Alþýðublaðið - 08.01.1985, Blaðsíða 1
Þriðjudagur 8. janúar 1985
4. tbl. 66. árg.
Amfetamín-
neyslan eykst
Neyslumunstur fíkniefna virðist
vera að breytast hér á íslandi.
Kannabisefnin halda sínu striki en
aftur á móti virðist vera veruleg
aukning á neyslu amfetamíns og
kókaíns. Auk þess virðist LSD vera
komið aftur á markaðinn.
Þetta kom fram í viðtali við Arn-
ar Jensson, fulltrúa hjá fíkniefna-
lögreglunni. Fíkniefnalögreglan
hefur nú tekið saman tölur um þau
fíkniefni, sem hún Iagði hald á á sl.
ári.
Af kannabisefnum var mest tek-
ið af hassi 6,2 kg. Af hassolíu var
tekið hálft kíló og 65 gr. af maríjú-
ana. Einnig var lagt hald á 112 marí-
júanaplöntur, sem einstaklingar
höfðu ræktað í heimahúsum og 850
st. af maríjúanafræjum.
þess sem það væri mjög í samræmi
við reynsluna í nágrannalöndum
okkar. Sömu sögu væri að segja um
LSD. Þess hefði ekkert orðið vart
hér í mörg ár en nú væri hætta á að
það kæmi hingað, einsog gerst
hefði i nágrannalöndum okkar
undanfarið.
En hverjir eru það sem standa í
þessu smygli? Eru það neytendurnir
sjálfir, eða einhverjir aðrir?
Arnar sagði að í flestum tilvikum
væru það einstaklingar, sem not-
uðu þessi efni sjálfir, sem stæðu í
þessu. Oftast fjármögnuðu þeir
sjálfir kaupin, en þó væri eitthvað
um að hópar tækju sig saman og
sendu einn mann til að versla fyrir
sig.
Landsmenn k vöddu jólin með brennum í blíðskaparveðri nú á sunnudagsk völdið. Var óvenjulega mikið
um brennur þetta þrettándakvöld á suðvesturhorninu en ástœðan var sú að ekki gekk að tendra þessa
bálkesti á gamlárskvöld vegna óveðurs. Sömu sögu er að segja um flugeldasýninguna. Hún var óvenju-
mögnuð miðað við venjuleg þrettándakvöld. Mynd þessi var tekin við Hrafnistu í Hafnarfirði, en þar
logaði glatt á sunnudagskvöldið.
Ráðherrar fá fimm-
föld keimaralaun
Lagt var hald á 1,2 kg. af amfeta-
míni og 18,5 gr. af kókaíni. Einnig
náði fíkniefnalögreglan stórri send-
ingu af LSD pillum, eða 775
skömmtum á einu bretti. Af öðrum
pillum 1104 st. gerð upptæk.
Árið 1983 voru 21 kg. af hassi
gerð upptæk, en þar voru í tvær
stórar sendingar, önnur rúm 10 kg.
Amfetamínið hefur tvöfaldast frá
því 1983 en þá voru tekin 624 gr.
Sagði Arnar að þessi aukning á
amfetamíni væri í samræmi við
aðrar upplýsingar, sem þeir hefðu
um neyslu fíkniefna hér á landi, auk
Ástandið í sjávarútvegsmálum
landsmanna er með versta móti um
þessar mundir og þá einkum hjá
þeim útgerðarfyrirtækjum sem
gera út nýjustu skipin og hjá frysti-
húsunum. Má segja að ástandið sé
jafn slæmt um land allt, en þó mis-
munandi, þannig þykir það einna
hróplegast á Suðvestur-horni lands-
ins.
Víða um land eru frystihúsin lok-
uð og atvinnuleysi mikið, en það er
ekki óalgengt á þessum tíma árs.
