Alþýðublaðið - 25.01.1985, Blaðsíða 1
alþýöu
Jón Baldvin:
Þetta er bara byrjimin
Föstudagur 25. janúar 1985
„Þetta eru einhver mestu um-
skipti sem orðirt hafa i íslenskri
pólitík á svo skömmum tíma og
svipuð og áttu sér stað 1978. Það er
ýmislegt mcrkilegt í þessum könn-
unum, en hvað Alþýðuflokkinn
17. tbl. 66. arg. varðar þá er þetta bara byrjunin,"
sagði Jón Baldvin Hannibalsson,
formaður Alþýðuflokksins í sam-
tali við Alþýðublaðið um niður-
stöður skoðanakannana NT og HP.
„Það er ýmislegt í jjessu sem
maður staðnæmist við. í fyrsta Iagi
þessi snöggu umskipti á skömmum
tíma, en það eru ekki iiðnir nema
tveir mánuðir frá því að umskipti
Miðurstöður skoðanakaimana v. fylgi st.jórnmálaflokka (þeir sem t6ku afstöðu)
Kosn. apr.83 DV í okt 83 DV í mars 84 H V í apr 84 DV í maí 84 HV í jál84 DV í sep84 DV í )kt84 NT í nóv84 NT í jan85 HP í Jan85
Alþýðuflokkurinn 11.1% 8.2!*; 9.4% 6.8% Q.4% 6.4% 9.8!*; 6.2% 8.9% 15.8% 15.3%
Framsóknarflokkur 19.0 14.8 17.0 17.1 18.4 14.7 13.6 15.8 23.6 18.2 17.8
Bandalag .jafnaðarm. 7.3 3.7 2.7 3.7 3.7 6.2 5.4 8.4 7.o 6.7 5.4
Sjálfstæðisflokkur 39.2 47.9 51.1 52.1 48.1 48.8 44.6 40.4 37.8 36.4 39.7
Alþýðubandalag 17.3 18.o 14.9 9.3 15.6 14.9 20.3 19.9 13.o 15.o 14.9
Samt/ Kvennalista 5.5 7.2 4.9 9.2 5.8 8.1 6.3 9.o 9.4 7.9 6.5
Annað. O . 0 o.2 O . 0 1.8 0.0 o.9 0.0 o.3 o.3 0.0 o.2
Samkvœmt skoðanakönnunum NT og HP:
Fylgi Alþýðuflokksins tvöfaldast
Framsóknarflokkur tapar mestu og stuðningsmenn ríkisstjórnar eru í minnihluta.
Niðurstöður tveggja skoðana-
kannana sem birtust í gær benda
eindregið til þess að straumur kjós-
enda liggi ótvírætt til Alþýðu-
flokksins. í skoðanakönnun Nú-
tímans sem framkvæmd var á fjór-
5. áfanga
Kvíslárveitu
frestað
Landsvirkjun hefur ákveðið að
fresta S. áfanga Kvíslárveitu um
óákveðinn tíma. Þetta er gert í
framhaldi af endurskoðun á orku-
spá Landsvirkjunar.
Vissulega hefur orkuspárnefnd
ekki lokið endurskoðuninni enn, en
samkvæmt framreikningi orku-
spárinnar bendir allt til að það megi
fresta Blönduvirkjun líka um eitt
ár, og er þá miðað við að óráðstöf-
uð umframorka, sem hlaupa má
uppá, sé hin sama og nú er í orku-
kerfi Landsvirkjunar. Þrátt fyrir
það vill Landsvirkjun ekki að svo
stöddu fresta Blöndu um eitt ár, og
mun bíða með að taka tímasetningu
Blöndu til frekari athugunar þar til
orkuspáin liggur endanlega fyrir í
vor og horfur í stóriðjumálum hafa
skýrst.
Samkvæmt þessu lækkar sú upp-
hæð, sem ætlað var að veita til
framkvæmda- og rannsóknaráætl-
unar hjá Landsvirkjun úr 1,2 millj-
örðum króna í 950 milljónir, á
þessu ári.
6. des. 1984 var ákveðið að lækka
upphæðina, sem verja átti til þess-
ara hluta úr 1,4 milljarði í 1,2. Á
rúmum mánuði hefur því þessi upp-
hæð lækkað um nærri hálfan millj-
arð króna.
um klukkustundum í fyrrakvöld
fékk Alþýðuflokkuriun fylgi 15,8%
þeirra sem afstöðu tóku, en í skoð-
anakönnun Helgarpóstsins fékk
flokkurinn 15,3% fylgi.
