Lesbók Morgunblaðsins - 21.09.1996, Side 2
PÓLITÍSK MÁLVERK ERRÓS
STÓR yfirlitssýning- á verkum Errós var
opnuð í gær, föstudag, í Hannover í Þýska-
landi, á vegum Wilhelm Busch safnsins.
Sýningin ber yfirskriftina „Erró - pólitísk
málverk" en sýndar verða um 135 myndir
sem gefa yfirlit yfír pólitísk verk Errós síð-
astliðin 30 ár.
í fréttatilkynningu frá Wilhelm Busch
safninu segir meðal annars að markmiðið
með sýningunni hafi verið að sýna þversnið
af pólitískum verkum Errós frá undangengn-
um 30 árum. Sýningin mun varpa ljósi á
vinnuaðferðir Errós en einnig kveikja áleitn-
ar spurningar um tengsl há- og lágmenning-
ar, um stöðu stjórnmála og um framtíð listar-
innar á tímum hinna rafvæddu fjölmiðla.
í verkum sínum samþættir Erró lágmenn-
ingu og listasögu, pólitískan áróður og
neyslu- og fjölmiðlaheim samtímans. Hann
setur myndir úr teiknimyndasögum, skop-
teikningum og vörulistum stói’verslanna í
nýtt samhengi.
Auk þess að gefa innsýn í pólitísk verk
Errós mun sýningin skýra þróun hans sem
listamanns frá seinni hluta sjötta áratugar-
ins til dagsins í dag.
Sýningin samanstendur af 65 olíumál-
verkum, 45 ljósmyndaklippimyndum og 25
vatnslitamyndum. Stærstu verkin á sýning-
unni eru „Eyðimerkurstormur“ frá 1991 2,5
x 6 metrar og Pol Pot frá 1983 sem er 3 x
6 metrar og vegna stærðar myndanna er
sýningin ekki haldin í sjálfu safninu heldur
nærliggjandi byggingu.
Sýningin er unnin í samvinnu Wilhelm
Busch safnsins í Hannover og Errósafns Lista-
safns Reykjavíkur og Kjarvalsstaða, sem lán-
aði fjölda verka á sýninguna. Sýningarstjórar
eru Dr. Hans Joachim Neyer, forstöðumaður
Wilhelm Busch safnsins og Gunnar B. Kvaran
forstöðumaður Kjarvalsstaða.
Sýningin stendur til 3. nóvember en mun
síðan verða sett upp í Aktionsforum Prater-
insel í Miinchen í nóvember, Kunsthaus Ham-
burg í mars 1997 og í Haus am Waldsee í
Berlín í ágúst 1997. Sýningin mun síðan
verða sett upp í nokkrum borgum í Austur-
Evrópu.
L 15
TÍ 1 i
' ■ <■■ -
* ■ 1 wtS i'
fiífSsBL' ■
...... ''' ■ 1
• WQs* •* * Tríflft
FREMSTA röð frá vinstri: Áslaug Höskuldsdóttir, Kolbrún Kjarval, Guðrún Indriðadóttir, Rannveig Tryggvadóttir, Helga Jóhannes-
dóttir, Sigr. Helga Olgeirsdóttir. Önnur röð frá vinstri: Ragna Róbertsdóttir, Guðný Magnúsdóttir, Arnfríður Lára Guðnadóttir, Sig-
rún Gunnarsdóttir, Þóra Sigurþórsdóttir, Ingunn Erna Stefánsdóttir, Lára Samúelsdóttir, Margrét S. Gunnarsdóttir, Elín Gunnars-
dóttir. Aftasta röð frá vinstri: Bjarnheiður Jóhannsdóttir, Árdís Olgeirsdóttir, Brita Berglund, Ólöf Erla Bjarnadóttir, Inga Elín Krist-
insdóttir, Bryndís Jónsdóttir. Af þeim listamönnum sem eiga verk á sýningunni vantar á myndina: Gest Þorgrímsson, Rúnu Guðjóns-
dóttur, Margréti Jónsdóttur, Steinunni Marteinsdóttur og Elisabetu Haraldsdóttur.