Hins vegar segja heimildamenn
blaðsins að mörg húsin munieiga
mjög erfitt með að fara af stað aft-
ur. Fiskverkandi á Suðvestur-horn-
inu orðaði það svo að frystihúsin
Sl. laugardag ákvað kjaradómur
laun þeirra ríkisstarfsmanna, sem
samkvæmt lögum frá því í mai
gerðu réttast í því að Ioka alveg.
Sagði hann að enginn grundvöllur
væri fyrir áframhaldandi rekstri
margra húsanna og skilningsskort-
ur áberandi hjá stjórnvöldum.
Mörg húsanna hefðu getað sloppið
fyrir horn tímabundið með skuld-
breytingunum, en það væri hins
vegar ekkert annað en eignaupp-
taka. Á þessu svæði hefur orðið
mikill samdráttur í sjávarútvegi
undanfarin ár. T.d. eru nú aðeins 3
hús í gangi í Keflavík, en voru
lengstum 6—7. Þau hús sem enn
væru uppi þar í bæ eiga að sögn
kunnugra mjög erfitt með að opna
aftur eftir jólahlé.
Einnig ntá nefna að á Seyðisfirði
1984, voru felldir undir kjaradóm.
Meðal þeirra sem fengu launa-
hækkun á laugardaginn eru forseti
er ástandið bagalegt og eins og
flestir vita er útlitið allt annað en
bjart hjá bæjarútgerðunum í
Reykjavík og Hafnarfirði. En
ástandið er þó misjafnt sem áður
segir, þannig má nefna að á Vest -
f jörðum er það með skárra lagi og
skortur á vinnuafli, sem og í Hrað-
frystistöðinni í Reykjavík.
„Það er ekkert útlit fyrir að Al-
þingi og ríkisstjórn telji sig þurfa að
standa í málefnum sjávarútvegs-
ins“ sagði einn viðmælanda blaðs-
ins og sagði að það eina sem bjarg-
að hefði fjölmörgum frystihúsum
hefði verið góð síldveiði í haust,
sem nú horfðu hins vegar fram á
Framhald á bls. 2
íslands, ráðherrarnir, forseti
Hæstaréttar og aðrir hæstaréttar-
dómarar, ríkissaksóknari, ríkis-
sáttasemjari, biskup íslands, ráðu-
neytisstjórar, þingmenn, sýslu-
menn, bæjarfógetar og ýmsir aðrir
háttsettir starfsmenn ríkisins.
Launahækkanirnar eru frá um
það bil 25% til rúmlega 35%.
Laun forseta íslands eru eftir
hækkunina tæp 105.000 kr. á mán-
uði. Fo'rsætisráðherra er með rúm
100.000 þúsund en aðrir ráðherrar
tæp 95.000, þar með er reiknað
þingfararkaup. Þingfararkaupið er
tæpar 57.000 kr. á mánuði eftir
hækkunina en auk þess hafa þing-
menn ýmsar aðrar tekjur, mismikl-
ar eftir hvaða kjördæmum þeir eru
úr. Þeir fá allir 8.300 kr. á mánuði
frá 1. október 1984 sem húsnæðis-
kostnað. Dvalarkostnaður á dag
um þingtímann er 315 kr. Dvalar-
kostnaður í kjördæmi 53.300 kr. frá,
1. okt. miðað við ársgreiðslu.
Kostnaður við ferðalög í kjördæmi
er mismunandi eftir kjördæmum. í
Reykjavíkurkjördæmi eru það
3.450 kr. á mánuði. í Reykjanes-
kjördæmi 6.350 kr. og í öðrum
kjördæmum 10.700 kr. á mánuði.
Forseti Hæstaréttar hefur nú
87.848 kr. á mánuði en aðrir hæsta-
réttardómarar rúmar 82.000 kr.
Ríkissaksóknari og ríkissáttasemj-
ari eru með svipuð laun og hæsta-
réttardómararnir. Biskup íslands er
með rúmar 70.000 kr. en ráðu-
neytisstjórar tæpar 70.000 kr. Allar
þessar tölur hækkuðu um 800 kr. í
desember.
