Tíminn - 22.02.1967, Page 1

Tíminn - 22.02.1967, Page 1
Auglýsing í Tímanum kemur daglega fyrir augu 80—100 þúsund lesenda. ÁkveSinn maSur grvnaður um þjófnaðinn á Seyðisfirði: Á tvidálka myndinni sést Mao Tse-tung, formaSur, heilsa RauS- um varðliðum, en að bakl honum gengur Lin Plao, varnarmálaráð- herra, sem nú hefur endanlega fallið í skugga. Hindálka myndln er af Chou En-lal, forsætisráð- herra, sem virðist nú hafa tekið málin í sínar hendur í Kína. GEKK HANN YFIR FJARÐAR- HEIÐITIL AÐ SÆKJA ÞÝFID? KJ-Reykjavík, þriðjudag. f morgun kom maður nokkur hrakinn og blautur í hótelið á Seyðisfirði baðst gistingar og bar sig hálf illa. Maður þessi mun hafa gengið yfir Fjarðarheiði í nótt, og er talið að þama hafi verið á ferðinni sá sem brauzt inn í skrifstofu sildarverksmiðj- anna í janúar. Fór maðurinn aft ur suður í dag, og átti að færa hann til yfirheyrslu. Hann komst undan f fyrstu, en síðar náði lögreglan tali af manninum. Maðurinn sem hér um ræðir tók sér far með flugvél austur að Egilsstöðum í gær, og fór ekki með öðrum farþegum niður á Seyðisfjörð- í morgun nokkru fyrir klukkan átta kemur hann svo og biðst gistingiar á hótelinu, en allt var fullt. Maðurinn var blautur og hrakinn, og hitti fyrir mann sem hann kannaðist við er bjó á hótelinu. Þrábað hann mannninn að fá leggja sig í her- bergi hans, hvað maðurinn leyfði honum- Sá blauti og hrakti var með litla tösku með sér, og sagðist vera á bát, sem komið hefði til Seyðisfjarðar og vegna meinsemd ar í auga þyrfti hann strax suður til Reykjavíkur. Segir ekki frek ar af honum, en hann fær að leggja sig í herberginu og þurrk- ar þar föt sín, en fer svo á stjá um hádegið, og þá til að fá sér far til Reykjavíkur- Maðurinn hefur samband við Flugfélagsafgreiðsl- una á Seyðisfirði, en er þar tjáð að engar ferðir séu í veg fyrir Framhald á bls. 14. Chou En-lai tekinn við stjórnartaumum í Kína? NTR—Peking, þriðjuðag. Kínverjar hafa nú byrjað stöðv- unaraðgerðir í menningarbylting unni svonefndu, þjóðfélagsbylting unni miklu, þar sem stuðnings- menn Maos, Rauðu varðliðamir, hafa tekið við flokks- og stjómar- Flutt inn sjón- vörp fyrir um 55 millj. sl. ár EJ-Reykjavík, þriðjudag. Innflutningur sjónva.psvið- tækja á síðastliðnu ári var geysi- mikill, eins og við mátti búast. Verðmæti innfluttra viðt.^vja reyndist vera 55 milljónir og 181 þúsund krónur CIF-verð, þ. e. með tryggingargjöldum og flutn- ingskostnaði. Þetta er rúmlega helmingi meira en árið á undan, en þá voru flutt inn1 sjónvarpsviðtæki fyrir 25.366.000 krónur CIF-verð. Hér er um að ræða öll sjón- varpsviðtæki, sem inn voru flutt — þ. e. líka tæki, sem eru sam- byggð með útvarpi og/eða plötu- spilara. Skýrslur ern ekki til yfir fjölda tækjanna. völdum um allt land. Má segja, að í dag hafi nýr þáttur hafizt í byltingunni, sem fólginn er í „leiðréttingum“ á hinum ýmsu mistökum, sem öfgamenn, svo- nefndir „byltingar-uppreisnar- menn/‘, hafa gerzt sekir um á með- an á menningarbyltingunni hefur staðið. Þessi nýi þáttur, sem Dagblað alþýðunnar boðaði í ritstjórnar- grein i dag, kemur vel heim við þá staðreynd, að Lin Piao, varnar- málaráðherra hefur alveg horfið af opinberum vettvangi, og hefur varla sést síðustu þrjá mánuði.. Svo virðist, sem leiðtogi þessn nýja þáttar sé forsætisráðherrann Clhou-En-lai, er sýnist láta sig meiru skipta að koma á styrkri stjórn