Lesbók Morgunblaðsins - 13.05.2000, Side 13

Lesbók Morgunblaðsins - 13.05.2000, Side 13
Snjóþyngsti í Mýrdal síðastliðinn vetur. Ljósmynd/Steinunn Ósk Snjóþyngsll á Hvolsvelli síðastliðinn vetur. ÁRNIGRÉTAR FINNSSON EYJAN OG ÞJÓÐIN Upprunnir úr austurvegi afkomendur víkinganna, erfðum þaðan heift oghörku, hefnigirni vígamanna. írsku blóði blöndumst líka, bættist þar við stofnsins vanda þrjóskulega þrætugirnin, þótti mögnuð kynsins blanda. Danskir karlar komu síðar, kyniðjuku allavega, gamla stofnsins geðslag mýktu, gerðu okkur þolanlega. Sjóarar frá suðurlöndum sóttu mið um bjartar nætur tóku land ogseint á sumrum seiddu til sín landsins dætur. Heljarvetur, hafísbreiður, hungurvofur, fólkið hrundi, svartidauði, erlend ánauð, yfir þessa smáþjóð dundi. Kyniborni kjarnastofninn kvarnaðist, en hélt samt velli; fangbrögð söm ogforðum daga, fágæt seigla allt til elli. Biðu síðar betri dagar, birti til á norðurslóðum. Tæknin veitti tækifærin. Tókum sess með frjálsum þjóðum. Flæðir nú um frónskar byggðir fólk frá ótal heimsins löndum, festir rætur, friðar nýtur, finnurskjól á íshafsströndum. „Eyjan hvíta“ er sem forðum undur þeim, sem hennar leita, agar börn sín eins ogmóðir, ástúðþeim mun líka veita. Eld ogjökla, öldur hafsins, öræfi með töfra hljóða, unaðsreiti, ást sem varir, „Eyjan hvíta“þeim mun bjóða. Höfundurinn er lögmaður i HafnarfirSi. TRYGGVIV. LÍNDAL GOÐSAGA UM ÍSLAND Er skiptu með sér heiminum Seifur, Póseidon ogHades, rifust þeir um Thule; þokuslædda eyju í norðri: Póseidon taldi hana sína, enda umlukta hvítfextu hafí; en Seifí fannst að sökum stöðugleika vætu, vinda, væri hún himneskrar ættar. Hades hélt sig þó eiga vísar allar skrælingjasálirnar þar. Svo fóru loksins leikar að Seifur breytti körlum öllum í hvíta fugla himinsins, en Póseidon gerði kvenfólkið að gráum selum sjávardjúpsins. Lét svo Hades eftir eyna þá grályndu í norðri ernefndist Ultima Thule, enn um allnokkra hríð... Höfundurinn er skáld og þjóSfélagsfræS- ingur í Reykjavík. ISLENSK VEÐURMET 6 SNJÓ- DÝPT EFTIRTRAUSTA JÓNSSON NJÓDÝPTARMÆLINGAR eru erfiðar hér á lándi. Það er einkum tvennt sem kemur til. í fyrsta lagi er skafrenningur algengur. Hann veldur því að snjór er sjaldnast jafnfallinn og oft eru risavaxnar fannir innan um marauð svæði. I öðru lagi eru blotar algengir ofan í snjó en þeir flýta mjög umbreytingu snævarins í klaka. Sé klakinn mikill getur hann verið um- talsverður og illmælanlegur hluti snjódýptar- innar. Veðurathugunarmönnum er því oft vandi á höndum. Mjög er misjafnt eftir at- hugunarstöðvum hvernig snjóalög eru al- gengust. Auðveldast er að mæla snjódýpt á stöðvum þar sem vindur er tiltölulega hægur og snjór liggur án spilliblota. Til viðbótar þessum erfiðleikum eru snjódýptarmælingar oft sérlega erfiðar þegar mjög mikill snjór er á jörðu. Þá geta athugunarmenn átt erfitt með mælingamar og dýptin er þá oft talin í heilum tugum sentímetra. Fyrstu reglulegu snjódýptarmælingarnar voru gerðar hér á landi upp úr 1920. Mælingar voru aðeins gerðar á fáum stöðvum í byrjun og þótt þeim hafi smám saman fjölgað er mjög lítið um langvarandi samfelldar mælingar. Snjódýpt- armet byggða landsins í heild er aðeins fárra ára gamalt og líklegt má telja að það standi ekki mjög lengi því í kjölfar snjóflóðahamfar- anna fyrir nokkmm ámm hefur mjög aukin áhersla verið Iögð á meiri og betri snjódýpt- armælingar. Meðal annars hefur snjóstikum verið komið fyrir í nokkmm fjallshlíðum. Varla þarf að taka fram að snjór er þar víða mun meiri en á veðurstöðvunum, en stað- hættir era líka aðrir og ekki til samanburðar aðstæðum á veðurstöðvunum. Jöklar liggja líka yfir um tíunda híuta landsins og ofan á þeim em stöku sinnum gerðar sérstakar snjódýptarmælingar sem ekki eru heldur til umfjöllunar hér. Veturinn 1994 til 1995 var mjög snjóþung- ur um stóran hluta landsins. Fram að þeim tíma hafði snjódýpt mælst mest á Horn- bjargsvita. Það var 20. janúar 1974, 218 cm. Tvö eftirminnileg hríðarveður gerði veturinn 1995. Hið