Tíminn - 25.02.1967, Blaðsíða 12

Tíminn - 25.02.1967, Blaðsíða 12
I 12 ÍÞRÓTTIR TÍMINN ÍÞRÓTTIR LAUGARDAGUR 25. febrúar 1967 Gunnlaugur á vítateig. A vítateig í þættinum „Á vítateig" i blaðinu á morgun, birtum við bréf frá fyrirliða íslenzka lands liðsins í handknattleik, Gunn- laugi Hjálmarssyni, þar sem hann gerir ýmsar athugasemd- ir við málflutning Hallsteins Hinrikssonar' og Péturs Bjama- sonar um isL landsliðið. Gerir Gunnlaugur m.a. fyrirspurn til Hallsteins í 10 liðum. Enn um félaga- skipti Guðmundar Bréf til Íbróttasíðunnar og fleira Badmintonmót hjá KR í dag Badminton-deild KR gengst fyr- ir innanfélagsmóti í dag í KR- húsinu og hefst það kluíkkan 3. Keppt verður í einliða- og tví- ■liðaleik og einnig verður tvennd- arkeppni. Badminton-fólk KR er ihvatt til að f jölmenna. Félagaskipti Guðmundar Gísla- sonar hafa vakið athygli og sýn- ist sitt hverjum inn þau. ÍR-ingar eru að vonum Ieiðir yfir því að missa Guðmund úr sínum röðum, og hefur nú íþróttasíðunni bor- izt bréf frá ÍR-ingi, sem verður birt hér á eftir. En til þess að sjónarmið beggja megi koma fram náði íþróttasíðan tali af Guðmundi og skýrði hann í viðtali sitt sjón- armið. Að þessum tveimur þátt- um loknum, lætur undirritaður sitt álit í ljós. Byrjum þá á bréfi ÍR-ings: Bréf til íþróttasíðunnar „Reykjavík 22. febr. 1967. Það þykir vissulega tíðindum sæta, er menn skipta skyndilega um flokka eða félög. Það þótti því í fréttanæmara lagi er það spurðist í dag, að Guðmundur Gíslason hinn þjóðkunni sundgarp ur hefði axlað skinn sín og horfið úr sínu fyrrverandi félagi ÍR, þar sem hann hefur verið félagsmaður á annan áratug eða frá unga aldri og látið sig „reka“ yfir í Ármann. En all't hefur sínar ástæður, og þetta gerir Guðmundur eingöngu fyrir sitt gamla félag og er það sannarlega ekki fyrsta fórnin, sem ! hann færir á altari þess. Sam- 1 kvæmt því, sem dagblaðið Vísir hefur eftir Guðmundi í dag, er starfið nánast dautt (þ.e. sund- starfið) í ÍR og til þess að reyna að hreyfa við forráðamönnum fé- lagsins (ÍR) þá tekur Guðmundur upp þetta snjalla ráð, fer leiðar sinnar!1 Yfirgefur skútuna, sem hann mun sjálfur meira og minna hafa haft stjórn á undanfarin ár. Þetta er hvort tveggja í senn, röksamlega hugsað og íþrótta- mannsleg viðbrögð við vandanum. Fyrrverandi féíagi.*’ Viðtal við Guðmund. „Það hefur verið gert allt of mikið veður út af þessum félaga- skiptum mínum“, sagði Guðmund ur Gíslason, sundkappi, þe^ar við hittum hann að máli. „Eg var margsinnis búinn að benda for- ráðamönnum ÍR á, að meðan ég væri sjáifur keppandi, þá ætti ég erfitt með að sjá um rekstur sunddeildarinnar. Ég hef átt sæti í stjórn deildarinnar, en aldrei verið kosinn löglega í hana, því að aðalfundur hjá deildinni hef- ur ekki verið haldinn í mörg ár.“ Og Guðmundur hélt áfram: „Ég hef oft hugsað um félagaskipti, fyrst 1957, en alltaf lifað í von- inni um að ástandið myndi lag- ast. Vitaskuld þykir mér leiðin- legt, að svona skyldi fara, en ég átti ekki annars úrkosta. Og ég vil taka sérstaklega fram, að eng- inn í Ármann hvatti mig til fé- Iagaskipta, þess vegna hefði ég alveg eins getað farið yfir í ann- að féiag en Ármann. Um þá stað- hæfingu, að ég hafi tekið fleiri sundmenn úr deildinni yfir í Ár- mann, þá vil ég aðeins segja það, að þeir voru farnir á undan mér, ég fór síðastur." Að lokum. Eftir upplýsingum, sem íþrótta- síðan hefur aflað sér, þá munu nokkrir af forustumönnum ÍR hafa haft áhuga á að efla starfið innan sunddeildarinnar, en þær Aðalfundur Fram Aðalfundur Knattspyrnufélags- ins Fram verður haldinn í félags- heimilinu í dag og hefst klukkan 2 stundvíslega. Eru Framarar hvatt ir til að fjölmenna