Tíminn - 24.12.1966, Page 11
LAUGARDAGUK 24. desember 1966
n
TÍMINN
MINNING
SIGURÐUR KRISTJÁNSSON
í Leirhofrt
Þann 13. nóv. s. 1. (‘66) varð
bráðkvaddur að heimili sínu, Set-
bergi í Presthólahreppi, Sigurður
Kristjánsson frá Leirhöfn, tæpra
sjötíu og sjö ára að aldri; hann
var borinn til moldar að Snartar
Utlaðaldrkju þann 19. s. m. að
viðstöddu miklu fjölmenni.
Sigurður var sonur þeirra kunnu
sæmdarhjóna í Leirböfn, Helgu
Sæmimdsdóttur og Kristjáns Þor
grímssonar. Að honum stóðu traust
ir stofnar í báðar ættir — en sem
kunnugt er féll faðir hans frá
á meðan hinir sex synir __ þeirra
hjóna voru enn í bemsku. Á þeirri
tíð var það föst venja, að börn byrj
uðu að vinna ósleitilega svo fljót
sem þau gátu, eða miklu fyrr en
nú. Má því búast við, að örðug
leikar ekkjunnar, móður þeirra,
hafi snemma brýnt drengina til
dáða. Þau hjón áttu allgott bú,
þegar Kristján andaðist, þó voru
þeir margir, sem fannst ekkert vit
fyrir ekkjuna að búa áfram, —
en á þeirri tið þýddi það ekki
annað en að hrekjast í vinnu
mennsku — eða í bezta lagi í hús
mennsku, og hrekja bömin frá
sér til vandalausra, en sá kostur
mun fáum mæðrum geðfelld til-
hugsun. Það mun og mega full-
yrða, að slífct hafi Helgu móður
þeirra aldrei komið til hugar í
alvöru — enda bjó hún áfram, og
blessaðist það framar djörfustu
vonum, hieð þeirri risnu, sem víða
var rómuð að ágætum.
Auk venjulegra örðugleika
ekkna á þeirri tíð, þurfti hún að
greiða út föðurarf til hinna mörgu
bama manns síns af fyrra hjóna
bandi hans, hin næstu ár — sem
hlaut að skerða mjög bústofn henn
ar; fleiri auka-örðugleikar voru
til, þó ekki verði þeir raktir hér
En það, að bræðurnir voru sex
heima, gaf þeim þegar nokkurt
færi á að þroska með sér þá
hæfileika, sem ríkastir voru með
hverjum þeirra, enda hneigðust
*þeir allir til nokkuð sérstakra
viðfangsefna hver um sig, þó allir
ynnu þeir að heillum og viðgangi
búsins, sameiginlega.
Einn þeirra örðugleika, sem þá
var við að etja, var skæður dýr-
bítur — ekki aðeins í Leirhöfn,
heldur almennt í héraðinu. Sig-
urði virtist veiðimennska í blóð
borin, og ekki var hann nema á
tólfta ári, þegar hann skaut fyrstu
tófuna. Þar rak hann sig á þá
köllun sína, sem hann rækti af
óvenju dugnaði, lægni og heppni
í marga tugi ára; má segja, að
hann væri brautryðjandi hér í því
að veiða tófur á fríum fæti á
vetrum, og næði þar flestum öðr-
um framar. Sú veiði reyndist mjög
ábatasöm — bæði beint og óbeint
og var stunduð stöðugt' af honum
og mörgum öðrum fram yfir 1940,
jneð ágætum árangri; mun hiklaust
mega þakka henni það, að dýrbítur
hefur ekki um marga tugi ára, orð
ið hér neitt líkt vandamál sem
víða annars staðar. Sú vegarlengd
sem Sigurður lagði oft að baki á
þeim veiðiferðum sínum, þætti
víst mörgum ósennileg nú — þó
rétt og skrumlaust væri frá
skýrt. Hann var afburða-skytta, og
stundaði jafnhliða aðrar veiðar s.
s. fugla, sela o. fl., svo að vel var ,
séð fyrir þeim þætti öflunar til
heinniisins. Auk þess vann hann
ósleirdega að hverju því, sem að
k.a! laði.
Snemma bar á öðrum sterkum
þætti í fari Sigurðar, en það var |
sterkur áhugi fyrir hverju því,
sem horfði til hættra lífskjara.
