Alþýðublaðið - 08.12.1983, Qupperneq 2
2
Fimmtudagur 8. desember 1983
RITSTJORNARGREÍN . ■■■.—.
Kjarasamningar
Hann er lævis sá áróður Vinnuveitendasam-
bands íslands, sem felur í sér að hringla fram
og til baKa með sömu krónurnar í launaumslag-
inu og nefna það tilboð til launahækkunar.
Þær hugmyndir sem VSÍ hefur sett fram í ný-
höfnum samningaviöræðum aðila vinnumark-
aðarins um að fækka orlofsdögum og veik-
indadögum og leggja af nokkra aðra launa-
tengda pósta, en greiða launafólki þetta í stað-
inn út, eru fram settar f blekkingarskyni. Með
þessu vill VSI að dæmið líti þannig út, að með
fleiri krónum í launaumslagið en útstrikun fé-
lagslegra réttinda, séu vinnuveitendur að
koma til móts við kröfur launþega um kjara-
bætur.. Þetta er auðvitað ekki rétt. Hér er að-
eins verið að hreyfa sama fjármagnið — laun
verkafólks — á milli vasa.
Alþýðubiaðið vill eindregiö vara verkafólk
við þvf, að áunnin félagsfeg réttíndi launafólks
verði gerð að verslunarvöru á þennan hátt.
Auðvitaö er fyrirkomulag launatengdra
gjaldaog ýmiss konar félagslegra réttindaekki
heilagt. Það á að endurskoða reglulega með
opnum huga. En launafólk hlýtur að fyllast tor-
tryggni, þegar hugmyndir f þessa átt koma frá
atvinnurekendum á sama tfma og verkalýðs-
hreyfingin sækirfram með sanngjarnar kröfur
um verulega kaupmáttaraukningu, ekki síst hjá
hinum launalægstu. Tilfærslur á fjármagni,
sem þegar er á hendi launafólks, eru ekki svör
við kröfum verkalýðshreyfingarinnar. Með slík-
um vangaveltum er aðeins verið að reyna drepa
kjarna málsins á dreif.
Þær samningaviðræður sem nú eru að fara f
gang snúast ekki um það í hvaða vasa laun-
þegalaunin fari, heldur hitt aö fólk fái greidd
sanngjörn og mannsæmandi laun fyrir þá
vinnu, sem það innir af hendi. Kaupmáttar-
skerðing sfðustu mánaða hefur verið gffurleg.
Afleiðinqarnar blasavið hvarvetnasem litið er.
Með öllum tiltækum ráðum verður að hækka
launin, með sérstakri áherslu á þá launa-
lægstu. Kröfur launþegahreyfingarinnar um 15
þúsund króna lágmarkslaun eru hógværar.
Getur einhver bent á hvernig það er hægt fyrir
fólk að láta 10-13 þúsund krónurduga mánuð-
inn út?
Viðræðurnar sem nú eru að fara í gang eru
um margt tímamótandi. Nú reynir á styrk og
samstöðu launafólks. Ætlarverkalýðshreyfing-
in að kyngja þvi, að ísiand verði yfirlýst lág-
launasvæði til framtiðar, eins og efnahags-
stjórn rfkisvaldsins hefur miðað að? Getur
verkalýðshreyfingin gengið frásamningaborði
án þess að kjör hinna iakast settu hafi verið
bætt mjög verulega? Og hve lengi getur verka-
lýðshreyfingin staðið í samningastappi, án
árangurs, áður en hnefinn er settur ( borðið og
hörðum aðgerðum er hótað?
Þetta eru nokkrar þær lykilspurningar, sem
verkalýðshreyfingin verður að hafa greið svör
við strax í upphafi samninga.
Það er Ijóst að islenskur verkalýður á ekki að-
eins við atvinnurekendavaldið að kljást í kom-
andi samningum, heldur og ekki síður við
fjandsamlegt rfkisvald. Þvf reynir enn frekar á
styrk forystumanna hreyfingarinnar óg öflug-
an bakstuðning alls launafólks. Þar má enginn
sitja hjá.
