Lesbók Morgunblaðsins - 15.02.1997, Qupperneq 9
hann sveiflaði sverðinu af slíkum hraða að
mörg virtust vera á lofti í einu. í Dresden
eru aldrei færri en níu byggingarkranar á
lofti, hvert sem litið er. Það á reyndar við
um allan austurhluta landsins. Sögulegar
byggingar sem skemmdust í stríðinu og ekki
voru lagaðar á meðan múrinn stóð eru nú
endurreistar hver af annarri og hús sem fengu
lítið viðhald á erfirstríðsárunum fá nú
„renovierung". Það auðveldar ekki viðhald
húsa á þessum slóðum að þau eru flest reist
úr sandsteini, því annað var ekki að hafa.
Steinninn er mjúkur svo sót og önnur óhrein-
indi loftsins eiga greiða leið inn í hann. Bygg-
ingar og styttur eru því svartar á að líta og
engin leið að ná þeim lit burtu. - Á húsum
sem þegar hafa verið endumýjuð má iðulega
sjá skilti sem á stendur til dæmis:
In 1973 gebaut
In 1996 renoviert
eða:
In 1944 zerstört
In 1996 wiederaufbaut.
í Dresden er miðaldakirkjan Frauenkirche
enn í molum. Nú er stefnt að því að endur-
reisa kirkjuna á næstu 7-8 árum og er reikn-
að með að það kosti sem nemur 11 milljörð-
um íslenskra króna. Fyrir utanaðkomandi
virðist það nánast óvinnandi vegur, en af
alkunnri nákvæmni heimamanna hefur hver
einasti steinn úr rústunum verið númeraður
og þeim síðan verið raðað í langar raðir á
hillur sem komið hefur verið fyrir í kringum
kirkjuna. Með þrívíddar tölvugrafík verður
hverju broti síðan fundinn sinn upprunalegi
staður. Nú í sumar var haldin fyrsta guðs-
þjónusta frá eyðileggingu kirkjunnar í tilefni
þess að grafhvelfingin hefur verið endurreist.
Kölhen
Á leið til Köthen var komið við í Halle,
en hún er fæðingarborg Georgs Friedrichs
Hándels sem var jafnaldri J.S. Bachs. Þar
var miðaldakirkjan Marktkirche skoðuð, en
hún er sameinuð úr tveimur kirkjum sem
byggðar höfðu verið hvor ofan í annarri líkt
og gert var í Erfurt og áður er lýst. Á leið-
inni var hlustað á tónlist Hándels í bflnum,
en Ingólfur fararstjóri lék valda kafla úr
ýmsum verkum hans, m.a. úr Messíasi í flutn-
ingi Pólýfónkórsins frá 1986. Þar er um að
ræða samfellda tónleikaupptöku (live) sem
alltaf stendur fyrir sínu. Meðan ekið var um
iðgrænar sveitir Þýskalands nutum við einnig
tónlistar Bachs og Wagners. Richard Wagner
bjó í Dresden og þar voru sum verka hans
frumflutt. Það var því áhrifamikið að heyra
valda hluta úr Niflungahringnum þegar ekið
var inn í þá borg.
J.S. Bach var i níu ár í Weimar. Þar kynnt-
ist hann Leopold prinsi af Anhalt/Cöthen sem
var mikill tónlistarmaður. Leopold bauð Bach
starf Kapellmeister átján manna hirðhljóm-
sveitar sinnar í Köthen. Þetta var ómótstæði-
legt boð fyrir Bach sem fékk ekki það emb-
ætti sem hann hafði gert sér vonir um í
Weimar. Þegar Wilhelm Emst hertogi í
Weimar frétti að Bach hygðist segja upp vist-
inni setti hann Bach í stofufangelsi í þrjár
vikur fyrir framhleypnina. En hann flutti
með Mariu Barböru og bömum þeirra flómm
til Köthen um leið og hann losnaði. Þetta var
árið 1717. Sá hængur fylgdi þessu nýja starfí
að nokkurrar naumhyggju gætti í trúmálum
í Köthen og tónlist ekki notuð við trúarathafn-
ir. Það hefur verið nýlunda fyrir Bach sem
var á kafi í trúarlegri tónlist, mönnum til
trúarlegs innblásturs og guði til dýrðar. Við
getum þó verið forsjóninni þakklát, því það
var undir vemdarvæng Leopolds prins sem
Bach samdi Brandenburgarkonsertana, svít-
umar, fíðlukonsertana, margar sónötur
hafíð að Das Wohltemperierte Klavit
ýmis önnur veraldleg verk sem við vil
síst án vera í dag.