Þegar þessi laun eru skoðuð í
ljósi þeirra launa, sem almennt eru
greidd á vinnumarkaðinum fyrir
sambærilega vinnu, geta þau varla
talist há, en þegar þau eru borin
Framhald á bls. 2
Rofar til á
Seyðisfirði
Atvinnuleysi hefur verið talsvert
á Seyðisfirði allt frá því Fiskvinnsl-
; an þar í bæ lokaði í ágúst síðastliðn-
um. Undanfarna mánuði hafa
70—90 manns verið á atvinnuleysis-
skrá.
Nú virðist hins vegar ætla að rofa
til hjá Seyðfirðingum, því Fisk-
vinnslan hefur selt annað skip sitt
innan bæjar og hefur staða fyrir-
tækisins batnað við það og mun
húsið hefja vinnslu á ný næstu
daga. Er fastlega reiknað með því
að það verði til þess að all flestir
hinna atvinnulausu fái vinnu, enda
hafði flest það fólk starfað við fisk-
vinnslu.
Alvarlegt ástand í sjávarútveginum:
„Húsin gerðu rétt-
ast 1 að loka“
Fundaröð Jóns Baldvins á Austfjörðum:
Fjölmennir og fjörugir fundir
„Héðan er allt gott að frétta;
sumarstemmning og gott hljóð í
okkar fólki,“ sagði Jón Baldvin
Hannibalsson formaður Alþýðu-
flokksins í símtali við Alþýðublað-
ið í gær, en eins og blaðið hefur
greint frá var Jón Baldvin með
nokkra opna fundi á Austfjörðum
um helgina og verður framhald á
þeim á næstu dögum.
Egilsstaðir voru fyrsti viðkomu-
staður formanns Alþýðuflokksins
og samferðamanna hans um helg-
ina, Guðmundar Oddssonar bæjar-
fulltrúa í Kópavogi og Ámunda
Ámundasonar, sem sér um undir-
búning fundanna, auglýsingar og
fleira. Á Egilsstöðum komu til
fundarins um 70 manns, enda þótt
fjölmennt bridgemót hefði verið í
gangi á staðnum á sama tíma. Að
sögn heimamanna var fundurinn
hinn fjörugasti og stóð langt fram á
kvöld, enda fundarmenn óðfúsir að
heyra viðhorf alþýðuflokksmanna
til hinna fjölmörgu brýnu mála er
nú brenna á þjóðinni.
Á laugardeginum var síðan fund-
ur á Seyðisfirði og urðu þar gagn-
legar umræður, enda þótt fundur-
inn hefði verið fremur fámennur.
Á Neskaupstað var aftur á móti
toppaðsókn á sunnudeginum, þeg-
ar um 70—80 Norðfirðingar komu
saman til að hlýða á formann Al-
þýðuflokksins og Guðmund Odds-
son í Egilsbúð. Þar var stemmning
með albesta móti, að sögn heimild-
armanna þar eystra; fyrirspurnir
fjölmargar og lýstu margir fundar-
manna yfir von sinni og trú á það,
að Alþýðuflokkurinn, einn flokka,
megnaði að breyta afleitri stöðu
þjóðarbúsins til hins betra, enda
hefði ríkisstjórnin beðið skipbrot.
Á sunnudagskvöld var svo Fá-
skrúðsfjörður áningarstaður al-
þýðuflokksmanna og á fundi þar
voru um 40 manns samankomnir.
Milli funda hefur Jón Baldvin
húsvitjað á miðfjörðunum, svo og
komið við á vinnustöðum. Þá Iagði
hann og leið sína suður eftir og kom
á vinnustaði á Breiðdalsvík og
Stöðvarfirði.
Fundalotunni er langt í frá lokið ■
þar eystra, því í gærkvöld var Jón
Baldvin með opinn fund á Eski-
firði, í kvöld á Reyðarfirði, á mið-
Framhald á bls. 2