Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 01.02.1997, Qupperneq 9

Lesbók Morgunblaðsins - 01.02.1997, Qupperneq 9
KOPARSTUNGA frá krýnginarári Karls I, 1625, sem sýnir hann með sokkabandsorð- una, hjálm í hendi, en kórónu á höfði. Það var einmitt lögð áherzla á að sú kóróna sæti á höfði hans þegar hann var hálshöggvinn. RÉTTRHÖLDIN yfir Karli I í Westminster OLIVER Cromwell f herklæðum. Samtíma Hall. Samtíma koparstunga. Kóngurinn sit- málverk eftir Robert Walker, nú f National ur fyrir miðju. Gallery f London. tveimur öldum. Á endanum virðist, a.m.k. eftir á að hyggja, að á þessum árum (1642-1660) hefðu Bretar rambað á afl lausungar og marg- ræðis í umhverfi og veröld sem var ennþá fjö- truð í lénsveldi og kaþólsku. Þjóðfélagsumbætur þær er „neðanjarðar- hreyfingin" mælti með má segja að hafi verið úr takt við hættumar sem steðjuðu að Bret- landi af erlendri grund. Allt í kring skynjuðu Bretar óvini, sérstaklega þó Spánveija og önn- ur kaþólsk veldi. Lýðveldið og hið nýja stjórn- arfar hreintrúarmótmælenda þótti í hættu fyr- ir árásum konungssinna með aðstoð kaþólskra landa, eins og Spánar, Frakklands og Páfa- garðs. Að leyfa mjög róttækar stjómarfarstil- raunir heima fyrir myndi veikja samstöðu Bretaveldis sem tókst að sameina í kjölfar byltingarinnar. Strax eftir að Karl I. hafði verið hrakinn frá völdum var gengið til verks við að ljúka við innlimun írlands og Skotlands. Aftur var það undir forrystu Cromwells. Englendingum þótti brýnt að ná undir sig hinu kaþólska Irlandi vegna hættu á hugsanlegri innrás konungs- sinna og kaþólikka á írland sem stökkpall inn í England. Skotland væri ekki líklegt til að standast innrás konungssinna með aðstoð t.d. Spánveija. Þess vegna óttaðist Cromwell að of laust taumhald á þinginu myndi væntanlega leiða til skerðingar á fjárframlögum til hers- ins, sem gegndi lykilhlutverki í byltingunni og var homsteinn í mjög metnaðargjarnri utanrík- isstefnu hans. Byltingin var orðin að vem- leika, en um leið sáu nýju valdsherramir sér ekki fært að fullgera byltinguna, a.m.k. ekki samkvæmt hugmyndum hinna róttækustu. Það vom því öflug utanríkispólitísk rök fyr- ir því að tryggja sterka stöðu Bretlands á al- þjóðavettvangi á kostnað róttækra umbóta heima fyrir en það má einnig líta til innanrík- isþátta í þessu samhengi. Áköfustu byltingar- mennirnir voru lágstéttannenn, eins og áður var nefnt, og höfðu fárra hagsmuna að gæta í tengslum við jarðeignir, viðskiptasambönd og aðra sýslu hástéttarmanna. Flestir eigna- og hástéttarmenn er studdu byltinguna tóku afstöðu út frá sérhagsmunagæslu sinni frekar en samkvæmt trúarhita eða hugsjónareldmóði. Raunar reyndu flestir eignamenn að standa hlutlausir eða utan átaka í lengstu lög. Crom- well og stuðningsmenn hans voru mjög ugg- andi um eignarrétt og hagsmuni eignamanna ef róttækustu hlutar lágstéttarinnar yrðu of áhrifamiklir. Þess vegna fjarlægðist Cromwell þessa fyrrum dyggustu stuðningsmenn sína á sama tíma og hann lenti upp á kant við þing- ið sem hafði í hótunum við hann að skera nið- ur útgjöld til hernaðarmála. Endalok lýöveldisins Á endanum má segja að það hafi verið Cromwell sem hafi haldið lýðveldinu á floti. Sjálfur var hann ekki einarður lýðveldissinni en gat samt sem áður ekki þegið konungstign- ina sem honum í tvígang var boðin af þinginu á valdatíma sínum. I síðara skiptið lést hann áður en hann var endanlega búinn að gera upp hug sinn (margt bendir til að hann hefði hafn- að boðinu aftur). Síðustu stjórnarár hans var hann búinn að setja í gang undirbúningsvinnu að lögfestingu valdaskiptanna, þ.e. hvernig fara skuli að valdaskiptum þegar þjóðhöfðingi lætur af störfum (eða deyr). Þessari vinnu var ólokið þegar Oliver Cromwell lést 3. september 