Lesbók Morgunblaðsins - 14.06.1997, Síða 17
THORSTEN og Erlingur á „hallar“tröpunum.
okkar og sæng merkjum við enn handbragð
Gabýjar de la Moussaye de Kegenano, hand-
saumað skjaldarmerki hennar prýðir rúmföt-
in. Bendlarnir í koddaverunum eru meira að
segja plíseraðir eins og á dögum Gabýjar,
þó ekki af þjónustuliði eða í þvottahúsi leng-
ur heldur af húsfrúnni Sigrúnu sjálfri. Núver-
andi hallarfrú og Þorsteinn húsbóndinn sinna
öllum störfum í húsi sínu sjálf. Þau halda
stórveislur þar sem tugir manna sitja til borðs
í einu og kalla hvorki til kokka né þjóna,
elda veislumatinn og þjóna gestum sínum
sjálf til borðs. Það er lærdómsríkt að kynn-
ast siðabók húsbóndans, vegna uppeldis hans
og menntunar veijast engar etikettur fyrir
honum; hann lærði herstjórnarlist og var liðs-
foringi í sænska hernum. Nú fylgir hann
gömlum siðum og reglum við borðhald og
veisluhöld með kímnisglampa í augum. Kona
hans tekur undir það og orðar svo: Það er
ágætt að kunna þessar siðareglur, þá getur
maður líka brotið þær.
Doklor Wand og Dogný dansari
En mér er ekki til setunnar boðið. Sigrún
segir mér renna blóðið til skyldunnar. í krafti
skyldleika okkar og þess að ég er fædd í
Skaftafellssýslu vill hún drífa mig á fund
þennan fyrsta dag minn í Svíþjóð til að hitta
merkan Þjóðverja, Doctor Wand, sem stendur
í bréfaskrifum við mæta menn og stofnanir
um nauðsyn þess að bjarga skipinu Skaftfell-
ingi upp í fjöruna í Vík í Mýrdal. Hann er
einnig farinn að undirbúa fjá.rsöfnun til við-
gerðar skipinu og hefur fengið góð viðbrögð
í Þýskalandi. Ég hvái, hversvegna hafa Þjóð-
verjar áhuga á þessu framtaki? Sigrún réttir
mér Der Bild frá því í apríl og þar segir frá
afreki skipveija Skaftfellings sem björguðu
52 mönnum af áhöfn þýska kafbátsins U 464
þann 20 ágúst árið 1942, en bandarísk
sprengjuflugvél hafði skotið kafbátinn niður.
Þjóðverjarnir voru í flotbeltum og með súrefn-
isdunka svamlandi í sjónum og á tveimur
tímum tínúu skipverjar á Skaftfellingi kalda
og þrekaða mennina upp úr sjónum. Á með-
an bar að breskan tundurspiili og hópur sjó-
liða á dekki hans beindi byssum sínum að
Skaftfellingi. Tilviljun réð að þeir voru ekki
skotnir í kaf. Við vorum að bjarga mönnum
úr sjávarháska, þá hugsar maður ekki um
hvort þeir eru fjendur eða vinir, er haft eftir
þjóð og önnur lönd og sýnir í kirkjum. Sigrún
listakona hefur hannað biskupsskrúða á einn
dansarann í síðustu sýningu Dagnýjar sem
heitir Sverð verður að krossi. Þetta er tákn-
ræn danssýning þar sem stiklað er á trúar-
bragðasögu Svía.
Emblur og annir
Fundarmenn og gestir eru mættir til borð-
halds og fyrirlesturs í húsi þessa ólaunaða
sendiráðs á Lidingö. Nokkrar Emblur þar á
meðal sendiherrafrúin geta ekki mætt vegna
anna. Davíð forsætisráðherra er í opinberri
heimsókn þessa dagana og því mikið annríki
hjá sendiráðsfólki. íslendingarnir í hópnum
hafa áhyggjur af að missa af sýningu fjóðleik-
húss, þar sem miðar á sýningamar tvær seld-
ust upp á svipstundu. íslensku sýningarnar á
síðastliðnum tveimur Ríkisleikhússdögum í
Hallunda, Draumur á Jónsmessunótt Nem-
endaleikhússins og Himnaríki Hafnarfjarðar-
leikhússins, slógu svo rækilega í gegn og
þóttu hápunktur leiklistarhátíðarinnar hvor
um sig þannig að fólk hikar ekki við að tryggja
sér miða á næstu sýningu frá íslandi. Við
trúum ekki öðm en skellt verði á aukasýningu
og í trausti þess flytur Erlingur fyrirlestur
sinn um höfund „Skækjunnar", John nokkurn
Ford, og samtíma hans. Hann bendir á tengsl
við nokkur verk William Shakespeares svo sem
Rómeó og Júlíu, Lé konung og Hamlet. Árið
1605 er Jón tvítugur en Vilhjálmur um fertugt.
