Lesbók Morgunblaðsins - 01.08.1998, Blaðsíða 2
DEILUR UM SKÁLDSAGNALISTA RANDOM HQUSE
KONUR BÚA TIL EIGIN LISTA
LISTI Random House-bókaútgáfunnar í
Bandaríkjunum yfir hundrað bestu skáld-
sögur aldarinnar á ensku sem sagt var frá
hér í Morgunblaðinu fyrir skömmu hefur
vakið gríðarmikil viðbrögð. Mótmælin hafa
meðal annars birst í nokkrum listum sem
hinir og þessir hópar fólks og almenningur
hefur valið á netinu. Inn á þá lista hefur
meðal annars ratað fjöldi vísindaskáldsagna
sem sumir bókmenntamenn eru ekki sérlega
ánægðir með.
Listi Random House þykir endurspegla á
mjög skýran hátt hvemig dómnefndin var
skipuð en í henni sátu átta hvítir breskir og
bandarískir karlar og ein kona. Konur eru
sérstaklega óánægðar með útkomuna en á
meðal þeirra 404 bóka sem dómnefndin taldi
koma til greina á Ustann í upphafi voru 76
eftir konur en aðeins átta þeirra voru á með-
al þeirra hundrað bestu. Konur hafa gagn-
rýnt það mjög að aðeins ein kona, breska
skáldkonan A.S. Byatt, var í dómnefndinni,
og hafa í framhaldi af því birt sinn eigin lista
á netinu yfir hundrað bestu skáldsögur ald-
arinnar á ensku eftir konur.
Á lista kvennanna er einungis valin ein
bók eftir hvern höfund og bókunum ekki rað-
að í gæðaröð frá einum upp í hundrað. Á
þessum lista er íjöldi bóka og höfunda sem
konur og aðrir vildu hafa séð á lista Random
House, svo sem eins og To Kill a Mocking-
bird eftir Harper Lee, The Golden Notebook
eftir Doris Lessing, Beloved eftir Toni
Morrison, July’s People eftir Nadine Gordi-
mer og I Know Why the Caged Bird Sings
eftir Maya Angelou sem þó getur ekki talist
skáldsaga í ströngum skilningi. Af öðrum
bókum á listanum sem vekja athygli mætti
nefna The Bell Jar eftir Sylvia Plath sem
virðist njóta mikilla vinsælda vestan hafs nú,
A Good Man is Hard to Find eftir Flannery
O’Connor, The Awakening eftir Kate Chop-
in, The Volcano Lover eftir Susan Sontag,
Three Lives eftir Gertrude Stein, The Joy
Luck Club eftir Amy Tan, The Color Purple
eftir Alice Walker og The Live and Loves of
a She-Devil eftir Fay Weldon.
Það var hins vegar sláandi að á lista sem
háskólanemar í Radcliffe College bjuggu til
var ekki nema tæpur fjórðungur bóka eftir
konur þrátt fyrir að mikill meirihluti nem-
enda væri kvenkyns. í þremur efstu sætum
háskólanemanna, sem allir voru undir þrí-
tugu, var The Great Gatsby eftir F. Scott
Fitzgerald í fyrsta sæti en hún hafði verið í
öðru sæti á lista Random House en auk þess
lentu nokkrar barnabækur á meðal þeirra
hundrað bestu.
Annað sem þótti vanta á lista Random
House voru svokallaðar undirróðursbók-
menntir. Nokkrar þeirra voru á hinum upp-
haflega 404 bóka lista, þar á meðal bæði Na-
ked Lunch eftir William Burroghs og One
Flew Over the Cuckoo’s Nest eftir Ken Kes-
ey en þær voru hvorugar á lista hundrað
bestu.
HEIMUR
UÓÐSINS
LJÓÐAVAKAN „Heimur ljóðsins" verður
haldin í Deiglunni í Listagili á Akureyri annan
sunnudag, 9unda ágúst.
Á þessari ljóðavöku verða flutt ljóð frá liðn-
um öldum og allt fram á okkar dag í eins kon-
ar Ijóðræðu ferðalagi gegnum aldir og ólík
menningarsvæði. Inn í þá dagskrá verður felld
tónlist, sem tengist eða fellur vel að ljóðunum
sem lesin verða.
Sigurður Jónsson er hvatamaður að ljóða-
vökunni, en myndlistarmenn á Akureyri hafa
skreytt salinn, þar sem setið verður við smá-
borð og hægt að fá sér hressingu ef svo ber
undir. Arthúr Björgvin Bollason mun stjóma
dagskránni og verða leiðsögumaður um heim
ljóðsins og með honum lesa rithöfundarnir
Guðmundur Andri Thorsson og Steinunn Sig-
urðardóttir.
