Lesbók Morgunblaðsins - 13.05.2000, Síða 8

Lesbók Morgunblaðsins - 13.05.2000, Síða 8
NORÐLINGAHOLT OG ÞINGNES Morgunblaðið/Golli Loftmynd af nordausturhluta Ellldavatns. Samkvæmt skodun greinarhöfundarins er Nordlingaholt næst á myndinni og skagar lítid eitt út í vatnid. Bærinn á Ellidavatni er lengst til hægri, en í baksýn er Heidmörk og fjallgarðurinn med Vífilsfell fyrir midju. Ijósm.: Guðmundur Víðir. Vetrarmynd af umhverfinu vld Ellidavatn og Nordlingaholti sem rís dökkleitt á midri myndinni vegna þess ad þad er skógi vaxid. Myndin er tekin mót austri af veglnum úr Breidholtl nfdur ad Ellidaánum. EFTIRGUÐMUND VÍÐI GUÐMUNDSSON í Þingnesi við Elliðavatn var Kjalarnesþing hið forna líklega háð. Þar voru veigamiklar ákvarð- anir um stofnun allsherjar- ríkis á fslandi teknar. Samt eru furðu fáir sem þekkja þennan merkilega stað og enn færri sem þekkja Norðlingaholt sem skagar lítið eitt út í vatnið, svo til beintá móti Þingnesi. AÐ ER skeinmtílegt tíl þess að vita þegar minna þekkt ömefni í nágrenni Reykjavíkur eru rifjuð upp og menn færa í letur hug- renningar sínar um tílvist þeirra. Verð ég þó að viðurkenna að sem staðkunnugum manni kom mér margt spánskt fyrir sjónir í tveimur greinum sem birtust hér í Lesbókinni í haust sem leið. Önnur þeirra birtist 23. október, eftir Indriða G. Þorsteinsson rithöíund, og bar yfirskriftina Norðlingaholt en hin 11. desember, nefndist Klapparholt - Norðlingaholt, eftir Ein- ar Bimi frá Grafarholtí. Það er tilgangur minn með þessum skrifum að staðsetja Norðlingaholtíð þar sem það á heima og varpa fram þeim tílgátum um tilurð ömefnisins sem til em og fjalla einnig um Þingnes við Elliðavatn þar eð nafngift Norðl- ingaholts kann að tengjast þinghaldi þar. Sem vænta má er grein I.G.Þ fjörlega skrifuð en ber þess vitni að höfundur mun ókunnugur staðháttum. Það svæði sem hann kallar Norðl- ingaholt heitir Klapparholtsmóar. Minnir I.G.Þ. á það sem gamall Norðlendingur að sveitungar hans, fyrri alda, hafi óefað komið saman á Norðlingaholti eftir skreiðarferðir sínar og geymt þar hesta sína meðan skroppið var til Reykjavíkur og dragi holtíð nafn sitt af því. Ekki er þekkt svo óyggjandi sé af hverju Norðl- ingaholt dregur nafn sitt en gmnur minn er sá að þær rætur liggi dýpra og fjær okkur í tíma en I.G.Þ. giskar á og jafnframt er ekki víst að leita þurfi norður yfir heiðar tíl að finna Norðlinga. E.B. staðsetur hins vegar Norðlingaholtíð ranglega og setur það þar sem efstu götur í Selás- hverfi em, þ.e. Þverás, Þingás o.s.frv. Tæpir E.B. einnig á því að misskiíningur I.G.Þ. stafí af götu- heitinu Norðlingabraut, vegi sem liggur eftir Klapparholtsmóum. Vegarheití þetta á fátt skylt með gömlum ömefnun að öðm leyti en því að það dregur nafti sitt af Norðlingaholti en vegurinn liggur einmitt frá Rauðavatni suður yfir Klappar- holtsmóa og endar efst á Norðlingaholtí. Staðsetning Norðlingaholts Norðlingaholt heitir hæðin sem er við norðan- vert Elliðavatn og blasir við á hægri hönd þegar ekið er frá Breiðholtí í áttína að Rauðavatni. Norðlingaholt tilheyrði áður Gröf (Grafarholtí) en Jens Eyjólfsson byggingarmeistari keyptí það og Selásinn á fyrri hluta