Tíminn - 24.12.1966, Síða 7
LAUGARDAGUR 24. desember 1966
TÍMINW
7
Tónabíó
Skot í myrkri
f Tónabíói verður sýnd mynd-i
in Skot í myrkri, og er hún í svip-j
uðum dúr og „Bleiki pardusinn",
fjallar um hinn Maufalega og
óheppna lögreglufulltrúa Clouseau
*em leikinn er af vinsæla gam-
anleikaranum Peter Sellers. Clau-
seau hefur verið fenginn til að
rannsaka morð sem framið hefur
verið á heimiii áhrifamikils auð-
manns Benjamins Ballon. Grunur(
feliur strax á þjónustustúlkuna
Mariu, en Clouseau er sannfærð-
ur um saMeysi hennar, enda er i
hann hka bálskotinn í henni, og
fær því framgengt að henni er
sieppt úr varðlhaldi. Snýr hún þá
aftur heim á setur Ballons, en
ekki er ein báran stök, annað
morð framið og aftur benda allar
líkur til þess að þar hafi Maria
verið að verM. Hún er hneppt í
fangelsi, en douseau tekst að fá
hana lábna lausa, og njósnar um
ferðir hennar, og gerast þá ýmsir
spaugilegir atburðir. Finnur hann
Maríu í nektarbúðum, og segir
hún honum að stalla hennar Dudu
sem einnig sé stofuþerna hjá
Balion hjónunum hafi fundizt
myrt þarna í nektarbúðunum. Það
má varla á tæpara standa, Dreyfus
lögreglustjóri er að koma þarna
með heila hersingu af lögreglu-
þjónum tii að taka Maríu fasta,
og Clouseau getur rétt með naum-
indum komið stúlkunni út í bíl
sinn, og aka þau nú' alls nakin
um borgina, þar sem þau lenda
í umferðarstöðvun, og vekja miMa
athygli vegfarenda eins og gefur
að sMlja. María er nú teMn föst
Audrey Hepburn í hlutverki Elizu Doolittle,
Austu rbæja rbíó:
My fair
Kvikmyndin My fair lady, sem
hefur farið sigurför viða um lönd
og ihlotið 8 Oscarsverðlaun verður
sýnd í Austurbæjarbíói um þessi
jól, og væntanlega talsvert leng-
ur, en fjöldi fólks hefur lengi beð-
ið eftir henni. Það er eiginlega
algjör óþarfi að rekja efni þess-
arar vinsælu kvikmyndar, flestum
er mæta vel kunnugt um litlu
óhreinu blómasölustúlkuna Elizu
Doolittle, sem breyttist í fína
hefðardömu fyrir tilstilli málfræð
ingsins Higgins. Það var hinn
meinfyndni og bráðgáfaði Georg
Bemhard Shaw, sem skóp þessa
skemmtilegu sögu undir nafninu
Pygmalion, en Alan Jay Lerner
lady
og Frederik Loewe breytti henni
í hinn hrífandi söngleik, sem fyrst
Var settur á svið í New York
árið 1956 og hefur farið sigurför
um allan heim, og var m.a. sýndur
hér í Þjóðleikhúsinu við metað-
só’kn fyrir röskum 4 árum. Nú
fáum við sem sagt að sjá Elizu
Doolittle á hvíta tjaldinu, leikna
af hinni frægu og undurfögru
Audrey Hepburn, sem sögð er
gera henni mjög skemmtileg skil.
Higgins er leikinn af Rex Harri-
son, og aðrir aðalleikendur eru
Stanley Holloway, Wilfred Hyde-
White og Gladys Cooper. Myndin
er flutt með Islenzkum texta Lofts
GuðmiMidssonar.
Viðureign í MáralandL
Lögreglufulltrúinn Clouseau og lögreglustjórlnn Dreyfus.
í þriðja skiptið, og Dreyfus lög-
regiustjóri tekur rannsókn máls-
ins úr höndiun fulltrúa síns, en
sér sig tilneyddan til að fela hon-
um það aftur, en einmitt um þær
mundir er fjórða morðið framið
á setri Ballons. En Clouseau, sem
er sannfærður um sakleysi Maríu
og er jafnframt mjög ástfanginn
af henni, tekst að finna morðingj-
ann og öjlast ástir Maríu, en það
gerist ekki fyrirhafnarlaust.
Bæjarbíó:
LEÐURBLAKAN
Bæjarbíó sýnir um jólin nýja
danska mynd, sem gerð er eftir
; óperettunni Leðurblakan eftir
j Strauss.. Mynd þessi var frumsýnd
I í ágúst sl. og hlaut frábæra dóma.
