Lesbók Morgunblaðsins - 13.04.1996, Page 10

Lesbók Morgunblaðsins - 13.04.1996, Page 10
Raupað og rissað Blesugróf og Fj árborg Texti og teikningar: Ragnar Lár. Þ EIR gerast æ færri borgarbúarnir sem vita hvar Blesugrófin er, eða var. Enn færri munu þeir vera sem vita hvar Fjárborgin stóð. Þó eru þessi svæði innan borgar- og bæjarmarka Reykjavíkur og Kópavogs. Kannski er það ofsagt að fáir viti hvar Blesugrófína er að finna. Blesugrófin er á milli Breiðholtsbraut- ar, Smiðjuvegar og Fossvogsdalsins. Arið 1963 lá hlykkjóttur vegur upp frá Suður- landsbraut, framhjá gamla Fáksvellinum og uppá Vatnsendahæð. Þar sem vegurinn fór næst Elliðaánum lá afleggjari til austurs, inn í malargryfjur sem þar voru og mótar enn fyrir. Stálinu hefur verið jafnað niður og sáð í melinn og eru þar hólar og hæðir sem áður voru gryfjurnar. Fyrstu árin eftir stíð byggðu menn hús sín í óleyfi innan við bæinn, eins og það var kallað. Fólkið sem flutt hafði á mölina á stríðsárunum hafði holað sér niður á hin- um ólíklegustu stöðum í bænum. Þegar hermenn yfirgáfu braggana var óðar flutt inn í þá. Húsnæðiseklan sá til þess að hvert rúm var skipað. Yfirvöld bæjarins unnu að því að útrýma því heilsuspillandi húsnæði sem braggarnir voru taldir vera. „Höfðaborgin" reis í öllu sínu veldi, svo- kallað fátækrahverfi Reykjavíkur. En Höfðaborgin dugði ekki til lausnar hús- næðisvandanum. Þeir voru margir dag- launamennimir sem þráðu það eitt að eign- ast sitt eigið húsnæði, byggja það með eig- in höndum, en það var engar lóðir að hafa hjá bænum. Þá urðu Smálöndin til, þar sem nú standa stórbyggingar iðnaðar og verslunar, skammt fyrir neðan Grafarholt. í Smálönd- um ólust upp margir ágætir þegnar þjóðfé- lagsins. Þar var einnig að finna fólk sem náði sér aldrei á það strik, sem kallast beint, samkvæmt mælikvarða þjóðfélagsútreik- naðra reglugerða. Sömu sögu var að segja um Blesugrófma. í Blesugróf byggði meðal annarra Tryggvi Emilsson, sá er ritað hefur einna beinskeyttastar bækur um ævi og kjör lítil- magnans á þessari öld. í dag er Blesugróf- in orðin að eftirsóttri vin í eyðimörk borgar- innar. Þar má í dag líta einhver indælustu hús höfuðstaðarins, í vinalegu og náttúru- Iegu umhverfi. En byggðin hófst með þeim er reistu sér híbýli á þessum stað, í óleyfi yfirvalda. Byggðu hús af vanefnum, yfir sig og sína og voru sjálfstæðir í örbirgðinni. Eins og gefur að skilja var byggingarstíllinn af ýmsum toga. Fæst voru húsin teiknuð fyrirfram og varla af dýrum teiknistofum byggingameistara. Það kenndi því ýmissa grasa í stíl og skipulagi. Smátt og smátt mynduðust götur og einfalt var að gefa þeim nöfn. A-gata, B-gata o.s.frv. Aður en Breið- holtshverfin fóru að byggjast, áður en algengt var að menn legðu leið sína inn og uppfyrir bæ, þá áttu fáir aðrir erindi í Blesugróf en þeir, sem áttu þar heima, eða erindi við íbúana. Sá er línur ritar ók þó nokkrum sinnum leiðina upp að Rjúpnahæð, eða Vatnsenda. Einn dag í október 1963, var raupari á ferð um þessa margræddu leið. Hann hafði nokkru áður tekið eftir sérkennilegu húsi sem stóð vinstra megin við Vatnsendaveg- inn, þá farið var uppeftir. Reyndar lá af- leggjarinn upp í malargryfjurnar skammt frá þessu húsi, upp Elliðaárdalinn og með- fram húsum á stangli, sem sum standa enn. Upphaflega höfðu sum þessara húsa verið sumarbústaðir, en eru heilsárshús í dag, þ.e.a.s. þau sem enn standa. Húsið fyrmefnda var afar sérkennilegt. Það virtist byggt í nokkrum áföngum. Að nokkru leyti var það úr torfi og gijóti en að öðm leyti úr steinsteypu, eða múrhúðuðu timbri. Ekki var nokkur leið að segja til um þann tíma sem húsið var byggt. Það gæti svo sem verið að það hefði verið byggt á dögum Krists, ef maður vissi ekki af lestri bóka og kennslu úr skóla að