Lesbók Morgunblaðsins - 13.11.1999, Blaðsíða 2
Gramophone-verðlaunin
RENÉ FLEMMING
Á PLÖTU ÁRSINS
OG SÖNGPLÖTU
TRYGGVITRYGGVASON FÆR SÉRSTAKT
LOF FYRIR HUOÐVINNSLU
GUÐJÓN ÓSKARSSON IÐINN
VID KOLANN í NIFLUNGAHRINGNUM
BÚINN AÐ SYNGJA
ÖLL BASSA-
HLUTVERKIN
MEÐ helstu viðburðum ársins í tónlistar-
heiminum er hin svonefndu Gramophone
verðlaun sem kynnt eru í sérútgáfu blaðsins
og síðan afhent við hátíðlega athöfn síðla árs.
Sérútgáfan kom út fyrir skemmstu og hér á
eftir fer stutt samantekt yfir verðlaun ár-
sins.
Plata ársins og Operuplata ársins er Ru-
salka eftir Dvorák, en með aðalhlutverk fara
Renée Fleming, Ben Heppner, Franz
Hawlata og Dolora Zajick. Sir Charles
Mackerras stjórnar tékknesku sinfón-
íuhljómsveitinni. Decca gefur út.
Eldri tónlistarplata ársins er plata með
verkum Dufays í flutningi Binchois Consort
sönghópsins undir stjórn Andrew Kirkmans.
Hyperion gefur út.
Barrokksöngplata ársins er útgáfa Har-
monia Mundi á óperu Alessandros Scarlattis,
Cain, overo il primo omicidio. René Jacobs
stýrir Academy for Acient Music í Berlín, en
helstu söngvarar eru Graciela Oddone, Dor-
othea Röschman, Bemarda Fink og Richard
Croft.
Barrokkseinleiksplata ársins fiutningur
Carole Cerasi á slaghörpuverkum Jacquet
de la Gueree. Metronome gefur út.
Kammerplata ársins kemur frá Hyperion.
Á henni leikur Florestan tríóið píanótríó eft-
ir Schumann.
Konsertplata ársins er með píanókonsert-
um Chopins í flutningi Martha Argerich og
sinfóníuhljómsveit Montreal-borgar undir
stjóm Charles Dutoit. EMI gefur út.
Einleiksplata ársins er með tónleikum
Arcadis Volodos í Camegie Hall, en á efnis-
skránni vom verk eftir Liszt, Rakhmaninoff,
Schumann og Skrjabín. Sony gefur plötuna
út.
Hljómsveitarplata ásins er með fjórðu sin-
fóníu Brakners í flutningi Sinfóníuhljóm-
sveitar Berlínar undir stjórn Gunthers
Wands. RCA gefur út.
Ljóðasöngplata ársins er með flutningi
Stephans Genz á söngljóðum Beethovens
Roger Vignoles leikur á píanó. Hyperion gef-
ur út.
Plata ársins í flokki tuttugustu aldar kam-
merverka er með ýmsum verkum eftir Elliot
Carter í flutningi Ursulu Oppens og Arditti
kvartettsins.
Auvidis Montaigne gefur út.
I flokki tuttugustu aldar konserta varð
hlutskörpust plata með pínaóverkum Ravels
í flutningi Krystians Zimmermans með
Cleveland hljómsveitinni og Sinfóníuhljóm-
sveit Lundúna undir stjórn Pierre Boulez.
Deutsche Grammophon gefur út.
Tuttugustu aldar hljóðfæraleiksplata ár-
sins er með Sequenzas eftir Lucio Berio sem
fjölmargir flytja. Deutsche Grammophon
gefur út.
Tuttugustu aldar óperaplata ársins er með
Maskarade eftir danska tónskáldið Nielsen.
Helstu hlutverk syngja Arne Haugland, Sus-
anne Resmark, Gert-Hening Jensen, Bo
Skovhus og Michael Kristensen, en Ulf
Schirmer stýrði dönsku ríkissinfóníunni og
Einsönas- og
sembaltónlist
í Dómkirkjunni
TÓNLISTARDÖGUM Dómkirkjunnar lýk-
ur með tónleikum í Dómkirkjunni sunnu-
daginn 14. nóvember kl. 20.30.
Sesselja Kristjánsdóttir syngur lög eftir
Petr Eben og H. Purcell og Marteinn H.
Friðriksson leikur á sembal kirkjunnar.
