Alþýðublaðið - 30.01.1985, Page 2
2
Miðvikudagur 30. janúar 1985
RITSTJORNARGREIN^
Alþýðuflokkurinn næststærsti
flokkur þjóðarinnar
Alþýðuflokkurinn er orðinn næststærsti
flokkur þjóðarinnar og afgerandi forystuflokk-
ur stjórnarandstöðunnar, samkvæmt niður-
stöðum skoðanakönnunar DV, sem birt var í
gær. í þessari könnun fékk Alþýðuflokkurinn
hvorki meira né minna en 20,1% atkvæða og
jafngildir það 13 þingmönnum.
í öilum aöalatriðum staðfestir DV þær niöur-
stöður, sem Helgarpósturinn og NT fengu út úr
sínum könnunum í síðustu viku. DV-könnunin
sýnir að fylgi Alþýðuflokksins er enn vaxandi.
Stjórnarflokkarnirtapabáðirverulegafylgi og
andstaðan í garð núverandi ríkisstjórnar eykst
sífellt. í öllum undanförnum könnunum hafa
andstæðingar ríkisstjórnarinnar verið í rífleg-
um meirihluta, enda þótt núverandi ríkisstjórn
hafi 37 þingmenn af 60 að baki. Sú staðreynd
ætti að vera aðstandendum ríkisstjórnarinnar
ærið umhugsunarefni.
Jón Baldvin Hannibalsson formaður Alþýöu-
flokksins hefur bent á það að skoðanakönnun
DV sýni Alþýðuflokkinn í stórsókn; sambæri-
legri þeirri er var fyrir kosningarnar 1978. Hann
bendir þó jafnframt á, að staðan sé nú að því
leyti ólík, að núna séu tveir nýir flokkar komnir
til sögunnar sem ekki voru til staöar 1978. Ann-
ar þessara flokka kennir sig við jaf naðarstef nu.
Samanlagt hafa Alþýðuflokkurinn og Bandalag
jafnaðarmanna 26,1% fylgi og 16 þingmenn.
Segir Jón Baldvin réttilega að það sé lang-
mesta fylgi sem jafnaöarmenn hafa nokkru
sinni haft.
Það ereftirtektarvert hversu Alþýðubandalag-
ið ber skarðan hlut frá borði í þeim könnunum,
sem birtar hafa veriö uþþ á siðkastið. Alþýðu-
bandalagið fengi nú aðeins 8 þingmenn sam-
kvæmt DV-könnun og hefur samkvæmt því taþ-
að tveimur. Samtök um kvennalista hafa aug-
Ijóslega hirt umtalsvert fylgi af Alþýðubanda-
laginu; staða Kvennalistans hefur verulega
styrkst.
Stórsókn Alþýðuflokksins á síðustu mánuð-
um hefur orsakað ótta hjá hinum flokkunum.
Þeir leita með logandi Ijósi að einhverjum
óhreinindum til að velta Alþýðuflokknum uþp
úr. Ófrægingarherferð á hendur jafnaðarmönn-
um og forystumönnum þeirraer þegarhafin og
mun halda áfram á næstunni. Það mun þó
engu breyta, því landsmenn eru orðnir þreyttir
á þeirri lágkúru, sem einkennt hefur pólítikina
ailtof lengi og byggst á snakki um allt og ekk-
ert, litlum framkvæmdum og ístöðuleysi. Fólk
vill hreinar línur, dirfsku til að taka á aðsteðj-
andi vandamálum. Landsmenn vilja að stjórn-
málamenn láti hendur standa fram úr ermum
og að þeir leggi til atlögu við þær meinsemdir
sem grafið hafa um sig í þjóðfélagi okkar.
Launafólk vill réttilega að jöfnuð sé tekju- og
eignaskipting í landinu. Það vill einnig að
gengið sé hart fram í baráttunni gegn skatt-
svikum þannig, að lúxusliðið, forréttindahóp-
arnir í Stigahlíðum þjóðfélagsins, verði látið
greiðasinn skerf til samneyslunnareins og all-
ur þorri þjóðarinnar.