♦ ♦♦
BLÉS TIL ÞRIÐJA
SÆTIS
SIGURÐUR Þorbergsson, básúnuleikari í Sin-
fóníuhljómsveit íslands, varð í 3. sæti í básúnu-
keppni, sem haldin var í sambandi við málm-
blásaraviku í Lieksa í Finnlandi. Níu keppend-
ur frá Norðurlöndum hófu keppni og komst
Sigurður í úrslitakeppnina, einn þriggja kepp-
enda. Sigurvegari varð Jessica Gustafsson frá
Svíþjóð og í 2. sæti varð John Kotlo Finnlandi.
Málmblásaravika sem þessi hefur verið hald-
in árlega síðan 1980; síðustu viku júlímánaðar í
Lieksa. Þar eru haldnir um 20 tónleikar auk
námskeiða og tónlistarflutnings af ýmsu tagi.
Básunukeppnin nú var sú fyrsta sinnar teg-
undar.
---------♦-♦-♦-------
Samspil í Garðabæ
NOREGI
NORÐUR-evrópsk áhugaleiklistarhátíð hefst
á laugardaginn kemur í Harstad í Norður-Nor-
egi. Þar verða sýndar þrettán leiksýningar frá
tíu löndum, Norðurlöndunum, Eystrasalts-
löndunum og Rússlandi. Auk leiksýninganna
verður boðið upp á fjölmörg námskeið og
námsstefnur, starfræktar leiklistarbúðir fyrir
unglinga og skipuleggjandi hátíðarinnar, Nor-
ræna áhugaleikhúsráðið, heldur aðalfund sinn.
Fulltrúi íslands á hátíðinni er Reykvíska
leikfélagið Hugleikur, sem sýnir verkið Sálir
Jónanna ganga aftur eftir Ingibjörgu Hjartar-
dóttur, Sigrúnu Óskarsdóttur og Unni Gutt-
ormsdóttur í leikstjórn Viðars Eggertssonar.
Sýning Hugleiks var valin til fararinnar af
dómnefnd skipaðri af Bandalagi íslenskra leik-
félaga, sem er aðili að Norræna áhugaleikhús-
ráðinu.
LISTAVERKIÐ Samspil eftir Pétur
Bjarnason hefur verið afhjúpað í Garða-
bæ; í Búðakinn við Reykjanesbraut.
Héðins-fyrirtækin Héðinn-Smiðja hf.,
Héðinn-verslun hf. og Garðastál hf. gáfu
Garðabæ verkið í tilefni af 75 ára af-
mæli fyrirtækjanna 1. nóvember síðast-
liðinn, en þau hafa starfað í Garðabæ
um áratuga skeið. Myndverkið er 4,7
metrar á hæð og vegur um 7,5 tonn.
Það er byggt upp af 20 einingum, sem
unnar eru úr 65 mm þykkum járnplöt-
um. Einingarnar eru tengdar saman
þannig að hver þeirra grípur inn í aðra
og eru aðrar festingar ekki notaðar.
Verkið er unnið í vélsmiðju Héðins hf. í
Garðabæ.
Höfundur myndverksins er Pétur
Bjarnason myndlistarmaður. Hann út-
skrifaðist frá Myndlista- og handíða-
skóla fslands árið 1982, var gestanemi í
Aachen í Þýskalandi 1984-1985 og lauk
M.A.-prófi í höggmyndalist frá National
Hoger Institut voor Schone Kunsten í
Antwerpen árið 1988. Hann hefur hlotið
ljölda viðurkenninga fyrir störf sín og
var honum veittur starfsstyrkur úr
menningarsjóði Garðabæjar árið 1992.
NORÐUR-EVROPSK
LEIKLISTARHÁTÍÐ í
Kristinn
MENNING/
LISTIR
NÆSTU VIKU
MYNDLIST
Ásmundarsafn - Sigtúni
Yfirlitss. á verkum Asmundar Sveinssonar.
Gallerí Hornið, Hafnarstræti
Manuel Moreno sýnir til 12. ágúst.
Kjarvalsstaðir
Stiklað í straumnum. Úrval verka úr eigu Lista-
safns Reykjavíkur. Til 30. ágúst.
Landsbókasafn íslands, Háskólabókasafn
Trú og tónlist í íslenskum handritum fyrri alda. Til
31. ágúst.
Listasafn Einars Jónssonar, Skólavörðuholti
Opið alla daga nema mánudaga kl. 13-16.
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar
Höggmyndir eftir Sigurjón Ólafsson í neðri sal,
málverk eftir Nínu Tryggvadóttur í efri sal til 2.
ágúst.
Gallerí Fold, Kringlunni
Hadda Fjóla Reykdal og Helga Fanney Jóhannes-
dóttir sýna til 12. ágúst.
Nýlistasafnið, Vatnsstíg 3b
Samsýning 13 þýskra og íslenskra myndlistar-
manna.
Gallerí 20 fermetrar, Vesturgata lOa
Helgi Hjaltah'n Eyjólfsson sýnir.
Perlan
Nanna Dýrunn Björnsdóttir og Mark Dickens
sýna til 24. ágúst.
Gallerí Fiskur, Skólavörðustíg 22c
Franz Graf og Eva Wohlgemuth sýna ásamt tón-
listarmönnunum Jóhanni Eiríkssyni og Guðmundi
Markússyni.
