Lesbók Morgunblaðsins - 15.02.1997, Blaðsíða 2
FRUMVARP TIL LAGA UM BÓKASAFNSSJÓÐ HÖFUNDA
ÞÝÐENDUR, MYND- OG
TÓNHÖFUNDAR FÁI ÚTHLUTAÐ
MENNTAMÁLARÁÐHERRA leggur
fram á Alþingi frumvarp til laga um
Bókasafnssjóð höfunda. Frumvarpið byggir
á áliti nefndar sem var falið að kanna forsend-
ur fyrir breytingum á gildandi lagaákvæðum
um þóknun til höfunda vegna afnota bóka á
bókasöfnum. Nefndin hafði það markmið að
finna leið til að koma á skilvirku kerfi sem
skilaði starfandi höfundum á íslandi greiðsl-
um fyrir afnot verka þeirra á bókasöfnum
og stuðlaði að bókmenntasköpun í landinu.
Greióslum til erfingja
höfunda breytt
í frumvarpsdrögunum er gert ráð fyrir að
þýðendur og mynd- og tónhöfundar öðlist
rétt til úthlutunar. Þannig fái þýðendur 1/3
hlut miðað við frumhöfunda og myndhöfund-
ar eignist hlutdeild í verkum eftir því sem
við á. Aftur á móti er réttur til úthlutunar
eftir andlát höfundar skilgreindur þrengra
en nú, bæði hvað varðar gildistíma svo og
hvaða aðilar skuli njóta þeirra réttinda. Er
það í samræmi við það sjónarmið að Bóka-
safnssjóður sé fyrst og fremst til þess ætlað-
ur að styrkja starfandi höfunda á hverjum
tíma og efla þannig nýsköpun bókmennta í
landinu.
Tekið verður tillit til afnota bóka á almenn-
ingsbókasöfnum, skólabókasöfnum, Lands-
bókasafni íslands - Háskólabókasafni og
bókasöfnum í stofnunum sem kostuð eru af
ríkissjóði eða sveitarfélögum. Greiðslur verði
miðaðar við útlán bóka og byggist á skrán-
ingu margra safna. Núgildandi lagaákvæði
taka til almenningsbókasafna og í fram-
kvæmd miðast ákvörðun þóknunar við fjölda
eintaka á Borgarbókasafni en er ekki í sam-
ræmi við notkun verkanna.
Fellt verður niður ákvæði um ijárhæð
framlagsins sem veitt er til að inna greiðslur
af hendi en gert ráð fyrir að það verði ákveð-
ið í fjárlögum ár hvert og renni í Bókasafns-
sjóð höfunda sem leysir Rithöfundasjóð ís-
lands af hólmi.
ísland var á sínum tíma meðal þeirra þjóða
sem fyrstar tóku upp greiðslur til höfunda
fyrir afnot af bókum þeirra á bókasöfnum.
Hins vegar er nú svo komið að framlagið hér
er hið lægsta á Norðurlöndum miðað við
höfðatölu.
Framlag haekkar um 5 milljónir
Samkvæmt núgildandi lögum er fé í þessu
skyni veitt i fjárlögum um hendur Rithöf-
undasjóðs íslands. Á fjárlögum 1997 er gert
ráð fyrir að Rithöfundasjóður fái 12,3 milljón-
ir króna til ráðstöfunar. Verði frumvarpið að
lögum er gert ráð fyrir tæplega 5 milljóna
króna hækkun til sjóðsins. Heildarfjöldi ís-
lenskra höfunda og rétthafa sem fá greitt
fyrir bækur í söfnum árið 1996 er 862 en
þar af eru erfingjar látinna höfunda 246 tals-
ins. Þýðendur sem og mynd- og tónhöfundar
fá engar greiðslur miðað við núgildandi lög.
Lágmarksgreiðsla á árinu 1996 var kr. 1.170
(miðað við 30 eintök á Borgarbókasafni) en
hæsta greiðsla kr. 81.159 (miðað við 2.081
eintak).