Alþýðuflokkurinn hefur lýst stefnumiðum
sínum á hreinskilin og beinskeyttan hátt. Þar
eru engin gylliboð eða frómar óskir byggðar á
óraunhæfum vonum. Alþýðuflokkurinn kemur
til dyranna eins og hann er klæddur. Hefur lýst
stöðunni eins og hún raunverulega er; og ekki
er það glæsileg mynd sem birtist þegar litið er
yfir ástand þjóðmála. En umfram allt annað
hefur Alþýðuflokkurinn lagt fram skelegga og
markvissa stefnu I öllum helstu höfuömálum,
s. s. skattamálum, kjaramálum, húsnæðismál-
um, sjávarútvegs- og landbúnaðarmálum og
orkumálum. Farið er ítarlega ofan i saumana á
því hvernig standa skuli að endurreisninni. Að
undanförnu hefur formaður Alþýðuflokksíns
farið vítt og breitt um landið og lýst stefnumið-
um Alþýðuflokksins. Þeirrí kynningu á málum
flokksins verður haldið áfram með ýmsum
hætti. Aðalatriðið er, að þegar almenningur
hefur fengið tækifæri til að hlýða á og skoöa
tillögur Alþýðuflokksins, þá eykst fylgi flokks-
ins stórum skrefum. Það hefur þróun siðustu
mánaða vitnað um.
-GAS.
166% hækkun á
orkuverði á 5
ára tímabili
Starlsfólki KAKIK hefur fækk-
að um fjóróung á tveim árum. í árs-
byrjun 1983 voru starfsmenn fyrir-
tækisins 430, en þeim hafði fækkað
í 368 í hyrjun síðasta árs. I upphafi
ársins í ár voru þeir komnir niður í
336.
Meginástæðan fyrir þessari
fækkun er samdráttur í fram-
kvæmdum, mest vegna byggðalína,
en lagningu þeirra lauk sl. haust.
Þessar upplýsingar eru fengnar
úr nýútkomnu fréttabréfi Raf-
magnsveitna ríkisins. í fréttabréf-
inu kemur líka frant, að raforku-
verð frá Landsvirkjun til almenn-
Fréttabréf Raf-
magnsveitnanna
Rafmagnsveitur ríkisins hafa
byrjað útgáfu fréttabréfs, sem
koma mun reglulega út í framtíð-
inni.
Tilgangurinn er að veita öllum
sem áhuga hafa, sem gleggstar og
greinarbestar upplýsingar um starf-
semi Rafmagnsveitnanna, rekstur
þeirra og þjónustu, fjármál og
framkvæmdir.
Rafmagnsveitur ríkisins vilja
með þessu leggja sitt af mörkum til
nauðsynlegrar umræðu um orku-
mál í landinu.
í fyrsta fréttabréfinu er m. a.
ágrip af sögu og starfsemi Raf-
magnsveitnanna, fjallað er um
framkvæmdir sl. ár og gjaldskrár-
mál. Vegna þeirrar umræðu sem
orðið hefur um orkuverð að undan-
förnu er ástæða til þess að vekja
sérstaka athygli á grein á baksíðu
fréttabréfsins um breytingar á verði
á raforku til heimilishitunar sl. 5 ár.
Þar kemur m. a. fram, að miðað við
byggingarvísitölu hefur verðið til
notenda frá Rafmagnsveitum ríkis-
ins verið sem næst óbreytt á þessu
tímabili, þótt heildsöluverð raforku
frá Landsvirkjun hafí á sama skeiði
hækkað um 166 prósent.
ingsveitna hefur tæplega áttfaldast
í krónum síðan I. janúar 1980. Sé
miðað við vísitölu byggingarkostn-
aðar, þá hefur raunhækkun orku
frá Landsvirkjun verið um 166%.
Þessi hækkun kemur eðlilega
fram í því að smásöluverð rafmagn-
sveitnanna hækkar. Húshitunar-
taxtinn hefur t. d. hækkað um 62%
miðað við byggingarvísitölu.