Úrtak NT var 600 manns en 800
manns hjá Helgarpóstinum. Ekki
greinir NT frá hlutfalli þeirra sem
óákveðnir voru eða neituðu að
svara, en það hlutfall var hátt hjá
HP eða tæplega 45% miðað við allt
landið. Er þetta svipað óvissuhlut-
fall og verið hefur í könnunum und-
anfarna mánuði. Óvissuhlutfall
þetta rýrir mjög gildi kannananna,
en þó má Ijóst vera að skoðana-
kannanirnar veita okkur vísbend-
ingu um hver grundvallar þróunin
er um þessar mundir. Straumurinn
liggur til Alþýðuflokksins, hann er
sá eini sem fær í þessum könnunum
meira fylgi en í síðustu kosningum,
ef frá er talin óveruleg aukning til
handa Kvennalistanum.
I síðustu kosningum hlaut Al-
þýðuflokkurinn 11,7% atkvæða, en
í könnunum dagblaða frá október
1983 til nóvember 1984 var hann
með 6—10% fylgi (að meðaltali um
8%). í þessum nýjustu könnunum
er fylgið nú i janúar komið upp í
15—16% og hefur því um tvöfald-
ast frá síðasta ári.
í síðustu kosningum hlaut Fram-
sóknarflokkurinn 19% atkvæða,
en í könnunum síðustu mánuði
14—18% og fylgið nú samkvæmt
þessu 18% eða svipað og i síðustu
kosningum.
í síðustu kosningum hlaut
Bandalag jafnaðarmanna 7,3% at-
kvæða, en í könnunum síðustu
mánuði 3—8% og nú 5,5—6,5%.
I síðustu kosningum hlaut Sjálf-
stæðisflokkurinn 39,2% atkvæða,
en í könnunum síðustu mánuði 40
—52%, og fylgið er nú samkvæmt
þessu á bilinu 36—40%.
í síðustu kosningum hlaut AI-
þýðubandalagið 17,3% atkvæða,
en í könnunum síðustu mánuði hef-
ur fylgið verið flöktandi, 9—20%
og á nú að vera samkvæmt þessum
tveimur könnunum um 15%.
í siðustu kosningum hlaut
Kvennalistinn 5,5% atkvæða, en í
kðnnunum síðustu mánuði 5—9%
og er nú á bilinu 6,5—8%.
Samkvæmt útreikningum Helg-
arpóstsins, þar sem miðað er við 63
þingmenn, yrði þingmannaskipt-
ingin svofelld:
Alþýðuflokkur 10 þingmenn,
Framsóknarflokkur 11, Bandalag
jafnaðarmanna 4, Sjálfstæðis-
flokkur 25, Alþýðubandalagið 9 og
Framh. á bls. 2
urðu á flokksþingi Alþýðuflokks-
ins í nóvember. Allt fram að þeim
tíma sýndu skoðanakannanir
flokkinn vera með 6-8% fylgi þeirra
sem tóku afstöðu.
I öðru lagi blasir við samkvæmt
þessu að Alþýðuflokkurinn er nú
þegar orðinn stærsti stjórnarand-
stöðuflokkurinn. Um leið hefur
það gerst í fyrsta skipti í þessum
könnunum undanfarna mánuði að
Alþýðuflokkurinn er stærri en Al-
þýðubandalagið.
í þriðja lagi kemur í ljós að talað
er um að Alþýðuflokkurinn hafi nú
mjög mikið fylgi úti á landi, en veiki
punkturinn hefur einmitt hingað til
verið sá, að flokkurinn hefur verið
kallaður Faxaflóaflokkurinn og
hefur nú engan þingmann í fjórum
kjördæmum landsbyggðarinnar. Sé
þetta rétt sýnir þetta fram á gífur-
legan styrk flokksins.
1 fjórða lagi er til að taka að við
erum ekki byrjaðir á okkar herferð
á höfuðborgarsvæðinu, en þegar
hún er komin á fulla ferð er ekki að
efa að árangurinn verði góður.
Loks má það heita merkiiegt að
jafnaðarmenn, en þá á ég við Al-
þýðuflokkinn og Bandalag jafnað-
armanna, eru þegar komnir með
um 21% fylgi yfir landið og reyndar
23-25% fylgi í Reykjavík og
Reykjaneskjördæmi. Ég minnist
þess að þegar við á flokksþinginu
sögðum að við stefndum að nýju
sameiningarafli jafnaðarmanna
með 25-30% fylgi, þá brostu ýmsir
út í annað. En nú er þetta ekki frá-
leitara en svo að þeir flokkar sem
kenna sig við jafnaðarstefnuna eru
þegar komnir yfir 20% og þegar allt
verður komið í gang á höluðborg-
arsvæðinu er fyllilega raunhæft, ef
menn snúa bökum saman, að í ná-
inni framtíð verði til jafnaðar-
mannaflokkur með yfir 30% fylgiþ
sagði Jón Baldvin.
