Lesbók Morgunblaðsins - 21.08.1999, Page 1

Lesbók Morgunblaðsins - 21.08.1999, Page 1
oa cn a MENNING LISTIR WÓÐFRÆÐI MENNINGARNÓTT í MIÐBORGINNI er nú haldin í fjórða skipti. í fyrra gerSu um 30.000 manns sér ferS í bæinn og líkt og óSur er lögS óhersla ó aS sem flestir viSburSir séu fólki aS kostnaSarlausu. / IÁR er setning Menningamætur í Lýðveldisgarðinum við Hverfisgötu. En Menningamótt er orðin fastur liður í menningarlífi borgarinnar og fjölgar þátttakendum ár frá ári. Verkefnisstjóm heldur utan um viðburði næturinnar og sér um hugmyndavinnu, skipulagningu og kynningarmál. Stjómin fundar allt árið um kring og hefur því margt breyst frá því að Menningamótt var haldin í fyrsta skipti, en þá var aðeins mánuður til undirbúnings. „Við höfðum á litlu öðru að byggja en metnaði og tiltrú á að hægt væri að breyta ímynd miðbæjarins, sem á þessum tíma var ekki nógu góð,“ segir Elísabet B. Þórisdóttir, forstöðumaður Gerðubergs og formaður verkefnisstjórnar. Viðburðum fjölgar stöðugt og því er unnið markvisst að því að hefja dagskrána fyrr. Trommuhljómar kalla lólk ó flugeldasýninguna Flugeldasýningin er kl. 22.24 til að koma til móts við fjölskyldufólk og þátttakendur í Reykjavíkurmaraþoninu, en þá á að vera komið myrkur skv. almanaki Þjóð- vinafélagsins. „Til að vekja athygli fólks á breyttum tíma hennar, hefst fmmflutningur á trommuverki Gunnlaugs Briem kl.22.00. Þeir trommuhljómar ættu að óma um alla miðborgina og kalla alla niður á höfn,“ segir Elísabet. Hún bætir við að flugeldasýningin marki því að þessu sinni ekki formleg lok dagskrárinnar, því ýmsir viðburðir hefjist ekki fyrr en að henni lokinni. „Við emm ekki að búa til nýja listahátíð VAKAÐ AF LIST Elisabet B. Þórisdóttir segir Menningarnótt eiga að einkennast af fjölbreytileika. eða nýjan 17. júní. Heldur er tilgangur Menningamætur sá að stuðla að samkennd og áhersla lögð á að allir, einstaklingar, fjölskyldur, fyrirtæki og stofnanir, sameinist um að beina athygli sinni að gróskunni sem ríkir í menningarlífi borgarbúa." Fyrirtæki neta MenningarnóH sent tsekifæri til að þakka fyrir sig Þeim fyrirtækjum fjölgar sífellt sem taka þátt í Menningamótt. „Fyrirtæki og stofnanir gera sér nú grein fyrir að með þátttöku sinni geta þau haft veraleg áhrif á sína ímynd,“ segir Elísabet. En Landsbankinn og Visa hafa frá upphafi verið helstu stuðningsaðilar næturinnar. „Síðan hafa fyrirtæki eins og SPRON, Samskip og BM Vallá bæst í hópinn og styðja þau ákveðna viðburði af miklum myndugleik.“ Menningarstofnanir Reykjavíkurborgar leggja einnig sitt af mörkum og fyrirtæki eins og Mál og menning og Gallerí Fold nota tækifærið til að þakka viðskiptavinum sínum með því að gefa þeim eitthvað til baka. „Nánast allir sem eitt sinn hafa tekið þátt em virkir þátttakendur aftur.“ Mikil hugmynda- og skipulagsvinna liggur að baki verkefnis eins og Menningamætur og telur Elísabet það skila sér að núverandi stjómarmeðlimir hafa verið með frá upphafi. „Við vinnum stöðugt úr hugmyndum, reynslu og ábendingum sem okkur berast og keppumst við að styrkja grunninn. Okkar hlutverk hlýtur líka að vera að forðast endurtekningar því Menningarnóttin á að vera breytileg ár frá ári.“ Morgunblaðiö/Sverrir Eldsmiður að störfum á menningarnótt 1998. LESBÓK MORGUNBLAÐSINS/MENNINGARNÓTT 21. ÁGÚST 1999 1

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.