— GÁS
Fiskur til Sovét:
Söluverðmœti tœp-
lega 1 milljarður
2. desember s.l. var undirritaður
í Moskvu samningur milli Sölumið-
stöðvar hraðfrystihúsanna og Sjáv-
arafurðadeildar S.Í.S. annars vegar,
og matvælainnkaupastofnunarinn-
ar Prodintorg V/O hinsvegar, um
sölu á 17.000 smálestum af frystum
fiskflökum og 6.000 smálestum af
heilfrystum fiski. Heildarverðmæti
samningsins hljóðar upp á $32,4
milljónir eða 914,3 milljónir króna
(gengi $28,22).
Meðaltalslækkun á verði frá
samningi s.l. árs miðað við dollara
(á öllu magninu) er 2,7%.
Bátar ekki bundnir
löndunarröð og tíma
Sýnd 4
sjónvarpsstöðvanna á Norður-
löndunum. Þetta þýðir, að mynd-
in verður sýnd hér í fyrsta lagi að
tveimur árum liðnum.
Gera má ráð fyrir því, að ein-
hverjum óþolinmóðum áhuga-
manni verði farið að leiðast biðin,
þegar við loks fáum að sjá þessa
mynd, sem hlotið hefur svo ein-
róma lof gagnrýnenda vestra.
Bandarísku 4
hjá leiðtoga ríkis, sem kom af stað
tveim heimsstyrjöldum á tuttug-
ustu öldinni og varð sjálft fyrir
barðinu á þeim.“
Ogarkov marskálkur sagði enn
fremur: „Bandarísku eldflaugarnar
í Vestur-Þýskalandi munu auðvitað
auka hættuna í garð Sovétríkjanna
og annarra landa hins sósíalíska
samfélags. En þær munu einnig
auka kjarnorkuhættuna í garð
Vestur-Þýskalands sjálfs.vegna þess
að landsvæði þess er breytt í skot-
pall fyrir eldflaugar og verður þess
vegna skotmark fyrir svarárás.
Skammsýni í stjórnmálum boðar
ekkert gott.“
greininni myrtur af skæruliðum
ETA. Nokkrum mánuðum
seinna, snemma árs 1980 var ann-
ar þeirra veginn. Báðir voru þeir
sannarlega félagar í nýfasista-
flokknum Fuerza Nueva.
Einmitt þegar þetta gerðist var
Xavier í Afghanistan til að skrifa
um hina sovésku innrás í landið.
En þegar því verkefni lauk, komst
hann að því, að hann gæti ekki
snúið aftur til Spánar. Hann hafði
ekki áhuga á að þurfa að sitja inni
í sjö ár. Akæran á hendur honum
hljóðaði þannig, að hann hefði
„tekið þátt í morði og samvinnu
við öfgamenn“
Fyrir aðeins hálfum mánuði
síðan féll endanlegur dómur í
málinu. Xavier fékk sjö ára dóm
eins og búist var við. Það eina,
sem getur bjargað honum nú er að
sósíalistastjórnin á Spáni taki
málið upp og veiti honum sakar-
uppgjöf. Þangað til að eitthvað
slíkt gerist verður hann í útlegð í
París.
Spænska blaðamannasam-
bandið hefur stutt Xavier allan
þann tíma sem þetta mál hefur
þvælst í dómkerfinu á Spáni.
Blaðamenn þar í landi eru ekki yf-
ir sig hrifnir af því, hvað kann að
gerast í landinu, ef þessi dómur á
að verða þeim fordæmi. Vita-
skuld óttast þeir að dómurinn
muni hræða frétta og blaðamenn
frá því að fjalla um mál þessi. Þeir
einu sem hafi ávinning af slíku
verði öfgahóparnir, sem þá geti
starfað óhindrað án þess að þurfa
að hafa áhyggjur af fréttamönn-
um.
Á Spáni er lögum þannig hátt-
að, að blaðamenn eru sjálfir á-
byrgir fyrir skrifuin sínum — ekki
ritstjórar eins og víðast í Norður-
álfu. Það eru lög Frankós gamla
sem enn gilda í þessu efni og
blaðamenn eru samkvæmt þeim
lögum undir sterkum aga. Ekki
leyfist að gagnrýna valdastofnan-
ir samfélagsins svo sem kirkju,
herinn eða að fara út á svo vara-
samar brautir að lýsa pyntingum
hvað þá ógnarverkum. Hvorki
meira né minna en 460 blaðamenn
hafa verið dæmdir samkvæmt
þessari löggjöf á síðustu fimm ár-
um eða um eitt hundrað blaða-
menn á ári. Xavier ferðast nú um
í Evrópu til að kynna mál sitt.