Djöflaeyjan
frumsýnd í
Noregi
DJÖFLAEYJAN, kvikmynd Friðriks Þórs
Friðrikssonar, sem byggð er á bókum Einars
Kárasonar um fólkið í Thulekampi, verður
frumsýnd í dag, laugar-
dag, á kvikmyndahátíð-
inni í Osló. Um helgina
hefjast svo almennar
sýningar á Djöflaeyj-
unni í sjö borgum í Nor-
egi. Er þetta stærsta
opnun á íslenskri kvik-
mynd í Noregi til þessa.
Friðrik Þór Friðriks-
son leikstjóri og Baltas-
ar Kormákur leikari
verða viðstaddir frum-
sýningu myndarinnar á
Friðrik Þór Oslóarhátíðinni. Strax á
Friðriksson sunnudag halda þeir til
Berlínar en Djöflaeyjan var valin úr yfir 700
kvikmyndum til að taka þátt í kvikmynda-
hátíð Berlínarbúa en í fréttatilkynningu seg-
ir að Berlínarhátíð sé orðin fyrir löngu einn
mikilvægasti viðburður í kvikmyndaheimin-
um, fyrir kvikmyndagerðarmenn jafnt sem
áhorfendur.
Sendiráð íslands í London
Sýningar
íslenskra
listamanna
ÍSLENSKA sendiráðið í London hyggst taka
upp þá nýbreytni til reynslu að bjóða ís-
lensku listafólki að sýna verk sín í móttöku
sendiráðsins að 1 Eaton Terrace, London
SW 1.
Listamaðurinn sem ríður á vaðið í þessari
tilraunastarfsemi er Sigurður Magnússon
listmálari og eru nú til sýnis eftir hann 12
málverk í móttöku sendiráðsins og mun sýn-
ingin standa í 2-3 mánuði.
Markmið slíkra sýninga yrði í byijun að
kanna hvort þetta væri heppilegur vettvang-
ur fyrir kynningu íslenskra listamanna sem
starfa í Bretlandi, en nokkur fjöldi þeirra
er að jafnaði hér við störf eða í framhalds-
námi. Sendiráðið mun ekki leggja listrænt
mat á verk væntanlegra sýnenda, en setur
ákveðnar reglur um reynslu og menntun
þeirra í staðinn. Móttakan í sendiráðinu er
hvorki stór né sérstaklega útbúin til sýn-
ingarhalds og setur því aðstaðan takmörk á
umfang og eðli sýninganna. Hér er ekki um
sölusýningar að ræða.
EITT verkanna á sýningunni.
Sölusýning á verkum
Gunnlaugs Schevings
GALLERÍ Borg opnar í dag kl. 16 sölusýn-
ingu á um þremur tugum verka eftir Gunn-
iaug Scheving listmálara (1904-1972). Að
sögn Péturs Þórs Gunnarssonar hjá gallerí-
inu eru mörg þeirra máluð á Seyðisfirði
skömmu eftir að Gunnlaugur sneri úr námi
í Danmörku og hafa ekki verið sýnd hér
á landi áður.
Nýverið var haldin sýning á verkum
þessum í galleríi í Kaupmannahöfn en þau
voru, að sögn Péturs Þórs, í eigu Gretu
Link Sörensen, sem var um tíma gift Gunn-
laugi. Mun hún hafa haft þau með sér frá
Seyðisfirði þegar þau slitu samvistir.
Einnig verða á sýningunni verk frá náms-
árum Gunnlaugs og myndir sem Gallerí
Borg hefur safnað saman hér heima. OIl
verkin eru til sölu en sýningin stendur ein-
ungis yfir í fjóra daga - lýkur þriðjudaginn
18. febrúar. Ómar Einarsson gítarleikari
og Tómas R. Einarsson bassaleikari munu
skemmta gestum við opnunina síðdegis.
Guillou tapar aleigunni
SÆNSKI sakamálahöfundurinn
Jan GuiIIou tapaði fyrir skömmu
skaðabótamáli sem hann höfðaði
vegna kvikmyndar sem gerð hef-
ur verið eftir einni af bókum hans
um njósnarann Carl Hamilton.
