Lesbók Morgunblaðsins - 25.07.1998, Blaðsíða 2
Ríscmdi
söng-
stjarna
GAGNRÝNENDUR Financial Times og
Wall Street Journal varpa einróma lofi á
unga sópransöngkonu, sem slegið hefur í
gegn með túlkun sinni á Guinu í óperunni
Lucio Silla eftir Wolfgang Amadeus Mozart.
Uppfærslan var meðal viðburða á nýafstað-
inni tónlistarhátíð sem haldin hefur verið
undir merkjum Garsington-óperunnar undir
berum himni síðastliðin tíu sumur í litlu
þorpi í nágrenni Oxford. Sópransöngkonan
unga heitir Eva Oltiványi og var fengið hlut-
verkið á elleftu stundu í forfollum annarrar
söngkonu. Andrew Clark hjá Financial
Times segir í dómi sínum að Eva hafi borið
höfuð og herðar yfir aðra söngvara í óper-
unni og segir hana hafa risið stórkostlega
undir kröfum þessa „...djöfullega erfiða hlut-
verks.“ Sýningin í heild sinni var ekki
hnökralaus að mati Clarks en reynsluleysi
söngvaranna var bætt upp með miklum
sannfæringarkrafti og hugrekki í nálgun við
verkið. „Það var ekki eingöngu hæð hennar
og líkamsburður eða leiftur augna hennar
og tignarlegur leikur, sem fangaði athygl-
ina, heldur umfram allt gáfuleg raddbeiting
og sá tónskilningur sem hún lagði í raddflúr-
ið.“
Paui Levy hjá Wall Street Joumal minn-
ist einnig á hæð og líkamsburð söngkonunn-
ar og tiltekur sérstaklega að hún sé yfir 190
cm á hæð. „En afburða söngur hennar end-
urspeglast í tækni hennar og litbrigðum
raddarinnar," segir gagnrýnandinn og lætur
einnig uppi þá skoðun að vert sé að fylgjast
náið með Evu í framtíðinni. Gagnrýnandinn
er á léttu nótunum í rýni sinni og segir í
stuttu máli frá óvæntum uppákomum á sýn-
ingum Garsington óperunnar á liðnum árum
þegar hávaði frá sláttuvélum, keðjusögum
og öðrum vélknúnum garðverkfærum reiðra
þorpsbúa vegna óperuflutningsins, truflaði
söngvarana og eitt sinn var lítilli flugvél
flogið yfir sviðið á miðri sýningu í mótmæla-
skyni. í ár ríkti samt góðu heiili friður milli
Ingrams-hjónanna, sem halda hátíðina, og
þorpsbúa.
Mozart var sautján ára gamall er hann
EVA Oltiványi í hlutverki Giuinu í óperunni Lucio Silla eftir Mozart.
samdi óperuna Lucio Silla við texta
Giovanni de Camerra fyrir óperuna í
Mílanó. Þótt frumsýningin, sem fram fór 26.
desember 1772, hefði gengið nokkuð stirð-
lega var óperan sýnd 26 sinnum fram eftir
vetri.
Mozart hafði það vinnulag við ópérusmíðina
að hlusta fyrst á hvern söngvara fyrir sig og
laga síðan hlutverkin að röddum þeirra, en
þrátt fyrir það var þeim kennt um brokk-
genga frumsýninguna, sem tók alls níu
klukkustundir með töfum. Operan markar
lok Italíuheimsókna Mozarts sem urðu þrjár
talsins á tveim árum.
EINAR JÓHANNESSON Á
TÓNLISTARHÁTlÐ I SVlÞJÓÐ
EINAR Jóhannesson klar-
ínettuleikari verður meðal
flytjenda á kammermúsíkhá-
tíðinni í Borlange í Svíþjóð
dagana 31. júlí til 2. ágúst.
