Lesbók Morgunblaðsins - 21.02.1998, Page 14

Lesbók Morgunblaðsins - 21.02.1998, Page 14
EFTIR JÓN BERGSTEINSSON Sá heljarkraftur, sem skolaði litlum bláþörungi á land, . er víða úti í villtri náttúru greyptur í lifenda líki. Tígurinn er styrk skepna svo dæmi sé tekið, með ófrýnilegan skolt, þófamjúkur, hefur slóttugt auga og með prúðan feld, hreinustu konungsgersemi. STERKUR vindur blæs mönnum um æðar, skyldleikinn við jörð- ina, okkur í blóð borinn ymur í eyrum, bergmálar, kveður við raust. Eitt sinn lá grænþörung- ur í fjólubláu trafi millum gljúpra steina utan við fjöru- borðið og hlustaði á gjálfrið í öldunni. Siðan er langt um liðið. Sólin steypt- ist yfir jörðina. Sjórinn reri öllu lífi í víðu fangi sínu. Hefur þörunginn litla órað fyrir því dýpi, sem tónsproti Debussys, Mozarts, Bachs og fleiri meistara stóð á í þá daga? Þessi græn- þörungur hafði blítt hjartalag, músíkalskast- ur allra þörunga í átthögum sínum og víst undi hann sæll. Forfeður hans höfðu numið þar staðar, sem ljós brotnaði hvað fegurst í víðri veröld. Glitrandi bjargið söng í hæðir kynslóð af kynslóð, fyrirheitin greyptust fast í lífrænan vefinn. Gleðin hófst til vegs. (1) Einn daginn bylti sjórinn sér og ólmaðist og þörungnum skolaði á land í brimgarðin- um. Andlátsorð liðu ónumin út í bláinn. End- uróminn má nema í þeim tregafullu tónum, og mannseyrað viliist vart á. Jarðvegur sam- kenndar og píslarvættis lá undirbúinn í þvísa Ginnungagapi, og upp yfir hæstu brúnir. Þörungurinn streittist í öldurótinu, en drun- umar rúmuðust ekki í litlum líkama hans; hann lá á úthverfunni í steikjandi sólskini á þurru landi, hvítur nár. (2) Stjama fellur með neistaflugi af himni, eldingu lýstur niður, hughrif sveima og berg molnar. I Ginnungagapi hafði tendrast nýr logi, sem brann af elju bæði og áfergju. (3) Dauðann bar að garði hjá kvæðamönnum á sögueynni í norðurhöfum. Merlandi glóðin hafði þegar hér greinir tekið á sig fjölskrúð- ugt mót. Margt var haft á orði og ýmislegt ;i um hönd til að styggja ekki jötna í norður- vegi. En fátt dugði. Orðtakið „líf er eftir þetta líf ‘ hefur lengi verið bundið í minni ísl. ? þjóðar ódæði, aftöku Jóns biskups Arasonar | og sona hans og ugglaust í vitund margra , huggunarorð, en ekki styggjandi fortölur | uppreisnarklerks mitt í hita leiks. In manus tuas domine commendo spiritum meum. Jón biskup Arason á Hólum var tekinn af lífi án dóms og laga ásamt tveimur sonum sínum suður í Skálholti 7. nóvember 1550. íslenskri tungu var þar með borgið, svo hátt var reitt til höggs. (4) Skapanom situr í austurvegi lítur í gaupn- ir sér og fitjar þegjandalega band í vef. Þeir Eysteinn og Atli höfðu gh'mt á Þingvölium 1527. Af þörungnum er það að segja, að hann liðaðist sundur í lífræn brot. Og tímar liðu áður en vefir hjarðdýra og rándýra hefðu þau í merg og beinum. Þegar maðurinn er að taka á sig mynd í kviði áa sinna mótaðist hann í samstæðri hjörð á iðagrænum völlum. Með tíð og tíma, þegar dýrið hefur snúist til manns, fylgir maðurinn hjörðunum með blóðbragð í munni, stígur fjaðurmagnaðan dans og sækir í þær lífsbjörgina. Mennimir lærðu í þraut- - um sínum af dýmnum að umgangast hver annan. Því er ekki hægt að gleyma. (5) Harðni á dalnum dreifa dýrin sér, leita víðar. Grasbítar hafa ekki upp til hópa lært að leggjast á forðann og halda honum fyrir öðmm eða útdeila eftir þörfum en hljóta alitaf, þrátt fyrir augngotur og pústra að vera velkomnir heim á stekkinn, svo lengi sem eitthvað er til skiptanna. Glóðin merlar, tindrar skín. (6) Sá heljarkraftur, sem skolaði htlum blá- þörangi á land, er víða úti í villtri náttúra greyptur í