Bendir allt til þess að Guillou
verði að sjá á bak öilu sínu fé,
um 50 milljónum ísl. kr. og standi
uppi slyppur og snauður.
Guillou hafði gefið leyfi fyrir _
gerð kvikmyndar eftir bókinni „I
þágu þjóðarhagsmuna" en gerði
Jan
Guillou
tilraun til að stöðva hana eftir
að kvikmyndataka hófst. Ástæðan
var handritið sem Guillou þótti
fyrir neðan allar hellur.
Samkvæmt samningi hafði
Guillou rétt til taka þátt í handrits-
gerðinni en hann taldi sig einnig
geta stöðvað framleiðslu myndar-
innar. Sú var ekki raunin.
Á meðal þeirra leikara sem
túlkað hafa Carl Gustav Gilbert
Hamilton eru Stellan Skarsgárd,
Peter Haber og Stefan Sauk.
MENNING/
LISTIR
í NÆSTU VIKU
MYNDLIST
Ásmundarsafn - Sigtúni
Mótunarárin í list Ásmundar Sveinssonar
Kjarvalsstaðir - Flókagötu
Yfirlitssýn. á verkum Hrings Jóhanness. og sýn.
á nýjum verkum eftir Jónínu Guðnad. til 16. febr.
og sýn. á verkum eftir Kjarval til 11. maí.
Listasafn íslands - Fiíkirkjuvegi 7
Sýn. á verkum Eiríks Smith „A milli tveggja
heima“ til 16. febr.
Safn Ásgríms Jónssonar - Bergstaðastræti 74
Sýning á úrvali vatnslitamynda eftir Ásgrím til
loka maímánaðar.
Gallerí Önnur hæð - Laugavegi 37
Sýn. á verkum Eyborgar Guðmundsd. á miðvd.
út mars.
Gallerí Hornið - Hafnarstræti 15
Mokka. Magnea Ásmundsdóttir sýnir.
Gerðuberg - Gerðubergi 3-5
Sýn. á eldri verkum Finnboga Péturss. til 30. mars.
Sjónarhóll - Hverfísgötu 12
Sýn. á nýjum verkum Finnboga Péturss. til 2. mars.
Galleríkeðjan - Sýnirými
Sýningar í febrúar: Gallerí Sýnibox: Þóroddur
Bjarnason. Gallerí Barmur: Sigríður Ólafsdóttir,
berandi er Edda Andrésdóttir. Gallerí Hlust
(551-4348): Surprís. Gallerí Tré: Margrét Blöndal.
Gerðarsafn - Hamraborg 4 Kóp.
Ásdís Sigurþórsd., Helgi Gíslason og Sólveig Helga
Jónasdóttir sýna til 2. mars.
Undir pari - Smiðjustíg 3
Smáhátíð - laugardagskvöld kl. 20-23.
Listhús 39 - Strandgötu 39, Hf.
Bergsteinn Ásbjörnsson sýnir til 16. febr.
Hafnarborg - Strandgötu 34 Hf.
Einar G. Baldvinss. sýnir til 17. febr., einnig sam-
sýn. til sama tíma.
Gallerí Sævars Karls - Bankastræti 9
Sigurborg sýnir.
Gallerí Listakot - Laugavegi 70
Jóhanna Sveinsdóttir sýnir til 11. febr.
Listasafn Sigurjóns - Laugarnestanga 70
Skólasýn. á völdum verkum Siguijóns.
Norræna húsið - við Hringbraut
Morten Krogvold sýnir til 16. febr. og Mikko Tar-
vonen sýnir til 19. febr.
Listasafn ASÍ
Sýning á verkum Gunnars Kr. Jónas. til 2. mars.
Nýlistasafnið - Vatnsstíg 3b Joris Rademaker
og Helgi Hjaltalín Eyjólfsson sýna til 16. febr.
Listþjónustan - Hvergisgötu 105
Björn Bimir sýnir til 2. mars.