Alls koma fjórir hljóðfæra-
leikarar fram á þrennum tón-
leikum og leika allt frá ein-
leik til kvartetta. Hátíð þessi
er nú haldin í fyrsta sinn og á
vefsíðu hennar á Netinu kem-
ur fram að markmiðið sé að
leiða saman nokkra af
fremstu tónlistarmönnum á
Norðurlöndum. Hátíðin teng-
ist samnorrænu málþingi um
listir sem fram fer í Borlánge
á sama tima.
Tónleikamir leggjast vel í Einar sem
segir alltaf spennandi að vinna með nýju
fólki. Hann veit lítil deili á meðleikurum
sínum sem eru norski fiðluleikarinn Dag
Eriksen, sellóleikarinn Therese Ástrand
frá Danmörku og finnski píanóleikarinn
Folke Grasbeck, sem jafnframt er Iist-
rænn stjórnandi hátíðarinnar.
Einar verður kominn til Borlange á
mánudag og kveðst því hafa „góðan
túna“ til að kynnast meðleikurunum og
búa sig undir tónleikana - raunar „heila
eilífð" samanborið við tónleikana á
Listahátxð í Reykjavík í vor, þar sem
hann kom einnig fram með
tónlistarmönnum sem hann
hafði ekki unnið með áður,
Chilingirian-kvartettinum.
„Þá höfðum við ekki nema
hálfan dag til að æfa sam-
an.“
En gerir Einar ráð fyrir
að þessir tónleikar geti orðið
upphaf að frekara samstarfi?
„Það er einmitt svo skemmti-
legt við tónleika af þessu
tagi að maður veit aldrei
hvað gerist í kjölfarið. Fyrir
fimm árum kom ég til að
mynda fram á tónleikum í
Seoul í Suður-Kóreu ásamt
norska víóluleikaranum Lars Anders
Tomter. Hann hafði siðan samband við
mig um daginn og bauð mér að leika
ásamt sér og Leif Ove Andsnes á tónlist-
arhátíð í Noregi í júní á næsta ári og síð-
ar í Wigmore Hall. Svona lagað getur
því undið upp á sig.“
Á efnisskrá fyrstu tónleikanna í Bor-
lange verða verk eftir Edvard Grieg,
Lars-Erik Larsson og Dmitrij Sjosta-
kovitsj. Á öðrum tónleikunum verða
flutt verk eftir Béla Bartók, Olivier
Messiaen og Sjostakovitsj og á lokatón-
leikunum verk eftir Francis Poulenc,
John Vainö Forsman, Sjostako
Einar Jóhannesson
Japanir selja
listaverk í
stórum stíl
Tókýó. The Daily Telegraph.
KREPPAN í Asíu hefur víðtæk áhrif og er
þeirra nú þegar farið að gæta á listaverka-
markaðnum. Eru japanskir listaverkasafnar-
ar farnir að selja verk, sem þeir keyptu á
uppsprengdu verði á níunda áratugnum, nú
þegar skórinn kreppir.
Mörgum þykir þetta mikil niðurlæging og
til marks um það hvemig gæfan hafi snúið
við þeim bakinu. Er það mikil breyting frá
síðasta áratug er ekkert lát virtist á upp-
ganginum og verð á listaverkum rauk upp úr
öllu valdi. Er skemmst að minnast „Sól-
blóma“ eftir Vincent Van Gogh, sem jap-
anskt fyrirtæki keypti fyrir hæsta verð er
greitt hefur verið fyrir listaverk.
Breska uppboðsfyrirtækið Sotheby’s gisk-
ar á að um 40% af þeim verkum sem það hef-
ur tekið í umboðssölu á síðustu mánuðum sé
eða hafi verið í eigu Japana. Sömu sögu er að
segja hjá Christie’s.
