Lesbók Morgunblaðsins - 13.05.2000, Síða 17
Vinnustofa Sveins Björnssonar listmálara eins og hann skildi við hana. Þessa mynd og hinar myndirnar úr Sveinshúsi, sem hér eru birtar, tók Árni Sæberg eftir andlát listamannsins.
Úr stofunni á neðri hæð hússins sér inn í vinnustofuna.
Þórður enn vanta mikið upp á að treysta
fjárhagsgrundvöll safnsins til frambúðar.
Þeir hafi raunar fengið byrjunarstyrki frá
menntamálaráðuneytinu og Hafnarfjarðar-
bæ - en betur má ef duga skal. Þeir hafa nú
sent velunnurum listmálarans og safnsins
bréf, þar sem þeim er boðið að kaupa í
áskrift listaverkadagatal með litprentunum
af verkum Sveins en það myndi koma út í
takmörkuðu upplagi og hvert eintak tölu-
sett. Áformað er að fyrsta slíka dagatalið
komi út í lok þessa árs og hefji þannig
göngu sína á fyrsta ári hins nýja árþúsunds.
Dagatölin hefðu m.a. það markmið að vera
ákveðin kynning á list Sveins, eins konar ár-
viss listaverkasýning.
Frá náttúruupplifun
listamannsins að listaverkinu
Aftur að Sveinshúsi í Krýsuvík og því
starfi sem þar er fyrirhugað. Erlendur lýs-
ir skoðunarferð um húsið á þessa leið: „Við
hugsum okkur að vera með ljósmyndasýn-
ingu sem leiðir fólk frá náttúruupplifun
listamannsins, í gegnum sköpun listaverks-
ins og að listaverkinu sjálfu inni í vinnu-
stofu. Þetta verða níu stækkaðar ljósmynd-
ir, þær fyrstu teknar fyrir ofan húsið, þar
sem hann er að skoða jörðina og taka inn
áhrifin, svo sjáum við hann vera að búa
myndina til - og svo er myndin sjálf þarna.
Við ætlum að taka fólk inn í litlum hópum,
leiða það í gegnum húsið og benda á öll
listaverkin sem eru partur af þessu húsi,
benda á ýmis stef, segja frá huldukonunni
hans, hver sé blái kallinn o.s.frv. Okkur
dreymir líka um að koma upp sjónvarps-
aðstöðu í stofunni og sýna þar búta úr
vinnukópíunni af kvikmyndinni sem ég er
að gera um föður okkar, líf hans og starf,
þannig að fólk sjái meistarann að störfum
og sömuleiðis myndir úr gagnagrunnin-
um.“ Eins og áður sagði hyggjast þeir
setja upp breytilegar sýningar í tveimur
herbergjum á fyrstu hæð hússins, auk þess
sem uppi eru hugmyndir um sýningar ut-
andyra og menningarmiðstöð í næsta ná-
grenni Sveinshúss, sem myndi hlúa að
Krýsuvíkursvæðinu í heild. Sé stór hópur
fólks á ferð má skipta honum upp, þannig
að á meðan hluti hans gengur um húsið í
fylgd leiðsögumanns geti hinir gengið að
Grænavatni eða Gestsstaðavatni, litið inn í
kirkjuna eða fengið sér kaffisopa í Krýsu-
víkurskóla. Nóg er að sjá í Krýsuvík, svo
mikið er víst.
Á þessari mynd sem tekin er í ganginum á nedri hæð hússins sést hvernig Sveinn málaði á allar
hurðir og jafnvel í loft, auk þess sem veggpláss var nýtt undir myndir.
Á ganginum á efri hæðinni gefur einnig að líta fjölda listaverka eftir Svein og aðra.
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS - MENNING/USHR 13. MAÍ 2000 1 7%