Listasafn Reylqavíkur, Hafnarhúsinu
Koriur, úrval úr Errósafni Reykjavíkurborgar. Til
23. ágúst.
Listasafn Kópavogs, Gerðarsafn
Sýningin Fimmt til 2. ágúst.
Listasafn ASÍ
Nanna Bisp Buchert sýnir í Ásmundarsal og Arin-
stofu. Guðný Halldórsdóttir sýnir í Gryfjunni til 2.
ágúst.
Gallerí Listakot, Laugavegi 70
Elanor Symms sýnir til 22. ágúst.
Mokkakaffl, Skólavörðustíg
Jón Gunnar Ámason. Sumarsýning.
Hafnarborg, Hafnarflrði
Sýn. „Hafnarfjarðar-Mótíf ‘ til 3. ágúst.
Safn Ásgríms Jónss., Bergstaðastræti 74
Sumarsýning á verkum Ásgríms.
Sjóminjasafn fslands, Hafnarfirði
Sumarsýning á Ijósmyndum Helga Arasonar.
Stofnun Árna Magnússonar, Árnagarði v. Suður-
götu
Handritasýningin Þorlákstíðir og önnur Skálholts-
handrit. Til 31. ágúst.
SPRON ^jódd
Harpa Björnsdóttir sýnir til 24. okt.
Hótel Edda, Laugarvatni
Elín Rebekka Tryggvadóttir sýnir til 20. ágúst.
Listasafn Árnesinga, Selfossi
Yfirlitssýning á verkum Magnúsar Tómassonar.
Ketilshús, Akureyri
Samsýn: Sólveigar Baldursdóttur, Guðrúnar Pá-
línu og Hrefnu Harðardóttur.
Gallerí Svartfugl, Akureyri
Jónas Viðar Sveinsson sýnir.
Ljósmyndakompan, Akureyri
Guðbrandur Sigurlaugsson sýnir.
Slunkaríki, ísaflrði
Guðbjörg Kr. Ingvarsdóttir, Guðrún Halldórsdótt-
ir og Katrín Elvarsdóttir sýna til 12. ágúst.
Safnasafnið, Svalbarðsströnd
Anna Líndal sýnir til 28. ágúst.
TONLIST
Laugardagur
Sumartónleikar Skálholtskirkju; The Clerk’s
Group flytja trúarleg söngverk kl. 15. og á síðdeg-
istónleikunum kl. 17. leika Helga Ingólfsdóttir
semballeikari og Jaap Schröder fiðluleikari.
Sumartónleikar á Norðurlandi: Reykjahlíðar-
kirkja, Duo Lewark-Portugall. Hallgrímskirkja:
Ulrich Meldau organisti leikur kl. 20.30. Norræna
húsið: Helga Pórarinsdóttir lágfiðiuleikari og
Steinunn Birna Ragnarsdóttir píanleikari kl. 16.
Tríó Natazsa Kurek á Jómfrúnni kl. 16-18.
Sunnudagur
Sumartónleikar Skálholtskirkju; The Clerk’s
Group flytja trúarleg söngverk kl. 15. og kl. 16.40.
leika Helga Ingólfsdóttir semballeikari og Jaap
Schröder. Sumartónleikar á Norðurlandi: Akur-
eyrarkirkja, Duo Lewark-Portugall. Sumarkvöid
við orgelið í Hallgrímskirkju: Ulrich Meldau org-
anisti kl. 20.30.
Mánudagur
Sumartónleikar í Skálholtskirkju: Helga Ingólfs-
dóttir semballeikari og Jaap Schröder leika kl. 15.
Þriðjudagur
Áshildur Haraldsdóttir flautuleikari og Pierre
Morabia píanóleikari halda tónleika í Listasafni
Kópavogs kl. 20.30.
LEIKLIST
Borgarlcikhúsið
Grease, fim. 6. ágúst, fos., lau.
íslenska óperan
Carmen negra. Rokk-, salza-, poppsöngleikur, fös.
7. ágúst, lau.
Iðnó
Þjónn í súpunni fím. 6. ágúst, fós., lau.
íslenska óperan
Hellisbúinn fim. 6. ágúst, lau.
Tjarnarbíó, leikhúsið
Light Nights, leiknir þættir úr íslendinga sögum
og þjóðsögum á ensku lau. 1. ágúst., fim., fós., lau.
i'jölskyldu- og húsdýragarðurinn
Hrói höttur, mið. 5. ágúst, fim., fós.
Kaffileikhúsið
Rússíbanarnir sun. 2. ágúst.
Upplýsingar um listviðburði sem óskað er eftir að
birtar verði í þessum dálki verða að hafa borist
bréflega eða á netfangi fyrir kl. 16 á miðvikudög-
um merktar: Morgunblaðið, Menning/listir,
Kringlunni 1, 103 Rvík. Myndsendir: 5691222.
Netfang: menning@mbl.is.
2 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 1.ÁGÚST1998