LEIR í LOK ALDAR
JAZZ
96
JAZZHÁTÍÐIN RúRek 96 hefst á sunnu-
daginn og stendur út vikuna Ddagskráin
verður sem hér segir:
Sunnudagur 22. september
Kl. 17. Setning í Tónleikasal FÍH við
Rauðagerði: Jon Weber píanisti, tríó Pét-
urs Östlunds og hljómsveit Stefáns S.
Stefánssonar. Frítt.
Kl. 21. Hótel Saga: Nordiskt kvinne
big band, April light orchestra, undir
stjórn Hanne Romer. Sérstakur gestur:
Andrea Gylfadóttir. Kr. 1.500.
KI. 22. Hótel Borg: Með eigin hljóm-
sveit. Söngkona Þóra Gréta. Frítt.
Hornið: Tríó Hilmars, Péturs og Matthí-
asar. Kr. 1.000.
Píanó: Prim kvartettinn. Frítt.
Mánudagur 23. september
Kl. 17. Jómfrúin: Tríó Kristjáns Eldjárns.
Frítt.
Kl. 20.30. Sólon íslandus: Tena Palmer
og Justin Haynes. Kr. 500.
Kl. 21.30. Píanó: Tríó Péturs Östlunds.
Kr. 1.000.
Kl. 22. Homið: Trió Hilmars, Péturs
og Matthíasar ásamt gestum. Kr. 1.000.
Kringlukráin: Hljómsveit Dan Cassidy.
Frítt.
LEIRLISTAFÉLAGIÐ er 15 ára á þessu
ári. Af því tilefni verður opnuð afmælis-
sýning í Hafnarborg, laugardaginn 21.
september kl. 14. Þar sýna 26 félagsmenn
undir yfirskriftinni „Leir í lok aldar“. „I
erli nútímans kunna æ fleiri að meta leir-
inn, þetta náttúruefni, sem ummótast í
skapandi höndum leirlistarmannsins.
Þetta kemur fram í vaxandi áhuga al-
mennings og mikilli fjölgun þeirra sem
SÝNING á verkum eftir Svein Björnsson
verður opnuð í Kaffi List í Listhúsinu,
Laugardal, í dag, laugardag. Sveinn sagði
í samtali við M orgublaðið, að þarna væru
um 20 málverk, sem hann hefði unnið 1990,
vilja leggja leirlistina fyrir sig. Stofnfé-
lagar Leirlistarfélagsins voru 11 talsins
árið 1981 en í dag, 15 árum síðar telur
félagið 39 manns,“ segir í kynningu.
Á sýningunni verða eingöngu sýnd ný
verk. Uppsetning sýningarinnar er í
höndum Pálmars Kristmundssonar.
Sýningin stendur til 15. október og er
opin daglega nema þriðjudaga frá kl.
12-18.
„Þetta eru sérstakar myndir, sem ég hef
ekki viljað sýna fyrr en nú,“ sagði Sveinn.
„Þessar myndir urðu til í átökunum frá
fantasíunni yfir í abstraktið. Og nú tel ég
tímabært, að fólk fái að sjáþessi átök.“
ATAKAMYNDIR SVEINS
MENNING/
LISTIR
i NÆSTU VIKU
MYNDLIST
Ásmundarsafn
Mótunarárin í list Ásmundar Sveinssonar.
Kjarvalsstaóir
Sýn. á málverkum og skúlptúrum eftir súrreal-
istann Matta frá Chile. Sýn. á verkum Jóhann-
esar Sveinssonar Kjaival í austursal til 22.
desember. Sýn. á nýjum verkum eftir Guðrúnu
Gunnarsdóttur til 19. október.
Gerðuberg
Sjónþing Brynhildar Þorgeirsdóttur til 6. októ-
ber.
Sjónarhóll
Sýn. á verkum Brynhildar Þorgeirsdóttir til
6. október.
Listhús 39
Árni Rúnar sýnir til 25. september. Gluggasýn-
ing Aðalheiðar Ólafar Skarphéðinsdóttur.