I Kawamura-listasafninu í Tókýó stendur
nú yfir sýning á ellefu verkum eftir Anselm
Kiefer, en þetta er síðasta tækifærið til að
berja þau augum, áður en þau verða seld úr
landi. Verkin reyndust ekki góð fjárfesting,
því breskur listaverkasali hefur keypt þau
fyrir helming verðsins sem Takahashi
greiddi fyrir þau. Yasuda-tryggingafélagið,
eigandi „Sólblóma“ hefur hins vegar ekki í
hyggju að selja verkið og er það til sýnis í að-
albyggingu fyrirtækisins.
MENNING/
LISTIR
NÆSTU VIKU
MYNDLIST
Ásmundarsafn - Sigjúni
Yfirlitss. á verkum Ásmundar Sveinssonar.
Gallerí Hornið, Hafnarstræti
Manuel Moreno sýnir til 30. júlí.
Gallerí Stöðlakot
Sonja Elídóttir sýnir til 9. ágúst.
Ingólfsstræti 8, Ingólfsstræti 8
Sigurður Guðmundsson sýnir til 26. júlí.
Kjarvalsstaðir
Stiklað í straumnum. Urval verka úr eigu Lista-
safns Reykjavfkur. Til 30. ágúst.
Landsbókasafn Islands, Háskólabókasafn
Trú og tónlist í íslenskum handritum íýrri alda. Til
31. ágúst.
Listasafn Einars Jónssonar, Skóiavörðuholti
Opið alla daga nema mánud. kl. 13.30-16. Högg-
myndagarðurinn er opinn alla daga.
Galleríkeðjan Sýnirými
Sýningar í júlí: Hildur Bjarnadóttir sýnir í Sýni-
boxi, Vatnsstíg 3. Ema G. Sigurðardóttir sýnir í
Gallerí Barmi, berendur sýningarinnar eru; Ari
Gísli Bragason og Sigríður Hjaltested. Sím-
svaragalleríið Hlust: RelaxFax, sími 5514348 og í
sýningarrýminu 20fm er söngskemmtun á mið.,
fim., fös., laug. og sun. kl. 15-18, að henni standa
Vasaleikhúsið og Þorvaldur Þorsteinsson.
Listasafn fslands, Fríkirlq'uvegi 7
Kaffistofa: Grafíkmyndir Jóns Engilberts. Út júlí.
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar
Höggmyndir eftir Sigurjón Ólafsson í neðri sal,
málverk eftir Nínu Tryggvadóttur í efri sal.
Gallerí Fold, Kringlunni
Hadda Fjóla Reykdal og Helga Fanney Jóhannes-
dóttir sýna til 12. ágúst.
Listhús Ófeigs, Skólavörðustíg
Ragna Sigrúnardóttir sýnir til 31. júlí.
Nýlistasafnið, Vatnsstíg 3b
Roman Signer sýnir í Bjarta og Svarta sal. Einnig
sýna Ásmundur Ásmundsson, Erlingur Þ.V. Klin-
genberg, Magnús Sigurðsson og Bruce Conkle.
Perlan
Vefmyndasýning Mariu Uhlig til 2. ágúst.
Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhúsinu
Konur, úrval úr Errósafni Reykjavíkurborgar. Til
23. ágúst.
Listasafn KópavogsyGerðarsafn
Sýningin Fimmt til 2. ágúst.
Listasafn ASÍ
Nanna Bisp Buchert sýnir í Ásmundarsal og Arin-
stofu. Guðný Halldórsdóttir sýnir í Grvfjunni til 2.
ágúst.
Mokkakaffi, Skólavörðustíg
Jón Gunnar Árnason. Sumarsýning.
Gallerí Listakot, Laugavegi 70
Auður Jónsdóttir sýnir til 26. júlí.
Hafnarborg, Hafnarfirði
Sýn. „Hafnarfjarðar-mótíf' til 3. ágúst.
Safn Ásgríms Jónss., Bergstaðastræti 74
Sumarsýning á verkum Asgríms.
Kjóminjasafn fslands, Hafnarfirði
Sumarsýning á Ijósmyndum Helga Arasonar.