Hann mun leika sálmaforleiki og dúetta eft-
ir Bach sem fínnast í nótnabókinni Píanóæf-
ingar 3. hluti. Sesselja hóf söngnám í Skóla-
kór Kársness og var seinna hjá Rut
Magnússon í Tónlistarskólanum í Reykja-
vík. Síðustu árin hefur hún stundað fram-
haldsnám íBerlín.
kór danska ríkisútvarpsins. Decca gefur út.
Hljómsveitarverksplata ársins með tutt-
ugustu aldar tónlist var valin plata frá Decca
með safni verka eftir bandaríska tónskáldið
Edgar Varése. Flytjendur era kór fílhar-
móníuhljómsveitar Prag, ASKO hljóðfæra-
flokkurinn og Konunglega Consertgebouw
hljómsveitin, Riccardo Chailly stjórnar.
Söngvarar era ýmsir, en tónskáldið sjálft
leggur til rafeindaleik.
A plötu ársins með tuttugustu aldar tónlist
syngur barytonsöngvarinn Matthias Goeme
verk eftir Eisler við píanóundirleik Erics
Schneiers. Decca gefur út.
Samtímatónlistarplata ársins er með verk-
um japanska tónskáldsins Tora Takemitsu í
flutningi London Sinfonietta og píanóleikar-
anna Pauls Crossleys og Peters Serkins, en
Oliver Knussen stjórnaði. Þess má geta að
Tryggvi Tryggvason sá um hljóðvinnslu og
fær sérstakt lof fyrir. Deutsche Grammop-
hon gefur út.
Söngplata ársins er með söngkonunni Re-
né Flemming, sem einnig kom við sögu í
plötu ársins / óperaplötu ársins. Á plötunni,
sem Decca gefur út, syngur Flemming ýmis
verk, þar á meðal eftir Barber, Bernstein,
Gershwin og Stravinskíj. Decca gefur út.
Ritstjórar Gramophone heiðra sérstak-
lega útgáfuröð Naxos-útgáfunnar á breskri
tónlist, en einnig fær heiðursverðlaun pían-
óserían mikla Great Pianists, sem gefur sýn-
ishorn af píanóleik allra helstu píanóleikara
tuttugustu aldarinnar.
Listamaður ársins var valinn Martha Ar-
gerich, sem átti og konsertplötu ársins, en
Isaac Stern er heiðraður fyrir ævistarf sitt í
þágu tónlistar.
GUÐJÓN Óskarsson bassa-
söngvari er nýkominn heim frá
Bilbao á Spáni, þar sem hann
söng hlutverk Fasolts í upp-
færslu á Rínargulli Richards
Wagners. Hann hefur þar með
náð þeim áfanga að syngja öll
bassahlutverkin fimm í Nifl-
ungahring tónskáldsins á sviði.
Fyrsta hlutverkið sem Guð-
jón tókst á hendur var hinn
bassinn í Rínargullinu, Fáfnir,
í uppfærslu Norsku óperunn-
ar, þar sem hann var fastráð-
inn á sínum tíma. Það hlutverk
söng hann einnig í minnis-
stæðri tónleikauppfærslu á La
Scala á Italíu en Kristinn Sig-
mundsson söng þá Fasolt.
Því næst sneri Guðjón sér að Hundingi í
Valkyrjunum. Það hlutverk söng hann
bæði í Noregi og á Spáni.
Fáfnir er líka bassi í Sigurði Fáfnisbana
og hann glímdi Guðjón við í Noregi.
Stærsta bassahlutverk „Hringsins",
Högni í Ragnarökkri, tókst Guðjón á hend-
ur í Noregi.
Lokaáfanganum, Fasolt, náði hann svo,
sem fyrr segir, í Bilbao á dögunum.
„Já, já. Það er rétt, ég er búinn að fara
hringinn," segir Guðjón þegar þetta er bor-
ið undir hann. Segir hann það hina prýði-
legustu tilfinningu. „Þetta hefur verið
spotti en vel þess virði."
Guðjón kveðst þó ekki vera fyrsti Islend-
ingurinn til að ná áfanganum - Viðar
Gunnarsson hafí gert það fyrir nokkrum
árum.
