Lesbók Morgunblaðsins - 24.10.1998, Page 20
FARANDSYNINGIN „HVORKI NE" I NYLISTASAFNINU
.-•gtaasaa&i;
uzáoz&i
.:
.
H AMf
■,;«***M »ííí«»»M 5»'«
frrs* IWÍICKM MOt«» M
■< HMO MOWM Í»ÁÍTK .
IBHJfl! pr>í r íimm Honm i.*3P
jH'&iTírí’is OtnKOI-CK HOAO NOHTH
H HAIIAOJ NOH í w WOBPIX
brtTH HAI f I K NOFtrNUIU|^*0ÉH
lusHi'i N nobthJs*'’ '•'‘ffPJ
: i m i *St.i ÆÁI
20 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 24. OKTÓBER 1998
YFIRSKRIFT samsýningar sem verð-
ur opnuð í Forsal og Gryfju Nýlista-
safnsins í dag, laugardag, kl. 16, er
„Neither nor“ eða „Hvorki né“. Hér er
á ferð farandsýning níu erlendra listamanna
og eins íslensks. Þeir eru Henry Bond, Juan
Cruz, Graham Gussin, Ritsuko Hidaka og
Joao Penalva frá London, Christina Dimitri-
adis frá Aþenu, Tracy Mackenna og Edwin
Janssen frá Rotterdam, Felix Conzalez
Torres frá New York, sem lést árið 1996, og
Islendingurinn Hanna Styrmisdóttir, sem sér
um framkvæmd sýningarinnar ásamt sýning-
arstjóranum Marina Fokidis, sem er frá
Grikklandi en býr í London.
Megininntak sýningarinnar eru vangavelt-
ur um heimili og sjálfsmynd og stöðu þessara
gilda í nútímanum, þar með talið birtingar-
form þeirra innan samtímalistarinnar. Verkin
eru níu talsins og eru í formi myndbanda,
hljóðs, texta á hvítum pappír og á teppi.
Leita svara á nýjum forsendum
I kynningu frá Nýlistasafninu segir að eftir
því sem heimilið og gildi fjölskyldutengsla lið-
^ ast í sundur í samtímanum verði spumingin
um hvernig og hvort viðhalda eigi persónuleg-
um og menningarlegum kennileitum áleitin,
jafnt sem spurningin um hvernig mæta eigi
ört vaxandi ágangi fjölskrúðugra menningar-
tilboða. Það verði æ algengara að nútímafólk
afneiti fastri búsetu og velji vaxandi mögu-
leika hreyfanlegrar tilveru. Sýningin
„Neither nor“ tekur á þessu brotakennda við-
fangsefni, þ.e.a.s. gildi þess að eiga sér heimili
og þeim áhrifum sem upplausn þess hefur á
sjálfsmyndina.
Marina segir sýninguna að hluta til andsvar
við þeirri tilhneigingu sem hefur verið i-íkj-
andi á mörgum sýningum að undanfömu, þar
sem mikil áhersla hefur verið lögð á þjóðerni
annars vegar og hins vegar á það umrót sem
íylgi flökkutilveru nútímans. Hún hafnar
þessari flokkun og segir sýninguna tilraun til
að finna einhvem þriðja möguleika, sem ekki
markast af þjóðerni eða landfræðilegri legu,
leita svara á nýjum forsendum.
Listamennirnir tíu eiga það allir sameigin-
legt að hafa verið á faraldsfæti milli landa. Að
sögn Marinu koma þeir úr ýmsum áttum, eru
á ýmsum aldri og eiga flestir breiðan sýning-
arferil að baki en takast nú á við sameiginlegt
áhugamál, það að ferðast. Hún segir að mark-
mið sýningarinnar sé ekki að komast að end-
anlegri niðurstöðu, en með því að velja saman
þessa listamenn leitist hún við að skerpa nýja
sýn á mismunandi nálgun við að skapa um-
hverfi, þar sem listamanninum jafnt sem
áhorfandanum geti liðið eins og heima hjá sér.
Þegar hér var komið sögu var sýningarstjór-
inn spurður hvort honum liði orðið eins og
heima hjá sér á sýningunni í Nýlistasafninu.
„Já, þegar verkin voru loksins komin hérna
inn, þá leið mér eins og heima,“ svaraði Mar-
ina.
Líkt og Marinu leiðist Hönnu það þegar
verið er að gera þjóðerni og búsetu að við-
fangsefni. „Síðustu tíu árin hef ég búið hingað
og þangað, og mér fínnst ekkert merkilegt við
það. Ég hef bara búið þar og er ánægð með
það, það er hluti af mér. Hins vegar sé ég
enga ástæðu til að gera það að umfjöllunar-
efni,“ segir hún.
Þetta er í fyrsta sinn sem Hanna sýnir hér
á landi en á síðastliðnu ári tók hún þátt í sam-
sýningu í South London Gallery. Á undan-
förnum áram hefur hún búið í London, París,
New York og Japan og lauk mastersgráðu frá
Chelsea College of Arts and Design árið 1996.
Sýningin stendur fram til 8. nóvember nk.
og er opin alla daga nema mánudaga kl.
14-18. Frá Reykjavík fer hún til Aþenu í maí
á næsta ári og í bígerð er að hún fari þaðan til
London.
Sýningarstjóramir segjast vilja taka það
sérstaklega fram að án stuðnings Menningar-
sjóðs Islandsbanka, Bræðranna Ormsson,
Heimilistækja hf., Prentsmiðjunnar Odda,
Flugfraktar Flugleiða og The Árts Councel of
England hefði sýningin ekki orðið að veraleika.