Sumarið 1720 dvöldu Bach og Leopt
ásamt föraneyti í Karlsbad, prinsinum t
heilsubótar. Þegar heim var komið kom í ljós.
að Maria Barbara hafði látist þá um sumarið
og þegar verið jörðuð. Þetta áfall mun hafa
orðið til þess að Bach hugsaði sér til hreyf-
ings. Þau skilyrði sem hann vann við í kalvín-
ísku umhverfi hentuðu honum ekki lengur.
Hann hafði áhyggjur af uppeldi bama sinna
og eigin sannfæringu. Þetta ár sótti Bach
um stöðu organista við St. Jameskirkjuna í
Hamborg. Hann hélt tveggja tíma langan
konsert fyrir kirkjuráðið þar og spann út af
laginu Am Wasserflussen Babylons. J.A.
Reincken var viðstaddur og hreifst mjög að
leik Bachs. „Ég hélt að þessi list væri dauð,
en ég hef nú heyrt að hún lifír í yður,“ sagði
hann við Bach. Annar umsækjandi hafði efni
á að greiða með sér og fékk stöðuna. í desem-
ber árið 1721 steig Johann Sebastian gæfu-
spor þegar hann kvæntist Önnu Magdalenu
Wilcken. Hún var aðeins tvítug, en þroskuð
kona sem varð Bach góður förunautur og
bömum hans sex úr hjónabandi hans með
FRÚARKIRKJAN (Frauenkirche) í Dresden eyðilagðist í strfðinu. Borgarbúar hafa ákveð-
ið að endurreisa hana, fundið hverjum steini sinn fyrri stað, númerað þá og raðað
upp. Flestum virtist þetta óvinnandi verk, en því á að vera lokið innan áratugs.
Mariu Barböra góð móðir. Sjöunda bamið
hafði látist skömmu áður. Saman eignuðust
Bach og Anna Magdalena 13 börn. Um mitt
ár 1722 losnaði staða kantors í Leipzig og
Bach sótti um hana.
Eftir akstur um þröngar götur Köthen, sem
ekki liggur í alfaraleið, komum við að höll
Leopolds; Schloss Köthen. Höllin er í mjög
góðu ásigkomulagi. Þar gengum við um sömu
sali og Bach og Leopold höfðu til sinna um-
ráða meira en 270 árum áður. í fagurlega
skreyttum speglasalnum stjómaði Bach hljóm-
sveit sinni á kammertónleikum eða undir
dansi. Þar er enn að finna píanóið (Klavier)
sem Bach samdi Das Wohltemperierte Klavier
á. Enn meiri hughrif fylgdu því að koma í
kapellu hallarinnar sem var „1988-1991 re-
konstraiert“. Þar er lítið orgel sem Bach hafði
fyrir sig. Hann gat því samið kirkjulega tón-
list þótt hún væri ekki mikið notuð í höllinni.
Nú er minning Bachs aðalsmerki Köthen.
Leipzig
Á leið íslendinga til iðnaðarborgarinnar
Leipzig var komið við í postulínsborginni Mei-
m. Þar voru gerðar fyrstu tilraunir til postu-
hsgerðar í Evrópu á fyrstu áram átjándu
dar. Meiner-postulín er þekkt fyrir gæði enn
nn dag í dag. Fararstjóri vor dreif okkur á
i úngu á afurðum verksmiðjunnar. Það er
lj t að verksmiðjan hefur fyrst og fremst
ge ; postulín fyrir kóng og aðal. Ennþá er
fra» ileiðslan afar skrautleg, en það mátti
heyra á konunum að þær kunnu vel að meta.