hfenda hki. Tígurinn hefur svo dæmi sé tekið slóttugt auga og er styrk skepna með prúðan feld, hreinustu konungs- gersemi. Öllum stendur ógn af glimum hans og beittri kló. Styrkur hjarðdýranna kemur ekki ungviði einungis til góða, heldur öllum, sem höllum fæti standa. Frísk dýr fóma sér hiklaust fyr- ir hin, ánægjuhrolhnn, vonina, kætina eða kæra sig kollótt. Erfðasyndin er gömul, píslavættið staðreynd. Djúp tilfínninganna hefur víkkað, en öðlast fyrst sína vídd, þegar tungumálið, greypt í erfðavísana hefur vakið vitundina til lífs. Mennsk vitund er fyrir margra hluta sakir alveg einstök, tekur jafnt til þess sem var og þrengstu viðja, er, verða mun og hefur orðið, er tveggja heima. Nátt- úran erfiðar við að brjóta niður lífræn efnin til uppbyggingar og vaxtar. Jafnræði ríkir í þolgæðinu. Mennimir lærðu bæði af sjálfum sér og frændum sínum í skóginum að tína ýmis fræ. Endurtekning veldur, að kom spratt í án- ingastað við fætur þeirra og skör. Trúin á kraftaverkið fær sína eldskím. Dreypifórn htar þurran svörð. Aköm skjóta öngum, festa rætur og stinga upp sprotum í leysing- um á vori. (7) Reynsla bláþörangsins smáa hggur fólgin í erfðaefnum Veglágs vinar okkar, sem tekið hefur sér bólfestu í klettaskúta út með sjó. Guðmundur biskup góði er í óða önn að vígja björg og branna. Bjargfuglinn verður að sjá af bústnum eggjum í loðna loppu helhsbúans. Einhvers staðar verða vondir að vera var óskin fóm. Veglágur stakkst um táberg sín, gras- maðkur spratt úr nefi ritu. Leitað er gryfju spilliefna th félaga í neistaflug og glymjanda, sem helgast af taktföstum slögum stríðandi lífs. Maðurinn heyr sitt stríð við náttúrana. En hvort það er skhyrt vitund um skapara, sem setur öllu vissar skorður, eða trúin á fídonsafl óbrigðular rökvisi, sem með tíð og tíma brjálar og upphtar allt mat manna á raunveraleikanum spyr sá, sem ekki veit? (8) Beður bláþörangs er smár hjá öldubijótn- um karga. En Veglágur hefur skjól. Líkam- inn, brjósthohð, maginn, hryggurinn, höfuð- ið, mjaðmagrindin eru við að bresta yfir nokkram gulleitum stráum. í golunni þýtur. Brimið sverfur innan þröngar æðar af afli, sem nægir til að bijóta löndin undir, hremma allt sem fyrir er, leigur og garða. Hrafninn flýgur um aftaninn. Hann gáir á klukkuna. Eðlur fornaldar hníga í djúpið, hreyflar þrýstiloftsvélar ryðja böldnum skýjabólstram út yfír grýtta jörð. Veglágur stynur undan eigin þunga, laus undan þrot- lausri spum. (9) Laufblað dokar við í loftinu og líkt og litast um áður en það fellur til jarðar. Kona skýtur öllum öngum upp úr rúsínubing, óráðin hvort heldur í sjáfheldu eða gildra, telur sér hvaðeina frjálst. í henni gangi hlutimir upp, órar deyjandi fósturs, tinandi gamalmenna AF ÞÖRUNGNUM er það að segja, að hann liðaðist sundur í lífræn brot. Og tímar liðu áður en vefir hjarðdýra og rándýra hefðu þau í merg og beinum. hvort heldur hún- er stödd inná eða utan mæra rómantískra hillinga. Hún er lostinn og lífsnautnin fijóa, blómi villtrar náttúra - þiggur allt af sjálfri sér, yfirskyggir allt, um- kringd óðum skýjaglópum. Er þeim staður vís á himnum, sem Utt eru uppnæmir fyrir hinu, sem þreyr þorran og góuna niður við jörð? Hún er kona jafnréttissinnuð og viss í sinni sök, veit sem er að langflestar tækni- uppfinningar og vísindauppgötvanir hafa sprottið vígreifar úr höfði karla líkt og mey- gyðjan úr höfði Seifs. Aðaltryllitækið, ítur- vaxinn líkaminn, sem gæskuríkur skaparinn færði konuna í, það mótorverk, sem hvað harðasta keppni veitir meintum ofjarh og dára, mun þó verða fyrr eða síðar að lúta í duftið undir styrkri klásúlu líkt og eljarinn og oflátinn og við svo