstaðar í heiminum.
EINKENNILEGIR kaktuslaga Didiera-runnar
mynda víða ógengt þyrniþykkni.
Leiðangur til Madagaskar - Síðari hluti
Víða brenna eldar á
ökrum og í skóglendi
Markaður
rla morguns hóf vélin sig upp af saltleirunni.
Við vorum í þetta sinn á leið til borgarinnar
Morondava. Farangur okkar var of þungur
fyrir flugtakið, svo hann hafði áður verið send-
ur með vagni. í nánd við borgina er merkilegt
Fjölbreytnin í ríki
náttúrunnar er einstæð. I
friðlandinu Berente
hafast við fímm tegundir
lemúrapa; einn þeirra er
líkur mönnum og hleypur
uppréttur á
afturfótunum. Auk þess
eru þar 83 tegundir fugla
og 26 tegundir skriðdýra.
Eftir STURLU
FRIÐRIKSSON
friðland, þar sem stundaðar eru vistvænar
skógamytjar, og jafnframt varðveittar
sjaldgæfar tegundir plantna og dýra, svo
sem tvær fágætar skjaldbökutegundir,
sem reynt er að varðveita og fjölga.
Næst flugum við til borgarinnar Toliara
og þar var okkur ekið á markað í hand-
vagni (rickshaw). Þar voru meðal annars
til sölu suðrænar skeljar, kuðungar og
forboðnir skjaldbökuskildir. Þama má enn
sjá til sölu egg fílafuglins mikla (Aepyom-
is), sem útrýmt var af frumbyggjum lands-
ins. Þessi fugl var ófleygur, svipaður strúti,
en mun stærri eða um þijá metra að hæð.
Egg hans voru fimm sinnum stærri en
strútsegg og gátu rúmað um níu lítra.
Álitið er, að hann sé fyrirmynd risafugls-
ins rok, sem átti að geta borið heilan fíl,
og sagt er frá í sögunni af Sindbað sæfara
í Þúsund og einni nótt og úr ferðum Marco
Pólós. Heil egg og brot úr skumi finnast
enn og em seld ferðamönnum, en er óleyfi-
legt að flytja úr landi.
Skokkarinn með handvagninn kom okk-
ur greiðlega áfram um sléttar göturnar í
björtu, en seinna um kvöldið ætlaði hópur-
inn að snæða saman úti á veitingastað
fjarri gistihúsinu. Var þá aðeins einn leigu-
bíll í akstri í öllum bænum, og þurfti bíl-
stjórinn að selflytja fólkið í nokkrum ferð-
um.
J URTAGARÐUR
í nágrenni Toliara er merkilegur jurta-
garður með sérstæðum runnum og ein-
kennistijám þessa þurra svæðis eyjarinn-
ar. Eigandi garðsins, Petignat plöntufræð-
ingur, gekk með okkur um svæðið. Sagði
hann þar vera um 860 tegundir plantna,
en aðeins 600 þeirra væm þekktar með
nöfnum. Aðrar biðu þess að blómstra og
vera greindar. Þama uxu margar merki-
legar lækningajurtir svo sem Aloa og bleik-
ur periwinkle (Catharanthus coriaceus) og
margir furðulegir, þyrnóttir runnar af
ættum Didierea og Alluaudia, sem hvergi
er annars staðar að fínna í heiminum en
á Madagaskar. Tegundimar hafa þróast á
þennan sérkennilega hátt, og þannig
bmgðist við tímabundnum þurrki, en í
stuttri vætutíð koma á þær örlítil blöð við
stofn þyrnanna. Sérstætt fyrir þetta svæði
er einnig ravinala tréð eða ferðamanna-
pálminn, skyldur banana plöntu, en líkist
risastómm blævæng, sem sagt er að veifí
til suðurs og norðurs og geti þannig verið
vegvísir ferðamönnum, sem þurfa að ná
áttum.
Annað furðulegt tré með gildum stofni
og óveralegri laufkrónu er fílsfóturinn svo-
nefndi eða Pachypodium. Þetta tré líkist
að nokkm baobab-tijám, sem þarna uxu
einnig. Af þeim síðamefndu eru til átta
VEGAKERFI á eynni er víða bág-
borið. Zebú-uxarnir hafa sinn rétt.
og ýmsa álagabletti og helgisvæði
þarf að virða þegar ferðast er um
landið.
tegundir í heiminum, og fínnast sex þeirra
á Madagaskar. Ein baobab-tegund vex í
Ástralíu en önnur í Afríku. Þessi garður
var sannkallaður undraheimur, svo annar-
legar voru allar plönturnar, sem þar uxu.
SUÐURODDINN
Við flugum næst að suðurodda eyjarinn-
ar, þar sem nú stendur borgin Tolagnaro
og veit mót opnu hafi, en hún hét áður
Fort Dauphin á franska vísu. Þarna em
merkar minjar frá upphafi 16. aldar um
veru portúgalskra sjómanna. Urðu þar 80
sæfarar skipreka. Bjuggu þeir þar einangr-
aðir í 15 ár, þar til innfæddir yfírbuguðu
liðið og felldu þá alla. í dag ríkir þarna
mikil fátækt og er betl á götum áberandi.
4