Þótt Bach sé nú óumdeilanlega einn af
mestu meisturum evrópskrar tónlistar var
hann ekki meira metinn en svo af samtíma
sínum að hann lenti ekki fremstur í röð
umsækjenda um starf kantors við Thoma-
skirche í hinni blómlegu borg viðskipta, vís-
inda og lista Leipzig. Eftir að aðrir umsækj-
endur höfðu dregið sig til baka fékk Bach
þó loks stöðuna. Þá var árið 1723. Til að
sanna það að hann kynni til verka lék hann
fyrir kirkjuyfirvöld nýsamda Jóhannesarpass-
íuna! Bach þurfti einnig að þjóna Nikolai-
kirche og tveimur til viðbótar, kenna drengj-
unum í Thomasschule tónlist og stjóma kór-
um kirkjanna. Þar fyrir utan samdi Bach svo
mikinn fjölda tónverka að það er algerlega
óskiljanlegt hvemig hann hefur haft tíma til
alls þessa. Þá þurfti hann að sinna öllum
bömunum sínum, en þeim kenndi hann á
hljóðfæri og urðu fjórir synir hans þekkt tón-
skáld og hljóðfæraleikarar. Auk þess söfn-
uðust í kringum hann samstarfsmenn, lær-
lingar, vinir og vandamenn. í Leipzig samdi
Bach m.a. 265 kantötur, sex stórar mótettur,
fimm messur, þar á meðal H-moll messuna,
Jólaoratoríuna og Mattheusarpassíuna. Matt-
heusarpassían er margslungin og í dýpt sinni,
formsnilld og fegurð áreiðanlega með mestu
afrekum mannsandans. Hún er til á hljómplöt-
um í konsertupptöku Pólýfónkórsins og ann-
ars íslensks tónlistarfólks frá árinu 1982.
Tveimur árum fyrir dauða sinn heimsótti
Bach son sinn Carl Philipp Emanuel til Pots-
dam, en hann starfaði þar fyrir Friðrik mikla.
Bach lék fyrir Prússakonung í San Souci
höll, m.a. tilbrigði við verk sem konungur
hafði sjálfur samið, við mikla hrifningu. Þeg-
ar heim kom sendi Bach Friðriki verk sitt
Musikalisches Opfer. Bach lést síðan árið
1750. Stytta hans stendur við Thomaskircþe
og í kór hennar er grafreitur hans. - ís-
lenski ferðahópurinn gerði stuttan stans fyrir
utan San Souci, en skoðun hallarinnar tekur
lungann úr degi og bíður betri tíma.
Meðan Bach lifði voru aðeins 9-10 verka
hans gefin út og ekkert fyrr en hann var
orðinn 41 árs að aldri. Ýmislegt kann að
hafa valdið þessu og er ein ástæðan sú að
Bach þótti gamaldags þegar fyrir miðjan ald-
ur. Klassíkin tók við af barrokki með sónöt-
una og nýjum hljómum, en svo undarlegt sem
það kann að virðast var það einmitt sonur
Bachs, Carl Philipp Emanuel, sem átti dijúg-
an þátt í tilurð og vinsældum sónötunnar. í
Ijósi þess er það ekki óskiljanlegt að í ævisög-
um Bachs er þess jafnan getið að Carl Philipp
hafi talað um föður sinn sem „gömlu hárkoll-
una“ með tilvitnun til þess tima sem var að
renna sitt skeið. Nútímamenn skynja tónlist
Bachs aftur á móti oft á þann veg að þeim
virðist hún yngri og fijálsari en tónlist þeirra
sem á eftir komu. - Das Wohltemperierte
Klavier var gefið út í byijun nítjándu aldar,
en að öðra leyti var það Felix Mendelssohn
(1809-1847) sem vakti athygli umheimsins
á Bach þegar hann flutti Mattheusarpassíuna
í Berlín árið 1829, áttatíu áram eftir lát tón-
skáldsins. Bachgesellschaft var stofnað árið
1830 og hafði tekist að gefa út öll verk snill-
ingsins árið sem haldið var upp á einnar ald-
ar dánarafmæli hans árið 1850.
Eftir að hafa skoðað Thomaskirche fóram
við á konsert sem Ingólfur hafði pantað fyr-
ir okkur í Nikolaikirche. Þar heyrðum við í
stóra orgelinu sem Bach spilaði á, nema hvað
það hefur nú rómantískan hljóm eftir seinni
tíma „rekonstraierung".
í Leipzig er Gewandhaus tónleikahúsið.
Það þarf varla að kynna það fyrir lesendum,
svo þekkt sem það er. Gamla Gewandhaus
eyðilagðist í stríðinu. Nýja húsið var vígt
árið 1981 og er í eftirstríðsstfl. Steinsteypa
og beinar línur era mest áberandi og gera
húsið eins ólíkt Semper-óperanni í Dresden
og hugsast getur. En það er þekkt fyrir frá-
bæran hljóm. í Gewandhaus heyrðum við
annan píanókonsert Hans Wemer Henze
(1926) og fjórðu sinfóníu Gustavs Mahlers
(1860-1911) undir stjóm Ingos Metzmacher.
