Lesbók Morgunblaðsins - 24.10.1998, Page 19
HUÓMSVEIT ÚR STEINLEIR (GALLERÍI HORNINU
Morgunblaðið/Ásdís
GERÐUR Gunnarsdóttir myndhöggvari á vinnustofu sinni umkringd hluta
hljómsveitarinnar sem hún sýnir í Galleríi Horninu.
MARGRÉT Reykdal í vinnustofu sinni.
SPILAR Á LEIRINN EINS
OG HUOÐFÆRI
FRÁSAGNIR í
NORRÆNA HÚSINU
GERÐUR Gunnarsdóttir opnar högg-
myndasýningu í Galleríi Horninu,
Hafharstræti 15, í dag, laugardag, kl.
16. Viðfangsefni Gerðar að þessu sinni eru
hljóðfæraleikarar og nefnir hún sýninguna
Hljómsveitina. Par gefur að líta flautuleikara,
fiðlara, sellóleikara og fleiri tónlistarmenn.
Verkin, sem eru úr steinleir, eru unnin á
síðastliðnum tveimur árum - með höndunum
og hníf, eins og myndhöggvarinn orðar það.
Hún segist byrja á því að vinna verkin lítil og
stækka þau svo upp.
Upphaf hljómsveitarinnar rekur Gerður til
þess þegar merkisafmæli stóð fyrir dyrum hjá
frænku hennar, sem er píanóleikari, og hún
fór að velta fyrir sér hvað hún ætti að gefa af-
mælisbarninu í tilefni dagsins. „Ég hef unnið
mikið með mannslíkamann og hef ofsalega
gaman af hreyfingu, höndum og fótum. Það
eina sem kom í huga mér voru hendurnar á
henni, svo ég gerði hendumar hennar á
nótnaborði. Mér fannst það svo gaman að út
frá því kviknaði heil hljómsveit," segir hún.
Heilluð af samspilinu
Gerður fer gjaman á sinfóníutónleika og
hlustar þá ekki bara heldur horfir með athygli
á hreyfingar hljóðfæraleikaranna þegar þeir
spila. Hún segist vera heilluð af samspilinu og
þeirri heild sem myndast þegar allir em komn-
ir í takt. Oft hlustar hún á tónlist á vinnustof-
unni og segir að steinleirinn sé í raun hennar
hljóðfæri. „Það var alltaf mikil músík í Vest-
mannaeyjum, þar sem ég ólst upp. Ég á þrjá
bræður sem spila allir á hljóðfæri og faðir
minn söng mikið. í Eyjum er mjög kátt fólk og
gaman að alast upp. Sem unglingur var ég öll í
landslaginu, teiknaði og málaði mikið,“ segir
Gerður. Seinna sneri hún sér að jámi og stáli,
vaxi og steinleir - en í millitíðinni lærði hún
reyndar snyrtifræði og vann hjá Flugleiðum í
20 ár. Nú hefur hún snúið sér alfarið að listinni.
Gerður lauk námi frá skúlptúrdeild Mynd-
lista- og handíðaskóla íslands árið 1993 og
hefur auk þess sótt námskeið í Myndlistaskól-
anum í Reykjavík og Aceademia di belle arti
„Pietro Vannucci“ í Perugia á Italíu. Sýningin
í Galleríi Horninu er fyrsta einkasýning henn-
ar en áður hefur hún tekið þátt í samsýning-
um í Perugia og í Galleríi Art-Hún, þar sem
hún er jafnframt með vinnustofu.
Sýningin stendur fram til sunnudagsins 8.
nóvember og verður opin alla daga kl. 11-24,
en sérinngangur í galleríið er opinn kl. 14-18.
Margrét Reykdal opnar sýningu á
málverkum í Norræna húsinu í dag,
laugardaginn 24. október. Margrét
sýnir rúmlega þrjátíu verk, flest þeirra unn-
in á undanfornum 2-3 ámm. „Titill sýningar-
innar, Frásagnir, skírskotar bæði til forms
og innihalds. Á einn eða annan hátt fjalla
þessi verk um tíma, fjarlægð og sögu en
myndmálinu sjálfu er þó ætlað aðalhlutverk-
ið. Mér finnst það alltaf skipta meginmáli í
málverkinu," segir Margrét Reykdal.
„Mér fannst yfirskriftin samt hæfa ágæt-
lega þar sem ég leita að hluta til efnis í
minni persónulegu sögu og einnig sögu
lands og þjóðar. Svo eru líka verk sem
tengjast nútímanum og í mínum huga tengj-
ast verkin auðvitað öll þó þau virðist
kannski nokkuð ólík innbyrðis.“
Margrét segir að efni og samsetning sýn-
ingarinnar beri öðrum þræði keim af því að
að hún staldri ögn við og minnist þess að í ár
eru liðin 30 ár síðan hún hélt utan til mynd-
listarnáms. „Þetta er þó ekki yfírlitssýning
því flest verkin hef ég málað á þessu ári og
þau elstu eru frá 1994. Ennfremur hef ég til-
einkað sýninguna minningu foreldra,
minna.“ '
Margrét hefur starfað að myndlist sinni í
Noregi frá því hún stundaði nám við listahá-
skólann í Osló 1968-73. Einnig lauk hún
hlutaprófi í listasögu við Óslóarháskóla og
kennaraprófi í myndmennt. „Mér hefur tek-
ist að búa svona lengi erlendis með því að
halda alltaf góðu sambandi við Island og
vera alltaf á leiðinni heim,“ segir Margrét.