Guðjón segist vera að færa
sig sífellt meira yfir í verk eftir
Wagner, innan „Hrings" og ut-
an. „Eg hef verið að biðja um-
boðsmenn mína að leita þessi
hlutverk uppi. Bæði er þetta
alveg stórbrotin músík og svo
henta þessi hlutverk mér svo
vel. Það er líka spurn eftir
Wagner-söngvurum um þessar
mundir, þannig að þetta smell-
ur allt saman. Ég tek þó fram
að ég er alls ekki að hætta 1
öðru."
En hvert er uppáhaldshlut-
verkið af þessum fimm?
„Högni. Á því leikur ekki
vafi. Það er langstærst og
mest krefjandi. Mér líður líka best í því
hlutverki, það passar mér svo vel. Þrátt
fyrir að hlutverkið sé yfirgripsmikið finn
ég aldrei fyrir þreytu að sýningu lokinni
-gæti þess vegna skellt mér strax í aðra
sýningu," segir Guðjón og hlær.
Söngvarinn er staddur í fríi hér heima
þessa dagana en fljótlega leggur hann leið
sína til Noregs, þar sem hann kemur fram
á nokkrum tónleikum.
í janúar og febrúar bíða Guðjóns tvö
verkefni með Sinfóníuhljómsveit íslands,
fyrst Níunda sinfónía Beethovens og svo
Áida Verdis í Laugardalshöll.
I vor verður hann síðan á ferð í Sa-
lzborg, þar sem hann mun taka þátt í upp-
færsluin á Trójumönnum Berlioz og Trist-
an og Isold eftir Wagner.
MENNING/
LISTIR
NÆSTU VIKU
MYNDLIST
Ásmundarsafn
"|ííji^^ý[n(iifg^|^^kum Ásmundar Sveins-
sonar.
Gallerí Fold, Rauðarárstíg 14
Soffía Sæmundsdóttir. Til 28. nóv.
Gallerí Fold, Kringlunni
Brian Pilkington og Gunnar Karlsson.
GalleriÉhlemmur.is. Þverholti 5
Baldur J. Baldursson og Rristinn Pálmason.
Til 21. nóv.
Gallerí Smíðar og Skart, Skólavörðustíg
16a
Ragnheiður Ingunn Ágústsdóttir. Til 4. des.
Gallerí Stöðlakot
Eirún Sigurðardóttir. Til 14. nóv.
Gallerí Sævars Karls, Bankastræti
Stephan Stephensen. Til 19. nóv.
Gerðarsafn, Listasafn Kópavogs
Bjarni Sigurbjörnsson, Guðrún Kristjáns-
dóttir, Helga Egilsdóttir og Gujón Bjarna-
son.Til 21. nóv.
Gerðuberg
Þetta vil ég sjá: Friðrik Þór Friðriksson. Til
14. nóv.
Hafnarborg
Sverrissalur: Sigurður Magnússon. Aðalsa-
lur: Jón Baldur Hlíðberg. Til 13. des.
Hallgrímskirkja
Jón Axel Björnsson. Til 28. nóv.
Hönnunarsafn íslands, Garðatorgi
íslensk hönnun frá 1950-1970. Til 15. nóv.
i8, Ingólfsstræti 8
Magnús Pálsson. Til 5. des.
Kjarvalsstaðir
Grafík í mynd: innlendir og erlendir lista-
menn. Ragna Róbertsdóttir. Til 19. des.
Listasafn ASI
Ásmundarsalur og Gryfja: Elsa Dóróthea
Gísladóttir, Guðrún Vera Hjartardóttir,
Helgi Hjaltalín, Hreinn Friðriksson, Jón
Bergmann Kjartansson, Pétur Örn Frið-
riksson og Sólveig Þorbergsdóttir. Til 14.
nóv. Arinstofa: Verk úr eigu safnsins.
Listasafn Akureyrar
Stefán Jónsson og Dauðahvötin, yfirlitssýn-
ing á vegum safnsins. Til 5. des.
Listasafn Einars Jónssonar
Opið laugardaga og sunnudag kl. 14-17.
Höggmyndagarðurinn opinn alla daga.
Listasafn Islands
Ásgrímur Jónsson í Skaftafellssýslum.
Fimm Súmmarar. Til 28. nóv. Kaffistofa:
Málverk Dunganons. Til 31. des.
Listasafn Siguijóns Ólafssonar
Valin verk eftir Sigurjón Ólafsson.
Mokkakaffi
Tennur og list: Ljósmyndaverk Snorra Ás-
mundssonar. Til 3. des.