1658 af völdum lungnabólgu eftir langvarandi veikindi. Sonur Olivers, Richard Cromwell, sett- ist í valdastól samkvæmt vilja Olivers en hann reyndist ekki af sama tagi og Oliver. Richard naut ekki hylli hersins eins og Oliver og var enginn stjómkænskumaður. Enda gafst hann í rauninni upp án mótspyrnu þegar konungs- sinnar sóttu í sig veðrið á ný. Richard var ekki fær um að virkja herinn sér og lýðveldinu til stuðnings eins og Oliver gerði af mikilli snilld. Samstaðan og þrautseigjan í röðum bylt- ingarmanna var orðin að engu og því reyndist það létt verk konungssinna fyrir að endurreisa konungsveldið 1660. ArfleifA byltingarinnar Enska byltingin er einn þeirra viðburða nú- tímasögunnar sem mótað hefur seinni tíma stjórnmálaþróun og jafnvel valdið straumhvörf- um í viðhorfum manna til hlutverks konungs- veldis í nútímasamfélagi. í Bretlandi sigruðu þingræðissinnar endanlega einræðistilhneig- ingar konungsvaldisins 1680 í hinni svokölluðu „Dýrðlegu byltingu" (Glorious Revolution) og hafa Bretar síðan búið við takmarkað konungs- vald. Síðan hefur vægi þingsins sífellt aukist þangað til völd konungsins urðu orðin tóm. Fyrst ekki tókst að uppræta konungsveldið í allri sinni mynd mátti í staðinn ræna það öllum raunverulegum völdum. Hvergi í veröldinni tókst þetta eins snemma og í Bret- landi. Þetta fyrirkomulag er í dag fyrirmynd annarra kon- ungsríkja, a.m.k. á Vesturlöndum. Merkilegustu arfleifð byltingarinnar má ef til vill finna í Vesturheimi. Margir hreintrúar- menn flúðu ofsóknir í Evrópu, einnig frá Bret- landi, á fyrri hluta sautjándu aldar. Jafnvel Oliver Cromwell íhugaði sterklega að yfírgefa gamla heiminn og byija nýtt líf í frelsi fyrirhe- itna landsins. Margir vesturfarar sneru svo heim til gamla Englands þegar hreintrúarmenn höfðu tekið völdin í sínar hendur, en þegar nýlendurnar í norðurhluta Vesturheims gerðu uppreisn gegn valdsherrunum heima fyrir voru það fyrst og fremst hugsjónir og trúareldmóð- ur bresku byltingarinnar sem var uppsprettan og innblásturinn. Skipan kirkjumála í Bandaríkjunum hefur allar götur síðan verið fríkirkjuskipan og veru- legur hluti hennsr er byggður á evangelískum grunni mótmælenda þar sem kir- kjumar eru sjálfstæðar gagnvart yfirvöldum. Þessari skip- an var komið á í Bretlandi þegar lýðveldið var og hét, en biskupakirkjan var endurreist eftir hrun lýðveldisins. I nýja heiminum gátu evang- elískir mótmælendur hins vegar látið drauma sína rætast um Guði velþóknanlega kirkjuskip- an, réttlátari þjóðfélagsgerð og frelsi til at- hafna í viðskiptum, menntun og lífínu almennt. Frelsisyfirlýsing Bandaríkjanna 1776 og stjórnarskrá Bandaríkjanna samþykkt 1789 eru hugsjónir Ensku byltingarinnar og lýðveldis- tímans endurbornar og fullgerðar. Það sem mistókst fyrst um sinn í Bretlandi var stofnsett í endanlegri mynd vestan hafs og með árunum gert að veruleika í gamla heiminum. í frelsisyf- irlýsingunni segir skýrt og afgerandi: „Vér álitum, að sá sannleikur sé auðsær: að allir menn séu fæddir jafnir, að skapari þeirra hafi veitt þeim ákveðin, óræk réttindi, þeirra á meðal lífið, frelsið og leitina að lifsham- ingju. Rfkisstjómir eru stofnsettar meðal mann- anna til þess að tryggja og varðveita þessi réttindi, en þær hljóta réttmætt vald sitt með samþykki þeirra, sem skal stjómað. Jafnskjótt og einhver stjórn eða stjórnskipan brýtur í bága við þessi markmið er það réttur þjóðarinn- ar að breyta henni eða víkja henni frá völdum og skipa nýja stjórn, en þá sé vald hennar grundvallað á þann hátt, sem þjóðinni sýnist líklegastur til öryggis og farsældar. “ Heimildaskrá: Boorstein, D. J. The Araericans, The Colonial Experi- ence, Vintage Books, New York 1958. Davies, Godfrey, The Early Stuarts 1603-1660, Ox- ford