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
ANNU Wilenius sýnir Ijósmyndir, skúlptúra og myndband og Nathalie van den Burg sýnir
Ijósmyndaskúlptúra í SÚM-salnum á efstu hæð Nýlistasafnsins.
UÓSIÐ, LÍNAN, YFIRBORÐ
OG LAGSKIPTIR FLETIR
ISÚM-salnum á efstu hæð Nýlistasafnsins
sýna þær Annu Wilenius frá Finnlandi og
Nathalie van den Burg frá Hollandi. Þær eru
báðar að stíga sín fyrstu skref á vettvangi
myndlistarinnar. Þær eiga það líka sameigin-
legt að hafa verið gestanemendur í Myndlista-
og handíðaskóla íslands fyrir þremur árum og
hafa að undanförnu dvalið í gestavinnustofunni
í Straumi sem styrkþegar.
Annu, sem nam myndlist í Helsinki, sýnir
ljósmyndir, skúlptúra og myndband. Hún segir
myndirnar sínar tengjast landslagi, en þó séu
þær ekki um náttúru, fremur vangaveltur um
hugtök eins og hið opna, ljósið og línuna.
Natalie, sem stundaði nám í Utrecht, sýnir
ljósmyndaskúlptúra, sem verða til jafnóðum og
hún beygir og sker ljósmyndirnar. í ferlinu
kveðst hún vera að takast á við yfirborð og lag-
skipta fleti, hið opna og hið lokaða og það sem
gerist þegar hún ristir í gegnum þessi lög.
Sýningin verður opnuð kl. 16 í dag, og er opin
alla daga nema mánudaga kl. 14-18.
IffeSffig / in x * • i
NOH lT-iNl-.SS NOBT l i NiBU'Y W
ORTH NORTH CREY NORTH BOCKHAMPTON N‘
NORTH RADWORTHY NORTH HUISH NORTH LOTTLETON
ORTH CHERITON NORTH QUEENSFERRY NORTH ACRE NORT'
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
SÝNINGARSTJÓRARNIR Hanna Styrmisdóttir og Marina Fokidis
við verk Ritsuko Hidaka, Central Square.
ÁSTÆÐULAUST AÐ GERA ÞJÓÐERNI
OG BÚSETU AÐ VIÐFANGSEFNI
FINNSKUM HREIM OG
ÍSLENSKUM TEXTA
ISVARTA sal Nýlistasafnsins sýnir Bjar-
gey Ólafsdóttir „Falskar tennur,“ sem er
fjögurra mínútna, 16 millimetra kvik-
mynd, sem hún gerði í Finnlandi fyiT á
þessu ári, og í Bjarta sal gefur að líta ljós-
myndir sem hún vann
í tengslum við kvik-
myndina. Sýningin
verður opnuð kl. 16 í
dag, stendur til 8. nóv-
ember nk. og er opin
alla daga nema mánu-
daga kl. 14-18.
Kvikmyndin, sem
er finnsk-íslensk
framleiðsla, fjallar um
unga konu sem er
tannlæknir og á í
vandræðum í einkalífi
sínu. „Hún er mjög
hrifm af starfinu sínu,
það er hennar líf og
yndi, líkt og hjá svo
mörgurn íslendingum
sem lifa fyrir vinnuna.
Hún er mikil efnis-
hyggjumanneskj a,
mikið fyrir falleg föt
og glamúr. Hún á kærasta sem hún á í erfið-
leikum með, hann er pirraður á því hvað hún
• sinnir honum lítið og er alltaf að hugsa um
tannlækningar," segir Bjargey, sem er
hvorki meira né minna en handritshöfundur,
leikstjóri og framleiðandi myndarinnar.
Tónlistin í myndinni er eftir Kristján Eld-
jám og leikmyndina gerði Sólveig Svein-
Morgunbiaöið/Ámi Sæberg
BJARGEY Ólafsdóttir sýnir í Nýlistasafninu
örstutta kvikmynd um kventannlækni
sem á í vandræðum í einkalífi sínu.
björnsdóttir. Myndin mun rúlla stöðugt með-
an á sýningunni stendur og í annað hvert
skipti verður sýnd útgáfa með íslenskum
texta. Hún er annars leikin á ensku með
fínnskum hreim, sem Bjargey segir koma
sérlega skemmtilega
út. Það þarf vart að
taka fram að hún hef-
ur boðið tannlæknin-
um sínum sérstaklega
að vera viðstaddur
opnun sýningarinnar.
Þetta er að hennar
eigin sögn fyrsta al-
vöru einkasýningin
hennar en hún hefur
tekið þátt í nokkrum
samsýningum í Finn-
landi, Svíþjóð,_ Bret-
landi og á Islandi.
Bjargey lauk námi frá
málaradeild og íjöl-
tæknideild Myndlista-
og handíðaskóla ís-
lands árið 1996 en hef-
ur síðan stundað
framhaldsnám í Finn-
landi, með áherslu á
ljósmyndun og fjöltækni. „Falskar tennur",
sem er þriðja stuttmynd hennar, hefur birst
áður á tveimur kvikmyndahátíðum, í Finn-
landi og Svíþjóð, og „Jean“, sem hún gerði á
síðasta ári var sýnd á kvikmyndahátíð í Sví-
þjóð og verður sýnd á alþjóðlegu stutt-
myndahátíðinni í Áix en Provence í nóvem-
ber nk.
AENSKU MEÐ