fyrra var dagana 15. til 19. janúar og er kennt við Súðavíkursnjóflóðið. Þá snjóaði mjög mikið á Norðurlandi í vestanátt sem er sjaldgæft og lögðust miklar fannir á óvenjulega staði. Einnig var óvenju mikil snjókoma ofan til í Borgarfirði og í Dölum. Seinni hríðin var 16. til 17. mars og má kannski nefna Svínhólsbyl, því þá lagði svo mikinn snjó að bænum Svínhól í Miðdölum að stórtjón varð af þrátt fyrir að reynt væri með hjálp stórvirkra vinnuvéla að halda snjó frá húsum meðan á hríðinni stóð. Sjálfsagt hefur einhver snjór úr fyrri byljum vetrarins verið á ferðinni. En næstu daga á eftir féll Horn- bjargsvitametið. Við Skeiðsfossvirkjun mæld- ust 279 em að morgni 19., 220 cm í Kálfsár- koti í Ólafsfirði 21. og 230 cm mældust í Hvannstóði í Borgarfirði eystra 18. Á þessum stöðvum var alhvítt allan mánuðinn og meðal- snjódýpt við Skeiðsfossvirkjun var 247 cm. Það er mesta meðalsnjódýpt sem vitað er um á veðurstöð hér á landi. Snjódýpt hefur verið mæld í Reykjavík að mestu samfellt frá 1921. Aðstæður til mæl- inga hafa þó verið misgóðar. Fram til 1945 var stöðin í gamla miðbænum. Fyrst við Skólavörðustíg, en síðan í Landssímahúsinu. Þó að á þessum tíma hafi snjóraðningar verið með öðram hætti og minni en nú er má samt gera ráð fyrir þvi að oft hafi reynst erfitt að mæla snjódýpt við Landssímahúsið þegar snjór hafði legið á jörðu í nokkra daga. Snjó- ruðningar og traðk trufluðu einnig mælingar við flugvöllinn, en þar var mælt á árunum 1950 til 1973. Greinileg ósamfella er í snjó- mælingunum við flutninginn að núverandi Veðurstofuhúsi. Hún kemur ekki fram í mæl- ingum á mestu snjódýpt og varla heldur í mati á heildarsnjóhulu, en hins vegar virðist í eldri mælingum snjódýpt minnka hraðar þeg- ar snjórinn fer að liggja en gerir í mælireit Veðurstofunnar. Langsennilegasta skýringin er að traðk og umsvif hafi truflað á eldri mælistöðvunum. En þetta auðveldar ekki samanburð á snjóafari einstakra vetra á þessu 80 ára tímabili. Mesta snjódýpt sem mælst hefur í Reykja- vík er því miður ekki alveg á hreinu upp á dag og upp á sentímetra. í margköflóttri sögu veðurstöðvarinnar var tímabil þar sem athug- anir vora færðar í tvær bækur. Annars vegar hefðbundna veðurskeytabók, en hins vegar í sérstaka dagbók þar sem era ýmsar viðbótar- upplýsingar. Þessi síðarnefnda bók gefur að öðra jöfnu betri og samfelldari upplýsingar um snjóhulu heldur en hin. Svo bregður hins vegar við þegar litið er á janúar 1937 að snjó- dýptarfærslur era nokkuð óreglulegar. Fram kemur að alhvítt var fyrstu 20 daga mánaðar- ins og að kvöldi 20. gerði afgerandi hláku. Snjóhula er ekki gefin upp eftir það. Snjódýpt er tilfærð fyrstu tvo dagana en síðan ekki fyrr en 11, þá er hún ekki nema 3 cm. Hinn 15. fór að snjóa að ráði og að morgni 17. mældist snjódýptin 25 cm. Síðan er snjó- dýpt næst tilfærð 20. og var hún þá 51 cm. Skeytabókinni ber saman, en þar má einnig sjá að snjódýpt var mæld þ. 18. og þá 55 cm, að því er virðist. Eitthvert hik hefur því mið- ur verið á athugunarmanni því 55 virðast hafa verið skrifaðir ofan í 45. Og hvort er svo rétt? Er metið 51 cm 20. eða 55 cm 18.? Sé litið nánar á úrkomumælingar og veður virðist að- alsnjókoman hafa verið 16. og 17. Samfelld snjókoma hófst að kvöldi fyrri dagsins og stóð í u.þ.b. sólarhring. Eins og kom fram að ofan var snjódýptin 25 cm 17., síðan mældist úrkoman næsta sólarhring 24 mm. Ekki er því ótrúlegt að 50 cm múrinn hafi verið rofinn strax 18. og 55 cm séu því rétt tala og met. En reyndar snjóaði dálítið bæði síðari hluta dags 18. og 19. Vindur var fyrst fremur hægur af suðaustri mesta snjó- komudaginn, en síðan virðist mesti snjórinn hafa fallið í logni. Aðeins skóf síðari daga. . Hiti var rétt við frostmark. Umferð nánast stöðvaðist og mjólkurskortur varð í bænum og í blöðum er talað um 50 til 60 sentímetra jafnfallinn snjó. Höfundurinn er veðurfræðingur. LESBÓK MORGUNBLAÐSINS - MENNING/USTIR 13. MA( 2000 1 3

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.