Tíminn - 25.02.1967, Síða 5

Tíminn - 25.02.1967, Síða 5
LAUGARDAGUR 25. febrúar 1967 TÍMINN s Otgefandi: FRAMSOKNARFLOKKURINN Framkvœmdastjóri: Krlstján Benediktsson. Ritstjórar: Þórartnn ÞórarinsSon Cáb), Andrés Kristjánsson, Jón Helgason og IndriW G. Þorsteinsson. FulltrúJ ritstjórnar: Tómas Karlsson. Ang. lýsingastj.: Steingrímur Gíslason. Ritstj.skrlfstofur t Eddu- húsinu, símar 18300—18305 Skrifstofur: Bankastræö 7. Af. greiðslusimi 12323. Auglýsingasimi 19523 Aðrar skrifstofur, sími 18300 Askriftargjald kr. 105.00 á mán. lnnanlands. — 1 iausasölu kr. 7.00 elnt. — Prentsmiðjan EDDA h. t. Island og Vietnam Góður gestur dvaldi hér á iandi í tvo daga í þessari viku. Hér er átt við Fulbright, formann utanríkismála- nefndar Bandaríkjaþings. í ágætri ræðu, sem Fulbright flutti í hátíðasal Há- skólans, vék hann m.a. að skiptum smáþjóða og stór- þjóða og sagði m.a.: „Almennt virðist mér, að stórþjóðir ráði heimsmál- efnum að marki, sem ekki er í réttu hlutfaili við raun- verulegá stærð þeirra og veidi, meðan smáþjóðimar hafa óeðlilega lítil áhrif á atburðarásina. Smáþjóðir, sem eru sér meðvitandi um smæð sína, hafa tilhneigingu til að vanmeta valdið, sem þær hafa og láta það þannig af vanrækslu af hendi við stórþjóðirnar, sem í öllum tilvikum mikla fyrir sér veldi sitt — eða „ábyrgð“ eins og þær vilja fremur komast að orði — taka við gjöfinni, eins og þær eigi hana sannarlega skilið. Árangurinn er óheilbrigð rangfærsla. Stórþjóðirnar með allt sitt stolt, kröfur, afbrýði, ráða atburðunum jafnvel að meira marki en nauðsynlegt er — eða ákjósanlegt — meðan smá- þjóðir, sem sumar hverjar eiga reyndustu, hæfileika- ríkustu stjórnmálaleiðtoga heims, notfæra sér ekki þau uppbyggingaráhrif, sem þær gætu haft‘. í þessu sambandi rifjaðist það m.a. upp. að ísland er eitt þeirra ríkja, sem ekki hafa látið neitt til sín heyra um friðartillögur þær, sem U Thant, framkvæmdastjóri S.Þ. hefur borið fram um friðarsamninga í Vietnam. Fyrir Alþingi hefur legið tillaga í marga mánuði, þar sem lýst er stuðningi við tillögur U Thants, en af ein- hverjum ástæðum hefur hún enn ekki verið tekin til umræðu. Ríkisstjórnir, eða forsvarsmenn margra ná- grannaríkja okkar hafa hins vegar lýst stuðningi við þessar tillögur. Seinast gerði Jens Otto Krag, forsætis- ráðherra Dana, það í blaðinu Aktuelt í fyrradag, í grein sem hann nefnir: Det danske Standpunkt. Forhandling pá grundlag af U Thants tre punkter (Hin danska af- staða. Viðræður á grundvelli hinna þriggja atriða U Thants). í greinarlokin farast Krag forsætisráðherra orð á þessa leið: „Með mér leynist enginn efi um það_ að U Thant kom að kjarna í Vietnam-vandamálinu, þegar hann lagði fram hina þrískiptu tillögu sína fyrir tæpu ári. Við komumst ekki fram hjá þeirri staðreynd að leiðin til samningsviðræðna verður ekki greidd, nema með stöðvun loftárásanna á Norður-Vietnam, né heldur án gagnkvæms samdráttar hernaðaraðgarða og þátttöku þjóðfrelsishreyfingarinnar í viðræðunum. Meðan stríðs- aðilar vilja ekki viðurkenna burðarþol þessarar friðar- áætlunar, er að mínu