Á veisluborði Sigrúnar trónir hæst stór
saltstaukur. Hann er táknrænn fyrir Emblu-
félagsskapinn og er notaður á fundum ef
Gróa á Leiti mætir sem boðflenna. Þá er
saltstaukurinn tæmdur ofan í drykk og mat
þeirrar sem hefur boðið Gróu til sætis. Ég
hafði fundið í föggum mínum gamalt tíma-
ritshefti, „Emblu“ að nafni. Það var útgefið
1946 og flutti ritverk kvenna og mér fannst
upplagt að flytja Emblunni á sænskri grund
fyrsta ljóðið sem birtist í þessu ársriti eftir
Theodóru Thoroddsen. Furðuleg tilviljun var
að ég skyldi finna þetta litla hefti, þegar ég
var að leita að gögnum heima til að undirbúa
mig undir töluna sem ég ætlaði að flytja á
Emblufundi. Enn merkilegra þó að fyrsta
ritverkið sem birtist í heftinu fjallar um fæð-
ingarstað Sigrúnar húsfreyju, Vík í Mýrdal,
og heitir „Eftir ládeyðu í Vík í Mýrdal“.
Skáldkonan hefur eflaust verið í heimsókn
DR. WAND ræðir við Brynju á heimili sínu i Stokkhólmi um hetjudáð íslenskra sjómanna, DAGNÝ kóreógraf ásamt Folin-hjónunum og nöfnu og sonardóttur Sigrúnar sem er á
björgun 52 þýskra kafbátamanna. leið í myndlistarnám.
Hvaö þýóir oróió Liding, af hverju erþaó ekki
meöypsílon, þá vœri eitthvert vit í orbinu.
Þorsteinn segirþaö ekkiþýöa neitt, en hleypur
samt strax inn í hókasafn sitt viö heimkomuna,
ogfmnur ígamalli oröabók aö oröiö hafi veriö
skrifaö meöypsílon á 15. öld. Þá þykjumst viö
strax skilja merkinguna: Lýöangsey eöa Fólk-
vangsey. Þorsteinn hristir höfuöiöyfirþessum
skrítnu Islendingum, sem alltaf eru aö grafa
upp rcetur alls.
einum björgunarmanni í blaðaviðtali seinna.
Þegar búið var að bjarga skipsbrotsmönnum
um borð í Skaftfelling við illan leik og mikla
lífshættu, réðust sjóliðar til uppgöngu og
tóku Þjóðverjana tíu í einu yfir í tundurspill-
inn sem sigldi með þá til Englands og þar
voru þeir settir í fangelsi.
Nú finnst þeim ágæta manni Dr. Wand
tími til kominn eftir rúma hálfa öld að þessar-
ar hetjudáðar íslenskra sjómanna sé minnst
á verðugan hátt. Það vill hann láta landa
sína gera með fjárframlögum til björgunar
happafleytunnar Skaftfellings upp á Víkur-
fjörur. Dr. Wand er sagnfræðingur og fyrr-
verandi sendiherra Þjóðveija í Noregi, Sví-
þjóð og víðar. Hann var vinur og samstarfs-
maður Konrad Adenauers kanslara. Næst
elsti sonur þessa fyrsta kanslara Þýskalands
er íslenskur konsúll og íslandsvinur og undir-
býr nú fundahöld þýskra konsúla um málefni
Skaftfellings í Köln. Meðan Sigrún, Thorsten
og Dr. Wand funda af eldmóði, tökum við
Dagný, sænsk eiginkona fyrrverandi sendi-
herrans, tal saman. Hún er dansari og kóreó-
graf og ferðast með dansflokk sinn um Sví-
hjá Maríu dóttur sinni sem var gift lækninum
í Vík og þá verður henni leikur Ægis við
strönd og dranga að yrkisefni.
Ein vísan er svona:
Ægir hefur undirleik,
ætlar gott til fanga.
Skelfur og nötrar skeiðin veik,
sem skríður fyrir Dranga.
Þarna er átt við Reynisdranga og okkur
kom öllum í hug að skeiðin gæti verið skipið
Skaftfellingur. Eftir tvo viðburðarríka daga
hjá Sigrúnu og Thorsten í litlu ævintýrahöll-
inni, þar sem Island og íslensk menning situr
í fyrirrúmi, höldum við hjón í áttina að Hall-
unda þar sem við komum okkur fyrir á hótel-
inu Filippi prins. Erlings bíður hörð vinna
við æfíngar og leiksýningar á Skækjunni en
mín bíður þáttaka í hópverkefnum, umræðu-
fundir um leiklist og síðast en ekki síst allar
leiksýningarnar sem ég er búin að tryggja
mér aðgöngumiða á, en frá þeim mun ég
segja í seinni grein minni.
Höfundur er leikstjóri.
►
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 14. JÚNÍ 1997 1 T