Lesbók Morgunblaðsins - 10.05.1997, Qupperneq 8
I
DANSKIRPLATTAR
MEÐ ÍSLENSKU EFNI
ARIÐ 1888 var haldin norræn
vörusýning í Kaupmanna-
höfn. Sýning þessi markaði
á margvíslegan hátt tíma-
mót í dönskum iðnaði og
átti drjúgan þátt í að breyta
höfuðstað Dana úr lítilli
borg í heimsborg. Konung-
lega danska postulínsverksmiðjan setti við þetta
tækifæri á markað fyrsta minningarplattann
eða skjöld úr postulíni og var hann tileinkaður
sýningunni. Plattaútgáfan sem þama hófst
hefur blómstrað allar götur síðan og eru sum-
ir þeirra löngu orðnir eftirsóttir safngripir.
Minningarplattinn hafði kóbaltbláa áferð
en skömmu áður eða árið 1885 hafði konung-
lega danska postulínsverksmiðjan sett á mark-
að vasa og styttur með þessum kóbaltbláa
gljáa. Fram að þessu hafði kóbaltblái liturinn
eingöngu verið notaður á matarstell. Byltingin
í nýju aðferðinni var fólgin í því að þróa lita-
blöndur sem þola mikinn hita við endur-
brennslu postulínsins og var þá hægt að
skreyta með hvers konar myndefni. Þessi að-
ferð olli straumhvörfum í postulínsframleiðslu
og á heimssýningunni í París árið 1889 vakti
hún mikla hrifningu og vann til verðlauna
(Grand Prix).
Fyrst til framieiðslu sérstakra jólaplatta í
heiminum var danska postulínsverksmiðjan
Bing & Gröndahl og hófst sú útgáfa árið 1895.
Sama fyrirtæki gaf út séríslenska jólaplatta
með íslensku myndefni á árunum 1928-1930.
Þessum plöttum er lýst í grein eftir Halldór
Halldórsson í Lesbók Morgunblaðsins 21. des-
ember 1994. Samkvæmt eftirgrennslan eru
þessi plattar óþekktir meðal danskra fornsaia
og hefur framleiðslan senniiega eingöngu far-
ið í dreifingu á íslandi. Upplagið er óþekkt.
Auk áðumefndrajólaplatta hafa verið fram-
leiddir í Danmörku nokkrir aðrir postulíns-
plattar með íslensku myndefni, flestir til
styrktar íslenskum þjóðþrifamálum. Þeir eru
fáséðir hér á landi en fást þó stöku sinnum.
Stundum er þá að fínna á fornsölum Kaup-
mannahafnar, enda gengur borgin sú undir
nafninu Mekka fommunanna.
Oddfellowar og Laugarnesspítali
Á árunum 1894 og 1895 ferðaðist danskur
iæknir Ehlers að nafni, um ísiand á vegum
landsstjómarinnar og rannsakaði holdsveikina.
Niðurstöður hans voru m.a. þær, að holdsveik-
in væri miklu algengari en talið hafði verið.
Taldi hann rúmlega 200 sjúkdómstilfelli. Kom
fram í rannsóknum hans, að holdsveiki jókst
EFTIR HELGU SKÚLADÓTTUR SCHOPKA
Fyrir tæpum 100 órum öfluóu danskir Oddfeilowar
fjár til Laugarnesspítalans meó útgáfu postulíns-
platta og Konunglega danska postulínsverksmiójan
framleiddi oft Islandsplatta sem nú eru safngripir.
í Ámes- og Rangárvaliasýsl-
um, sömuleiðis í byggðum
Eyjafjarðar. Dreifði Ehlers
meðal fólks upplýsingapésum
um holdsveiki, með þeim ár-
angri að enginn vildi hýsa
holdsveika hreppsómaga
vegna smithættu. Varð þetta
hvatinn að því, að danskir
Oddfellowar réðust í það verk-
efni að gefa landinu holdsveik-
raspítala með öllum búnaði.
Frumkvæði að þessu mann-
úðarmáli hafði æðsti maður
reglunnar í Danmörku, dr.
Petrus Beyer. Hann var lækn-
ir að mennt og skildi manna
best þýðingu þessa máls fyrir
íslendinga.
Reglan fékk úthlutað
erfðafestulandi í Laugarnesi,
þar sem Laugamesstofa hafði
áður staðið. Þeir létu reisa
stórt hús úr timbri fyrir spítal-
ann í Laugarnesi og var það
ætlað 70 sjúklingum. Um 40
danskir smiðir komu hingað
til lands til að vinna við smíð-
ina. Húsið var vígt með mik-
illi viðhöfn þann 27. júlí 1898
og afhent ásamt öllum búnaði
með gjafabréfi Oddfellowregl-
unnar, sem dagsett var 29.
júní sama ár. Yfírlæknir var
lengst af Sæmundur Bjarn-
héðinsson, bróðir hinnar
landsþekktu kvenréttinda-
konu Bríetar. Fyrsta lærða
hjúkrunarkonan á landinu
Christophine Bjarnhéðinsson,
eiginkona Sæmundar, starf-
aði frá upphafí við Laugar-
nesspítalann. Spítalinn brann
til kaldra kola á rúmri klukku-
GEYSIR, Hekla og Öxarár-
foss, þrír plattar framleiddir
1899 til fjáröflunar fyrir
holdsveikraspítalann í Laug-
arnesi. Danski listamaður-
inn Arnold Krogh teiknaði.
stund þann 7. apríl árið 1943
en þá var að mestu leyti búið
að útrýma holdsveiki hér á
landi. Öll starfsemin hafði
verið flutt fáum árum áður á
Kópavogshælið.