Það leiddi til þess að hann fór
snemma að fást við byggingar, og
fljótlega þá á eigin hönd. Standa
mörg og víða þau hús, sem hann
byggði, — og hefur aldrei slitið
þakplötu af neinu þeirra.
Hans mikla athafnaþrá leiddi til
þess, að hann þurfti alltaf að vera
að brjótast í einhverju umfangs-
miklu, stundum með öðrum en oft
ar þó að eigin frumkvæði. Þann
ig byrjaði hann útgerð frá Leir
höfn með öðrum; síðar refarækt,
jarðrækt — og margt fleira. Meðal
þeirra túna, sem hann gerði, var
46 dagslátta tún í landi Leirhafnar
og var landið leigt Raufarhafnar
búum til langs tíma.
Lengi bjuggu þeir bræður fimm
í félagi í Leirhöfn með móður
sinni á meðan hún entist til, en
síðan tók kona Helga við búsfor
ráðum. Seinastir urðu þeir eftir
um það félag Helgi og Sigurður,
en síðustu árin gekk Jóhann Helga
son í það félagsbú, þar til þeir
hættu, Sigurður og Helgi, en Jó-
hann tók við jörð og búi í Leir
höfn og býr þar enn.
Sigurður kvæntist aldrei, en
eignaðlst einn son, sem Óskar heit
ir, með Guð'rúnu Vigfúsdóttur,
bónda í Núpskötlu. Áður en Sig
urður lét af búskap í Leirhöfn, var
Óskar sonur hans búinn að stofna
nýbýli á Sæbergi og býr þar að
allega við trésmíðar á eigin verk
stæði; fluttist Sigur/jr þá til
hans og átti heima hjá honum til
æviloka. Fór hann þá flótlega að
vinna rekavið fyrir eigin reikning,
mest í girðingarstaura. En ekki
kærði hann sig um neinn kotungs
brag á því, fremur en öðru sem
hann vann.
Hann reisti stóreflis hús yfir
starfsemina, keypti nýjan, stóran
diesel traktor til þess að knýja
vélsög og tók á leigu eyðijörðina
Rif á Sléttu, mest til þess að nýta
þann mikla reka, sem henni fylgir
— þó örðugt sé að ná þaðan stór
trjám. Starfaði hann að þessu mörg
ár.
Þá var hann, rétt fyrir andlát
iitt að leggja drög að því. að
fá sér vélsög til þess að þverskera
rekatrén, sem ekki eru öll neitt
smásmíði.
Þannig hélt þessi víkingur á-
fram meðan dagur entist. Allt til
hins síðasta voru handtök hans
hörð og snögg, sem fyrrum, en
ekki duldist kunnugum, að heilsa
og þrek var mjög þverrandi. Samt
átti við hann það, sem sagt var
um annan slíkan á ^öguöld: „Lítt
eldist þú enn í huganum, fóstri
minn!“
Allt fram undir sjötugt varð
lítið var hrömunar hjá honum, og
eitt þeirra skeyta sem hann fékk
þá var svohljóðandi:
Sigurð heyri ég sjötíu ára
sagðan vera, nú í frerum,
oft sem göngur ærið strangar
ötull tróð, um heiða-slóðir;
eyddi tófum oft og refum
upp um fjöll, á stigum trölla.
Haldinn enn — að hölda kynnum,
hetja stinn til vopna sinna.
Eins við Braga ýmsa vegu
átti leik, um hauðrið bleika,
fjölmargt spor, á fögrum vorum,
frjáls með Sunnu — og víðáttunni.
Enn því ljóða- og hyggju-heiði
honum ljómi í starfi frómu;
aldrei hverfi ævi þarfa,
aftansknið meðal vina!
24.12. 1959.
Þann vetur skaut hann líka
einar þrjár tófur á fríum fæti, að
sinni gömlu venj’u — og hefði lík
lega haldið eitthvað áfram, ef
tófurnar hefðu ekki verið þá að
mestu til þurðar gengnar.
Sigurður hlaut að minna mann
óhjákvæmilega á hina fornu garpa
eins og þeim er lýst í íslendinga
sögunum:
Hann var hverjum manni óvíln
ari, snöggur og harður í átökum,
karimenni að burðum, skjótur til
úrræða og athafna, drengur í raun
og höfðingi í lund, greiðamaður
með afbrigðum, manna óeigingjarn
astur, gleðimaður meðal kunningja
en bar ekki tilfinningar sínar á
torg.
