Lesbók Morgunblaðsins - 13.05.2000, Síða 11
Útsýni ofan úr brekkunni yfir Minjasafnsgarðinn, kirkjuna frá Svalbarði og tengst til hægri sést í
Minjasafnið. Nýlega kom í Ijós við mællngar að tvö tré í garðinum, birki og reyniviður, eru hæstu
tré á jsiandl, bæði á 15. metra.
Leikfangahornið með þjóðlegum leikföngum eftir George Hollanders,
Verzlunarvara frá miðöldum, skinn, vaðmál, korn og skreið þar á meðal.
Kirkjuklukkur frá Þönglabakka í Fjörðum.
Steinpottur sem fannst á landnámsbýlinu Granastöðum.
Endurgerður ofn úr Jarðhýsi á Granastöðum.
saumuð klæði. Kljásteinar fundust á Grana-
stöðum; þar hefur verið vefstaður, en á sýn-
ingunni hefur verið settur upp kljásteina-
vefstaður sem Gunnar Bjarnason smíðaði
eftir ýmsum fyrirmyndum og heimildum frá
Þjóðminjasafninu, en Áslaug Sverrisdóttir
vefnaðarkennari setti upp vefinn. Þessi iðnað-
ur var í þeim mæli að vaðmál varð mikilvæg
útflutningsvara á miðöldum.
Á sýningunni er sagt frá verzlun lands-
manna á miðöldum í stuttum textum og sýnis-
horn eru af verzlunarvarningi frá þessu tíma-
skeiði, þar sem m.a. eru ýmis skinn og 20 álnir
af ofnu vaðmáli.
Kirkju- og klaustradeiid
Þetta er veigamikill hluti sýningarinnar um
Eyjafjörð frá öndverðu. Enda þótt kirkjur
væru forgengilegar hafa ýmsir góðir gripir úr
þeim varðveitzt. Á sérstökum kristnitöku-
standi er eftirgerð í réttri stærð af Krists-
myndinni frá Ufsum í Svarfaðardal, unnin af
Sveini Ólafssyni myndskera. Einnig kopar-
bjalla úr bænhúsi á Öngulsstöðum í Eyjafirði
og fer vel á því að hafa með henni brot úr
Klukkukvæði Hannesar Péturssonar. Athygli
vekja einnig tvær stórar kirkjuklukkur frá því
um 1300, og þá ekki sízt fyrir að þær eru frá
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS - MENNING/LISTIR 13. MAÍ 2000 1 1