M.a. mun hann leita til alþjóða
mannréttindanefndarinnar í
Strassborg.
Á fundi í sjávarútvegsráðuneyt-
inu, sem haldinn var í sl. viku með
fulitrúum útgerðarmanna, sjó-
manna og vinnsluaðila, urðu aðilar
sammála um að til þess að tryggja
sem besta nýtingu loðnuhrogna til
frystingar, væri heppilegast að bát-
ar yrðu ekki bundnir við ákveðna
löndunarröð og löndunartima og
hefði Loðnunefnd því ekki í raun
afskipti af löndun til frystingar og
þá einkum hrognatöku.
Með þessu móti gætu vinnsfu-
stöðvar hafið undirbúning að mót-
töku loðnuhrogna og vinnslu þeirra
þegar þeim er það hagkvæmast.
Þetta ætti ennfremur að tryggja
þeim ákveðið magn hráefnis fyrir-
fram sem er þeim mjög mikilvægt
svo og söluaðilum. Þetta myndi
gera bátum kleift að semja fyrir-
fram við ákveðnar vinnslustöðvar
og treyst því að loðnan fari raun-
verulega í vinnslu, en á því hefur
orðið misbrestur á undanförnum
árum.
ræmi við þá rökfræði, að friðurinn
sé því traustari sem meiri kjarn-
orkuvopn eru í eigu Vesturveld-
anna. Þessi hugsunarháttur er
furðulegur og jafnvel hættulegur
FÉLAGSMÁLASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
|§f Hinn árlegi jólafagnaður
félagsstarfs eldri borgara í Reykjavík veröur hald-
inn aö Hótel Sögu í Súlnasal laugardaginn 10.
desember og hefst klukkan 14.00.
Dagskrá:
Upplestur, Borgar Garðarsson.
Söngur, nemendur frú Snæbjargar Snæbjarnar-
dóttur söngkonu.
Upplestur, frú Olga Sigurðardóttir.
Einsöngur og tvísöngur, hjónin Sieglinde
Kahmann og Sigurður Björnsson óperusöngvar-
ar.
Kaffiveitingar.
Fjöldasöngur, frú Sigríður Auðuns við hljóðfærið.
Helgileikur, nemendur úr Vogaskóla, stjórnandi
Guðmundur Guðbrandsson skólastjóri.
Félagsmálastofnun Reykjavikurborgar
Alþýðuflokksfólk,
Jólastemmning
Nú tökum við fram jólaskapið og þjóf-
störtum jólunum.
Flvar og hvenær?
Þeir forvitnu hringi í síma 29273 og láti
skrá sig.
Samband Alþýðuflokkskvenna.
Viðtalið 4
Þremur vikum síðar var einn af
fasistunum, sem talað var um í
IAUSAR STÖÐUR HJÁ
_____I REYKJAVÍKURBORG
Forstööumaður —
Deildarverkfræðingur.
Borgarverkfræðingurinn í Reykjavík auglýsir eftir um-
sóknum um starf forstöðumanns byggingadeildar ann-
ars vegar og deildarverkfræðings hins vegar, frá 1. jan-
úar 1984.
• Forstöðumaður byggingadeildar.
Starfssvið: Stjórn byggingadeildar, umsjón með
hönnun og framkvæmdum.
Næsti yfirmaöur: Aðstoðarborgarverkfræðingur.
Menntun: Verkfræði- eða tæknifræðimenntun.
Starfsreynsla: Æskilegt er að umsækjandi hafi
verulega starfsreynslu.
• Deildarverkfræðingur.
Starfssvið: Áætlanagerð, kostnaðarathuganir.
Næsti yfirmaður: Forstöðumaður byggingadeildar.
Menntun: Verkfræði- eða tæknifræðimenntun.
Starfsreynsla: Æskilegt er að umsækjandi hafi
verulega starfsreynslu af kostnaðaráætlanagerð.
Laun skv. kjarasamningum. Upplýsingar um stöðurnar
veitir aðstoðarborgarverkfræðingur, Skúlatúni 2, slmi
18000. Umsóknum ber að skila til starfsmannahalds
Reykjavlkurborgar, Pósthússtræti 9,6. hæð, á sérstök-
um umsóknareyöublöðum sem þar fást, fyrir kl. 16.00,
þriðjudaginn 20. desember 1983.