Hann las mikið, og fylgdist vel
með því. sem gjörðist. innanlands
og utan — og var hvorki myrkur
í máli né skoðunum. Vel var
hann skáldmæltur, og minnti kraft
urinn í sumum kvæðum hans á
Grim Thomsen. Fróður var hann,
og hverfur með honum margt það,
sem væri betra að hafa en missa;
sé ég þar mest eftir sumum kvæð
um hans — og svo ölluim þeim
snjöllu veiðisögum sem hann hefði
getað sagt frá löngum og giftu
drjúgum veiðiferli, og dýrasögum.
En öllum tillögum að festa slíkt á
blað, tók hann fálega, þó honum
væri gefið að segja vel og á-
heyrilega frá.
Það er sviplegt fyrir þá, sem
eftir eru, þegar menn kallast svona
skjótlega burtu. Þó mun forsjön
in hafa verið Sigurði góð, að
leggja ekki á hann að verða las-
burða og ónógur sjálfum sér, eins
og margur má hafa fyrir andlát
sitt, en það hefði manni með hans
skapgerð verið örðug raun.
En þó aldur hans væri orðinn
nærri 77 ár. mun enn þykja
skarð fyrir skildi, þar sem hann
leggur niður vopn sín og verk
færi. Er ærinn sjónarsviptir að
hverjum þegni með svo sterkan
persónuleika, og mun samtíðarfólk
ið lengi minnast að góðu þess
ágæta íslendings.
Vænti ég þess, að enn bíði hans
óleyst og aðkallandi verkefni í
betri heimi — þó þau kunni að
verða frábrugðin því, sem hann
hvarf frá hér, vig góðan orðstír.
Blessuð sé hans minning!
Sandvík,' 20.11. 1966.
Guðmundur Þorsteinsson
frá Lundi.
FRÉTTATILKYNNING FRÁ
RlKISSTJÖRNINNI
Forseti íslands hefur í dag stað-
fest lög þau um heimild tál verð-
stöðvunar, sem Alþingi samþykkti
fyrir nokkrum dögum, og ganga
þau í gildi þegar í stað. Hefur
rikisstjórnin ákveðið að beita
strax heimildarákvæðum laganna.
Ekkert vöruverð hvers konar sem
er má því vera hærra en það var
15. nóvemiber sl. nema með sam-
þykki hlutaðeigandi yfirvalda.
Mega þau eigi leyfa neina hækk-
un á vöruverði nema þau telji
hana óhjákvæmilega, og þá að-
eins með samþykki rikisstjórnar-
innar. Þá má hundraðshluti álagn
ingar á vörur í heildsölu og smá-
sölu ekki vera hætti en hann var
15. nóvember 1966. Gildir þetta
einnig um umboðslaun vegna vöru
sölu og um hvers konar álagn-
ingu, sem ákveðin er sem hundr-
aðshluti á selda vinnu eða þjón-
uistu.
Verðhækkanir, sem átt hafa sér
stað síðan 15. nóvember 1966, eru
skv. ákvæðum laganna ógildar og
er hlutaðeigandi seljandi skyldur
til að lækka verðið í það, sem
það var 15. nóvember sl.
Fyrirmæli laganna taka einnig
til seldrar þjónustu og framlags
í hvaða formi sem er, þar á með-
al til hvers konar þjónustu,
eða framlags, sem ríki, sveitar-
félög eða stofnanir þeirra svo og
aðrir opinherir aðilar, láta í té.
Ennfremur mega álagningastigar
útsvara og aðstöðugjalds og önn-
ur opinber gjöld ekki hækka frá
því; sem ákveðið var 1966, nema
með samþykki rikisstjórnarinnar.
Almennt eftirlit með verðlagi
er í höndum skrifstofu verðlags-
BLÓÐUG ÁTÖK
Framhald af bls. 1.
en kirkjunum í Peking hefur
verið lokað frá því í ágúst. Er
þetta líklega í fyrsta sinn á þess-
ari öld, að kristnir menn í Pek-
ing fá ekki að halda guðsþjón-
ustur á jólunum. Talið er, að þeir
séu um 20,000 talsins, en margar
milljónir íbúa eru í Peking.