Norræna húsið
Lifi Kalevala. Til 31. des.
Nýlistasafnið
Anna Júlía Friðbjörnsdóttir, Cathrine Evel-
id, Helga G. Óskarsdóttir, Ingvill Gaarder,
Ólöf Ragnheiður Björnsdóttir og Stine Ber-
ger. Til 14. nóv.
One o one Gallerí, Laugavegi 48b
Haraldur Jónsson.
Stofnun Árna Magnússonar, Árnagarði v.
Suðurgötu
Handritasýning opin þriðjudag-föstudaga
kl. 14-16. Til 15. maí.
TÖNLIST
Laugardagur Salurinn, Kóapvogi: Píanót-
ónleikar Jónasar Ingimundarsyni. Kl. 16.
Víðistaðakirkja, Hafnarfírði: Páll Jóhann-
esson og Ólafur Vignir Albertsson. Kl. 16.
Norræna húsið: Popp-Kalevala. Kl. 20.30.
Sunnudagur
Norræna húsið: Ævintýratónleikar fyrir
börn. Kl. 13.
Salurinn Kópavogi: Færeyska Kammer-
sveitin Aklurbáran. Kl. 16.
Listasafn íslands: Sönghópurinn Gríma. Kl.
20.
Salurinn Kópavogi: Einleikstónleikar CAP-
UT, Guðni Franzson. KI. 20.30.
Dómkirkjan: Sesselja Kristjánsdóttir. Kl.
20.30.
Þriðjudagur
Salurinn, Kópavogi: Lúðrasveitin Svanur.
Kl. 20.
LEIKLIST
Þjóðleikhúsið Meira fyrir eyrað: Þórarinn
Eldjám og Jóhann G. Jóhannsson, lau. 13.,
sun. 14. nóv.
Tveir tvöfaldir, lau. 13. nóv.
Glanni glæpur í Latabæ, sun. 14. nóv.
Krítarhringurinn í Kákasus, frams. fim. 18.
nóv. Fös. 19. nóv.
Abel Snorko býr einn, lau. 13. nóv.
Fedra, sun. 14. nóv.
Borgarleikhúsið
Vorið vaknar, sun. 14., fös. 19. nóv.
Litla hryllingsbúðin, lau. 13. nóv.
Fegurðardrottningin frá Línakri, fim. 18.
nóv.
Pótur Pan, sun. 14. nóv.
Leitin að vísbendingu..., lau. 13., sun. 14.
nóv.
Islenska óperan
Óperan Mannsröddin, mið. 17. nóv.
Baneitrað samband, lau. 13. nóv.
Hellisbúinn, sun. 14., fim. 18. nóv.
Loftkastalinn
SOS Kabarett, lau. 13. nóv.
Jón Gnarr, fös. 19. nóv.
Hattur og fattur, sun. 14. nóv.
Bíóleikhúsið, Bíóborginni við Snorrabr.
Kossinn, lau. 13. nóv.
Iðnó
Frankie & Johnny, fös. 19. nóv.
Gleym-mér ei og Ljóni Kóngsson, lau. 13.
okt.
Þjónn í súpunni, lau. 13. nóv.
100 eyja sósa, lau. 13., fös. 19. nóv.
Kaffileikluísið
Ó, þessi þjóð, lau. 13. nóv.
Ævintýrið um ástina, sun. 14. okt.
Tjarnarbíó
Töfratívolí, sun. 14. nóv.
Norræna húsið: Brúðuleikhús frá Eistlandi,
sun. 14.
Möguleikhúsið
Langafi prakkari, sun. 14., mán. 15., fös. 19.
nóv.
Einar Áskell, lau. 13. nóv.
Hafnarfjarðarleiklnísið
Salka ástarsaga, lau. 13., fös. 19. nóv.
Hugleikur
Völin & kvölin & mölin, lau. 13. nóv.
Leikfélag Akureyrar
Klukkustrengir, lau. 13. nóv.
Upplýsingar um listviðburði sem óskað er eftir að
birtar verði í þessum dálki verða að hafa borist
bréflega eða í tölvupósti fyrir kl. 16 á mið-
vikudögum merktar: Morgunblaðið, Menn-
ing/listir, Kringlunni 1, 103 Rvík. Mynds-
endir: 5691222. Netfang: menning@mbl.is.
Guðjón
Óskarsson
2 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS - MENNING/LISTIR 13. NÓVEMBER 1999