og mæta stund- víslega. Stjórnin. Guðmundur Gíslason ásamt sínum gamla þjálfara í IR, Jónasi Halldórssyni. tilraunir farið út um þúfur, þar sem ákveðnum hugmyndum var ekki fylgt eftir. Féíagaskipti, eins og nú hafa átt sér stað, eru alltaf leiðinleg, en svo virðist, sem Guðmundur hafi haft ærna ástæðu fyrir þeim. Framhaid á bls. 13. Sundþjálf- ari hjá ÍR Sunddeild ÍR hefur ráðið Ólaf Guðmundsson sem þjálfara deild arinnar. Byrjar Ólafur n.k. mánu- dagskvöld í Sundhöll Reykjavíkur. Nýir félagar eru. velkomnir. ÍR. Handbolti um helgina íslandsmótinu í handknattleik verður haldið áfram um helgina og m.a. leiknir nokkrir leikir í 2. deild karla. f kvöld verður leik- ið í Laugardalshöllinni og fara þá þessir leikir fram: 2. deiid karla, Keflavík-Þróttur og ÍR-Akureyri. í 2. fl. karla leika Valur-Haukar. Fyrsti leikur hefsi ki. 20.15 Mótið heldur áfram á sunnudaginu á sama stað kl. 14. Þá leika: 2. deild karla: Keflavík-Akureyri, KR -Þróttur. f 1. deild kvenna leika KR-Víkingur og í 2. fl. karla Fram-ÍR. Körfubolti á Sunnudaginn íslandsmeistaramótinu í körfu- knattleik verður haldið áfram sunnudaginn 26. febr. Leiknir verða tveir leikir í 1. deild. Leik- irnir eru: ÍKF-ÍR og ÍS-KR. Leikirnir verða háðir í Laugar- dalshölldnni og hefist keppnin kl. 20.15. Staðan í 1. deild er nú þessi: KR 3 3 0 0 244-137 6 ÍR 3 3 0 0 180-132 6 ÍKF 4 2 0 2 216-245 4 KFR 4 2 0 2 272-296 4 Á 4 1 0 3 182-205 2 ÍS 4 0 0 4 215-294 0 f heimsókn til yngsta ungmennafélagsins Ungmennafélagið Víkverji, er yngsta ungmennafélagið á íandinu og eina ungmennafé- Iagið í Reykjavík. Fyrir nokkr- um dögum brugðum við okkur á glímuæfingu hjá Víkverjum. Og þannig hittist á, að þá háðu Vikverjar sína 3ju bik- arglímu. Margt var um mann- inn í fþróttahúsi Jóns Þor- steinssonar, þar sem glírnau var háð undir stjórn Kjartans Bergmanns. Við hittum að máli formann Víkverja, Valdimar Óskarsson, og báðum hann að segja okkur frá starfsemi fé- lagsins. „Ungmennafélagið Víkverji, var stofnað í Reykjavík á ár- inu 1964. Félagið hefur mörg málefni á stefnuskrá sinni og vinnur á sama grundvelli og önnur ungmennafélög í land- inu. Með stofnun þessa félags var tilgangurinn sá, að gefa fólki hér í höfuðborginni kost á að starfa innan vébanda ung- mennafélagshreyfingarinnar, en einnig hafa félagsmenn annarra ungmennafélaga rétt til að sækja fundi og taka þátt Keppendur í bikarglímu Víkverja ásamt Valdimar Óskarssyni, formanni félagsins, t. v. og Kjartani Berg- mann, þjálfara, t. h. (Tímamynd Róbert) í starfsemi okkar, m.a. ?r ung ég geta þess, að margir eidri — Hvert er helzta verkefni mennafélögum heimil þáttaka ungmennafélagar hafa stutt félagsins? í glímuæfingum félagsins. Vil starfsemi félagsins frá upphafi.11 — Eitt af megin viðfangs- efnum þess hefur verið glimu- kennsla og þátttaka í glímu- mótum. Hafa æfingarnar ver- ið mjög vel sóttar, og frá byrjun hefur verið lögð á- herzla á fallega og drengilega glímu. Kjartan Bergmann hefur verið kennari félagsins frá upp hafi, en núna annast kennsl- una ásamt Kjartani, Skúli Þor- leifsson. — Þið hafið auðvitað áhuga á að auka starfsemina, þegar fram í sækir? , — Já, einkum höfum við á- huga á að auka hið félags- lega starf. En við búum við erfiðar aðstæður, oyrjunar.örð- ugleika skulum við kalla það. Fjárhagurinn er slæmur og við eigum ekki eigið húsnæði, þar sem við gætum haldið fundi. Glímuæfingarnar eru aaidnar i íþróttahúsi Jóns Þorstemssonar en við höfum leigt húsnæði fyrir fundi okkar annars stað- ar. — Hvernig hefur starfsem- La gengið þessi fyrstu 2—3 ár? — Vel, ekki get ég sagt ann Framhaid á bls. 13.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.