Ingólfsstræti 8 - Ingólfsstræti 8
Halldór Ásgeirsson sýnir til 16. febr.
Gallerí Fold - við Rauðarárstíg
Olivur við Leyst sýnir til 2. mars.
Snegla listhús - Grettisg. 7. Kynning á textíl-
þrykki Helgu Pálínu Brynjólfsd. til 17. febr.
Hallgrímskirkja - Skólavörðuholti
Veggteppi úr fórum Listasafns Hallgrímskirigu
Listasetrið Kiriguhvoll - Akranesi
Sýn. „Úr landslagi í afstrakt“ til 23. febr.
Gallerí Allra Handa - Akureyri
Kjartan Guðjónsson sýnir.
SÍunkaröd - ísafírði
Einar Garibaldi Eiríksson sýnir tíl 9. mars
TÓNLIST
Laugardagur 15. febrúar
Tónlistarfélag Akureyrar:Safnaðarheimili Akur-
eyrarkirkju kl. 16; Guðrún Birgisdóttir flautuleik-
ari, Martial Nardau flautuleikari og Peter Máté
píanóleikari.
Tónlistarhátíð í Garðabæ. Kirkjuhvoll við Vídalíns-
kirkju; 3. tónl. kl. 17. Jónas Ingimundarson og
Gerrit Schuil leika fjórhent á píanó.
Ámesingakórinn heldur 30 ára afmælistónleika í
Langholtskirkju kl. 16.
Sunnudagur 16. febrúar
Listasafn Kópavogs. Gerðarsafn kl. 20.30. Örn
Magnússon píanóleikari .
Ljóðatónleikar í Gerðubergi kl. 16. Alina Dubik
mezzósópran og Iwona Jagla píanóleikari.
Mánudagur 17. febrúar
Djasstónleikar í Gerðarsafni, Kópavogi kl. 20.30.
Jazzkvartett Reykjavíkur.
Evróputónleikar í Langholtskirkju kl. 19.30. Kór
Langholtskirkju ásamt Ólöfu Kolbrúnu Harðar-
dóttur, Rannveigu Fríðu Bragadóttur, Garðari
Cortes og Lofti Erlingssyni verk Rossinis, Petite
Messe Solenelle.
LEIKLIST
Þjóðleikhúsið
Litli Kláus og stóri Kláus sun. 16. febr.
Villiöndin sun. 16. febr., fím. 20. feb.
Leitt hún skyldi vera skækja lau. 15. febr., fös.
Þrek og tár sun. 23. febr.
Kennarar óskast. sun. 16. febr. fös. 21. febr.
í hvítu myrkri sun. 23. febr.
Borgarleikhúsið
Trúðaskólinn sun. 16. febr.
BarPar lau. 15. febr., fös.
Dómínó lau. 15. febr., þri., mið., fim.
Fagra veröld lau. 15. febr., fös.
Konur skelfa fös. 21 febr.
La Cabina sun. 16. febr., fös.
Krókar & kimar, ævintýraferð um leikhúsgeymsl-
una frá 13-18 alla daga og til kl. 22 sýningardaga.
íslenska óperan
Káta ekkjan fös. 21. febr.
Loftkastalinn
Áfram Latibær lau. 15. febr., sun.
Á sama tíma að ári sun. 16. febr., fös.
Sirkus Skara skrípó lau. 15. febr.
Höfðaborgin
Glæpur og Glæpur laug. 15. febr., sun.
Hermóður og Háðvör
Birtingur lau. 15. febr., mið., fös.
Nemendaleikhúsið
Hátíð fím. 20. febr., fös.
Kaffíleikhúsið
íslenskt kvöld laug. 15. febr., fós.
Kópavogsleikhúsið
Gullna hliðið sun. 16. febr.
Leikbrúðuland
Hvað er á seyði? alla sun. fram á vor.
Leikfélag Akureyrar
Undir berum himni fös. 21. feb.
Kossar og kúlissur laug. 15. febr., lau.
2 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 15. FEBRÚAR 1997