í Kína, heldur en fjalla um stjórnarfarshugmyndir. Aðalatriðin, sem fram komu í ritstjórnargrein Dagblaðs alþýð- unnar eru, að herinn hafi nú stöðugt meiri völd og hafi ásamt lögreglunni náð tökum á menn-j ingarbyltingunni og embættis- menn, er sviptir voru völdum í upp hafi menningarbyltingarinnar fáij þau nú aftur, um leið og reynslu-| iitlir menn. sem störfunum hafa gegnt. hverfi úr þeim. Dagblað alþýðunnar lagði alla forsíðuna undir að skýra frá „leið réttingaa-aðgerðum“ í borginni, Tsing Tao, og er hún tekin sem! dæmi um bær aðgerðir. Þar höfðu „byltingaruppreisnarmenn“, náð völdum, en gegn þeim er nú hart barizt, og í öllum blöðum lögð áherzla á, að óstjórnaröfl verði upprætt, svo sem minni háttar bylt ingarhópar, sem setji sig gegn sér hverjum samskiptum við hina gömlu stjórn landsins. Samkvæmt frásögnum á vegg- spjöldum í Peking í dag á Ohou En-lai að hafa sagt, að Li Hsuen Feng, sem tók við stöðu borgar- stjóra Peking af Peng Cheng, en var síðan aftur settur af, taki við störfum aðalritara miðstjórnar flokksins í norður hluta landsins. Wu The, sem var eftirmaður Feng tekur nú við stöðu aðalritara 1 Framhald á bls. 14. Breytingar á skráningar- aðferðum í S-Afríku: Var skráð þel- dökk - nú hvít! NTB-Jóhannesarborg, þriðjudag. Sandra Laing ellefu ára gamla suður-afríkanska telp- an, sem í apríl í fyrra var skráð þeldökk, mun að öll- um líkindum verða sJ - aft- ur á þjóðskrána i Suður- Afríku sem „hvít“, eftir nokkra mánuði. Stjórnarblaðið Dagbreek skýrir frá því í dag, að stjórnin í Jöhahnesarborg hafi í hyggju að breyta s'kráningarlöggjöfinni að því er varðar skráningu eftir kynþáttum, og muni breyt- ingarnar sennilega hafa aft urvirk áhrif. Ein fyrirhuguð breyting er þess efnis, að hér eftir skuli ætt en ekki útlit ráða úrslitum um pað, hvort maður verður talinn af svörfcum eða hvítum kvn- stofni. í Suður-Afríku er algengt, að \>örn hvítra foreldra hafi sterk einkenni „þeldökkra" að því er talið er vegna þess, að fyrr í ættinni hafi orðið blóðblöndun hvítra og svartra manna. Mál Sandra Laing vakti heimsafchygli á sínum tíma, en í apríl í fyrra var hún 'Skráð svört vegna litarhátt- Framhald a Dis 14. Fulbright senator kemur í dag FB-Reykjavík, þriðjudag. Fulbrightstofnunin á nú 10 ára afmæli, og í tilefni af því kemur hingað til lands á morg un, miðvikudag J. W. Fulbrigjit öldungadeildarþingmaður en það var einmitt liann, sem beitti sér aðallega fyrir lagasetningu þeirri í Bandaríkjunum, sem vatð til þess að Fulbright-stofnunin hér á landi, og í öðrum löndum. var sett á stofn. Fulbrigíht og kona hans koma hingað til lands kl. 9:30 1 fyrra málið, og munu bandarisku sendi herrahjónin taka á móti þeim á Keflavíkurflugvelli, auk þess frú Winston Hannessun, for- maður Fulbright-stofnunarinnar hér á landi. Klukkan 2:30 á morgun mun Fulbright ganga á fund dr. Bjarna Benediktssonar forsætisráðherra og Emils Jónssonar luatirikisráð herra, en klukkan 4 verður fund ur með blaðamönnum Þá minn- ist Fulbright-stoifnunin afmæJis síns með sérstakri athöfn í hátíða sal Háskólans á morgun kl. 5:15 og verður öldungadeildarþingmað urinn aðal ræðumaður. Heiðurs gestir auk hans og konu hans eru Penfield' sendiherra, dr. tíylfi Þ. Gíslason menntamálaráðlherra sem mun taka til máls, Ármann Framhald á bls. 14. Fulbright

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.