búið rísa í auðmýkt, hólpin og sigri-hrósandi. En vogun vinnur, vogun tapar og enn er tími til stefnu að standa óspihtri náttúranni snúning. Lykill- inn situr fastur í skránni. (10) Birtu slær af skörðum mána um loftlúgu í heyhlöðu upp til sveita. Suðræn aldin hta hraustlegt útht konu, sem fagnar með and- köfum þegar pyngja bónda hennar hvolfist í kjöltu henni. Máríuerla flýgur inn um gafl- hlaðið. Sóhn slær glóð sinni á ghtrandi dögg. Stráin lúta fram af hlöðuveggnum. Heyra má hvar kýr hnoða bás sinn. Bóndi og hús- freyja ganga saman úr fjósi. Þau horfa til hafs. Hún gengur vaggandi í lendum til bæj- ar með mjólk í skjólu. Hann spýtir úr nös, leggur Ijá við öxl og reikar suður traðir á eft- ir kúnum. Nýr dagur við sjónarrönd. Lítill boh hggur í fjósi á fiskimjölspoka merktum SIS. Ein kýrin baular og fylgir hinum kún- um með ólund. Bóndi stuggar þeim suður yf- ir, fetar slóð sína, uns kemur í slægjuna, grípur brýni úr buxnavasa og lítur í vestrinu að dregið hefur bliku á loft. Hversdagsannir, dagur í fóstum skorðum. (11) Syngur mófuglinn óðinn um kreppta hnef- ann, þegar hann þenur sitt brjóst og sperrir stél? Ljárinn hvín í votu grasi. Hundur ligg- ur fram á lappir sér, stúrinn á svip en ögn kankvíslegur. (12) Hernámsandstæðingar boða til funda, hver veit hvar, á næstu grösum? Á hvaða öld kom plógurinn fram, aktygin, vatnsmyllan, skeifan, sáðskiptin, belgjurtimar, ístaðið og vindmyllan? Hvað með gufuvéhna, túrbín- una, hryggdýrin og genin, hvað með rá og reiða og tölvuna? Batteríið hans Vilmundar, undirsátalýðræðið, hefur leitt út í málbein manna oní miðbæ Reykjavíkur. Friðsamasta fólk er að vígbúast og skráir heit sín öh á ferskan börk í garði nágrannanna. Ljón í Afríku skimar út í náttmyrkrið. Heyra má hvar hýenur skríkja. Þær era á leið í hóf. Hjarðir ffla troða sinn vanagang en feigar beint í flasið á helgrímu rauðri inn um dauðans dyr. Hvaða hvatir búa að baki þeim hraksmánarlegu lokum? Voldugir geta þeir talist, sem stýra eftirspum á lífi og limum jafn tígulegra gripa. Grösum ofbjóða hræin, sölna drúpandi höfði. Hvað mennina varðar, gildir auga fyrir auga? Valda örlög marg- hleypunnar, sem státar drýldin af sínum fingurtama gikki? Enginn botnar neitt í neinu, síst sá, sem hggur fram á borð í niður- grafinni knæpu suður í Buenos Aires. Á íslandi hvílir skapþungi í fjöllum. Jöklar og eldfjöh brosa við nýræktun bænda, horfa til hafs. Bátpungar vagga á öldu. Kannski era þeir að fá ‘ann. Upp til landsins raða kindur sér á garða, líf kynslóðanna bundið í bagga inn í hlöðu. Menn era hættir að treysta á vetrarbeitina. Vindur hvín í rofabarði og líkir eftir rokum lifandi náttúra um fengitímann. Bóndi kemur af beitarhúsi og ekki að spyrja að, ijóður í vöngum eins og nýútspranginn skafl á heiðu hveh. Tíminn stendur kyrr í púpu niður við læk. (13) Veglágur liggur horfinn sjónum, fallinn fram á völlinn. Þeir, sem heyja í úteyjum, þekkja lífsbjörgina líkt og önnur álitamál. Hugsun án orða er andvana fædd og hljóðin, ahsráðandi. Hvað kemur í staðinn, hugrekki, auðsveipni, lítilþægni? Era stökkbreytingar í vændum, hran ónæmiskerfa, stóráfóll? Reip- in hanga upp í krónni, Veglágur sá, er í hamrinum lá í skjóli bláþöranga. Stiklur 1 Darwin/Snorri 2 Exodus/Mendel 3 Spencer 4 Kronos, Ari, hafa ber það, sem sannara reynist. 5 Darwin/Huxley 6 Kropotkin 7 Joseph de Maistre 8 Utopian og Sancho Panza 9 Odysseifur/Polyfemos 10 Chaplin, SchiÚer replikka 11 Arcadia - Sæludalur 12 Mildin/Diabolus 13 Skáld-Sveinn J 14 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 21. FEBRÚAR 1998

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.