Beztu leikarar Dana koma þarna
fram, m.a. Ghita Nörby, Paul
Reirhard, Hoiger Juul Hansen og
Grethe Mogensen, svo að nokkuð
sé nefnt, en auk þess koma þarna
fram fjölmargfr söngvarar og dans
arar m.a. hafnfirzki listdansarinn
Jón Valgeir. Efnisþráðurinn er
i suttu máli þessi. Vinimir Gabrí
el von Eisenstein og dr. Falke
hafa verið á kjötkveðjuhátíð, og
eru nokkuð hátt uppi, er þeir
halda heimleiðis, Falk í leður-
blökugervi. Einhverra hluta vegna
skilur von Eisenstein vin sinn eft-
ir i skemmtigarði einum og þar
sofnar hann svefni hinna réttlátu
í Leðurblökugervinu, og daginn
eftir gerir fína fólMð í borginni
óspart grín af honum fyrir bragð-
ið. Falke hyggur á hefndir og
Hafnarfjarðarbíó:
Ein stúika og
39 sjómenn
Ein stúlka og 39 sjómenn heit-
ir jólamyndin í Hafnarfjarðarbíói.
Þetta er sprellfjömg og bráð-
skemmtileg dönsk gamanmynd, og
eins og nafnið bendir til fjallar
hún um stúlku, sem hefur hvorki
meira né minna en 39 sjómenn
í kringum sig. Þessi stúlka er loft-
skeytamaður á skipi, bráðlagleg
og sjarmerandi og eins og gefur
að skilja lendir hún í ótal ást-
arævintýrum úti á rúmsjó. En
ekki vitum við, hver af þessum
39 sjómönnum verður hlutskarp-
astur í keppninni um hana. Að-
alhlutverkið leikur Birgit Sadolin,
og meðal annarra leikara má
nefna Ove Sprogöe og Axel Strö-
by. Kvikmyndin er gerð eftir sam
nefndri danskri metsölubók.
Eisenstein er dæmdur í 10 daga
fangelsi fyrir að hafa talað illa
um fursta nokkurn.. Rússneski í
prinsinn Orloffsky hefur fengið
dr. Falke til að undirbúa skemmti|
atriði í veizlu milkiUi, sem hann,
ætlar að halda, og þama verður
Falk að hefnd sinni. ..
Leðurblakan eftir Strauas hef-
ur löngum verið köliuð drottning
óperettunnar, tónlistin er yndis-
leg og hrífandi, og efnið bráð-
fyndið, eins og þeir muna, er sáu
Leðurblökuna hér í Þjóðleikhús-
inu á ámnum .
tekst að ná sér niðri á vini sín-
í veizlu rússneska prinsins Orloffsky. A myndinni sézt (slenzkl Ustdans-
um, og fær kærkomið tækifæri er
arinn Jón Valgeir í hlutverkl sínu.
Kópvaogsbíó:
Stulkan og
milljónerinn
Danskar gamanmyndir h'afa
löngum átt miklum vinsældum að
fagna hér á landi, og mynd sú,
sem Kópavogsbíó sýnir nú um
jólin, er sögð með þeim albeztu,
er Danir hafi framleitt. Hún heit-
ir Stúikan og milljónerinn og í
aðalhlutverkum eru Dirch Pass-
er og Marlene Schwarts. Aðaisögu
hetjan er Jens Möller auðugur
forstjóri og eigandi stórs verzl-
unarfyrirtækis, og liíir hann
áhyggjulausu lífi, ókvæntur, en
i hefur þjón og einkabflstjóra til
að sjá um heimilishaldið og skrif-
stofustjóra til að sjá um verzl-
unarfyrirtækið. Allt leikur í lyndi,r
þar til Jens fær fyrir slysni leir-
kúlu í höfuðið og missir við það
minni. Af gögnum, sem hann finn
ur í jakka, sem honum er feng-
inn kemst hann að raun um að
hann heiti Sand, eigi konu og 5
jbörn, en standi í þrasi vegna
hjónaskilnaðar. Lifir nú Jens sem
Hinn frægi danski gamanleikari Dirch Passer í hlutverkl sínu.
Sand um hríð, og kynnist þá
Marlene, sem er þekktur píanó-
leikari. Hann hefur ekki .. jgmynd
um, að þau hafi verið gift, en
slitið sambúðinni fyrir tveimur ár
um. Af tilviljun hittir Jens einka-
bílstjóra sinn, sem færir honum
heim sanninn um, hver hann sé
í raun og vem. Hann snýr því aft-
ur til síns heima, kemst að því
að fyrirtækið er í mesta ólestri og
tekur sig til við að vinna það
upp. Hann heldur þó áfram að
umgangast Marlene. Skömmu síð-
ar fær hann að vita, að Marlene
er eiginkona hans, og þau hafi
aldrei verið skilin að lögum. Flýt-
ir hann sér þá á fund hennar og
vill taka þráðinn upp að nýju, en
á leiðinni til hennar fær hann
annað höfuðhögg og gleymir öllo.
En við skulum vona, að elsteend-
urnir nái saman eins og í öllum
góðum sögum.