aldarinnar. I kringum seinna stríð fór hann að sefja sumarbústaðalóðir á NorðKngaholtí en meðal þeirra fyrstu til að kaupa þar lönd vora kaupmennimir KrLstinn og Mar- teinn Einarssynir og Óskar Gíslason gullsmiður. Eftir að tveir þeirra höfðu reist bústaði réðust þeir í að leggja veg að bústöðunum og nefhdu hann Norðlingabraut, eftír holtinu. E.B. segir veginn sem Breiðholtsbrautin var lögð yfir hafa verið kallaðan Norðlingabraut, Ofanbyggðaveg eða Flóttamannaveg. Það er rangt hjá E.B. að þessi vegur hafi verið kallaður Norðlingabraut. Hann hét áður Elliðavatnsveg- ur og lá alla leið upp á Kaldárselsveg í Hafnar- firði. Ruglingur á veganöfnum gæti hins vegar stafað af því að beygt var útaf Suðurlandsvegi á sama stað, hvora leið sem menn ætluðu og veg- vísar því nálægt hvor öðmm. Flóttamannaveg- ur var kallaður sá hluti Elliðavatnsvegar sem lá frá Hafnarfírði að Vífílsstöðum. Byggir E.B. staðsetningu á ömefnaskrá afa síns, Bjöms Bjamarsonar alþm. í Grafarholti (Gröf). Ég hef kynnt mér þessa skrá og fleiri gögn hjá Omefnastofnun. Skráin er mjög ítarleg og vönduð að gerð og kemur vel heim og saman við þau ömefni sem ég þekki af því svæði sem hún tekur til, með undantekningum þó. Svo vitnað sé í handrit Bjöms Bjamarsonar: „Frá Klapparholtsmóum gengur þama mis- hæðóttur lyngmóahryggur suður í flatlendið, sem Elhðavatnsengjar eru á, og beygist Bugða fyrir hann, rennur meðíram honum og myndar þannig langt og eigi breitt nes eða odda. Syðst í oddanum er stór hóll eða holt, en í lægð norðan við hann hefur bær verið ogfleiri byggingar, eru þar rústir mjög fornlegar.“ Bjöm nefnir þennan lyngmóahrygg ekki neinu nafni. Syðri hluti þessa lyngmóahryggjar er Norðlingaholt en sá nyrðri Bakkaskyggnir eða Oddaskyggnir. í lægðinni þar á milli em rústir af bæ sem senni- lega hét Óddagerði eða Oddagerðisnes og er tal- ið að hafi lagst í eyði á 15. eða 16. öld. Svo aftur sé vitnað í handrit Bjöms: „Norðl- ingaholt, um uppruna þessa ömefnis er ókunn- ugt, en mér þykir líklegt að það stafí af umferð Norðlendinga þar. Þegar þeir fóm tíl Suður- nesja lá leið þeirra um MosfeUsheiði og yfír Mosfellssveit. Á fyrri öldum var lítið erinda til Reykjavíkur, sem þá var aðeins eitt býli.en hafí Norðlendingar farið þá leið, lá vegur þeirra meðfram Norðlingaholti að austan og sunnan." Þama staðsetur Bjöm Norðlingaholt þar sem efstu götur í Selási em í dag. Þetta hæðardrag hef ég séð nefnt Brekknaás en nyrsta hluta þess Sauðaskyggni en Sauðadal á milli þess og Seláss- ins. Bjöm staðsetur Brekknaásinn hinsvegar ut- an í Selásnum. Víst getur verið að fleiri en einn staður heiti sama naftú þótt stutt sé á milli. Þó hallast ég fremur að því að Bjöm fari rangt með staðsetningu Norðlingaholts í ömefiiaskrá sinni. Gröf var stór jörð og vel skipuð ömefnum enda hljóðar skrá hans upp á 320 ömefni. Það myndu fáir telja mikið þótt honum skjöplaðist um eitt. Þessa skoðun mína byggi ég annars vegar á því að æði gmnsamlegt er að jafn áberandi kennileiti og umræddur lyngmóahryggur er skuli vera nafnlaus, samanber skrá Bjöms, en holtið er sérstaklega áberandi þegar ekið er að austan framhjá Rauðhólum og litið er í átt tíl Helluvatns og ekki