Þess má geta hér að kynni
íslendinga af dönsku Odd-
fellowreglunni vegna mann-
úðarstarfa hennar í barátt-
unni gegn holdsveikinni hér á
landi urðu hvatinn að því, að
fyrsta stúka Oddfellowa á ís-
iandi var stofnuð 1. ágúst
1897. Hlaut hún nafnið stúka
nr. 1, Ingólfur á Islandi. Held-
ur hún því hátíðlegt 100 ára
afmæli sitt á árinu.
Plattar Oddfellow-
reglunnar til styrktar
Laugarnesspitala
Skömmu fyrir aldamótin
síðustu fólu hinir dönsku Odd-
fellowar Konunglegu dönsku
postulínsverksmiðjunni að
framleiða nokkrar gerðir af
postulínsplöttum til þess að
afla fjár til byggingar holds-
veikraspítalans á íslandi.
Gerðir voru 7 postulínsskild-
ir, sem seldir voru til styrktar
málinu: Fyrstu tveir piattamir
voru gerðir árið 1897. Sá fyrsti
var tiltölulega lítill, 18,5 cm í
þvermál. Hann sýnir dreka,
sem rekinn hefur verið í gegn
með sverði. Sverðsoddurinn
myndar svo tölustafinn 1 í ár-
talinu 1897. Einkenni reglunn-
ar, hlekkirnir þrír eða 3 sam-
fastir festarhringir, mynda
hjöltun á sverðinu. Áletrun á
latínu er á plattanum: SCTO
GEORGIO IUVANTE (með hjálp heilags Ge-
orgs). Heilagur Georg eða Jörgen, eins og
Danir nefna hann, var dýrðlingur og segir sag-
an, að hann hafí frelsað prinsessu úr klóm
dreka með því að leggja hann að velli með
sverð að vopni. Dýrðlingurinn varð síðar eins
konar tákngervingur þess sem bar sigurorð af
farsóttum. Upplag þessa platta var 1500 stk.
og sést hann af og til á fornsölum í Danmörku.
Stærri Georgsskjöldurinn er 30 cm í þver-
mál. Myndin á honum er áðurnefndur dreki
og sjálfur heilagur Georg í fullum hertygjum
þ. e. miðaldabrynju. Hann að leggja eldspú-
andi drekann að velli með spjóti. Vinstra
megin er skjaldarmerki Kaupmannahafnar,
turnarnir þrír og fyrir neðan þá er tákn Odd-
fellowreglunnar hiekkirnir þrír. Áletrun: AE-
GROTANTIUM MEDICUS (læknir hinna
þjáðu.) Upplag þessa platta var aðeins 100
eintök. Þessi platti er því afar sjaldséður.
Árið 1898 létu Oddfellowar framleiða platta
sem var 22 cm í þvermál og sýnir hinn fræga
íslandsfálka. Fálkinn situr á dreka, sem hefur
verið stunginn með sverði. Hlekkirnir þrír
mynda hjöltin. Gjósandi eldfjall er í baksýn
og er það sennilega Hekla. Þessi platti er sá
eini sem ekki er með latneskri áletrun. Upplag-
ið var 2500 stk.
Árið 1899 stóðu Oddfellowar að gerð fjög-
urra platta. Þar á meðal var stærsti og glæsi-
legasti plattinn, sem Oddfellowreglan lét gera
í tengslum við sjúkrahúsbyggingu sína á Is-
landi. Þessi platti er 32 cm í þvermál og minnir
frekar á stóra grunna skál. Plattinn sýnir ís-
björn á ísjaka, sem rekinn hefur verið í gegn
með sverði. Hlekkir Oddfellowreglunnar
mynda hjöltun á sverðinu. Áletrun er: CAPTI-
VORUM LIBERATOR (frelsari hinna föngnu).
í bók um platta frá Konunglegu dönsku
postulínsverksmiðjunni, er sagt að upplagið
hafi verið 1900 eintök. Fornsalar í Danmörku
halda öðru fram og telja að upplagið hafí
verið lítið og er verðlagning þessa platta í
samræmi við það.
Hinir þrír plattarnir frá 1899 eru allir með
svipuðu sniði. Þeir eru 28 cm í þvermál. Dreki
er á þeim öllum, eins og öllum hinum plöttun-
um að ísbjarnarplattanum undanskildum.
Upplagið lítið, aðeins 200 stk. af hverri gerð.
Plattarnir þrír eru hins vegar með mismun-
andi landslagsmyndum. Einn sýnir gjósandi
eldfjall (Heklu) og er hann með sömu áletrun
og ísbjarnarplattinn: CAPTIVORUM LIBER-
ATOR (frelsari hinna föngnu). Annar sýnir
gjósandi hver (Geysi) og ber áletrunina AE-
GROTANTIUM MEDICUS (líknari hinna
8 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 10. MAÍ 1997