Þetta er 10. einkasýning Margrétar, flest- ’*
ar hefur hún haldið á íslandi. Auk þeirra
hefur hún tekið þátt í ýmsum samsýningum,
bæði hér heima og í Noregi. Framundan er
stór sýning árið 2000 í Oslo Kunstforening
og segist Margrét þegar vera farin að huga
að undirbúningi hennar. Margrét hefur um
árabil starfað við listfræðslu við söfn og aðr-
ar stofnanir í Noregi, lengst af við
Riksutstillinger, þar sem hún undanfarin ár
hefur einnig unnið við samsetningu farands-
sýninga. Sýningu Margrétar Reykdal í Nor-
ræna húsinu lýkur þann 8. nóvember.
SONGLOG
OG ANTIK-
ARÍUR í
SIGURJÓNS-
SAFNI
INGVELDUR G. Ólafsdóttir mezzosópran-
söngkona og Atli Heimir Sveinsson tón-
skáld halda tónleika í Sigurjónssafni
sunnudaginn 25. október kl. 17. Á efnisskrá
eru sönglög úr leikritum Shakespeares,
ítalskar antíkaríur og sönglög eftir Atla
Heimi Sveinsson og Johannes Brahms.
Ingveldur stundaði söngnám í Tónlistar-
skólanum í Reykjavík, í Amsterdam og í
Torontó. Hún hefur sungið ýmis hlutverk í
óperum, m.a. Angelieu í óperu Puccinis, So-
ur Angelica, og Unni í Tunglskinseyju Atla
Heimis Sveinssonar, sem var flutt í Kína og
í Þýskalandi. Þá hefur hún sungið á ljóða-
tónleikum og komið fram í útvarpi og sjón-
varpi.
Atli Heimir Sveinsson tónskáld hefur
samið fjölda tónverka fyrir hljómsveit,
söngvara og einleikara og unnið fyrir leik-
hús. Hann hlaut tónskáldaverðlaun Norður-
landaráðs 1976.
Morgunblaðið
INGVELDUR G. Ólafsdóttir og Atli Heimir
Sveinsson æfa dagskrá sunnudagsins.
Efnt til Styrktarfélags
Sveinssafns
EFNT verður til stofnunar styrktarfélags
Sveinssafns að lokinni messu í Krýsuvík-
urkirkju á sunnudaginn kl. 14, en þá
verður altaristöflumynd kirkjunnar tekin
niður og færð til vetursetu í Sveinshús, þar
sem Sveinn heitinn
Bjömsson listmálari
vann að listsköpun
sinni.
Messugestum
gefst kostur á að
skoða vinnustofu og
híbýli Sveins
Bjömssonar, list-
málara, í húsinu
hans bláa við Gests-
staðavatn í Krýsu-
vík. Húsið, sem er
eign Hafnarfjarðar-
bæjar, hafði Sveinn
til fullra afnota í
rúm tuttugu ár.
Hann gerði það upp
og setti svipmót sitt
á það, sem lýsir sér
m.a. í því að hann
málaði myndheim sinn á innihurðir, veggi og
loft hússins. Hugmyndir em uppi um að
Sveinshús verði varðveitt í þeim mynd, sem
listamaðurinn skildi við það og það falið um-
sjá Sveinssafns.
Magnús Gunnarsson, bæjarstjóri Hafnar-
fjarðar, mun ávarpa messugesti í Sveinshúsi,
en Hafnarfjarðarbær vinnur um þessar
mundir að stefnumörkun í málefnum Krýsu-
víkur.Að lokinni skoðun Sveinshúss verður
farið í messukaffi í Krýsuvíkurskóla
Séra Gunnþór Ingason, sóknarprestur
Hafnarfjarðarkirkju,
messar í Krýsuvík og
verður boðið upp á
akstur frá Hafnarfjarð-
arkirkju kl. 13.
Listina út til
fólksins
Hugmyndin er sú að
styrktarfélagar greiði
ákveðna upphæð á ári til
safnsins en fái í staðinn
eina mynd að láni úr
fómm þess og hafi hjá
sér í eitt ár. Að auki
yrðu styrktarfélagar
boðnir á sýningar, sem
safnið hyggst gangast
íyrir í framtíðinni,
fengju vildarkjör á því
efni sem gefið verður út,
hefðu forgang að fyrirhuguðum „kvöldvökum
í Krýsuvík", svo eitthvað sé nefnt. Formlega ^
verður félagið stofnað þegar nauðsynlegum
undirbúningi er lokið. Þeir sem hafa áhuga á
að gerast styrktarfélagar en komast ekki til
Krýsuvíkur geta skráð sig í síma/fax 5525235
eða sent tölvupóst til: verstodinÉvortex.is.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
SVEINSHÚS í Krýsuvík.
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 24. OKTÓBER 1998 1 9