síður frá Elliðavatnsbænum og Vatnsenda. Hins vegar rökstyð ég skoðun mína á gögnum sem ég hef kynnt mér hjá Ör- nefnastofnum og víðar. Þar er Norðlingaholt í öllum tilvikum staðsett við Elliðavatn. Sumar þessar heimildir eru eldri en ömefnaskrá Bjöms sem birtist í Arbók hins íslenska fom- leifafélags árið 1914. Heimildir þessar em: Uppdráttur eftir Benedikt Gröndal frá 1880 af Elliðaánum frá upptökum til ósa (sjá mynd hér til hliðar), Daniel Braun getur Norðlingaholts 1897 þeg- ar Benedikt Sveinsson, faðir Einars skálds, sýn- ir honum Þingnes: ,ýtiþingismaðurinn Benedikt Sveinsson sýndi mér þingbúðir á nyrðri bakka vatnsins hjá holti sem nefnist Norðlingaholt.“ Ömefnaskrá sem Ari Gíslason, kennari á Akranesi og mikilvirkur ömefnasafnari, skráði eftir Helgu Bjömsdóttur frá Grafarholti (dóttur Bjöms Bjamarsonar alþm.). „Vestur við Bald- urshaga (Klapparholt) em Klapparholtsmóar sem hggja suður með Bugðu. Þar suður af fast við ána er holt sem heitir Norðlingaholt, þar vom margir götu tmðningar.“ Kort Steindórs Bjömssonar frá Gröf (bróður Helgu frá Grafarholtí) en hann merkir Norðl- ingaholtið inn á kortið við Elliðavatn. Eftirfarandi var skráð eftir Tryggva Einars- syni frá Miðdal sem var fæddur þar 1901 og bjó þar alla tíð. „Fyrir norðan Hólmsá (Bugðu) nokkurnveginn norður af EUiðavatnsbænum, er aUstórt nes eða tangi, sem Oddagerðisnes heitir. Þar var býh eða hjáleiga, sem Oddagerði hét. Síðast þegar ég fór þar um, sást þar rétt fyrir veggjum. Há hæðina norðan til á nesinu heyrði égnefnda Norðlingaholt." Einnig kemur Norðlingaholtíð fyrir í öm- efnaskrá yfir jörðina Elliðavatn og er heimildar- maður Eggert Norðdahl frá Hólmi. Auk þessa kemur Norðlingaholt viða fyrir í skrifum Áma Óla blaðamanns um Kjalames- þing eins og kemur fram síðar í greininni. Tilurð örnefnisins Tvær skýringar hef ég heyrt um nafngift Norðlingaholts. Ónnur er sú að holtið dragi nafn sitt af ferðum Norðlendinga suður með sjó á vetrarvertíð og á vorin til skreiðarkaupa. Mun leið þeirra þá hafa legið yfir Mosfellsheiðina og skildust leiðir þeirra í nágrenni Norðlingaholts eftir því hvert á nesin áttí að fara. Á sama hátt urðu endurfundir þegar menn vom á norður- leið. Fyrr á öldum var lítil ástæða til að leggja lykkju á leið sína til Reykjavíkur því hún var þá h'tið meira en venjulegt býli. Nokkm austan við Norðlingaholt em gamlar götur sem heita Norðlingagötur. Er þetta alfaraleið og hún víða vörðuð ömefnum sem tengjast norðanmönnum, s.s. Norðlingavað og Norðlingaháls. Fremur ósennilegt fínnst mér að Norðlendingar hafi haft viðkomu við Norðlingaholt á suðurleið því það er alveg í hvarfi þangað til komið er vel framþjá því, en á norðurleið blasir það hinsveg- ar við þegar komið er upp á hæðimar sunnan megin við Elliðavatn. Ef norðanmenn ætluðu sér áningu við Norðlingaholt urðu þeir hinsveg- ar að leggja lykkju á leið sína og fara að óþörfu yfir Bugðu. Þótt hún sé ekki vatnsmikil er hún víðast ill yfirferðar á þessum slóðum sökum þess hve holbekkt hún er og botninn leðjubor- 8 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS - MENNING/LISTIR 13. MAÍ 2000

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.