Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 14.06.1997, Qupperneq 20

Lesbók Morgunblaðsins - 14.06.1997, Qupperneq 20
4= SÍÐUSTU HANDRITIN HEIM Tvö síðustu handritin, sem flutt verða frá Dan- ------------7---- mörku, verða afhent á fimmtudaginn. I þessari grein, segir SVERRIR TOMASSON frá þessum handritum, Kirkjudagsmálum og Stjórn. Ljósmynd/Jóhanna Ólafsdóttir AM 227 fol. Stjórn. Myndin er af upphafsstaf við 1. Samúelsbók. PREDIKANIR og lífssögur dýrl- inga eru án efa með því fyrsta sem fært er í letur hér á landi. Þegar fyrsti málfræðingurinn sem líklega var uppi um miðja 12. öld, skrifaði ritgerð sína, vitnaði hann til efnis sem „hægra“ yrði að skrifa, lægi fyrir stafróf. Hann minnist í þessu viðfangi á lög og áttvísi eða „þýðingar helgar eða svo hin spaklegu fræði er Þorgilsson hefir á bækur sett af skynsamlegu viti“. Það hefur vafist fyrir fræðimönnum að skýra „þýðingar helgar", en flestir hallast nú að því átt sé við einhvers konar útleggingar á ritning- unni, liklega predikanir eða hómilíur, eins og þær eru líka oft nefndar. Í AM 237 a fol. sem Stofnun Árna Magnússonar á ís- landi fær nú til varðveislu er hluti af predik- uninni Kirkjudagsmálum og að auki partur af þýðingu á 34. hómilíu Gregoriusar mikla. - Handritsblöðin eru talin vera frá miðri 12. öld en textinn á sér þó ugglaust eldri rætur. Kirkjudagsmál hafa varðveist heil í þremur öðrum handritum: íslensku hómilíubókinni frá því um 1200, Norsku hómilíubókinni sem er á líku reki og loks í íslensku handriti frá 15. öld, AM 624 4to. Blöðin tvö í AM 237 a fol. eru sennilega partur úr stærra predikanasafni, sem gera má ráð fyrir að hafi verið með svipuðu sniði og safnið í íslensku hómilíubókinni eða Norsku hómilíubókinni. Ámi Magnússon fékk þau árið 1728 frá séra Þorsteini Ketilssyni á Hrafnagili í Eyjafírði og á miða framan við blöðin hefur Ámi skrifað: „Er úr ærið gamalli predikunarbók." Orðið mál merkir ræða í forníslensku. Kirkjudagsmál voru flutt við vígslu kirkju og var þeim því ekki ætlaður sérstakur stað- ur í predikanasöfnum, þar sem ræðunum var yfirleitt raðað niður eftir kirkjuárinu. Kirkju- dagsmál eru að því leyti sérstæð meðal nor- rænna predikana að þar er innviðum kirkju lýst mjög nákvæmlega og hver hluti hennar útskýrður á táknrænan hátt: : Á enu ytra brjóstþili eru gluggar því að „ljóst es (< er) boðorð drottins", kvað sálmaskáldið „og lýsir það augu ór“ (< vor). Þetta eð ljósa boðorð skýrði sjálfur drottinn framar og mælti: „Það es boðorð mitt að hver yðvar elski annan.“ Hurð fyr durum merkir tungustilling. Svo sem Davíð mælti í sálmi: „Set þú varðhald munni mínum, drottinn og hurð að gæta vara minna.“ Svo sem hann þetta mælti: „Lúk upp þú munn minn, þá es betur gegn- ir að mæla an (< en) þegja, en þú byrg hann þá es betra er þagað an mælt. Enn má hurð merkja skynsemi þá es kann grein góðra hluta og illra að vér lúkim upp hjörtu ór góðum hlutum en byrgim úti allar ljótar hugrenningar. (AM 237 a fol. lv. Hér er leyst upp úr böndum og stafsett samkvæmt nútíðarvenju.) Iræðunni eru innviðir kirkjubyggingar- innar ýmist skýrðir með því að skír- skota til hinnar stríðandi kirkju á jörðu niðri (ecclesia militans) eða hinnar sigursælu kirkju í himinríki (ecclesia triumphans). Líkingamál af þessu tagi er ævagamalt. Upphaf þess er að finna í ritningunni sjálfri, .' skrifum kirkjufeðra og síðar má sjá hvernig lærdómsmenn eins og Hrabanus Maurus (d. 856), Beda prestur (d. 735) og Honoríus Augustodunensis á 12. öld færa sér þessa túlkunaraðferð í nyt. Þó að þýðingunum sé einkum beint til sóknarbama og þeim sé gjaman ætlað að leiðrétta framferði sitt, þá er höfuðmarkmiðið að stuðla að vegsemd kristinnar kirkju í hjörtum mannanna; ræð- unni er ætlað að byggja upp kristnina eða með orðum predikunarinnar, smíða hana upp og tækifærið notað á vígsludegi kirkjunnar til að áminna söfnuðinn um hlutverk