áliti lítil von um. að sá friður fáist, sem Vietnam og heimurinn þarfnast svo brýnt. Slíkt væri mikill harmleikur“. Þannig hefur forsætisráðherra Danmerkur lýst full- um stuðningi við friðartillögur U Thants. Slíkt hafa for- ustumenn fjölmargra annarra minni ríkja gert. Þannig geta smáríkin haft áhrif til góð.s i vandasömum alþjóða- málum eins og Fulbright bendir á. Deilan um orsök Vietnam-styrialdarinnar og hver sé upphaflegi árásar- aðilinn, kemur þessu máli ekki við. Aðalatriðið er að knýja fram friðarsamninga og samdrátt hernaðarað- gerða. Þar er það vænlegt til árangurs, að sem allra flestir styðji tillögu hins hvggna og góðgjarna fram- kvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna. r Walter Lippmann ritar um alþjóðamál: Tvær stefnur berjast um völdin í huga Johnsons forseta Sigrar andi frumbyggjans, sem vill negla skinn veiðidýrsins á vegg sinn? VHETNAIMSTIHJÍÐŒ) er fjwða mi'Ma^ stríðið okkar á þessari öld. f því stríði er nú komið að þeim tímamótum, eins og í öllum 'hinum otyrjöld unum, að taka verður öríaga ríkar ákvarðanir: Eigum við að reyna að ná sáttum á grund- velli þeirra marícmiða, sem við lýstum í upphafi? Eða eigum við, þegar sigurþefinn leggur að vitum okkar, að knýja óvin inn til að gefast upp og ganga að fyrirskipuðum friði? í Kóreustyrj'öldinni kom að þessum örlagaríku þáttaskilum, þegar við voru búnir að.hreirtsa til í Suður-Kóreu og hrinda árásinni úr norðri með hinni glæsilegu baráttu MacArthurs eftir landgönguna við Inohon. Truman forseti lét þá tala um fyrir sér þar til að hann skip aði fyrir um herferð til kín- <versku landamæranna. Síðan 'sú stórkostlega skyssa var gerð, hefir ekki reynzt unnt að koma á fullkomnum friði í Kóreu. í síðari heimsstyrjöldinni gerði Roosevelt sams konar skyssu, þegar hann skuldbatt sig til að krefjast skilyrðislausr ar uppgjafar Þýzkalands. Sömu skyssu og samskonar stríðsút- færslu varð Wilson sekur um, þegar hann krafðist skilyrðis- lausrar uppgjafar og fyrirskip aði friðarsáttmála, í stað þess að semja um frið út frá atrið unum fjórtán, sem hann hatði sjálfur sett fram. UNDANGENGNA tvo sða þrjá mánuði, eða síðan að alls herjarupplausnin í Kína varð lýðum ljós og fram kom til fulls, hve sundrungin í heims hluta kommúnista er djúp- stæð, hefir Johnson forseti staðið andspænis því að ákveða hvort hann ætti að standa við áður gefin loforð um saminn frið í Vietnam, eða halda áfram að heyja styrjöldina þar til Hanoimenn gefást upp. Við vitum, að forsetinn sér fram á upphaf samningaumleitana, ekki einungis vegna margvís- legs orðróms úr ýmsum áttum, heldur hefir hann þetta blátt áfram og beint frá Kosygin for sætiisráðherra Sovétríkjanna. Harold Wilson forsætisráð- herra Breta var nýbúinn að ræða við Kosygin, þegar hann gaf yfirlýsingu sína, og Wilson staðfesti mikilvægi hennar. Ekki ber að draga í efa, að Wilson hafi lýst afstöðu John sons forseta og varið hana af fullri hollustu. Hitt vitum við ekki með vissu, hvort afstaða Bandarikj anna er enn hin sama og for- setinn hefir fullyrt hvað eftir annað. Við vituni ekki, hvort