engin bygging hafði risið á íslandi á þeim dögum. En myndir þær sem sjá má biblíusögum renna stoðum und- ir þessa ályktun. Eitt var þó ólíkt með byggingarlag- inu á Blesugrófarhús- inu og húsunum í biblíu- V sögunum. Upp með sum- um veggjum Blesugróf- arhússins teygðu sig gras- reinar, allt upp undir þak sums staðar. Já, þetta var mjög sér- * - v kennilegt hús. ^ / Á því vom að minnsta kosti tveir kvistgluggar, en erfítt að átta sig á þvf hvort húsið sjálft væri ein, tvær eða þrjár hæð- ir, vegna þess að engir tveir gluggar voru í sömu hæð. Kannski var húsið úr timbri og múrhúðað, en óslétt var það að utan og sérkennilegt. Á þessum tíma, 1963, gerði raupari rissu af þessu húsi og birtist hún með þessum línum. Löngu seinna komst hann að því, að listvefarinn Óskar Magnússon hafði búið í þessu húsi ásamt konu sinni. Óskar hafði byggt húsið með eigin höndum,.eins og svo margir aðirir sem byggðu á þessum slóðum. Þegar byggðin færðist nær og allt bann- setta skipulagið byrjaði að eyðileggja bæ- inn, sem nú er áður í FJÁRBORG 1964. HUS Oskars Magnússoimr í Blesugróf, 1964. 7T w y F > '// // '// % V// '» '// bær og þar áður þorp - og þar áður bær, var Óskari og hans spúsu gert að flytja úr húsi sínu, til að rýma fyrir „skipulögðu" svæði. Óskar gerði sér lítið fyrir og byggði sér hús undir hraunkambi uppi á Hellis- heiði, til þess að vera viss um að verða ekki fyrir næsta skipulagi. Þar hélt hann áfram að vefa sín þekktu teppi á meðan kraftar entust. Bæði eru þessi veraldlegu skjól alþýðulistamannsins fallin, en verkin sem hann vann í þessum skýlum, reistum af eigin höndum, þau lifa. Þessu línum fylgir rissteikning af „póst- húsi“ þeirra sem í Blesugróf bjuggu. Þrátt fyrir allt virðist hið opinbera hafa séð fyrir því að það „utangarðs- fólk“ sem Blesugrófina byggði, skyldi njóta póst- þjónustu sem annað fólk. Kannski hefur þetta ver- ið ráðstöfun þess opin- bera, til að geta örugg- lega komið opinberum rukkunum til skila. Þó svo að það PÓSTHÚSIÐ í Blesugróf, 1964. fólk sem átti sitt líf í þessum „afkima" borg- arinnar, byggi í óleyfílegu húsnæði, greiddi það sín gjöld til bæjarins. Sumir unnu hjá sjálfum bænum, sumir á Eyrinni og aðrir annars staðar. Það var auðséð á „pósthús- inu“, að það hafði fleiri hlutverkum að gegna. í húsinu voru greinilega íbúðir, tvær, þijár eða fjórar. Múrhúðað timburhús, tveggja eða þriggja hæða. Það var ekki svo gott að segja til um það. Gluggarnir á hæðunum stóðust ekki á. En gamla „srnelti" skiltið sagði ótvírætt „Pósthús“. Fyrir utan þetta hús stóð gamall pallbíll og mátti muna sinn fífil fegri. Hann hafði greinilega staðið þarna lengi og sást það best á því, að hjól- in voru byrjuð að sökkva í jörðu, eða þá að móðir jörð var byijuð að klæða þau græn- um feldi. Hvar skyldi sá gamli pallbíll vera í dag? Skammt ofan og sunnan við Blesugrófina var Fjárborgin. Þar sem hún stóð eru nú virðuleg einbýlishús og tilheyra Smiðjuvegi í Kópavogi. Þarna áttu þeir athvarf með rollur sínar, sem ekki gátu slitið sig frá búskaparvenjum sveitanna, en höfðu til- neyddir flutt á mölina. Þarna byggðu þeir fyrir nokkrar skjátur, hrófatildur úr ýmsum efnum. Daglega fóru þessir „fjáreigendur" inneftir að huga að sínu fé. Á vetrum var leiðin oft löng fyrir þá sem bjuggu lengra frá. Þeir létu það ekki á sig fá. Sannir fy'ár- bændur setja ekki fyrir sig langan veg að beitar- eða fjárhúsum. Þegar voraði iðaði allt af lífí í Fjárborg. Margur bæjarbúinn lagði leið sína inn í Fjár- borg með börnin sín til að sýna þeim litlu lömbin. Margur, núna miðaldra, borgarbú- inn komst þarna í sín fyrstu kynni við litlu lömbin og það líf sem skapast í lífsins fjár- húsum. Höfundur ér myndlistarmaður og kennari. 10

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.