Lesbók Morgunblaðsins - 13.05.2000, Síða 16

Lesbók Morgunblaðsins - 13.05.2000, Síða 16
HÚS SVEINS BJÖRNSSONAR í KRÝSUVÍK OPNAÐ GESTUM í SUMAR Ljósmynd/Erlendur Sveinsson Sveinshús í Krýsuvík, sem Hafnarfjarðarbær hefur nú afhent Sveinssafni til eignar. Húsið verður í fyrsta sinn opið almenningi sunnudaginn 11. júní nk. „HÚSIÐ ER KANNSKI STÆRSTA LISTAVERKIÐ" A hvítasunnudagy hinn 11. júní nk., verður Sveinshús í Krýsuvík, þar sem Sveinn Björnsson listmálari hafói um árabil vinnustofu sína, opnað eftir gagngerar endurbætur, en í gær afhenti Hafnarfjarðarbær Sveinssafni húsið. MARGRÉT SVEINBJÖRNSDÓTTIR átti tal við tvo af þremur sonum listamannsins, Erlend og Þórð, en þeir hyggjasttaka þar á móti gestum og veita þeim innsýn í líf og list föður síns. Morgunblaðið/Árni Sæberg Sveinn Björnsson fyrir utan húsið í Krýsuvík með eitt verka sinna, Madonnan yfir Kleifarvatni. SVEINSSAFN var formlega stofnað 28. apríl 1998, ári eft- ir andlát Sveins Björnssonar. Safnið er til húsa í Trönu- hrauni 1 í Hafnarfirði og hef- ur að geyma rúmlega átta þúsund myndverk listamanns- ins, en synir hans hafa á und- anfömum árum unnið að flokkun og skrán- ingu verkanna. Bæjaryfirvöld í Hafnarfirði hafa nú afhent Sveinssafni húsið í Krýsuvík til eignar ásamt tveggja milljóna króna styrk til endurbóta og viðhalds hússins, sem synir listamannsins, Erlendur, kvikmynda- gerðarmaður, Sveinn, læknir, og Þórður Heímir, lögfræðingur, munu hafa umsjón með. „Þar með verður Sveinshús ekki aðeins órjúfanlegur hluti Sveinssafns, heldur raun- verulegt andlit þess út á við,“ segir Erlend- ur. Ætlun þeirra bræðra er að varðveita hús- ið eins og faðir þeirra skildi við það og hafa það þannig til sýnis en jafnframt hyggjast þeir setja upp breytilegar sýningar í tveim- ur herbergjum á fyrstu hæð, sem verða lag- færð lítillega. í framtíðinni láta þeir sig einnig dreyma um sýningaraðstöðu utan- húss. Bræðumir fagna gjöf Hafnarfjarðar- bæjar, sem þeir segja höfðinglega og lýsa virðingu bæjaryfirvalda fyrir æviverki Sveins Björnssonar og trausti á því sem þeir era að gera í þágu listar hans. Sveinshús opið altnenningi þrjó sunnudaga í sumar Framkvæmdir eru nú að hefjast í Sveins- húsi og þótt ekki takist að ljúka þeim að fullu nú í vor hefur þegar verið ákveðið að hafa húsið opið almenningi þrjá sunnudaga í sumar; 11. júní, 16. júlí og 20. ágúst. Þá verður þar dagskrá í tengslum við árþús- undaverkefni Hafnarfjarðarbæjar, sem aftur tengist dagskrá Reykjavíkur menningar- borgar Evrópu árið 2000, og hefur yfir- skriftina Krýsuvík - samspil manns og nátt- úra. Húsið var reist árið 1948 fyrir bústjóra kúabús sem átti að reka í Krýsuvík en ekk- ert varð úr. Stjórnendur vinnuskóla sem starfræktur var á vegum Hafnarfjarðarbæj- ar í Krýsuvík á áranum 1953-64 notuðu hús- ið í stuttan tíma en eftir það grotnaði það niður. Árið 1974 fékk Sveinn Björnsson síð- an húsið til afnota og kom sér þar upp vinnustofu, þar sem hann starfaði allt þar til hann lést árið 1997, auk þess sem hann dvaldi löngum í íbúð á efri hæð hússins. „Það vora svo margir sem vora alltaf á leið- inni í Krýsuvík að heimsækja föður okkar - en svo dó hann og ekkert varð af því,“ segir Erlendur og bætir við að það verði gaman að geta opnað húsið gestum á ný og veitt þeim hlutdeild í sköpunarverkum lista- mannsins. Æviverk Sveins Björnssonar verði tekið út Andi Sveins svífur áfram yfír vötnum í Krýsuvík, þar sem hann var jarðsettur, en þá hafði ekki verið jarðað þar í áttatíu ár. „Þegar staðið er við leiðið og horft í gegnum sáluhliðið blasir