Lesbók Morgunblaðsins - 15.02.1997, Side 8
FRUARKIRKJAN
í DRESDEN
ENDURREIST
EFTIR MÁ VIÐAR MÁSSON
í Leipzig samdi Bach m.g. 265 kantötur,
sex stórar módettur, fimm messur,
Jólaoratoríung og Mattheusarpassíuna,
sem er margslungin í dýpt sinni,
formsnilld og feguró og áreióanlega
meó mestu afrekum mannsandans.
Þetta er síðari hluti „A slóðum J.S. Bach.“
í DRESDEN er listasafnið Zwinger, sem byrjað var að byggja
1709. Þar eru margir dýrgripir varðveittir, þar á meðal hin
fræga madonnumynd Rafaels frá endurreisnartímanum.
Málverkið er 2x2,7m.
FRÁ WEIMAR lá leið okkar í gegn-
um Altenburg, en þar skoðuðum
við samnefnda höll. Höllin var
áður kastali sem á rætur að rekja
langt aftur í aldir. Þama kynnt-
umst við sögu byggingarlistar
frá miðöldum og fram á þá nítj-
ándu. Höllin er heilleg þótt hún
hafi skemmst í hveijum ófriðnum á fætur
öðrum. í kapellu kirkjunnar er stórt og mik-
ið orgel sem J.S. Bach vígði árið 1739. Það
þykir hafa einkar fallegan barrokkhljóm, en
„der Orgelprospekt ist sehr konturenreich
und reich mit plastischem Schmuck verziert.
Eine verhaltene Polychromie setzt Akzente
zwischen den metallisch glánzenden Zinnpfei-
fen und dem hölzemen Orgelgeháuse". Gömlu
orgelin vom mörg gerð upp á rómantíska
tímanum og stillt fyrir þau verk sem þá vom
í tísku, en henta tónlist Bachs aftur á móti
illa. Við urðum vör við að Þjóðveijar em nú
að kippa þessu í liðinn og ný orgel hafa gjam-
an barokkbyggingu.
Nú er verið að endurgera ýmislegt í höll-
inni sem farið hefur illa í hirðuleysi stríðs-
og eftirstríðsára. Þetta varð enn meira áber-
andi í Dresden, en eins og alþekkt er fór sú
borg afar illa í seinni heimsstyijöldinni þegar
mestur hluti borgarkjamans var jafnaður við
jörðu í loftárásum. Dresden lenti austantjalds
eftir stríð enda emm við nú komin til Sac-
hsen. Saxar hafa lengi haft horn í síðu Prússa
að norðan en frekar sótt áhrif að sunnan,
ekki síst til Vínar. Því var það að Dresdenbú-
um þótti nóg um eftir að Berlín varð að höfuð-
borg Austur-Þýskalands og uppbygging hófst
þar eftir stríð. Þeim þótti sem mikið fé færi
í að reisa Berlín úr rústunum, en lítið til
Saxlands. Á meðan rústir fomra mannvirkja
vom endurreistar í Berlín hurfu þær fýrir
kjöftum vélskóflanna í Dresden. íbúamir
BRJÓSTMYND af Bach f Köthen.
fýlgdust með niðurrifsstarfseminni í skelfíngu
og máttleysi þar til tiltölulega heillegar rúst-
ir barokkhúsgafla við Groe Meiner Strae
3-13 vom sprengdar í loft upp 1. júní 1950.
Þá lá við uppreisn. Sagan segir að Walter
Ulbricht hafí bmgðist við með því að setja fé
í endurreisn Semper ópemhússins sem nú
stendur í sinni fyrri dýrð og hýsir hina frægu
hljómsveit Staatscapelle. Svo mikið er víst
að mótmælin og umræðumar sem af þeim
spmttu urðu til þess að fleira var ekki
„hreinsað burtu“. Enn er verið að gera við
Residenzschlo, Sophienkirche’og fleiri merkar
byggingar í miðborginni sem mynda Elbf-
assade við ána Elbu.
Að sjálfsögðu lagði sparibúinn hópurinn
leið sína í Semperópemna þar sem hlustað
var á góðan flutning Staatscapelle á Erwart-
ungkonsert Amolds Schönberg (1874-1951)
og 5. sinfoníu Antons Bmckner (1824-1896)
undir stjórn Giuseppe Sinopoli. Semperóperan
vakti verðskuldaða athygli okkar, enda áreið-
anlega fallegasta hljómleikahús sem flest
okkar höfðu komið í.
í Dresden urðum við þeirrar sérstöku
ánægju aðnjótandi að geta virt hina þekktu
madonnumynd Rafaels fyrir okkur. Þar er
einnig málverkið af hinni sofandi Venus eftir
Castelfranco sem margir kannast við af eftir-
prentunum. Myndimar em í listasafninu
Zwinger sem Ágúst II, einnig nefndur Ágúst
sterki, lét hefja byggingu á árið 1709. Safn-
ið er feiknastórt og sérstakt fýrir það að
vera reist sem safn frá byijun. Ágúst var
ekki aðeins sterkur, heldur fékk hann viður-
nefnið ekki síður fyrir stóran líkama sinn og
mikla kvenhylli. Ágúst hafði lítinn áhuga á
stríðsleikjum og seldi óvini sínum Friedrich
Wilhelm Prússakonungi 600 bestu hermenn
sína fyrir 150 postulínsgripi frá Asíu sem
nú em til sýnis í postulínsdeild safnsins.
Slóðir menningarreisu okkar íslending-
anna lágu að mestu um land það sem um
hríð hét Austur-Þýskaland. Sú tilfínning lá í
loftinu hvar sem komið var að íbúarnir
skömmuðust sín fyrir eyðileggingu stríðsins.
Það vom ekki einungis eigur stríðskynslóðar-
innar sem skemmdust, heldur byggingar og
munir sem áttu sér aldagamla sögu. Sagt
var um kappann Gunnar Hámundarson að
SEMPER óperuhúsið stendur i miðri Dresden og eyðilagðist þegar borginni var eytt í stríðinu. Það stendur nú samt f sinni fyrri dýrð og er það mikið afrek. íslendingahópurinn
hlustaði þar á hina þekktu hljómsveit Staatscapelle.
8 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 15. FEBRÚAR 1997