hans í mannlegu, kristnu samfélagi. Og sérhver stoð í kirkjubyggingunni getur líka vísað til mátt- arstólpa utan hennar. Þannig er t.d. komist að orði í 11. línu í aftari dálki á fremsta blaði handritsins: Þvertré es skorða staflægjur og upp halda þeim trjám es ása styðja, merkja þá menn í kristninni es sætta veraldarhöfðingja i ráðum sínum, en þeir efla munklíf og helga staði með auðæfum sínum. (AM 237 a fol. lr.) Þó að ekki sé fast kveðið hér að orði má vel greina hvaðan aldan sú rennur undir; hvernig öðlast má hylli þessa heims og ann- ars. Samjöfnunin til mannslíkamans í ræð- unni er annars angi af pólitískri umræðu á 12. öld, þar sem konungurinn var hjarta og bijóst líkamans, hann skyldi bera „áhyggju og ætlan og ráðagerð" í guðs ríki hér á jörð- unni. Um Kirkjudagsmál hafa verið skrifaðar ■ margar lærðar ritgerðir. Fræðimenn hafa reynt að leita að uppruna þeirra í öðrum lönd- um í ritum evrópskra klerka og fróðleiks- manna. Sú leit hefur ekki borið árangur. Enn er og deilt um hvort ræðan hafi upphaflega verið samin í Noregi eða á íslandi. Varðveisl- an sýnir að predikunin hefur verið almenn á norrænu málssvæði á 12. öld og líklegt má telja að forkólfar erkibiskupsdæmisins hafi upphaflega stuðlað að samningu hennar. Það hefur vakið sérstaka athygli fræðimanna að lýsingin á innviðunum er ekki á steinkirkju heldur á hún við stafkirkju. Guðbrandur Jóns- son hélt því þó fram fyrir um það bil sjötíu árum, að lýst væri íslenskri torfkirkju. Síðar tók Hörður Ágústsson ræðuna til athugunar og taldi lýsinguna fremur eiga við stafkirkju. Og hafi söfnuðurinn átt að skilja túlkunina, þá bendir varðveisla ræðunnar í handritum til að slíkar kirkjur hafi verið til a.m.k. fram á 15. öld, þegar yngsta handrit af ræðunni er skrifað. Stjirn Stjórn AM 227 fol., er tvímælalaust eitt af fegurstu handritunum í safni Árna Magn- ússonar. Það er líklega skrifað um miðbik 14. aidar. Skrifararnir eru tveir og eru ekki þekktir með nafni. Allmörg handrit þess skrifara sem reit fyrsta hlutann (fram að bl. 118) eru þekkt, þ.á m. er Wormsbók, Codex Wormianus, AM 242 fol., sem hefur að geyma Eddu Snorra Sturlusonar. AM 227 fol. er víslega ritað í klaustri norðanlands og hefur munklífið á Þingeyrum í Húna- vatnssýslu verið talið líklegasti ritunarstað- urinn. Handritið er óheilt. Það er nú 19 kver, tvídálka með 128 blöðum, en í sum kverin vantar blöð. Árni Magnússon eignað- ist handritið 1699 en náði 1706 í síðasta blað þess sem hann segir svo um: „Þetta hreina blað úr Stjórn var utan um Bárðar sögu Snæfellsáss með hendi sr Torfa í Bæ, skrifaða 1644, hveija Bárðar sögu átt hafði doktor Olaus Worm, og fékk eg bæði það og Bárðar sögu af Chr. Worm 1706.“ Hand- ritið hefur sennilega verið í eigu Skálholts- stóls allt til þess að Árni Magnússon komst yfir það. Nafnið Stjórn kemur fyrst fyrir í afhend- ingarskrá Skálholtsstaðar frá 1588, þar sem talin er upp bókaeign staðarins. Þar segir: „Biblia skrifuð er þeir kalla Stjórn" og mun vera átt við handritið AM 227 fol. Ekki hef- ur tekist að skýra nafnið. Norski fræðimaður- inn, Gustav Storm, hugði að nafnið merkti konungastjórn eða jafnvel konungasaga, en ekki hafa aðrir fræðimenn fallist á skoðanir hans. Stjórn er útlegging á nokkrum bókum Gamla testamentisins, allt frá upphafí 1. Mósebókar fram til herleiðingarinnar miklu í lok Konungabóka. Stjórn er til í allmörgum handritum öðrum, helst þeirra er skinnbókin AM 226 fol. frá 14. öld. Hún er mun fyllri en AM 227 fol. og hefur að geyma hluta af eldri þýðingu á Mósebókunum, auk þess er Rómveija sögu, Alexanders sögu og Gyðinga sögu skotið aftan við texta Gamla testament- isins. Stjórn er ritningin lögð út á þann hátt Isem algengast var í Evrópu á miðöld- um. Að jafnaði var stuðst við Vul- götu í þýðingu Hieronymusar kirkju- föður (d. um 420), en sá texti var síðar aukinn með alls konar útskýr- ingum og glósum