bláa húsið hans við, þannig að það er bein tenging. í gömlu kirkjunni, sem er í vörslu Þjóðminjasafnsins, er svo altaristaflan sem hann málaði," segir Er- lendur. „Húsið í Krýsuvík er kannski stærsta listaverkið sem faðir okkar skilur eftir sig, þar eru allar hurðir með ámáluðum lista- verkum, sömuleiðis loft og veggir og lista- verk hanga á veggjum í öllum herbergjum eftir hann og aðra,“ segir Þórður. Þeir bræður láta þess getið að faðir þeirra hafí lengi átt sér þann draum að stofna listasafn. Hann hafi gert mikið af því að skipta á myndum við aðra listamenn og einnig keypt verk af kollegum sínum. „Okkur telst svo til að í safninu séu um 300 verk eftir aðra,“ segir Erlendur. Þar er einnig stórt úrklippu- safn um listir á íslandi og mikill fjöldi lista- verkabóka sem Sveinn safnaði, sýningar- skrár og sendibréf. Erlendur segir Sveinssafn stærst þeirra listasafna landsins sem grandvölluð eru á verkum eins listamanns og þriðja stærsta listasafn landsins í verkum talið, eða með yf- ir átta þúsund skráð verk, en aðeins Lista- safn Reykjavíkur og Listasafn Islands varð- veiti fleiri listaverk. „Grundvallarmarkmiðið hjá okkur er auð- vitað að æviverk Sveins Björnssonar verði tekið út - og við erum að vona að ákvörðun okkar um að halda safninu saman í stað þess að skipta því og selja mælist vel fyrir hjá fólki og teljum það vera forsendu þess að hægt sé að gera þessa úttekt og marka hon- um þann sess sem honum ber í íslenskri listasögu. Raunveralega held ég að hvorki listfræðingar né aðrir hafi yfirsýn yfir hans æviverk,“ segir Erlendur. „Eiginlega eram við rétt að uppgötva það sjálfir," bætir Þórð- ur við. „Það hefur verið mikið ævintýri fyrir okkur að finna nýjar og nýjar myndir sem við höfðum aldrei séð áður - og jafnvel heilu myndlistarsýningarnar. Við fundum t.d. tvær sýningar sem höfðu ekki verið teknar upp eftir að hann kom heim frá Kaupmanna- höfn. Ég var reyndar síðast að finna sex myndir í Krýsuvík í gær, uppi í geymslu. Og ég sem hélt að við væram búnir að finna allt sem hann eftirlét okkur,“ segir Erlendur. Leitað að bláa fualinum eða Krýsuvíkurmaaonnunni Mikil vinna liggur að baki skráningu safnsins og drjúg vinna er enn eftir við ljós- myndun, skönnun og skráningu, að sögn bræðranna. Draumurinn er að í framtíðinni verði allt safnið aðgengilegt með uppslætti í tölvu, þar verði hægt að sjá mynd af um- beðnu verki, hvar það sé að finna, hvenær það sé unnið, í hvaða efni, hver sé eigandi þess, hvort og þá hvar það hafi verið sýnt og þannig mætti áfram telja. Verkunum verður skipt í efnisflokka, þannig að auðvelt verður að finna myndir eftir þemum, t.d. með því að slá inn leitarorð á borð við Blái fuglinn eða Krýsuvíkurmadonnan. Þessi skráningar- vinna er raunar þegar hafin. Þeir bræður eru með hugmyndir um að setja upp sér- stakar þemasýningar, sýningar fyrir fyrir- tæki og stofnanir og einnig að leigja út lista- verk til fyrirtækja og einstaklinga. Nú stendur yfir sýning sem þeir settu upp á Hrafnistu í Hafnarfirði í vetur í tilefni af 75 ára fæðingarafmæli listamannsins, en henni lýkur 9. júní nk. Áður höfðu þeir sett upp sýningu í Sjóminjasafninu í Hafnarfirði og í Hallgrímskirkju. Snemma á næsta ári er svo fyrirhuguð sýning á verkum Sveins í Hafn- arborg. Árviss listaverkasýning á dagatali Þó að styrkurinn frá Hafnarfjarðarbæ komi að góðum notum við að setja húsið í Krýsuvík í stand segja þeir Erlendur og 1 6 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS - MENNING/USTIR 13. MAÍ 2000

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.