Til að mæta þessari miklu hækk-
un til húshitunar og jafna aðstöðu-
muninn, var gripið til þess af
stjórnvöldum, að greiða niður raf-
orku til húshitunar. Þær niður-
greiðslur hafa haft það í för með sér
að húshitunarkostnaðinum hefur
verið haldið nær óbreyttum að
raunvirði.
Um 150 inanns munu sitja lands-
fund Bandalags jafnaðarmanna
um næstu helgi með fullum réttind-
um: Málfresli, tillögurétt, atkvæð-
isrétt og kjörgengi. Þetta er sá hóp-
ur sem skráði sig fyrir 21. janúar, en
á iandsfundinuin má búast við því
að verði einnig hópur manna er
skráðu sig eftir þann tíma. Það fólk
mun hins vegar ekki hafa atkvæðis-
rétt eða k jörgengi.
Að sögn Kristófers Más Kristins-
sonar, varaþingmanns BJ og eins
aðalskipuleggjanda landsfundarins
hefur bandalagið beint eða óbeint
verið í sambandi við um 500 manns
í tengslum við landsfundinn.
í könnun NT kemur fram vís-
bending um að BJ sé um þessar
mundir í talsverðri endurnýjun:
Rúmur helmingur kjósenda ykkar í
síðustu þingkosningum virðist ekki
Niðurgreiðslurnar nema nú rúm-
um 40% af orkuverðinu til rafhit-
unar. í fréttabréfinu segir að þessar
niðurgreiðslur séu óheppilegar, en
þó ef til vill eina leiðin í þessu til-
viki. Niðurgreiðslurnar hafa valdið
töluverðu misræmi milli taxta og
oft orðið til þess að skapa óánægju
meðai notenda. Eina vonin til að
leiðrétta þetta er að orkuverð
Landsvirkjunar til almennings-
veitna verði lækkað.
Þúsundir 1
af 60 eða 16 af 63. Fylgisaukningin
sem er enn í fullum gangi stenst því
fyllilega samanburð við kosninga-
sigurinn mikla 1978 og gæti hæg-
lega orðið mun meiri með sarna
áframhaldi.
í könnun DV kom hið sama í ljós
og í könnun NT, að konur eru til
muna fleiri í hópi hinna óákveðnu
og ætti því vægi kvenna í niður-
stöðutölum meðal þeirra sem af-
stöðu tóku að vera eitthvað of lítið.
Hins vegar er svarendum skipt jafnt
milli „Reykjavíkursvæðis" og
landsbyggðar, þegar nær væri að
vilja kjósa ykkur aftur, en í staðinn
virðist leita til ykkar fólk sem áður
fylgdi öllum hinum flokkunum.
Viröist þetta vera rétt og ef svo.má
búast við breytingum?
„Jú, þetta virðist vera rétt, það er
einhver hreyfing í gangi en hún hef-
ur ekki komið okkur á óvart. Ég
vona að þetta komi til með að hafa
sín áhrif, við höfum ekki áhuga á
því að bandalagið festist í einhverj-
um ákveðnum farvegi. Við viljum
einmitt að þar blási ferskir vindar.
Kannski hefur því fólk sem ekki
styður okkur iengur kosið okkur á
röngum forsendum eða finnist
við hreinlega hafa brugðist, þó
áherslan hafi í raun ekki breyst hjá
okkur. En þó rétt sé að ýmislegt
bendi til endurnýjunar þá er sarnt
vafasamt að velta sér um of upp úr
slíkum tölumí1
Bandalagið virðist ætla að festast
hafa hlutföllin ca. 60:40 „Reykja-
víkursvæðinu“ í hag. Þetta mis-
ræmi getur haft áhrif á fylgi flokka
upp á ca 1% (fyrir utan venjulega
óvissu). Hvað Alþýðuflokkinn
varðar mætti því draga /i—1% frá
vegna kynjamisræmisins (konur
styðja flokkinn í minna mæli), en á
hinn bóginn bæta Vi—1% við
vegna landshlutamisræmisins.