University Press, Oxford 1959. Fullbrook, Mary Piety and Politics, Religion and the Rise of Absolutism in England, WUrttemberg and Prussia, Cambridge University Press, Cambridge 1983. Hayek, F. A. The Constitution of Liberty, Ro- utledge, London 1993. Hill, Christopher God’s Englishman, Oliver Cromw- ell and the English Revolution, Penguin Books, London 1990, og fleiri bækur. Höfundur er M.Sc. í stjórnmálaheimspeki ERLENDAR BAKUR MYND- BREYTING- AR MYND- BREYTINGA OVIDS After Ovid - New Metamorphoses. Edited by Michael Hofman and James Lasdun. Faber and Faber 1996. OVID eða réttu nafni Publius Ovidius Naso lifði sínu andlega fijósama, skemmtilega og dap- urlega lífi frá 43 f. Kr. og til 17 eða 18 e.Kr. Hann orti, lifði skemmtilegu samkvæmislífi þar til ónáð Ágústusar keisara hrakti hann til hálf-barbarískra landsvæða keisaradæmisins, í útlegð við_ Svartahaf. Ástæðan fyrir útlegðinni var atburð- ur, sem hann var vitni að, atburður sem gat ekki gerst og mátti alls ekki ger- ast, hvað þá vitnast. Hann var þess eðlis að ekki mátti minnast á hann. Ovidius skiptist á bréfum við vini sína í Róm úr útlegðinni, hann var nákunn- ugur Propertiusi, þekkti Horatius en hann þekkti Virgil aðeins í sjón. Hann átti ijölda vina í Róm og sumir þeirra eru aðeins kunnir vegna þess að Ovid- ius nefnir þá. Hið ljúfa líf í Róm var að baki, en hann orti í útlegðinni, fræg- asta og snildarlegasta verk hans var ort í Róm ásamt öðrum frægustu bálk- um hans. Metamorphoses er náma goðsagna, anektdóta og frásagna, ekki minnst úr grískri goðafræði, efni úr ljóðum ann- arra skálda kemur til skila og í lok bókanna kemur Virgil til sögunnar. Bálkurinn skiptist upp í 15 bækur. Höfundurinn tengir sögur og atburða- rás snildarlega saman í samhangandi frásögn, léttleiki og stflsnilld er höfuð- einkennið ásamt hraðanum. Það er lík- ast sem lesandinn sé á hraðferð um horfna heima og stöðugar myndbreyt- ingar goða og persóna reka hver aðra. Það var ekki að undra að þetta verk Ovids yrði mikið lesið á sínum tíma og síðan út allar miðaldir og áfram. Hér var komin kennslubók í goðafræði og sköpunarsagan I fullri lengd, allt verkið var fyllt ótal mennskum persónum og jarðlegri atburðarás. Myndbreytingar Ovids hafa um aldir orðið kveikja lista- verka, málverka og höggmynda og áhrif á skáldmenntina eru auðfundin í verk- um evrópskra skálda. Og nú á síðasta áratug annars árþús- unds tóku tveir einstaklingar sig til og fengu mörg ljóðskáld sem yrkja á ensku, þar á meðal fremstu skáld þeirrar tungu, að yrkja nýjar myndbreytingar með verki Ovids sem kveikju. Það sem skáldunum var ætlað, var að þýða, end- urskynja og skýra sögurnar og atburð- ina sem var „hráefni" Ovids, ígrunda sögumar að nýju og endurskapa þær hver á sinn hátt. Skáldunum var ætlað að endurnýja Ovid, enduryrkja efnið. Ted Hughes byijar frásögnina af sköpuninni, hinum Qórum aldaskeiðum og Jorie Graham yrkir um flóðið. Síðan koma frásagnir og ljóð úr hinu mikla verki í endursköpun. Fjölmörgum sögum er sleppt en þrátt fyrir það er bókin tæpar 300 blaðsíður. Að enduryrkja foman kveðskap og gefa honum nýtt líf hefur verið stundað áður, en ekki kerfisbundið eins og þessi tilraun vottar. Endumýjun og tilvísanir til fomra texta em tilraun til „endumýjunar skáldskaparins". Á síðari hluta þessarar aldar hefur slík nýsköpun skáldskapar- ins átt sér stað auk þess sem „þan orða og hugtaka“ hefur auðgað skáldskapar- málið. Þessi einkenni er m.a. að finna sérstaklega í ljóðum tveggja íslenskra skálda, Kristjáns Karlssonar og Matt- híasar Johannessens, sbr. Jan Jörgen Tönseth í Dagbladet, Oslo. SIGLAUGUR BRYNLEIFSSON LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 1. FEBRÚAR 1997 9

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.