Píanókonsertinn er nútímaverk og þótti
mörgum hann vera erfíður áheyrnar. Ein
kona úr hópnum var hins vegar svo hrifin
að hún þræddi eftir þetta allar plötubúðir að
leita að upptökum af verkum Henze. Aðal-
stjómandi Gewandhausorchester síðastliðin
25 ár er Kurt Masur, en hann hefur átt mik-
inn þátt í að endurreisa tónlistarlíf borgarinn-
ar. Eftir tónleikana fór vel á að koma við á
kráinni Auerbachs Keller sem meðal annars
er þekkt fyrir að koma við sögu í Faust, en
Johann von Goethe vandi þangað komur sín-
ar. Borgarbúar launuðu Goethe með því að
reisa honum styttu.
í Leipzig dvöldu meðal annarra íslending-
amir Jón Leifs, Hallgrímur Helgason, Ámi
Kristjánsson, Halldór Kiljan Laxness og Páll
ísólfsson, en sá síðastnefndi kynnti íslending-
um Bach, enda var honum málið skylt því
hann var um tíma staðgengill kennara síns
við sjálfa Tómasarkirkjuna. Richard Wagner
(1813-1883) fæddist í Leipzig, enda hljóm-
uðu Meistarasöngvarar hans úr gjallarhom-
um bifreiðar okkar á leið hennar inn í borgina.
Það fer ekki á milli mála að i Leipzig á sér
stað mikil uppbygging á öllum sviðum. Um-
ferð er þar mikil og enn fleiri byggingarkran-
ar á lofti en annars staðar. Nýir vegir eru
byggðir, götur endumýjaðar, íbúðarhús gerð
upp og rústir ófriðarins reistar úr duftinu.
Berlin
í Berlín var gist á Radisson/SAS hótelinu
við Alexanderplatz og ána Spree. Berlín hef-
ur upp á margt að bjóða. Og því ekki að
njóta þess besta; Berliner Philharmonisches
Orchester? Hljómsveitin eignaðist nýtt hús
árið 1949 sem nefnist einfaldlega Berliner
Philharmonie. Það er stór og hrá steinsteypu-
bygging sem varð fyrirmynd annarra húsa
eins og t.d. Gewandhaus sem áður er á
minnst. Einstakur hljómburður á líklega
stærstan þátt í því. Árkitekt hússins hafði
það fyrir vinnureglu að bijóta upp alla sym-
metriu og hringi. Augað finnur því ekki þau
gömlu viðmið og leitar stöðugt að nýjum, sér
til halds og trausts. Hljómsveitin er m.a.
þekkt fyrir fyrram aðalhljómsveitarstjóra
sinn Herbert von Karajan, en Claudio Abbado
heldur nú um taumana. Þama heyrðum við
fyrst Konsert fyrir píanó og hljómsveit opus
114 eftir Max Reger (1873-1916) og síðan
Alpasinfóníu Richards Strauss (1864-1949)
opus 64 undir stjóm Seiji Ozawa sem stjóm-
aði blaðalaust! Þetta reyndust frábærir tón-
leikar. Hljómsveitin er hreint afbragð og leik-
ur undra vel. Islenski hópurinn var í skýjun-
um eftir tónleikana sem urðu einkar heppileg-
ur endir á sérlega ánægjulegri ferð. Enn einu
sinni höfðum við verið minnt á að gestgjafar
okkar létu það verða fyrsta verk eftirstríðsár-
anna að endurreisa tónleikahús sín.
Berlín var tvískipt í yfir fjóra áratugi og
þurfti hvor borgarhelmingur fyrir sig á sinni
stofnun að halda. Þetta hafði það í för með
sér að nú eru þar ýmsar stofnanir til í tví-
riti. Berliner Philharmonie stóð rétt vestan
við múrinn. Austan megin leikur Berliner
Sinfonie Orchester í Konzert Haus Berlin,
en henni stjómaði Robert Abraham Ottósson
árið 1946.
Á tíunda degi ferðarinnar var ekið sem
leið lá frá Berlín til Hamborgar og flogið
þaðan heim. Afar viðburðaríkum tíma var
lokið, en dýrmæt reynsla situr eftir og auðg-
ar líf ferðalanga um ókomin ár. Ferð á vit
fegurðarinnar hafði farið fram úr björtustu
vonum.
Höfundur er sálfræðingur.
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 15. FEBRÚAR 1997 9