við stefnum enn að jmsömd um friði og stjórnmálalausn, sem viðurkenni sjálfstæði Suð- ur-Vietnam. Sé betta enn markmið okkar, þá höfum við um nokkurt skeið séð hilla und ir það. Og þrátt fyrir allt, eru gild ar ástæður til að efast um, að þetta sé enn markmið ikkar. J. B. JOHNSON Hver og einn, sem hlustaði á forsetann á blaðamannafundin um 2. febrúar og las ræðuna, sem Goldberg aðalfulltrúi flutti við Harward-háskólann 10. febrúar, hafði gilda ástæðu til að ætla, að hin upphaflegu markmið forsetans væru enn í fullu gildi. En þegar búið var að hlusta á ræðuna, sem Rusk utanríkisráðherra flutti í Was hington, daginn eftir, að Kosy gin sagði sitt orð í London, og lesa greinar blaðamannanna, sem sóttu inntolástur sinn til talsmanna utanríkisráðuneytis ins og herstjórnarinnar, virt ust ríkar ástæður til að ætla, að öfgamennirnir, sem telja ekkert geta komizt í h'álfkvisti, við sigur, hafi enn á ný tögl og hagldir. VIÐ augum blasir ástæða, sem gæti hafa fært öfgamönn unum öll völd á ný. Aflstaflið í hinum fjarlægari Austurlönd um hefir óvænt og eindregið snúist gegn kommúnistum í Asíu og Indokína. Meðan Rauða Kina var traust stórveldi hafði það tök á að bjarga Hanoi- mönnum frá fullum ósigri. Á þvi hefir að vísu enginn vafi leikið, að Bandaríkin gætu sigrað Norður-Vietnam, en til iskamms tíma bjó Kína yfir Iþeim ótæmandi varaforða, sem ekki var unnt að vinna hug á án þess að- hieypa af ttað þriðju heimsstyrjöldinni. En nú hafa Hanoimenn eng an ótæmandi varaforða upp á að hlaupa, síðan að uppþotin í Kína komust í algleyming. Sov étríkin geta ekki hrundið banda rískum herafla í suð-austur As- íu, þar sem Kína er í milli, öskureitt og til alls búið. Hanoimenn enu nu í svip- aðri aðstöðu og kommúnistar í Grikklandi voru árið 194S. Þeir voru í raun og veru ósigr andi þar til að Tito lenti í deilunni við Stalín og lokaði landamærum Jugóslavíu fyr ir grískum skæruliðum. Þar höfðu beir ávallt getað endur nýjað bæði birgðir og baráttu- þrek, en um leið og þeir misstu þetta hæli varð skæru hernaður þeirra í Grikklandi í raun og veru vonlaus. ÞESS sjást mjög glöggt merki í Washington. að hin einstæða heppni okkar í Asíu hafi veitt okkur tækifæri og freisti okkar til að knýja Han- oimenn til uppgjafar, í stað friðar án sigurs, sem hefði orð ið niðurstaðan að öðrum kosti. Úrslitábarátta stríðsins fer nú fram í hugarleynum John- son' forseta sjálfs. Hann er margslunginn maður oe að ovi leyti alger andstaða dusks, sem er eins mikill einsteinungur og nokkur maður getur verið. En í brjósti Johnsons berjast að minnsta kosti tveir anda'- Annar er andi friðar og um- bóta, boðberi batnandi heims. IHinn er andi frumbyggjans, 'sem vill geta neglt skinn veiðidýrsins á vegg sinn, vill ávallt vera mestur, beztur og fremstur, eða or með öðrum orðum tignandi sigursældar.inn ar, sem William James nefndi tíkargyðjuna. Það er síðarnefndi andinn, sem nú freistar Johnsons, og á úrslitum heirrar glimu veltur allt of mikið til þess að ánægjulegt sé að hugleiða það.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.