Norræna húsið
Ulla Fries, sænskur grafíklistamaður, sýnir í
anddyri Norræna hússins til 29. september.
Sólon Islandus
Guðjón Bjarnason sýnir til 7. október.
Mokka
Svanur Kristbergsson sýnir til 11. október.
Gallerí Stöðlakot
Marta Maria sýnir til 29. september.
Ingólfsstræti 8
Hulda Hákon sýnir.
Listasafn Kópavogs
Sýn. Síkvik veröld til 29. september.
Þjóðminjasafnið
Sýning á silfri til septemberloka.
Við Hamarinn
Bjarni Sigurbjörnsson sýnir til 22. september.
Snegla
Gluggasýn. á verkum Jónu Sigríðar Jónsdóttur
til 8. október.
Listakot
Kynning á verkum þriggja listakvenna; Dröfn
Guðmundsdóttir, Jóhanna Sveinsdóttir og
Sveinbjörg Hallgrímsdóttir til 28. september.
Gallerí Fold
Tryggvi Ólafsson sýnir til 6. október.
Gallerí Greip
Karl Jóhann Jónsson sýnir til 6. október.
Gallerí Hornið
Ólöf Oddgeirsdóttir sýnir til 9. október.
Nýlistasafnið
Ólöf Nordal og Gunnar Karlsson sýna til 6. ok.
Hafnarborg
26 félagsmenn sýna undir yfirskriftinni „Leir
í lok aldar“ til 15. október.
Önnur hæð
Japanski Jistamaðurinn On Kawara sýnir.
Gallerí Úmbra
Sýning á flókateppum; Ingunn Lára Biynjólfs-
dóttir, Sandra Laxdal og Björg Pétursdóttir
sýna.
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar
Yfírlitssýning á verkum Siguijóns. Opið laug-
ardaga og sunnudaga kl. 14-17. Kaffistofan
á sama tíma.
Gallerí AllraHanda - Akureyri
Þórey Eyþórsdóttir sýnir til 23. sept.
Galleríkeðjan - Sýnirými
Sýnendur í september: I sýniboxi: G. R. Lúð-
víksson. í barmi: Einar Garibaldi Eiriksson.
Berandi er: Bruno Muzzolini. í Hlust: Stein-
grímur E. Kristmundsson.
Listasetrið Kirkjuhvoli - Akranesi
Ljósmyndasýning Péturs Péturssonar til 6. okt.
Laugardagur 21. september
Tónsmiðurinn Hermes með tónleika fyrir böm
í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi kl. 15.
Sunnudagur 22. september
Tónsmiðurinn Hermes með tónleika fýrir böm
í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi kl. 15.
LEIKLIST
Þjóðleikhúsið
Nanna systir frums. lau. 21. sept., sun., fós.,
lau.
í hvítu myrkri lau. 21. sept., fös., lau.
Kardimommubærinn sun. 29. sept.
Borgarleikhúsið
Ef ég væri gullfiskur fim. 26. sept.
Largo desolato sun. 22. sept.
BarPar á Leynibamum lau. 21. sept.
Stone Free iau. 21. sept., fös.
Loftkastalinn
Á sama tíma að ári fim. 26. sept.
Sirkus Skara Skrípó lau. 21. sept., fös.
Skemmtihúsið
Ormstunga lau. 21. sept, mið.
Kaffileikhúsið
Hinar kýrnar lau. 21. sept., sun., fös.
Höfðaborgin
„Gefin fyrir drama þessi dama...“ eftir Megas
lau. 21. sept., sun., lau.
íslenska Operan
Galdra-Loftur ópera eftir Jón Ásgeirsson lau.
21. sept., lau.
Styrktarfélagstónleikar; Lia Frey-Rabine sópr-
an og Selma Guðmundsdóttir píanóleikari með
blandaða efnisskrá lau. 21. sept. kl. 15.30.
KVIKMYNDIR
MÍR
„Verkfair (Statska) fyrsta kvikmynd Eis-
ensteins í fullri lengd á sunnudag kl. 16.
2 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 21. SEPTEMBER 1996