Þingflokkur Alþýðuflokksins um
atvinnuleysi fiskverkunarfólks:
Stjórnvöld
hafa brugðist
Þingflokkur Alþýðuflokksins
vekur athygli á því að sú staðreynd
að hundruð verkamanna og verka-
kvenna í fiskiðnaði eru nú atvinnu-
laus og hafi verið svo lengi sýni
glöggt hve réttindi fiskverkunar-
fólks eru bágborin.
Þessi staðreynd staðfestir þann
reginmun sem er á atvinnuöryggi
hinna ýmsu stétta og starfshópa í
þjóðfélaginu. Verkafólk í fiskiðn-
aði sætir 7 daga uppsagnarfresti og
býr við mikið öryggisleysi á vinnu-
Framhald á bls. 3
Er ríkisstjórnin að
ganga í barndóm?
„Þingflokki Sjálfstæðisflokks-
ins er ekki treystandi fvrir neinu
plaggi,“ sagði Steingrímur í NT.
Ekki rétt að ræða tillögur Stein-
gríms í fjölmiðlum, sagði Geir i
sama blaði. „Ég vil ekki tjá mig
um þetta. Þetta er fáránlegt,"
sagði Árni Johnsen í Alþýðublað-
inu í gær. „Ýmsir gætu litið í eigin
barm,“ sagði Ólafur G. Einarsson
í Mogganum í gær.
Allar þessar yfirlýsingar tengj-
astauðivitað frásögn Moggans af
tillögum, sem forsætisráðherra
lagði fyrir þingmenn stjórnar-
flokkanna í síðustu viku. Einhver
þingmanna Sjálfstæðisflokksins
hafði lekið þessu í Moggann og
hann vitaskuld gert sér mat úr því.
í Morgunblaðinu í gær er viðtal
við Ólaf G. Einarsson, formann
þingflokks Sjálfstæðisflokksins,
sem forsætisráðherra segir að
ekki sé treystandi. Honum sárnar
vitaskuld ummæli Steingríms.
Þar sem hann er formaður þing-
flokksins finnst honum Stein-
grímur beina ásökun sinni að sér.
Hann biðst alfarið undan því að
hafa látið tillögurnar af hendi og
á einhvern kyndugan máta tekst
honum að snúa svo út úr ásökun
forsætisráðherra, að allt eins sé
líklegt að lekinn í Moggann sé
kominn frá þingmönnum Fram-
sóknar.
Um sjálfar tillögurnar hefur
hann það helst að segja, að það sé
engum til góðs að dreifa svona
ófullkomnum plöggum, sem enn
eru á vinnslustigi, meðal þing-
flokkanna, að svona tillögur eigi
ekki að ræða fyrr en þær eru bet-
ur mótaðar en þær voru í þessu
tilviki hjá forsætisráðherra.
í lok viðtalsins hafði Ólafur
þetta innlegg í umræðuna: „Ann-
ars sýnist mér vegna ásakana for-
sætisráðherra, að ýmsir gætu litið
í eigin barm í sambandi við frá-
sagnir af því sem er að gerast hjá
ríkisstjórninni. Nefni ég þar engin
nöfn og ekki einu sinni fyrsta staf-
inn.“
Einsog sjá má á þessum um-
mælum, er umræðan nú á milli
ríkisstjórnarflokkanna að kom-
ast niður á svipað stig og tiðkast á
leikskólum.
Nú spyrja landsmenn sig fullir
eftirvæntingar, hvenær ætli
mennirnir komist á bleiustigið,
mennirnir virðast hvort sem er
hafa álíka mikið til málanna að
leggja og kornabörn, sem hjala
dadadada. Ríkisstjórnarsam-
starfið er orðið elliært og á góðri
leið með að ganga í barndóm.
Hvenœr opnar leikskóli þjóðarinnar, spurði barnið á útifundi BSRB á
Lœkjartorgi, í verkfallinu í haust. í Ijósi umrœðunnar á milli ríkis-
stjórnarflokkanna i dag, kemur manni þessi spurning barnsins ekkert
á óvart.