Jón 1
flokkar sem kenna sig viiýcþfnaðar-
stefnuna nú samkvæmt þessum töl-
um meira fylgi en jafnaðarmenn
hefðu nokkurn tíma haft.
„Okkar markmið og okkar
stjórnlist um það, að Alþýðuflokk-
urinn verði forystuafl vinstra megin
við miðju hefur því gengið upp.
Stjórnlist Alþýðubandalagsins hef-
ur hins vegar algjörlega brugðist og
það eru eðlileg viðbrögð svona
samtaka að bjóða upp á samstarfs-
viðræður undir slíkum kringum-
stæðum. Eitt það ánægjulegasta í
þessu er að kjósendur virðast hafa
tekið vel í það að gefa Framsóknar-
í sessi sem 6-7% flokkur. Eruö þið
ánægð með slíkt fylgi eða áttu von
á uppsveiflu í náinni fraintíð?
„Ég skal ekki segja. Ég hef trú á
því að við séum að boða pólitík 21.
aldarinnar, boða bragarhætti
næstu aldamótaára, en þó býst ég
varla við því að við náum meiri-
hluta fyrir aldamótin."
Á síðasta landsfundi var ákveðið
að hafa ekkert ákveðið skipulag á
ykkar starfi, en samkvæmt fyrir-
liggjandi gögnuni leggur þing-
flokkurinn til að upp komi lands-
nefnd, kjördæmisnefndir og að
formaður þingflokksins verði póli-
tískur talsmaður BJ. Er skipulags-
leysið á undanhaldi?
„Skipulagsleysi hefur aldrei verið
markmið í sjálfu sér. Við leggjum
áherslu á góð málefni, en erum ekki
að skipuleggja skipulagsleysi. Við
höfum hins vegar verið feimnir við
flokknum frí. Og Sjálfstæðisflokk-
urinn hefur greinilega tapað mjög
miklu fylgi frá því er kannanir
sýndu hann hvað sterkastan. Og
það mun saxast meira á fylgi hans
þegar við látum almennilega til
okkar taka á höfuðborgarsvæð-
inuj‘ sagði Jón.
Réttindi 1
um meðan svo er ástatt.
í greinargerð með frumvarpinu
segir m. a. að um 70% af skráðu at-
vinnuleysi sl. ár hafi verið hjá fisk-
verkunarfólki eða í störfum tengd-
um fiskvinnslu. Það hljóti að vera
alvarlegt áhyggjuefni að starfsfólk í
fiskvinnslu, sem er undirstöðuat-
vinnuvegur þjóðarinnar, skuli búa
við slíkt öryggisleysi umfram aðra
þjóðfélagsþegna og valdi það því að
fólk sæki úr atvinnugreininni, jafn-
vel þó það hafi margra ára starfs-
reynslu að baki. Slíkt hljóti að bitna
á atvinnugreininni og gæðum fram-
leiðslunnar. Það hljóti því að vera
hagsmunir þjóðarbúsins í heild að
bæta úr þessu ófremdarástandi.
skipulag með alls kyns píramíta.
Verið í nöp við fulltrúalýðræðið —
sem er tímaskekkja — og höfum
leitað leiða til að þjóna okkar
markmiðum án einhvers kerfis sem
verður til kerfisins vegna. Varðandi
þær tillögur að skipulagi sem verða
til umræðu, þá lítum við á þær fyrst
og fremst sem tilraunastarfsemi.
Við erum nú að skipuleggja okkur
frá einum landsfundi til annars, þó
ekki þannig að við breytum breyt-
inganna vegna. Og ég er ekki viss
um að þessar tillögur verði teknar
upp. Aðalatriðið er að BJ er fyrst og
fremst tilraun til að móta stórnmál
21. aldarinnar og við erum að þuml-
ungast í þá átt, enda ljóst að núver-
andi flokkakerfi á ekkert erindi í
hinu upplýsta fjölmiðlunarþjóð-
félagi sem er að taka viðý sagði
Kristófer.
Kristófer Már Kristinsson, BJ:
Boðum pólitík 21. aldarinnar