BÓKMENNTIR
Framhald af bls. 8
og má vafalaust treysta því, að
I vel sé að unnið. Hann gerir og
betur en þýða bókina. því að hann
ritar ýtarlegan formála um verkið
og höfundinn, tillögur hans og
áhrif ritsins, og í bókarlok eru
skýringar og nafnaskrá. Er verk
Horrebows því íslendingum hið
gagnlegasta í þessari útgáfu og
rík ástæða til þess að þjóðin kynni
sér það, því að það varpar skærara
ljósi á ýmis atriði þessa tíma-
bils í sögu okkar en sumt það,
sem við skrifum sjálfir um það.
Það er myndarlegt og þakkarvert
átak af Bókfellsútgáfunnj að gefa
slíka bók út jafnmyndarlega og
raun ber vitni. —AK.
SJÓNVARPSMESSA
Framhals af bls. 1.
Fríkirkjunni eftir hádegið. Hef
ur það síðan verið fastur lið-
ur í starfsemi Ríkisútvarpsins,
að útvarpa messum, bæði úr
kirkjum og úr útvarpssal, þótt
það sé fremur sjaldgæft i
seinna tilfellinu.
Aftur á móti eru allar horf-
ur á því, að um sjónvarps-
messur gildi það á næstunni,
að þeim verði stjónvarpað úr
sjónvarpssal, en ekki kirkjum,
og er beðið eftir sérstökum
tækjum til þeirra hluta.
stjóra. Ber mönnum því að snúa
sér þangað með upplýsingar, fyr-
irspurnir eða ábendingar varðandi
fram'kvæmd laganna að því leyti.
Eftirlit með þeim málum, sem
isamkvæt lögum eða reglum
heyra undir ákveðin ráðuneyti er
í höndum þeirra.
Vegna núverandi ástands í
efnahagsmálum er þess brýn nauð
syn, að verðlag haldist stöðugt og
vill ríkisstjórin því hvetja alla
aðila tii samstaris um framkvæmd
verðstöðvunarlaganna.
23. desember 1966.
Lög staðfest
Á fundi ríkiisráðs í Reykjavík
í dag staðfesti forseti fslands eft-
irfarandi lagafrumvörp:
1) Frumvarp til laga um heim-
ild til verðstöðvunar,
2) Frumvarp til laga um breyt-
ing á lögum nr. 29/1956, um at-
vinnuleysistryggingar,
3) Frumvarp til laga um breyt-
ing á lögum nr. 68/1934, um út-
varpsrekstur ríkisins,
4) Frumvarp til laga um breyt-
ing á lögum nr. 34/1953, um verð-
jöfnun á olíu og benzíni,
5) Frumvarp til laga um breyt-
ing á lögum nr. 45/1963, ujn iðn-
lánasjóð,
6) Frumvarp til laga um heim-
ild fyrir ríkisstjórnina til að
ábyrgjast lán til kaupa á síldar-
flutningaskipi o.fl., og
7) Frumvarp til fjáriaga fyrir
árið 1967.
Ennfremur staðfesti forseti al-
þjóðafjarskiptasamning, sem gerð
ur var í Montreux 12. nóvember
1965, skipaði J. Guy Gauvreau að-
alræðismann íslands í Montreal
og frú Margaret Ellen Láhey ræð-
ismann íslands í Ottawa og veitti
Brían D. Holt viðurkenningu sem
ræðismanni fyrir Stóra-Bretland I
Reykjavík.
Þá voru staðfestar ýmsar af-
graiðslur, sem farið höfðu fra
utan rík'isráðsfundar.
Ríkisráðsritari, 23. des. 1966.
Hundapest
FB-Reykjavík, föstudag.
Fyrir nokkru kom upp pest í
hundi á Ámundarstöðum í Ása-
hreppi í Rangárvallasýslu. Lék
grunur á, að hér væri um hunda-
pest þá að ræða, sem gekk í ná-
grenni Reykjavíkur og fyrir aust-
_an fjall fyrir nokkru. Hafði kom-
ið hundur úr Mosfellssveit austur
að Ásmundarstaðabæjunum, og
kann að vera, að smit hafi borizt
með honum. Á Ásmundarstöðum
er þríbýli, og hafa nú veri3
drepnir og grafnir tveir hundar
á bæjunum, og ekki hefur orð'ð
vart við prest í fleiri hundum.
MÁLNINGAR-
VINNA
Málarar geta bætt
vi3 sig vinnu.
SÍMI 21024