Stofnun Árna Magnússonar, Árnagarði v. Suður-
götu
Handritasýningin Þorlákstíðir og önnur Skálholts-
handrit. Til 31. ágúst.
SPRON IVfjódd
Harpa Björnsdóttir sýnir til 24. okt.
Hótel Edda, Laugarvatni
Elín Rebekka Tryggvadóttir sýnir til 20. ágúst.
Listasafn Árnesinga, Selfossi
Yfirlitssýning á verkum Magnúsar Tómassonar.
TONLIST
Laugardagur Hádegistóntónleikar í Hallgríms-
kirkju kl. 12-12.30. Sumartónleikar á Norðurlandi:
Reykjahlíðarkirkja, Cantica-stúlknakórinn frá
Danmörku kl. 21. Reykholtshátíð: Hádegistónleik-
ar kl. 13.30, Nina Pavloski. Kvöldtónleikar kl.
20.30. Verk eftir Debussy, Franck og Piazzolla.
Fiðluleikarinn Hjörleifur Valsson og gítarleikar-
inn Havar Öieroset með tónleika í Kaffileikhúsinu
kl. 21. Sumartónleikar í Skálholti: Enski fiðluleik-
arinn Andrew Manze leikur einleiksverk fyrir
barokkfiðlu kl. 15. Kl. 17: Margrét Bóasdóttir
sópran, Jörg Sondermann orgelleikari og Nora
Komblueh sellóleikari.
Sunnudagur Sumartónleikar á Norðurlandi: Cant-
ica-stúlknakórinn frá Danmörku í Akureyrar-
kirkju kl. 17. Sumarkvöld við orgelið í Hallgríms-
kirkju: Orgeldúó, trompet og orgel, kl. 20.30.
Lokatónleikar Reykholtshátíðar kl. 17: Verk eftir
Grieg, Schumann o.fl. Tríó Sigurðar Flosasonar á
Jómfrúnni kl. 16.18. Sænsk og eistnesk þjóðiög frá
tímum miðalda í Sölvasal Sólons Islandusar kl.
21.30. Sumartónleikar í Skálholti: Andrew Manze
fiðluleikari endurtekur efnisskrá sína frá laugar-
degi kl. 15. og kl. 16.40 hefst tónlistarflutningur í
kirkjunni. Mosaic, spænskur gítarkvartett, í Fá-
skrúðsfjarðarkirkju kl. 16. „4 klassískar" í Iðnó kl.
15.
Mánudagur Cantica-stúlknakórinn frá Danmörku
í kirkjunni á Blönduósi kl. 20.
Þriðjudagur Tónleikaröð í Iðnó: Nomaseiður:
Hilmar Jensson og félagar leika tónlist Miles Dav-
is. Listasafn Sigurjóns Ólafssonar: Mosaic,
spænskur gítarkvartett, kl. 20.30. Sumarkvöld við
orgelið í ísafjarðarkirkju kl. 20.30: Þýski organist-
inn Jörg Sondermann.
LEIKLIST
Borgarleikhúsið Grease, lau. 25. júli, sun., fim.,
fos., lau.
íslenska óperan Carmen negra. Rokk-, salza-,
poppsðngleikur, fós. 7. ágúst, iau.
Iðnó Þjónn í súpunni lau. 25. júlí, sun., fim., fös.
fslenska óperan Hellisbúinn lau. 25. júlí, fim.
Tjarnarbíó, leikliúsið Light Nights, leiknir þættir
úr íslendinga- og þjóðsögum á ensku, laug. 25. júlí,
fim,. fos., lau.
Leikfólagið Rcgína, Mögulcikhúsið „Northern
Lights" lau. 25. júlí, sun.
Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn Hrói höttur,
lau. 25. júli, sun.
Kaffileikhúsið Sumartónleikaröð Kaffileikhússins:
„Fluga“ kl. 21.
2 ( LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/USHR 25- JÚLÍ 1998