annarra lærdóms- manna, eins og t. d. Petrusar Lomb- ardusar (d. 1160). íslenski þýðandinn hefur fært sér í nyt söguskýringar Vinsentíusar frá Beuvais (d. 1264) í Speculum historiale og Petrusar Comestors (d. 1179) í Historia schol- astica. Síðarnefnda verkið var reyndar algeng námsbók í skólum. Aðferðin er í stuttu máli sú að við erfiða staði í textanum er erlendur lærdómsmaður kallaður til vitnis og stundum látinn útskýra textann og má taka t.d. þessa lýsingu af athöfn þeirra Adams og Evu í Paradís: Hvorttveggja þeirra Adams og hans húsfrú voru meður öllu nökkvið (<nakin) utan alla skammfyll- ing (<blygðun) sem fyrr var sagt. Scolastica histor- ia: Hugðu þau fyrir þá sök öngvan hlut á sér hylja þurfa að þau kenndu öngva þá girnd eður freistni meður sér sem þau þyrfti að stöðva, svo sem vær (<vér) skammfyllumst eigi, hver sem sér á oss höfuð eða fætur, því að ótilheyrileg og óviður- kvæmileg limanna hræring gjörir þá skammfull- lega. (Stjóm 1862:34) Handritið AM 227 fol. af Stjórn er sannan- lega skrifað á íslandi af íslenskum manni. Þýðingin er aftur á móti gerð að frumkvæði Hákonar háleggs Magnússonar (d. 1319) og kemur það fram í formála. Því hafa norskir fræðimenn haldið því fram að verkið sé norskt. Formáli verksins er að því leyti sér- kennilegur að fyrri hluti hans er bein þýðing úr Historia scholastica og það er ekki fyrr en í síðari hlutanum sem sagt er frá bókmennta- starfsemi Hákonar háleggs. Þar segir svo m.a.: Nú svo sem virðulegur herra Hákon Noregs kon- ungur hinn kórónaði, son Magnúsar konungs lét snara þá bók upp ( norrænu sem heitir Heilagra manna blómstur ... vildi hann og að þeim góðum mönnum mætti yfir sjálfs hans borði af þessari Guðs höll og herbergi, það er af Heilagri skrift meður nokkurri skemmtanarvissu kunnigt verða, svo þó að hinum vísurum mætti eigi mikil þvingan í vera af hverjum stórmerkjum eða hveijum tilfell- um sunnudagar og aðrir þeir tímar eru haldnir sem eigi er öðrum heilögum mönnum einkanlega sung- ið en sjálfum Guði. Vill hann svo í sjálfs síns her- bergi því sem hann veitir í sínum bestum mönnum ljóslega lesast láta fyrir öllum góðum mönnum af því Guðs húsi, það er af Heilagri ritningu meður hveiju er sjálfur hann seður sætlega alla sína menn. En sá sem norrænaði, kennandi sinn fátæk- dóm og vanfæri, tók þetta verk meir upp á sig af boðskap og forsögn fyrri sagðs virðulegs herra. (Stjórn 1862: 2) Ovíst er hvort Stjórn er skrifuð upp eftir norsku forriti. Verk- ið er samsteypa og hlutar þess misgaml- ir. Útgefandi verks- ins á síðustu öld, Norðmaðurinn Carl Richard Unger, skipti því niður í þijár deild- ir: Stjórn I, II og III. Yngsti hlutinn er Stjórn I og þar er formálinn, en AM 227 fol. hefur aðeins að geyma Stjórn I og III, en sá part- ur hefur verið eignaður Brandi Jónssyni biskupi. Hvorki fyrir hans hlutdeild eða norskum uppruna verksins hafa verið færð fullgild rök. Menn skyldu ekki gleyma því að Hákon kórónaði eða Hákon háleggur eins og hann er að jafnaði nefndur í íslenskum heimildum er einnig konungur íslendinga, þeir voru hans þegnar og þess vegna eðli- legt að hann vildi láta þá njóta ritningarinn- ar. Ekki hefur verið gefið margt út af gömlum trúarbókmenntum hé_r á landi á undanförnum áratugum. Stofnur. Áma Magnússonar á ís- landi hefur þó átt frumkvæði að prentun Helgastaðabókar, sem geymir sögu heilags Nikulás og íslenska hómilíubókin í Stokk- hólmi var gefin út ljósprentuð 1993. Fyrir tveimur áratugum kom út safn biblíutilvitn- ana úr norrænum trúarbókmenntum og Matt- heus saga postula fyrir þremur árum. Og nú, þegar Stofnunin fær eitt af stórvirkjum fornislenskrar bókagerðar og elstu varðveittu predikunina, verður haldið áfram að koma þessum verkum á framfæri við lesendur heima og erlendis. 20 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 14. JÚNÍ1997

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.